Vísir - 04.02.1975, Blaðsíða 1
65. árg. —Þriðjudagur 4. febrúar 1975 — 29. tbl.
„Fiskverð-
ið fyrst,"
— segir forsœtis-
róðherra
— baksíða
Reykvískir
þingmenn fá
34.000 kr. minna
en nœstu
nágrannar
— baksíða
Dráttarvélin
fauk um
20 metra
— baksiða
Tóku sjó til slökkvistarfsins
um 150 metra langar leiðslur
— Milljónatjón er fiskverkunarstöð Guðmundar Þórarinssonar brann til grunna í nótt
VIÐ LA AÐ NOTA ÞYRFTI ARAR
— á götum
Reykjavíkur
Þaö lá við að bflstjórar, sem
áttu leið undir Elliðaárbrýrnar i
morgun óskuðu þess að þeir
hefðu árar.
Flóðið þar var töluvert og datt
jafnvel sumum i hug, að þeir
væru að aka upp sjálfar Elliða-
árnar. Viða höfðu myndazt
djúpir hyljir og stórfljót á göt-
um Reykjavikur I morgun og
höfðu bilar hreinlega gefizt upp
á sundiðkununum og eigendurn-
ir orðið að yfirgefa þá.
Bæjarstarfsmenn stóðu i
ströngu I morgun við að ráða bót
á þessu flóðaástandi I bænum og
hafði þeim miðað allvel er
siðast fréttist.
—JB/Ljósm.
Bragi.
Mikill bruni varð i nótt
i Gerðum. Brann þar
fiskhús og fiskverkun
Guðmundar Þórarins-
sonar til grunna og
fengu slökkvilið Kefla-
vikur og Keflavikurflug-
vallar ekki við neitt ráð-
ið.
Slökkviliðið i Keflavik var
kvatt út rétt eftir klukkan 3 i nótt
og hélt það þegar i Garðinn, þar
sem tilkynnt hafði verið um mik-
inn eld i fiskhúsi Guðmundar Þór-
arinssonar. Er slökkviliðið kom
að, var húsið, sem er stórt,
járnklætt timburhús, alelda.
Slökkviliðið af Keflavikur-
flugvelli kom einnig fljótlega að
og var tekiö til bragðs aö leggja
yfir 150 metra langa lögn i sjóinn.
Sjó var siðan dælt á húsið og reynt
að verja önnur hús, er stóðu fast
við. Fiskhúsið brann til grunna,
en slökkviliðsmönnum tókst að
hindra að eldur læsti sig i önnur
hús, þrátt fyrir suðaustan 6-8
vindstig i Gerðunum i nótt.
Slökkvistarfi lauk um klukkan 6 i
morgun.
Greinilegt er, að milljónatjón
hefur orðið i þessum bruna. I hús-
inu, sem brann, var mikið magn
af fullverkuðum saltfiski, er átti
að fara að pakka i morgunsárið. i
morgun var unnið að þvi aö
kanna skemmdir og hugsanleg
eldsupptök.
—JB
ÓTTINN VAR
ÁSTÆÐULAUS
— upphaflegar hugmyndir um burðarþoi
nýju vörubryggjunnar á Akureyri voru
réttar.
— Loks hœgt að Ijúka framkvœmdum
— en sprauta samt
— baksíða
Nú sjá Akureyringar loksins
fram á að geta lokiö við gerö
- nýrrar vöruhafnar, en fram-
kvæmdir við hana hófust fyrir
fimm árum, en lögöust niður um
alllangt skeið vegna efasemda,
sem upp komu um burðarþol
bryggjunnar. Nú er komið á dag-
inn, að upphaflegu áætlanirnar
um buröarþolið voru réttar.
Bryggjan á að geta borið nokk-
uð yfir 200 tonn, að þvi er segir i
bráða’birgðaskýrslum frá Rann-
sóknastofnun byggingariðnaðar-
ins, sem falið var að endurmeta
áætlað burðarþol hennar. Sam-
kvæmt upphaflegum áformum
átti vörubryggjan að geta vorið
2.5 tonn á hvern fermetra.
Niðurstaða burðarþolsrann-
sóknanna verður að teljast já-
kvæð, en hún þýðir, að bygging
vörubryggjunnar verður bæði
ódýrari og fljótafgreiddari en
ella. Höfðu menn búið sig undir
þaö, aö fjölga yrði staurum undir
bryggjunni um 21 og var búið að
gera uppkast að samningi við
fyrirtækið Strengjasteypu hf. um
smiði á viðbótarstaurum.
Hefur Pétur Bjarnason,
hafnarstjóri á Akureyri, látið
hafa það eftir sér, aö ef hægt
verður aðsleppa þessum 21 staur,
þýði það tæplega fimm milljón
króna lækkun á verði bryggjunn-
ar og stytti framkvæmdir við
hana um allt að tvo mánuði.
Að sögn Péturs hefði átt að vera
hægt að ljúka framkvæmdum við
bryggjuna fyrir tveim til þrem
árum, ef fyrrnefndar tafir hefðu
ekki komið til. Nú geri hann sér
vonir um, að bryggjusmiðinni
verði lokið i sumar.
—ÞJM
Iðnaðurinn andvígur tillögum útgerðarmanna
,Gengið verður
að skrá rétt'
— sagði Davíð Sch. Thorsteinsson, form.
Fél.ísl. iðnrekenda
,,Það er óhugsandi að
fara uppbótaleiðina, ”
sagði Davið Scheving
Thorsteinsson, formað-
ur Félags islenzkra
iðnrekenda, i morg-
un. Hann taldi iðnaðinn
ekki geta sætt sig við
þá stefnu, sem fram
kom hjá útvegsmönn-
um i gær. Þeir töldu
gengislækkun ekki
mundu verða að gagni
en mæltu með tilfærsl-
um til útvegsins i þvi
formi að dregið yrði úr
álögum á hann og
fleira.
„Tilfærsla milli útflutnings-
greina gengur ekki,” sagði
Davið. „Forsenda þess, að hægt
sé að koma á stöðugleika I efna-
hagsmálum og viðhalda al-
mennri framleiðslu til heima-
notkunar og útflutnings, er sú,
aö gengi krónunnar sé ekki
skekkt með neins konar til-
færslu. Gengið verður að skrá
rétt og láta lifa, sem gengur i at-
vinnurekstri.” Davið sagði, að
útflutningur iðnaðarvara næmi
2000 milljónum á ári. Iðnaður-
inn yrði I voða, ef sú leið yrði
farin að halda genginu uppi meö
uppbótum eða tilfærslum af
sllku tagi.
Útvegsmenn telja þá ann-
marka á gengisfellingu, að hún
eykur kostnað þeirra, svo sem
ollu, og þeir skulda mikið i skip-
unum erlendis, sem mundi
hækka við gengisfellingu. Fleiri
annmarkar eru, svo sem við
hlutaskipti sjómanna óg fleira.
— HH.