Vísir - 17.01.1975, Page 6

Vísir - 17.01.1975, Page 6
6 Vísir. Föstudagur 17. janúar 1975. VISIR Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjóri Fréttastjóri RitsjtjÖrnarfulltrúi Auglýsingastjóri Auglýsingar Afgreiösla Ritstjórn Áskriftargjald 600 t lausasölu 35 kr. : Reykjaprent hf. : Sveinn R. Eyjólfsson : Jónas Kristjánsson : Jón Birgir Pétursson : Haukur Helgason Skúii G. Jóhannesson : Hverfisgötu 44. Simar 11660 86611 Hverfisgötu 44. Simi 86611 : Siöumúla 14. Simi 86611. 7 linur kr. á mánuöi innanlands. eintakiö. Blaöaprent hf. Logn að baki stormi Bæði hér á landi og annars staðar rikir svart- sýni i efnahagsmálum um þessar mundir. Menn sjá fram á, að baráttan við kreppuna verði harð- sótt og valdi margvislegum brestum i þjóðfélag- inu. Hvarvetna er ljóst, að ástandið á eftir að versna, áður en það byrjar að batna aftur. Engin ástæða er samt til að örvænta, þvi að flest bendir til, að kreppan geti orðið skammvinn og að ný velmegunaralda geti hafizt eftir tvö eða þrjú ár. Timaritið Economist færir að þvi rök, að siðasti aldarfjórðungur tuttugustu aldarinnar muni að öllu samanlögðu verða álika mikið fram- faraskeið i efnahagsmálum og aldarfjórðungur- inn frá 1950 til 1975 var. Nýliðinn aldarfjórðungur rúmlega þrefaldaði heimsframleiðsluna, jók ævilikur i Indlandi úr 30 árum i 50, lækkaði ungbarnadauða um tvo þriðju og margfaldaði menntun mannkynsins, svo að dæmi séu nefnd. Þessi frammistaða lofar góðu um, að áfram sé unnt að gera vel, þótt á móti blási um sinn. Econ- omist telur, að þróun tölva, simasamgangna og sjálfvirkni hljóti að gera mannkyninu kleift að þrefalda enn heimsframleiðsluna á einum aldar- fjórðungi. Jafnframt telur blaðið framhald hins frjálsa markaðskerfis vera forsendu þess, að mannkynið komist á næstu árum út úr kreppunni og inn i nýja gullöld, enda hafa margar þjóðir slæma reynslu af tollmúrastefnu kreppunnar, sem kom siðari heimsstyrjöldinni af stað. Blaðið viðurkennir, að fimmföldun oliuverðs úr hálfu prósenti heimsframleiðslunnar i tvö og hálft prósent valdi miklum truflunum á næstunni sem hingað til, en spáir þvi jafnframt, að heimur- inn verði fljótur að laga sig að breyttum aðstæð- um. Fljótastar að jafna sig verði þær þjóðir, sem mest eru fyrir nýjungar i viðskiptakerfinu. Economist minnir þó á, að fyrir siðari heims- styrjöldina hafi fyrst verðbólga og siðan kreppa leitt til þess, að i Þýzkalandi fóru venjulegir menn að syngja augljóslega brjáluðum fjölda- morðingja lofsöngva. Varar blaðið við, að menn láti nú verðbólgu og kreppu rugla sig i riminu eins og þá. Blaðið kvartar til dæmis um, að margir hugs- andi menn telji nú framfarasinnað að mæla með núllvexti i hagkerfinu vegna rýrnunar ýmissa auðlinda heimsins. Bendir það á dæmi um, að þessi stefna mundi valda þriðja heiminum mikl- um hörmungum. Og þar á ofan hefur á siðustu misserum margsinnis verið bent á, að heims- endaspár Rómarklúbbsins og annarra slikra byggjast á óvönduðum útreikningum og eru fjarri raunveruleikanum. Economist segir, að hin slæma verðbólga sé að liða hjá, hin slæma kreppa muni liða hjá og siðan taki við möguleikar á hraðari hagvexti en nokkru sinni fyrr, þvi að núverandi vandamál séu i raun- inni auðleysanleg. Flestar þjóðir Vesturlanda fóru i fyrra af verð- bólguþrepinu yfir á kreppuþrepið, en Islendingar standa nú fyrst andspænis hugsanlegri kreppu. Vitanlega hrýs okkur hugur við vandamálunum, sem framundan eru, og okkur gremst, að lifs- kjörin skuli stöðugt rýrna. En við stöndum betur af okkur fárviðrið, ef við hugsum til lognsins, sem kemur á eftir og Economist telur, að endast muni i aldarfjórðung. —JK Albert Schweitzer viö skriftir. Undir ljósmyndinni sést sýnishorn rithandar mannvinarins. 