Vísir - 04.02.1975, Page 16
Þriöjudagur 4. febrúar 1975.
26,3 millj.
í snjóflóðo-
söfnunina
,,NÚ hafa borizt kr. 26.333.592,- i
snjóflóöasöfnunina, sem staöiö er
fyrir vegna snjóflóöanna á Nes-
kaupstað.
Frá Djúpavogi hafa borizt
117.700 kr., frá Bæjarsjóði Hafnar
fjaröar 500.000 kr. Breiðdalsvlk
hefur gefið 261.500 kr., Pöntunar-
félag Eskfirðinga 100.000 kr. og
Ungmennafélag öræfa 100.000 kr.
Frá Hraðfrystihúsinu hf. Hnifsdal
bárust 100.000 kr. Or Gerðahreppi
412.000 kr. Starfsfólk islenzka
Alfélagsins gaf 393.000 kr., sunnu-
dagaskólinn á Skagaströnd
110.000 og frá Eyrarbakka og
Stokkseyri hafa borizt 142.000 kr.
Þar af gáfu fangar á Litla-Hrauni
52.500 krónur.
— EA.
Vegirnir
heilir
ennþá
- „sem betur fer##
„Viö höfum engar fregnir feng-
iö af vatnaskemmdum ennþá,
sem betur fer”, var okkur sagt
þegar viö höföum samband við
vegaeftirlit Vegagerðarinnar i
morgun, en spáö er úrkomu og
hvassviðri á Suðurlandi, og þar er
víða mikill snjór.
Fært er nú alla suðurströndina
austur að Lónsheiði, en nú er ver-
ið aö moka hana. Fært er frá
Egilsstöðum suður i Breiðdal, en
viða ekki nema stórum bilum.
Verið er að moka Holtavörðu-
heiðina og þá er fært norður i
Skagafjörð og til Siglufjarðar.
öxnadalsheiðin er ófær. Um
Snæfellsnes er fært og fært verður
i Reykhólasveit i dag. Um aust-
anvert Norðurland er fært stórum
bflum.
— EA.
Mikil loðnuveiði
„Globalinn"
fullur og
hvergi
plóss að fó
— nœrri veiðisvœðun-
um fyrir oustan
Mikiö veiddist af loönu i nótt.
Fullpantað er i Norglobal, sem er
væntanlegt inn á Reyöarfjörð um
fimmleytiö. Alls staöar er fullt.
Tuttugu og niu skip höfðu
klukkan tiu i morgun tilkynnt afla
frá miðnætti, alls 7800 tonn.
Þá var hvergi pláss nema smá-
vegis á Raufarhöfn, sem varla
mun endast fram á daginn. Þvi
má segja, að öll pláss séu tekin i
dag og á morgun.
Hornafjörður er úr leik sem
stendur, og þar hafa skip lokazt
inni, komast ekki út úr höfninni
vegna sjógangs.
Norglobal tekur 3600 tonn.
—HH
„Fiskverðið fyrst" sœtisráðherra
„Viö munum leitast viö aö
hraöa afgreiöslu fiskverös,”
sagöi Geir Haligrimsson for-
sætisráöherra I viötali viö blaöiö
I morgun. Hann taldi eölilegast,
aö byrjaö væri á aö afgreiöa
fiskveröiö. ,,A þessu stigi er
ekki hægt aö segja, hvaö meö
þarf aö fylgja,” sagöi hann.
Raddir hafa heyrzt um, aö
erfitt sé að afgreiða fiskverð,
fyrr en fyrir liggi, hvort genginu
veröi breytt eða ekki. útvegs-
menn samþykktu á aukafundi i
gær að fresta fundi til 10. febrú-
ar „i trausti þess, aö rlkis-
stjórnin dragi ekki fram yfir
lok þessarar viku aö gera
nauðsynlegar ráöstafanir.”
Sjómenn frestuðu einnig verk-
fallsboðun sinni, og kemur
samninganefnd þeirra saman
10. febrúar til að athuga stöðuna
og hvort þá skuli boða verkfall.
Forsætisráöherra vildi ekki
segja, hvort aðgerðirnar kæmu I
vikunni.
A fundi útvegsmanna i gær
kom fram, að gert er ráð fyrir
2,1 milljón króna halla á báta-
flotanum að óbreyttum
aðstæðum, 622 milljóna haila á
rekstri stóru togaranna og 567
milljóna halla á rekstri hinna
minni. Þetta eru hærri tölur en
áður höfðu veriö nefndar, enda
hefur kostnaður við útgerðina
hækkaö dag frá degi að undan-
förnu.
—HH
„Þetta er allt annan lif,”
sagöi starfsfólk Rafmagnsveitu
Reykjavikur i morgun, er þaö
gat á ný virt umheiminn fyrir
sér. Rafmagnsveituhúsiö i
Armúlanum var, eins og önnur
hús I bænum, þakið salti og aur
eftir óveðrið að undanförnu, en i
morgun var ráöin á þvi bót og
það þvegiö hátt og lágt.
En það voru ekki venjulegir
gluggahreinsunarmenn, er
þvoðu húsið, heldur fékk
rafmagnsveitan sjálft slökkvilið
borgarinnar til aðstoðar við sig.
Kom ein vakt með bil inn i
Armúla og dældi vatni á húsið,
þótt eldur væri hvergi
sjáanlegur.
