Vísir - 06.01.1975, Blaðsíða 5

Vísir - 06.01.1975, Blaðsíða 5
Vlsir. Mánudagur 6. janilar 1975. 5 ORGUN UTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND I MORGUN Umsjón Guðmundur Petursson t morgun voru bflarnir or&nir tveir, sem römbuðu á bránnl I Hobart i Tasmaniu. Þessi mynd sýnir greinilega, hve hætt fólkiö var komiö. Fjörir bil- ar fóru þó fram af, þegar bilstjórarnir náöu ekki aö stööva þá I tæka tiö. Indíánarnir króaðir Þessi mynd hér fyrir neöan var tekin úr lofti i morgun yfir Tasman-brúnni. 80 metra kafli brúarinnar hrundi niöur yfir skipiö, sem rekizt haföi utan i tvo stólpa og brotiö þá niöur. Féll allt niöur yfir skipiö, sem sökk undan farginu á auga- bragöl. jhL Bíllinn vó salt á heljarbrúninni 1,5 km brú hrundi, þegor skip rakst á stöplana og braut þá niður Skipið sökk undan farginu Það er talið, að um 20 manns hafi látið lifið, þegar flutningaskip rakst á og braut niður 1,5 km langa brú i Ho- bart i Tasmaniu. Froskmenn hófu leit i morgunsárinu i straum- þungu og isköldu fljót- inu, Deerwent, en strax i gærkvöldi höfðu fundizt lik fimm háseta á „Lake Illawarra” 7200 lesta skipinu, sem rakst á brúarstólpana. Tveggja manna er saknaö af skipinu til viðbótar og eins far- þega fjögurra bifreiða, sem sáust fara fram af brúarbrotunum og i fljótið. Skipiðhafði rekizt á tvo brúar- stólpa, molaö þá niður og um leiö hrundu þrjú lofthöf brúarinnar. Féll allt niður yfir skipið, sem sökk eins og steinn. Yfir brúna liggur fjögurra ak- reina bilbraut, og fjórir bilstjórar náöu ekki aö stöðva bila sina i tæka tiö, þegar þeir komu að tómu loftinu. Ekki var vitað ná- kvæmlega um fjölda þeirra, sem i bilunum voru, en 6 voru i einum að minnsta kosti, og er óttazt, að tylft manna hafi farizt með þeim. Ahöfn skipsins, sem fleygði sér i fljótið og synti I land (nema sjö menn), sá bilana steypast i fljót- ið. Gátu þeir ekki með neinu móti komið fólkinu til bjargar. Froskmenn fengu ekki séð bil- ana i vatninu I gærkvöldi fyrir iöuköstunum og náttmyrkrinu. Einum bilstjóranna, sem leið átti um brúna, áður en lögreglan kom og stöðvaöi umferðina, tókst að stöðva bil sinn á elleftu stundu. Vó hann þá salt á brotbrúninni. „Ljósin slökknuðu allt i einu á brúnni, þegar ég var á leið yfir. Ég hélt bara, að rafmagnið hefði farið og ók áfram eins og ekkert hefði f skorizt,” sagði ekillinn, Frank Manley, eftir á. „Þegar við komum upp á há- bunguna á brúnni, sá ég, hvar bill hafði stanzað — að likindum vegna bilunar — svo að ég dró úr ferðiimi. Skýndilega veinaði konan min: Brúin er farin! — Þá steig ég hemlana i botn, en of seint. Bill- inn fór nær hálfur fram af.” En það dugöi þó, og þau komust út. WALDHEIM UGGANDI UM S.Þ. Kurt Waldheim, fram- kvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, segist kvíða því, að eiginhagsmunahyggja og þjóðernisrembingur verði allsráðandi i fram- tiðinni. Þykir augljóst, að Waldheim hefur áhyggjur af þeirri álitsrýrö, sem orðið hefur á Sameinuöu þjóðunum siðasta misserið, og uggir, að hún leiöi til þess aö þessi alþjóðastofnun missi þau litlu áhrif, sem hún hafði. 1 viötali, sem birtist i júgóslav- nesku blaði, er fjallar um al- þjóöamál, segir Waldheim: „Það kann að fara svo, aö okkur verði á þau mistök að dæma þessa miklu tilraun (nefnilega Sameinuöu þjóöirnar) misheppnaða og ron- svik ein, og hverfa aftur til okkar fyrri eiginhagsmunahyggju og þröngsýni þjóöernisrembings- ins”. „Þetta val er þó ekki aöeins á valdi rikisstjórna einna, heldur allra borgara. Persónulega er ég sjálfur þeirrar skoðunar, — ef við litum raunsæjum augum á málið — að þarna sé þó ekki um neina valkosti aö ræöa. Nema að velja milli þess að komast af eöa tor- timast ella.” inni í klaustrinu Tveggja daga skærum lögreglu og Indíána, sem lagt höfðu undir sig yfir- gefið klaustur í Gresham í Wisconsin, linnti loks í morgun. Var þá gert hlé á skot- hríðinni og sett grið með aðilum, svo að yfirvöld gætu hafið samningavið- ræður við hina um- kringdu rauðskinna. Um 50 Indiánar af ættkvisl Menominee lögðu undir sig klaustrið snemma á nýársdag. Lögreglan fjölmennti á staðinn, þegar þetta fréttist, og hefur einangrað klaustriö. — Skipzt var á skotum, en enginn hefur hlotið sár i þessum skærum. Á laugardag var Indiána- stúlku hleypt út úr klaustrinu, en hún þurfti læknis með. Reyndist hún magaveik. Indiánarnir halda þvi fram, að klausturjörðin eða að minnsta kosti hluti hennar heyri þeim til. Heimta þeir, að hún verði nytjuö fyrir sjúkrahús eða einhversslags heilsuverndar- stöð.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.