Vísir - 25.01.1975, Side 20
Laugardagur 25. janúar 1975.
Þing
Norður-
landaráðs
,endursýnt'
í Þjóð-
leikhúsinu
— að minnsta
kosti 500 manns
vœntanlegir
„Þetta á allt aö vera til, siöan
þing Norðurlandaráös var haldiö
hér á landi siðast, 1970”, sagöi
Friðjón Sigurðsson, skrifstofu-
stjóri Alþingis, I viötali viö blaöiö.
„Það væri helzt, aö þyrfti að setja
ný áklæöi á stóla”.
Norðurlandaráð þingar I
Reykjavik 15.-20. febrúar. „Þetta
verður að miklu leyti endurtekn-
ing á þvi, sem var 1970. Þingið
verður i Þjóðleikhúsinu, og ein-
hverjir nefndafundir kunna að
verða hér i Alþingishúsinu og i
húsakynnum Arnarhvols og
Hæstaréttar”.
Vitað er, að nálægt 500 manns
munu koma til landsins vegna
þingsins, og eru þá aðeins taldir
fulltrúar og blaðamenn, en ekki
vitað, hve margar eiginkvenna
þeirra munu koma.
„Það er nokkuð siðan farið var
aö huga aö undirbúningnum”,
sagði Friðjón. „Húsameistari fór
yfir þetta. Hann hefur annazt
geymslu á húsgögnum frá siðasta
fundi. Póstur og simi munu einnig
hafa til taks sima og telexklefa og
aðstöðu með svipuðum hætti og
siðast var”. Þingfulltrúar hafa
borð fyrir framan sig i sal Þjóð-
leikhússins, en sætum verður
fækkað að sama skapi.
Þjóðleikhúsið mun sýna verk
úti á landi á meðan.
— HH
Ein af
meginraf-
línunum
slitnaði
í Eyjum
— grípa varð til
strangrar
skömmtunar
Ein af þrem sverum rafmagns-
linum, sem liggja ofan frá
Heimakletti niöur i Skansinn i
Vestmannaeyjum, slitnaöi siöari
hlutann i gær.
Þessar þrjár linur flytja raf-
magnið frá sæstrengnum, þaðan
sem hann kemur i land i Klakks-
vik til byggðar.
Þar eð ein þessara miklu lina
slitnaði varð að gripa til strangr-
ar rafmagnsskömmtunar i Eyj-
um. 75 hnúta stormur og snjó-
koma var i Eyjum i gærkvöldi og
þvi mjög erfitt um vik aö lagfæra
bilunina. Ekki var þvi hægt að
segja þá, hvenær rafmagn yrði
komið á að fullu á ný.
— JB
Verður Londhelgisgœzlan
beðin að stöðva Nökkva?
— Ekki útilokað að til þess komi, segir Baldur Möller róðuneytisstjóri
,,Nú er málið ekki
lengur i okkar hönd-
um,” sagði Þórður
Ásgeirsson, skrifstofu-
stjóri i sjávarútvegs-
ráðuneytinu, um mál
rækjubátsins Nökkva
frá Blönduósi, en eins
og fram hefur komið
hefur hann haldið
áfram rækjuveiðum á
Húnaflóa, þótt ráðu-
neytið hafi svipt hann
veiðileyfinu.
„Við höfum nú kært Nökkva
til dómsmálaráðuneytisins fyrir
að veiða rækju leyfislaust og
fórum jafnframt fram á, að bát-
urinn yrði stöðvaður, ef hann
heldur áfram að veiða”, sagði
Þórður.
„Málið hefur verið framsent
saksóknara rikisins”, sagði
Baldur Möller, ráðuneytisstjóri
i dómsmálaráðuneytinu.
„Sjávarútvegsráðuneytið hefur
út af fyrir sig sjálft getað kært
beint til hans eða sýslumannsins
á Blönduósi, en það hefur sjálf-
sagt ekki kært sig um að senda
langt skeyti”.
Baldur var að þvi spurður,
hvort leitað yrði til Landhelgis-
gæzlunnar og hún beðin um að
stöðva veiðar Nökkva.
,,Að sumu leyti er þetta mál
landhelgisgæzla f landi”, sagði
Baldur. Það er ekki útilokað, að
til þess komi, aö Landhelgis-
gæzlan verði beðin um að sker-
ast i leikinn, en engu vil ég spá
um það á þessu stigi málsins.
Hingað til hefur ekki þurft að
gæta rækjuveiðisvæðanna með
varðskipum.
Venjulega er það svo, að mál-
in koma frá Landhelgisgæzlunni
til dómaranna, en nú væri dóm-
arinn frumkvöðull, ef leitað yrði
til gæzlunnar”.
Kæran á hendur Nökkva er
fyrir framhaldandi veiði, eftir
að báturinn var sviptur rækju-
veiðileyfi, og mun afgreiðsla
málsins nú beinast að þvi atriði,
fremur en þvi, hvort ráðuneytið
hafi haft heimild til leyfissvipt-
ingarinnar eða ekki.