„Þetta heyrir algjörlega
til undantekninga” sagði vakt-
stjórihjáslökkviliðinu I morgun.
„Þeireru svo mikil snyrtiménni
þarna hjá rafveitunni, aö
slökkviliðið hefur einstaka
sinnum rétt þeim hjálparhönd
við að sprauta á húsið, og eins
kemur einstaka sinnum fyrir að
við sprautum borgarskrifstof-
urnar I Skúlatúni. En þetta eru
einu skiptin, sem slökkviliðið
tekur að sér gluggaþvott og
heyrir til undantekninga,” sagði
varðstjórinn.
En starfsmenn rafmagnsveit-
unnar voru á einu máli um það I
morgun, að slökkviliðsmönnun-
um hefði farizt verkið vel úr
hendi og rúðurnar hefðu sjaldan
verið hreinni.
—Ljósm. Bj.Bj.
JB
DRÁTTARVÉLIN FAUK UM 20 METRA
— en nú er komið bezta veður í Skagafirði
— verra er hins vegar ó Suðurlandinu
„Plötur voru byrjaöar aö
fjúka af þökum og dráttarvélar
fóru sjálfkrafa af staö,” sagöi
simstöðvarstjórinn I Haganes-
vik, þegar við ræddum við hann
I morgun, en á þessum slóöum
mældust allt upp I 16 vindstig I
mestu hviöunum i gær.
Við bæinn Austur-Hól hafði
verið skilin eftir dráttarvél i hlíð
fyrir ofan bæinn. Þegar fólk leit
þar út um gluggann i gær, var
dráttarvélin horfin. Þegar farið
var að gá betur komi ljós, að
hún hafði runnið um 20 metra.
Þessu olli svell og svo ofstopa-
rok.
Simstöðvarstjóri sagði, að nú
væri mesta blíðskaparveður, en
öðru máli gegnir á Suðurlandi.
Þar er viða mjög hvasst og hér I
Reykjavik er til dæmis spáð
storini og rigningu i dag,en bú-
izt er við að lægi i nótt.
Veðurspáin gerði jafnvel ráð
fyrir flóðum á Suðurlandi,
en þegar við höfðum samband
við Veðurstofuna var okkur
tjáð, að hættan væri mest i
kringum Vik I Mýrdal.
Sparisjóðsstjórinn þar,
Sigurður Nikulásson, sagði, að
eflaust yrðu engin flóð I byggð-
inni sjálfri, enda kvað hann snjó
hafa minnkað mjög mikið. „En
nóg er af honum samt,” tók
hann fram.
Hann kvað helzt hættu á að
flóö yrðu úti á vegum og að þá
gæti grafið þar úr. Ekki höfðu
neinar fregir borizt af tjóni eða
skemmdum i morgun.
— EA
Reykvískir þingmenn fó 34.000
kr. minna en nœstu nógrannar
Þingmenn utan af landi fá á
mánuöi um 200 þúsund krónur,
þegar saman eru talin laun
þeirra, húsnæöisstyrkur, dval-
arkostnaöur, feröakostnaöur og
fleira, sem þeir fá greitt vegna
þingmennsku. Þeir, sem búa i
grennd viö Reykjavik og aka
heim aö loknum vinnudegi, fá
eitthvaö um 23 þúsund minna.
Reykvikingar fá um 34 þúsund-
um minna en þessir nágrannar
þeirra.
Föst laun þingmanna eru
117.421 krónur á mánuði. Þetta
er lögbundið. Utanbæjarmenn,
sem þurfa að búa i Reykjavlk
um þingtimann, fá húsnæðis-
kostnaö greiddan samkvæmt
reikningi en þó aldrei meira en
23 þúsund á mánuði. Aðrir en
Reykvikingar fá 1140 krónur á
dag, eða um 34 þúsund á mán-
uöi I dvalarstyrk.
Þá fá þingmenn allir, einnig
Reykvikingar, 200 þúsund á ári,
sem svarar til tæpra 17 þúsunda
á mánuði, til ferðalaga vegna
þingmennsku.
Sé þetta lagt saman fást rúm-
ar 190 þúsund krónur á mánuði.
Við bætist svo, að þingmenn fá.
greiddar samkvæmt reikningi
ferðir til og frá kjördæmi og
aukaferðir þar, allt að 24 ferð-
um á ári. Loks fá þeir greiddan
kostnað af einum slma.
Séu þingmenn i föstu starfi
hjá hinu opinbera, halda þeir
3/10 af launum i þvi starfi, ef
þeir geta ekki sinnt þvi nema
milli þinga. Ef þeir geta að ein-
hverju leyti sinnt starfinu með
þinginu, halda þeir 3/5 af laun-
um þar.
Margir þingmenn sitja i
nefndum. Þingnefndir eru ekki
launaðar, en önnur slik störf
nokkuð misjafnt. Fyrir setu i
bankaráði eru greiddar 11975
krónur á mánuði að sögn Ara
Guðmundssonar starfsmanna-
stjóra Landsbankans.
Friðjón Sigurðsson skrif-
stofustjóri Alþingis lagði i við-
tali við blaðið áherzlu á, að laun
þingmanna væru 117.421 króna
en hitt, sem þeir fengju, væri
kostnaður við þinghald og bæri
að skoða eins og það, sem aðrar
stéttir fengju, sem ynnu fjarri
heimilum, fæðisstyrk sjómanna
og fleira.
— HH.