Vísir - 20.01.1975, Qupperneq 1
VISIR
65. árg. — Mánudagur 20. ia
UPTON KEMUR
TIL ÍSLANDS!
— baksíða
Dr. Michael Upton ræðir hér við einn „sjúklinginn”. ■■“■■^
„Þessi ætti að koma sér vel i
skíðaferðunum”, sagði Jón
Ásgeir. Ljósm. Bragi.
— sjá nánar á bls.
3 um afhendingu
verðlauna í
getrauninni okkar
Snjótroð-
arinn fór
yfir bíl
— baksíða
Átta flugu
útaf á
Kefla-
víkurvegi
— baksíða
,Kápuútgáfa'
bönnuð
— bls. 3
•
AFINN GAF
HONUM VÍSIS
VINNINGINN
Loðnan norðlœgari en í fyrra
Aflinn verður vœntan-
lega meiri fyrir vikið
Loðnuveiðin er litið
eitt minni en var á sama
tima i fyrra, enda hófst
hún degi seinna. I
morgun var bræla á
miðunum.
Tuttugu skip lönduðu
siðasta sólarhring 3310
tonnum, og átta skip
voru á leiðinni með 540
tonn. Áður höfðu tvö
skip komið með 390 tonn.
Þetta eru alls 4240 tonn.
í fyrra höfðu að kvöldi
hins 20. janúar borizt
rúmlega7800 tonn. Þessi
munur segir þó litið.
Loðnan er norðlægari en var i
fyrra, og er talið, að það geti þýtt,
að meira veiðist fyrir austan en
þá var. Hún er með öðrum orðum
heldur seinna á ferðinni.
Tvær stórar verksmiðjur, á
Norðfirði og Seyðisfirði, eru nú úr
leik vegna snjóflóða. Þetta veldur
þvi, að lengra þarf að sigla með
aflann i sumum tilvikum. Það
verður komið undir flutninga-
styrknum, hversu langt
skipstjórar vilja sigla með
aflann. Sé hann litill, munu þeir
fara til náiægrar hafnar og biða
fremur en sigla lengri leið. Yfir-
nefnd, er fjallar um loðnuverðið,
hefur einnig það verkefni að
ákveða flutningsstyrkinn, að sögn
loðnunefndar i morgun.
-HH.
Geir borinn i sjúkrabfl á laugar-
daginn eftir að leika eina
minútu í Evrópubikarleiknnum
og skora eitt niark. Ingibjörg
kona hans er á myndinni til
hægri.
Áfall fyrir
handknattleikinn:
Geir
meiddist
mikið í
árekstri
við félaga
sinn
— íþróttir í
miðju blaðsins
ÞAU KYNNAST HINU „VILLTA" ÍSLANDI
Hópur verðandi ferðafrömuða í heimsókn
„Fólkið iðið”, sagði Zenia
Green.
„Þetta er mjög villt, eins og
við segjum fyrir vestan,” sagði
Gloria Martin, sem gerði sig
seka um að mæta of seint á
fyrirlestur um ferðamál á ts-
landi í morgun.
A Hótel Loftleiðum er nú
staddur hópur 24 bandariskra
stúdenta, sem stunda nám I
rekstri hótela og veitingahúsa
vföa i Bandarikjunum. Hópi stú-
denta var gefinn kostur á að
koma hingað i fyrra til að kynn-
ast ferðamálum eins litils lands
i hnotskurn og nú er annar slik-
ur hópur kominn.
„Hvað ég á við með að hérna
sé villt?” sagði Gloria. „Ég á
við samkvæmislifið. Þess vegna
kem ég nú of seint”.
Gloria er frá City College i
Brooklyn. Þegar hún átti fimm
daga fri þótti henni tilvalið að
taka boðinu um að halda til ís-
lands til að sitja þar á nokkurra
„Hér er villt”, sagði Gioria
Martin.
daga námskeiði um islenzk
ferðamál.
„Mér finnst fólkið hér vin-
gjarnlegt og iðið,” sagði vin-
kona Gloriu, Xenia Green, sem
einnig er mætt á þetta stutta
námskeið.
,,A hverju ég byggi það? A
stuttum kynnum en góðum,”
sagði hún og brosti, um leið og
hún flýtti sér inn á fyrirlestur-
inn, sem þegar var vel á veg
kominn.
í morgun spjölluðu íslenzkir
ferðamálafrömuðir viö nem-
endurna. 1 gær var farið upp á
Akranes og litazt um þar og eins
hafa öll hótelin i Reykjavik ver-
ið heimsótt af hópnum. 1 dag
átti að fara upp að Reykjum i
heimsókn og áður en haldið
verður heim á ný á morgun
heldur Hótel- og veitingaskóli
íslands bandarisku samherjum
sinum smá samkvæmi.
—JB