—SH
SKA TTUR Á
FARMIÐA?
Sérstakur skattur á farmiða Viö þaö mundi draga úr feröa-
var meöal þess, sem stjórnvöld áhuga islandinga og sparast
tetja koma tilgreina sem úrræöi gjaldeyrir, auk tekna, sem hiö
I efnahagsvandanum. opinbera fengi viö þaö. —HH
Eimskip vill stór-
hœkka farmgjöld
Eimskipafélagiö hefur sótt til
verölagsyfirvalda um heimild til
að hækka farmgjöld verulega.
Fundur var ekki i verðlags-
nefnd I þessari viku en verður
væntanlega á miðvikudaginn.
titflytjandi rækju tjáði blaðinu,
að Eimskip vildi fá 45% hærri
farmgjöld nú þegar vegna
væntanlegrar hækkunar, og virð-
ist þvi vera, að félagið fari fram á
þá hækkun. Staðfesting á þessu
fékkst ekki í gær. Verðlagsyfir-
völd hafa ekki fallizt á hækkunina
enn sem komið er.
— HH
Hvass er hann og kaldur
„Nú er enn cin óveöurslægðin aö nálgast landiö”, sagöi Knútur
Knudsen veöurfræöingur i sjónvarpinu i gærkvöldi. Lægöin á aö
fara austur meö landinu og valda norölægri átt hér sunnanlands
meö vaxandi frosti, en noröan, austan og á Vestfjörðum á aö snjóa.
Það verður varla meira en él hér á suðvesturhorninu, en búast má
við, að vindurinn veröi sumum til trafala eins og fólkinu á þessari
mynd.
Hvað segja þeir sem við okkur verzla?
íslendmgarnir kröfuharðastir
ó gœði en tregastir á greiðslu
w
a
,/í s I e nd i n g a r eru
heiðarlegir og góðir við-
skiptamenn. Þeir eiga
bara stundum dálítið
erfitt með að skilja, að
við Japanir erum alltaf
að flýta okkur."
Þaö er Japaninn Kozo
Yamaoka, sem þetta sagði.
Hann ætti að vita, hvað hann
talar um, þvi hann hefur komið
til Islands i verzlunarerindum
að minnsta kosti einu sinni á ári
undanfarin ár.
„Japanskir viðskiptamenn
hugsa hratt, en tslendingar
vilja stundum vera dálitið ró-
legir,” sagði Yamaoka.
Yamaoka er starfandi for-
stjóri hjá japanskrj fiskineta-
verksmiðju, sem selur Islend-
ingum net og troll fyrir um 60
milljónir á ári.
„Viðskipin við Islendinga
hafa gengið vel, en nú virðast
útgerðarmenn að visu eiga i
meiri erfiðleikum en áður með
að opna bankaábyrgð fyrir
kaupunum.”
' Að undanförnu hafa borizt
þær fréttir, að Kinverjar væru
að bjóða Islendingum net á hag-
stæðara verði en Japanirnir.
Óttast Japanir þessa sam-
keppni?
„Hingað til hafa Kinverjar
ekki náð frá okkur markaði,
nema þá helzt i Suðaustur-Asiu.
Þar höfum við orðið nokkuð
varir við samkeppnina.
Kinverjar geta boðið um
20%—30% lægra verð en við
vegna ódýrara vinnuafls, en
japanskir netaframleiðendur
geta aftur á móti boðið mun
meiri gæði á sinni framleiðslu.
Islendingar krefjast fyrst og
fremst gæða og eru það kröfu-
harðir, að við verðum að hafa
strangara eftirlit með þeim vör-
um, sem við sendum hingað, en
til annarra landa,” sagði
Yamaoka.
„Aftur á móti gengur erfið-
legar að fá greiðslur frá tslend-
ingum en öðrum þjóðum. Viö
teljum að úr þvi útgerðarmenn-
irnir eru i þetta miklum vanda.
væri eðlilegt, að stjórnin hjálp-
aði til. Flotinn er jú landinu
mikilvægastur,” sagði Yama-
oka um islenzka markaðinn.
Yamaoka sagði, að að hans
áliti væri stærsti kosturinn við
hans starf að geta komið til
Islands á hverju ári til að fá
ferskt loft.
„Loftið hér er númer eitt.
Svona djúpt getum við i Japan
ekki andað nema þvi aðeins að
klifa hæstu fjöll. Ég hlakka ætiö
til að koma hingað og vildi helzt
að fleiri frá fyrirtækinu hefðu
tækifæri til þess sama. Að visu
er dálitið kalt,en við getum trútt
um talað. Þvi i Japan er nú
kaldasti vetur, sem komið hefur
i 20—30 ár,” sagði Kozo
Yamaoka. —JB
Kozo Yamaoka. Fyrirtækl hans
selur tslendingum net og troll
fyrir 60 milljónir ár hvert.
Ljósm. BG.
§
(i