100 ÁRA AFMÆLI MANNVINAR Nú i vikunni var þess minnzt, að 100 ár eru liðin frá fæðingu Al- berts Schweitzers, mannvinarins, sem sneri baki að glæstum visindaferli og visum frama til þess að berj- ast við sjúkdóma og vesöld suður i svörtu Afriku. Þessa var minnzt með opnun nýs 150 rúma sjúkrahúss, sem reist hefur verið á bökkum Ogowe-fljóts, þar sem Schweitzer hóf liknarstörf sin fyrir rúmum 60 árum. Eftir erfiða endurnýjunar- uppbyggingu, sem kom i kjölfar gagnrýni, vegna þess aö Albert Schweitzer-sjúkrahúsiö i Lam- barene þótti oröiö úrelt og á eft- ir timanum, státar það nú af ný- tizku tækjum og fjölþættri að- stöðu. Þar er nú aðstaða fyrir barnadeild, lyfjadeild, tann- læknisaðstaða og röntgendeild. Albert Schweitzer var fyrir löngu orðinn eins konar þjóð- saga, áður en hann kvaddi þennan heim. Aðdáendur hans litu á hann sem eins konar dýr- ling. Vinir hans i Afriku báru takmarkalausa virðingu fyrir manninum. En á gamalsaldri mátti hann þola brodda gagn- rýnenda, sem unnu honum ekki þess álits, er hann naut. I hálfa öld helgaði hann sig málefnum bágstaddra i þessu Vestur- Afrikulandi. Hann dó fyrir tiu árum og var borinn til hinztu hvilu þar syðra. Myndin af hvithærða mannin- um með yfirskeggið striða hefur orðið imynd mannvinarins, sem helgar sig háum hugsjónum og liknarstörfum. Schweitzer var prestssonur frá Alsace Larraine. Foreldrar hans voru strangtrúaðir mót- mælendur. Hann var mörgum gáfum og hæfileikum gæddur, kennimað- ur, visindamaður, læknir, organisti og ritfær i bezta lagi. — En um hann sagði rithöfund- urinn Graham Greene: „Schweitzer varð fórnarlamb sinnar eigin þjóðsagnar.” Ýmsir þeirra, sem heimsóttu Lambareneá árunum eftir 1960, báru á Schweitzer, að hann hefði imigust á tækninni, sjúkrahús hans væri óþrifalegt og óhollt, að hann væri sjúkur i blaðaumtal og umgengist fjöl- skyldu sina og samstarfsmenn af eigingirni og færi með inn- fædda eins og væru þeir honum óæðri. Þessir gagnrýnendur fundu sjúkrahúsi hans margt til for- áttu. Sögðu þeir það loftlaust, rakt og skepnur færu óáreittar allra sinna ferða á milli sjúkra- rúmanna. Brezki blaðamaður- inn, James Cameron, skrifaði t.d.: „Þarna var ekkert vatn að hafa, annað en það sem kom úr lofti.ekkert gas til heimilisnota, engar skolpleiðslur, ekkert raf- magn.” Þessi gagnrýnisstormur gekk þó yfir. Þeir, sem i dag gagn- rýna Schweitzer, eru vægari I dómum sinum. Sjálfur bar Schweitzer aldrei hönd fyrir höfuð sér eða reyndi á neinn máta að andmæla þessum skrif- um. Einhver heyrði hann þó ein- hvern tima hafa orð á þvi, að þessum gagnrýnendum hefði al- gerlega yfirsézt kjarni málsins. Hugmynd hans hefði verið sú, að sjúkrahúsið væri að yfirlögðu ráði látið skapa innfæddum svipuð skilyrði og umhverfi og mmiimi UMSJÓN: G. P. heima hjá þeim