Vísir - 06.01.1975, Síða 11

Vísir - 06.01.1975, Síða 11
Valur nálgast efstu liðin! Keppnin í 1. deild karla 1 ís- landsmótinu i handknattleik hófst á ný i gærkvöldi. Þá voru leiknir tveir leikir i Laugar- dalshöll og uröu úrslit þessi: Valur — Armann 22-13 IR — Grótta 24-25 StaBan er nú þannig: Fram 5 3 2 0 84-76 8 Haukar 6 4 0 2 116-104 8 FH 6 4 0 2 116-114 8 Vikingur 5 3 0 2 92-86 6 Valur 6 3 0 3 104-97 6 Ármann 6 3 0 3 99-109 6 Grótta 6 114 116-125 3 1R 6 0 1 5 113-129 1 Markahæstu leikmenn eru nú: HöröurSigmarsson, Haukum, 56/18 Björn Pétursson, Gróttu, 43/17 AgústSvavarsson,tR, 27/2 Stefán Halldórsson, Viking, 25/12 ViöarSImonarson.FH, 25/6 Geir Hallsteinsson, FH, 24/2 Einar Magnússon, Viking, 23/5 Jón Karlsson, Val, 23/8 PálmiPálmason, Fram, 23/12 Ölafur H. Jónsson, Val, 20 Næstu leikir veróa I iþróttahúsinu i Hafnarfirði á miðvikudagskvöld, 8. janú- ar. Klukkan 8.15 leika Grótta og Vikingur — siðan FH og Fram. —hsim. Klammer eykur forustu sína! Franz Klammer, Áusturriki, sigraði með yfirburðum i bruni i keppninni um heimsbikarinn i gær I Garmisch-Parten- kirchen I V-Þýzkaiandi. Hann er nú iang- efstur i stigakeppninni með 94 stig. Næst- ur er landi hans Werner Grissmann, sem varð annar I gær, með 55 stig, og handhafi heimsbikarsins, Piero Gros, er 3ji meö 50 stig. i svigkeppni kvenna sigraði Lise-Marie Morerod, Sviss, en aðeins 17 af 80 keppendum luku keppni. Anna-Maria Pröll og Cindy Nelson féllu báðar úr, svo röö efstu breyttist litið. Nánar verður sagt frá þessum mótum á morgun. —hsim. Sigur og tap Vestur-Þýzkaiand sigraöi Sviþjóð i landsleik I handknattleik i Minden á laugardag með 15-12 (10-8). Löndin léku aftur i gær i Neumuster og þá tókst Svium að sigra með 16-14. 1 hálfleik stóð þá 7-6 fyrir þjóðverja. —hsim. Sá sjötti í í Liege Standard Liege, lið Asgeirs Sigurvins- sonar I Belgiu, vann Beveren 1-011. deild I gær og er þaö sjötti sigurieikur liðsins i röö. En þaö vann þó ekki stig á efsta liöið, þvi Molenbeek sigraði Ostend 2-1 á úti- velli. A Spáni sigraði Real Madrid i stórlcikn- um mikla á leikveili sinum viö Barcelona 1-0 og jók þvi forskot sitt I fimm stig. Hitt Barcelona-liðið, Espanol, vann Atletico Madrid 1-0 og náði aftur öðru sæti. A ttaliu vann Lazio Juventus 1-0 i Róm aö við- stöddum 90 þúsund áhorfendum. Þar með er allt I spennu aftur þar — Juventus einu stigi á undan Lazio, meisturunum frá I fyrra. 1 Hollandi vann Fejenoord Twente 4-0, og jók forskot sitt þvf Haag og Eind- hoven gerðu jafntefli 1-1. Ajax vann MVV með 4-2. —hsim. Arni Indriöason, fyrirliði Gróttu, frlr á Hnu og Vilhjálmur Sigurgetrs- son brýtur á honum. Viti — eitt af mörgum, sem Árni fékk I leiknum. Ljósmynd Bjarnleifur. Valur hœkkar flugið - malaði Ármenninga! — Valsmenn nálgast nú efstu liðin eftir þrjá sigurleiki í röð. Léku sér að Ármenningum í fyrri hálfleik og unnu 22:13 Fyrirliði landsliösins, ólafur H. Jónsson, var i miklum ham i Valsliöinu gegn Armanni I Laug- ardalshöllinni i gærkvöldi. Hann beinlinis braut niöur upp á ein- dæmi alla mótstöðu Armenninga — skoraði fimm mörk hvert ööru fallegra fyrstu 20 mln. leiksins — en fór síöan hægar i sakirnar, þegar brautin var rudd. Þá varð Gisli Blöndal aðalógnvaldurinn og skoraði góö mörk. Sóknarleik- ur Vals er mun skarpari meö endurkomu Glsla. 