Vísir - 24.01.1975, Qupperneq 3
Vísir. Föstudagur 24. janúar 1975.
3
Engir
samning-
ar við
Norð-
menn -
— fleiri hafa áhuga
Vlsir skýröi frú þvl I gær, aö
norsk stórfyrirtæki séu áhugasöm
um aö hefja stóriöju á íslandi.
Ýinis fleiri erlend fyrirtæki hafa
fengiö aukinn áhuga á landinu,
eftir aö oliuverö hefur fimmfald-
azt, þannig aö orka, sem viö gæt-
um unniö, stendur mikiu betur aö
vlgi i samkeppninni.
Rétt er að undirstrika, að ekki
hefur verið gengið frá neinum
samningum við Norðmenn.
Norska blaðið lýsir fyrst og
fremst áhuga Norðmanna, en
eins og segir I VIsi hefur ekki ver-
ið ákveöið neitt um framkvæmd-
ir.
Garðar Ingvarsson, ritari
nefndar um orkufrekan iðnað,
óskar, að fram sé tekið, að hann
hafi ekki átt viðtal við norska
blaðiö Adresseavisen. Hann telji
sig ekki hafa umboð til að eiga
viðtal við blöð um störf nefndar-
innar.
— HH.
gRSSiSgBl KLUBBUR
32
adgönguniidi
Að^an^scyrtr 183
Skaiiur II?
300
MIÐINN
SÝNIR
HVAÐ
FÓLKIÐ
BORGAR
FYRIR
Þeir, sem kaupa sér aö-
göngumiöa dýrum dómum inn
á ýmiss konar skemmtanir,
hugsa oft meö sér: „Hvilikt
verö. Þeir hljóta aldeilis aö
græöa á þessu”, og hafa þá
skemmtanahaldara I huga.
Þeir, sem standa fyrir opin-
berum skemmtunum, hafa
aðra skoðun. Þeir segja, að
allt að helmingur miðaverðs-
ins fari I skatta. Auðvitað trúir
þeim enginn.
Til þess að sýna fólki, hvað
það er að borga fyrir, hefur
Klúbbur 32 tekið upp ný-
breytni. Klúbbur þessi er
klúbbur ungs fólks á aldrinum
18 til 32 ára, og stendur
mánaðarlega fyrir skemmt-
unum.
A aögöngumiðum að þess-
um skemmtunum klúbbsins er
tilgreint, fyrir hvað fólkið
borgar.
Aðgöngumiði, sem kostar
300 krónur, sýnir, að Klúbbur
32 fær sjálfur 183 krónur.
Afgangurinn, 117 kr. fer I
skatta. Það eru skemmtana-
skattur, menningarsjóðsgjald,
STEF-gjald og söluskattur.
Já, menn gjalda keisaranum
ekki bara gegnum gjaldheimt-
una.
— ÓH
Léttust um 18,5 kíló!
Þeir léttust um samtals
18/5 kíló á þremur vikum
kapparnir Jón B. Gunn-
laugsson, Kristinn Halls-
son og Albert Guðmunds-
son. Jón léttist um 5/1 kg/
Kristinn um 6/2 kg og Al-
bert átti metið. Hann létt-
ist um 7/2 kg, hvorki
meira né minna.
Ef menn eru ekki alveg með á
nótunum, þá er bezt að skýra
frá þvi, að þessir þrlr fóru I
megrun samkvæmt nýrri að-
ferð, sem Vikan birtir I siöasta
tölublaði.
Vikan fékk þá þrjá til að taka
þátt I megruninni og undanfarið
hefur verið fylgzt með þeim I
kúrnum. Og árangur hefur svo
sannarlega náðst. Svo góður, að
allir þrir segjast hér með ekki
breyta aftur um mataræði, nú
er það þessi megrunarfæða,
sem gildir.
I henni felst ýmislegt, sem
menn hefðu ekki trúað að gæti
haft nokkur grennandi áhrif, en
svo reynist nú samt.
Reyndar flytur Vikan fleira
fróðlegt efni I siðasta tölublaöi
sinu, svo sem hvernig eigi að
reikna það út, hvað skatturinn
verður hár.
—EA
— og segjast ekki breyta um matarœði
SKAL fyrir góöum árangri, segja þeir félagar, Kristinn, Jón og Albert og lyfta glösum meö aldinsafa,
liklega sykurlausum. (Ljósmynd Sigurgeir Sigurjónsson, ÍMYND.)
Pelican
fer í sex
vikna för
til Banda-
ríkjanna
GULLAFSTEYPA AF
„UPPTEKNIR"
AFHENT í GÆR
Tæp átta þúsund eintök hafa
selzt af plötunni „Uppteknir”
meö Peiican. i tilefni þess, aö
aldrei hefur stór Islenzk piata
selzt I sliku upplagi afhenti
Ámundi Ámundason, sem gefur
hljómplötuna út, hljómsveitinni
Pelican gullafsteypu af plötunni
I gærkvöldi.