i skógarþorp- inu, jafnvel svo, að þeir fengju að hafa húsdýr sin hjá sér. Enn i dag er þessu fylgt að nokkru i Albert Schweitzer- sjúkrahúsinu. Nánustu aðstand- endur fá að fylgja sjúklingnum inn á sjúkrahúsið, búa hjá hon- um, annast hann og elda ofan i hann. Avinningur þessarar aðferðar er bæði fjárhagslegur og sál- rænn. Hún sparar starfsmanna- hald og gerir sitt til þess að hinir innfæddu yfirstigi óttann við að leggjast inn á sjúkrahús hvítra, þar sem þeir eiga fyrir höndum dularfulla meðferð og lyfja- gjafir, ef ekki beinlinis ramma- galdur. Það er viðurkennt i dag, að Schweitzer hafi að vissu marki litið á innfædda sem eftirbáta hvitra, eins og birtist til dæmis i þvi, að aldrei var ráðinn til sjúkrahússins læknir, sem var blökkumaður. En honum verður naumast, ef einhverrar sann- girni er gætt, legið á hálsi fyrir það. Hann var barn sins tima i þessu tilliti og afstaða hans ná- kvæmlega eins og annarra hvitra manna, sem höfðust við i svörtu Afríku og kynntust inn- fæddum, sem þá voru — og eru reyndar margir enn — á frurn- stæðu stigi. A það ber að líta, að þetta var fyrir 50 árum. Það getur ekki skoðazt sem annað en hégómi i viðmiðun við það, hversu einbeittur hann barðist fyrir þvi að lina þjáning- ar sjúkra og skapa þeim, sem i kringum hann voru, hamingju. Albert Schweitzer fæddist að Kaysersbergi 14. janúar 1875. Hann var orðinn prófessor i guðfræði við háskólann i Strass- burg þritugur að aldri, þegar trúboðar sögðu honum frá neyð fólks I Afriku. Hann varpaði öllu frá sér, heimsfrægð og frama sem kennimaður og tónlistar- maður og sat 'á skólabekk i átta ár til að nema læknisfræði og búa sig undir köllun sina. Þrjátiu og átta ára var hann orðinn, þegar hann kom til frönsku nýlendunnar Gabon i fyrsta sinn 1913. Frakkar kyrr- settu hann á árum fyrri heims- styrjaldarinnar og höfðu hann fyrir túlk. En hann sneri aftur til Lambarene 1924. Þráfaldur fjárskortur neyddi hann til ferðalaga um heiminn, hljómleikahalds og fyrirlestra i fjáröflunarskyni. Meðan á seinni heimsstyrjöldinni stóð tók fyrir öll fjárframlög frá Evrópu. Lyf voru af skornum skammti. Liknarstofnanir i Bandarikjunum styrktu þá hjálparstarf Schweitzers, svo að hann gat haldið þvi áfram. Hann tók sig upp og fór i ferða- lag til og frá um Bandarikin 1949 til þess að þakka drengilega hjálp og var hvarvetna fagnað sem hetju. — 1952 voru honum veitt friðarverðlaun Nóbels. Goðsögnin um Schweitzer hafði, þegar hér var komiö sögu, skotið rótum. Heimsat- hyglin beindist að honum. Nú orðið viðurkenna gagnrýnendur hans, að óréttmætt hafi verið að saka hann um að sækjast eftir blaðaumtali. Það var ekki hann sem sótti eftir greinarhöfund- um, heldur. þeir, sem leituðu hann uppi, þegar nafn hans var orðið sveipaö frægðarljóma. A meðan hafði þessi lúterski guðfræðingur sett hugsanir sin- ar og lifsskoðanir á prent. Schweitzer sagði: „Sjúkrahúsið mitt er aðeins Imynd hugsana minna.” 1 annan stað skrifaði hann fræðirit um Bach og veitti tón- listarmönnum nýjan skilning á þvi, sem eftir tónskáldið lá, rétt eins og gert hafði túlkun hans á orgeltónlist skáldsins. Hann var allt til dauðadags gifurlegur vinnuhestur, óþreyt- andi og fllhraustur sjálfur.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.