1 heild lék Valsliðið sinn bezta leik I mótinu hingað til — en eftir- leikurinn var lika auðveldur eftir hina frábæru byrjun Ólafs. Ar- menningar brotnuðu bókstaflega niður — gerðu sig seka um fleiri villur en til þeirra hafa sézt i leik um langan tima. A það bættist, að Ragnar Gunnarsson, sá snjalli markvörður, átti sennilega sinn slakasta leik með Armanni frá upphafi — varði varla skot. Að visu var staða hans ekki öfunds- verð — en hve oft hefur Ragnar þó Dökkt útlit hjá IR-ingum eftir tap gegn Gróttu — Sitja nú einir eftir á botni 1. deildar án sigurs eftir 6 leiki Þaö var markaregn lokaminút- urnar i leik neöstu liöa 1. deildar i Laugardalshöllinni, en Gróttu tókst að verja þaö forskot, sem liðiö haföi náö og sigraöi með 25- 24. Spennan var mikil, ekki siður en mistökin —vaöiö beint upp og skorað — en sigur Gróttu gegn ÍR var verðskuldaöur. Það hefði ver- ið ljótt ef liðið hefði misst af stigi, þvi dómarar leiksins dæmdu 3-4 mörk af liöinu, þegar þeir blésu of fljótt I flautur slnar — biöu ekki eftir aö sjá hvernig brot þróuðust. Handknattleikur var ekki mik- ill I þessum leik taugaspennunnar — varnarleikur og markvarzla slök báðum megin eins og 49 mörk gefa vel til kynna. En skárra liðiö vann og maður er beinlínis undrandi á getuleysi 1R- liðsins — með alla þá „stórkalla” sem virðast vera I liöinu. En þar fellur ekkert saman — mistökin og kæruleysið yfirþyrmandi. Útlitið er nú vissulega dökkt hjá 1R — en þó allt of fljótt aö afskrifa liöið. Með hugarfarsbreytingu hjá leikmönnum gæti IR-liðið unnið svo til hvaða lið I siðari umferð. Grótta átti að vinna með meiri mun ef fljótfærni dómara hefði ekki komið til — en liðið þarf að finna svar við þvi, þegar stór- skytta þess, Björn Pétursson, er „tekinn úr sambandi”. IR-ingar gerðu það of seint I gær — aðeins lokakaflann — og leikur Gróttu var þá ráðvilltur. Björn er stór- hættulegur ieikmaöur — en fleiri áttu góðan leik I liðinu, einkum Arni Indriðason. Hann hefur tekið stórstlgum framförum slðan hann komst I landsliðið, og þó ' finnst manni stundum að hann geti beitt sér betur. Halldór Krist- jánsson lék mun betur en áður — eöa frá þvi I fyrsta leik mótsins, og Alti Þór er mikill „boltamað- ur”. Leikurinn var lengstum mjög jafn. Allar jafnar tölur upp I 6-6, en svo komst IR þremur mörkum yfir, 9-6 eftir 16 mln, en lokakafli fyrri hálfleiks var góður hjá Gróttu. Liðið komst yfir 13-12 1 hálfleik. Um miðjan síðari hálf- leik var Grótta komin þremur mörkum yfir, 18-15, og virtist stefna I öruggan sigur. Þá loks settu IR-ingar mann til höfuðs Bimi og ÍR fór að saxa á forskot- ið. Jafnaði I 21-21— og hafði tækifæri til að komast yfir, en Vilhjálmur Sigurgeirsson misnotaði víti. Grótta seig framúr á ný, 23-21 og Framhald á bls. 12 Stór sigur ef aðeins er einblínt á úrslitin Dagurinn I gær heföi verið stór dagur I islenzkum kvennahand- knattleik, ef aðeins væri hægt að einbllna á markatöluna I viður- eign islenzku stúlknanna viö bandariskar kynsystur slnar, sem fram fór I iþróttahúsinu I Njarðvikum. Leiknum lauk meö yfirburðasigri þeirra Islenzku, sem skoruöu 19 mörk gegn aðeins 5. En bandariskur handknatt- leikur stendur ekki á háu stigi ennþá. Við höfum oft réttlætt töp