Hljómsveitin kom fram I
Klúbbnum I gær og veitti gull-
plötunni viðtöku við það tæki-
færi. A eftir skáluðu meðlimir
hennar I kampavini við útgef-
andann Amunda og léku lög af
nýrri stórri plötu, sem vænta
má á markaðinn i mai.
Hljómsveitin heldur utan til
Bandarikjanna til upptöku á
plötunni nú á sunnudaginn og
dvelst þar ytra I sex vikur.
Fyrstu þrjár vikurnar verður
dvaliö I Massachusetts riki og
nýja platan tekin upp. Ætti þeim
félögum I Pelican að veitast
góður timi til frágangs á plötu
sinni, þar eð þetta er helmingi
lengri timi en varið var til upp-
töku á hljómplötunni „Upptekn-
ir”.
Fjóröu vikuna verður lifinu
tekiö fremur rólega, en siðustu
tvær vikumar verður leikið á
stöðum þarna á austurströnd-
inni á nær hverju kvöldi. Er
dagskrá hljómsveitarinnar þá
dagana mjög þéttskipuö. Fyrsta
kvöldið verður leikið I klúbbn-
um „Bottom Line” I New York
og eins sfðasta kvöldið fyrir
brottförina.
Hljómsveitin hefur, til aö
plægja jarðveginn vestan við
haf, þegar sent nokkurt magn af
plötu sinni „Uppteknir”, til
kynningar á tónlist sinni.
Við heimkomuna tekur hljóm-
Gullplatan ætti að hressa
dálitið upp á Pétur Kristjánsson i
hljómsveitinni Pelican. Hann á
um sárt að binda, eftir að hann
slasaðist I bílslysi um siðustu
helgi, skarst á höfði og meiddist á
fæti. _ Lljósm. Bj. Bj.
sveitin væntanlega meö sér
upplag af litilli plötu, sem fyrir-
hugað er að gera með tveim lög-
um af þeirri stóru.
— JB.
SENDA BRIDGESVEIT
UNGLINGA OG KARLA
Viða um land sitja spilamenn
núna einmitt þessa vikuna við að
spila nákvæmlega sömu spilin og
keppinautar þeirra I bridge i
öðrum landshlutum.
Eftir samanburð við aðra
bridgemenn landsins hlýtur
sigurvegarinn titilinn „Bikar-
meistari tslands”.
hvorum flokki skuli mynda lands-
liöskjarna fyrir æfingarnar, sem
framundan eru til undirbúnings
erlendu mótunum.
— GP.
Kvennabridge
Á fundi með fréttamönnum i
gær skýrði stjórn Bridgesam-
bands Islands frá tilhögun
keppninnr, sem þegar er hafin.
Er hún haldin i fjáröflunarskyni
fyrir landslið Islands i unglinga-
flokki.
Framundan er Norðurlanda-
mótið, sem fram fer I júni i
Noregi en þangaö er ætlunin að
senda bæði unglingalið og sveit i
opna flokkinn.
Fyrir dyrum stendur einnig _
Evrópumótið i Brighton I Eng-
landi I júli.
Þessa helgina hefst einmitt að-
dragandi landsliðsvals þegar
keppt verður um, hvaða 8 pör i
á kvennaóri
tslendingar hafa ekki sent
kvennasveit tii þátttöku á
alþjóðlegum bridgemótum um
nokkurra ára bil, eða ekki siðan
Norðuriandamótið var haldið hér
I Reykjavik 1966. — En á
alþjóðlega kvennaárinu á að gera
á þessu bragarbót.
t bigerö er nú að hefja undir-
búning þjálfunar bridgekvenna
með tilliti til þátttöku i kvenna-
flokki á Norðurlandamótinu 1977,
en þá er röðin komin að tslandi að
halda -Norðurlandamót aftur.
GP.
RAPIDMAN 801 - Kr. 6.000.-
Vasatölvan frá Kanada
+ MARGFÖLDUN
+ DEILING
+ SAMLAGNING
+ FRADRATTUR
+ KONSTANT
+ FLJÓTAN'DI KOMMA
+ PRÓSEN'TA
+ 9 V RAFHLAÐA
+ STRAUMBREYTIR
TENGJANLEGUR
+ 8 STAFA ÚTKOMA
+ 1 ARS ABYRGÐ
0LIVETTI
SKRIFSTOFUTÆKNI H.F.
Hafnarstrœti 17 Tryggvagötumegin
Sími: 28511