okkar með höfðatölureglunni og hvllík firn yrði þessi sigur, ef við notuðum hana að þessu sinni. Styrkleiki iþróttaflokka fer nefni- lega sjaldnast eftir þjóðarstærð- inni, heldur eftir iðkendafjölda, og þeir eru fáir I Bandarikjunum, sem hafa áhuga á handknattleik og iðka hann. Glöggt mátti lika sjá á leik gestanna, að þeir eru algerir byrjendur, sem þó geta vafalitið náö bærilegasta árangri með tið og tíma, ef áhugi er fyrir hendi. Og þá v^röur markatalan varla jafn óhagstæð og var i gærdag, er þær máttu bita i það súra epli að skora aðeins eitt mark I fyrri hálfleik gegn 10. I seinni hálfleik tókst þeim aðeins betur, skoruðu 4 mörk en fengu á sig níu. Annars var leikurinn heldur daufur framan af, þrátt fyrir þrjú mörk á skömmum tlma, en strax og Sigrún Guðmundsdóttir kom inn á færðist meira lif I leikinn, en hún var ásamt Björgu Jónsdóttur óefað hættulegust I íslenzka lands liðinu, enda drjúgar við að skora, Sigrún 5 mörk, en Björg 3. Einnig átti Erla Sverrisdóttir ágætan leik og skoraði fjögur mörk. Valkyrjan frá fyrri leik liðanna, Guðrún Sigurþórsdóttir, var með daufasta móti svo og Arnþrúður Karlsdóttir, sem aldrei náði sér á strik. Báðir markverðirnir is- lenzku stóðu sig með ágætum, Þórdls Magnúsdóttir, sem gætti marksins allan tlmann nema fimm siðustu minúturnar og varði meðal annars vitakast, Gyða úlfarsdóttir, varði vel þann stutta tima sem hún fékk að reyna sig á milli stanganna. Af bandarisku stúlkunum voru þær Gail Eckert og Rita Glanton einna knáastar svo og markvörð- urinn I fyrri hálfleik. Þetta var fyrsti landsleikurinn, sem háður er i iþróttahúsi Njarð- víkur, og er það sannarlega merkur áfangi i íþróttasögu stað- arins, og þvi ekki til neins að gera sér rellu út af þvi, þótt þjóðsöngv- arnir hafi verið styttir ögn I með- förum þess, sem meðhöndlaði hljómburðartækin. Hins vegar hefur það valdið nokkrum leiðindum og gerði einnig að þessu sinni, að óheimilt er að nota „klistur” þar innan dyra. „Reglur hússins mæla svo fyrir um”, sagði ólafur Jónsson, húsvörður, „og verði þær brotnar neyðumst við til að vísa hand- knattleiksmönnum og iþróttinni um leið út úr húsinu.” Áhorfendur voru fremur fáir og til marks um áhugaleysi Banda- rikjamanna fyrir handknattleik, komu sárafáir af Keflavikurflug- velli til að hvetja landa slna, þótt ekki væri nema steinsnar að fara. ekki veriö bjargvættur Armanns áður við likar aðstæður. Hann fór loks út af, þegar 13 mln. voru eftir — af sjálfsdáðum. Skafti kom I markið og varði snilldarlega — meöal annars tvö viti, og Ármann skoraði fimm mörk þennan loka- kafla gegn tveimur mörkum Vals. I byrjun leit ekki út fyrir mikla markaskorun. Loks eftir tæpar fimm min. var fyrsta mark leiks- ins skorað — Jón Karlsson fyrir Val. Síðan kom bang, bang, bang, frá Ólafi og staðan var 4-0 eftir 10 min. Lið Ármanns sem venjulega hefur byrjað svo vel I leikjum sin- um varð alveg ráðvillt, og Valur hafði leikinn i hendi sér. Munur- inn jókst stöðugt — Valur hafði 9 mörk yfir I leikhléi 14-5. Valur skoraði þvi næstum jafn mörg mörk I hálfleiknum og áður i leikjum sinum i heild. Þó aðeins 11 gegn Fram. MikilL munur var þvi á sóknarleiknum, sem hefur verið höfuðverkur liðsins áður. En á það ber að lita, að Armenn- ingar gáfu vissulega færi á sér — án Stefáns Hafstein var vörnin ekki hin sama og áður. Síðari hálfleikurinn var lengi vel sama hrunið hjá Armanni — Valurkomst tólf mörkum yfir, 20: 8, en þá loks fór Ragnar úr mark- inu. Lokakaflann minnkaöi Ar- mann svo muninn niöur I nlu mörk. Mörk Vals I leiknum skoruðu Ólafur 6, Gisli 5, Gunnsteinn 3, Stefán Gunnarsson 2, Steindór Gunnarssön 2, Geir Þorsteinsson 1. Jón Jónsson 1, Bjarni Guð- mundsson 1 og Jón Karlsson 1. Valur misnotaði þrjú viti I leikn- um. Jón Breiðfjörð stóð nær allan leikinn i marki Vals — og varði snilldarlega, lengstum. Mörk Ar- manns skoruðu Jón Ástvaldsson 3 (2 viti), Hörður Kristinsson 3, Björn Jóhannesson 2, Pétur Ingólfsson 2 (1 víti), Kristinn Ingólfsson 1, Jens Jensson 1 og Hörður Harðarson 1. Góðir dóm- arar, Björn Kristjánsson og Óli Olsen. — hslm. Enn vinnur Haraldur Haraldur Kornellusson, TBR, varð sigurvegari á Nýársmóti TBR, sem háð var I Laugardals- höll I gær. Hann sigraði Friðleif Stefánsson i úrslitum I meistara- flokki með 15-6, 10-15 og 15-12 I skemmtilegum ieik. 1 meistaraflokki kvenna sigraði Lovisa Siguröard., TBR, Svan- björgu Pálsdóttur, KR I úrslitum með 11-5 og 11-0. I A-flokki karla léku tveir 16 ára piltar til úrslita. Jóhann Kjartansson, TBR, vann Jóhann G. MöIIer 11-15,17-14 og 18-15 og var það tvísýnasti leikur mótsins. t A-flokki kvenna vann Kristin B. Kristjánsdóttir, TBR, Ragnhildi Pálsdóttur, TBR, I úrslitum, 4-11, 11-5 og 11-0. t B- flokki karla vann Eirfkur ólafs- son, KR, Jóhann Hálfdánarson, TBR, I úrslitum 5-15, 15-6 og 15-8 og I B-flokki kvenna vann Bjarn- heiður tvarsdóttir, Val, Asu Gunnarsdóttur, Val, með 12-9, 9- 12 og 11-7. -hslm. NM-liðið valið í þessari viku — Þrettán af þeim tuttugu, sem mœttu á œfingarnar um jólin og nýárið, verða valdir „Ég er tiltölulega ánægður með áhugann hjá strákunum á þessum þrem æfingatimabilum, sem við höfðumyfir jólin og nýárið,” sagði Birgir Björnsson þjálfari karlalandsliðsins I handknattleik, er við töluðum við hann i gærkveldi. „Að visu hefði mætingin mátt vera betri, en viö þvi var litið að gera — félögin æfðu af fullum krafti á sama tima, og menn gátu ekki veriö á báðum stöðum. Flestir þeirra, sem valdir voru mættu einu sinni eða oftar á æfingarnar, og það voru að- eins fimm eða sex menn úr öll- um þessum hópi, sem ekki komu. Var þáð bæði vegna vinnu og af ýmsum öðrum ástæðum. Næsta skref er að velja liðið, sem tekur þátt I Norðurlanda- mótinu, er fram fer I Danmörku I byrjun febrúar. Þaö geri ég I þessari viku og vel þá þrettán menn. Þegar þaö er búið, verður farið af stað með æfinga- leiki við félagsliðin, og verður leikið fram að þeim tima að farið verður utan. Ætlum við að reyna að fá eins marga leiki og hægt er og vera I góðu formi, þegar N orðu rlandam ótið hefst.” -klp- | Leikurinn heldur áfram og áhorfendur æpa eftir Bomma .J~TV I—S7' v- jMundi foringihjá alþjóðalögreglunni fylgist augnablik með leiknum... ^ -4 & Sóknarleikur Vals er miklu skarpari eftir aöGísli Blöndal kom inn i liöiö á ný. A myndinni að ofan skor- ar hann eitt af fimm mörkum sinum I leiknum — og vel má sjá „vafningana” miklu á vinstra hnénu. Ljósmynd Bjarnleifur. Geymiö og þér munið finna... með TIGRIS

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.