Vísir - 08.02.1975, Blaðsíða 3
Vlsir. Laugardagur 8. febrúar 1975.
3
ólafur Þór inni f annarri gufubaðstofunni, sem hann tekur I
notkun I dag. Ljósmynd Bj. Bj.
„Bjartsýiw á að
þetta gangi vel"
— segir ungur blindur nuddari, sem í
dag opnar glœsilega gufu- og nudd-
stofu í Blindraheimilinu við Hamrahlíð
„Þetta verður eina gufubaö-
stofan i bænum, þar sem kariar
og konur geta komiö alian dag-
inn og fengiö gufubaö og nudd”
sagöi Ólafur Þór Jónsson, sem i
dag opnar giæsilega gufubaö-
stofu f Blindraheimilinu aö
Hamrahliö 17.
„Flestar gufubaðstofurnar
hérna eru með sértlma fyrir
karla og aðra fyrir konur, og
fólk er lengi að átta sig á þeim
og læra á þá. Hjá sumum er svo
ekkert nudd á boðstólum, en þvi
óska margir eftir nú orðið”.
Olafur, sem er blindur, hefur
með aðstoð vina og ættingja
komið upp skemmtilegri að-
stöðu i Blindraheimilinu, en þar
fékk hann leigt húsnæði undir
starfsemina. Eru þar tvær gufu-
baðstofur — ein fyrir karla og
önnur fyrir konur — og auk þess
tvö nuddherbergi og tvö hvild-
arherbergi.
Er öllu mjög haganlega komið
fyrir, og allt teppalagt og málað
I fallegum litum. Opið verður
frá 9 fyrir hádegi og fram eftir
degi, og ganga þeir fyrir i nudd,
sem panta tima. Má gera þaö
með þvi að hringja I sima 22118.
„Ég er bjartsýnn á að þetta
gangi”— sagði ólafur, sem er
útlærður nuddari hjá Eðvald
Hinrikssyni i Sauna I Hátúni 8,
en þar starfaði hann I nær fimm
ár. „Þetta verður örugglega
erfitt til að byrja með, en þegar
fólk fer að þekkja staðinn hef ég
trú á að þetta gangi”.
—klp—
Mál þingfest gegn
sjávarútvegsráðherra
Mái hefur nú veriö höföaö gegn
sjávarútvegsráöherra, vegna aft-
urköllunar ráöuneytisins á rækju-
veiöileyfum báta frá Blönduósi.
Það er rækjuvinnslan Særún á
Blönduósi, sem höfðar málið, en
það var þingfest i bæjarþingi
Reykjavikur i fyrradag.
Særúnarmenn krefjast þess, að
sjávarútvegsráöherra verði fyrir
hönd ráðuneytisins dæmt óheim-
ilt að banna bátum þessum að
selja afla sinn til vinnslu i
vinnslustöð Særúnar.
Eins og sagt var frá á dögun-
um, ætluðust forráðamenn Sæ-
rúnar til þess, að sjávarútvegs-
ráðherra kæmi fyrir i rannsókn
máls þess, sem saksóknari höfð-
aði á hendur Nökkva h.f. og Sæ-
rúnu h.f. vegna veiða, eftir að
leyfi hafði verið afturk-aHað.
Setudómarinn i málinu taldi ekki
ástæðu til að kalla ráðherra fyrir,
enda fengust svör við öllu, sem
ráðuneytið var spurt um i þeirri
rannsókn.
—SH
53% aukning atvinnuleysis í janúar
Orðið ámóta og
var fyrir ári
— 23 iðnaðarmenn atvinnulausir í Reykjavík
Atvinnulausum f jölgaði
um 53% í janúar. Þeir eru
þó enn sem komið er
örlítið færri en var á
sama tima i íyrra. All-
margir iðnaðarmenn eru
nú komnir á atvinnu-
leysisskrá í Reykjavik.
Ógæftir og óveður settu svip á
janúarmánuð úti um allt iand,
enda eru fleiri atvinnulausir i
þorpunum en var i fyrra. I
kaupstöðunum eru hins vegar
talsvert færri atvinnulausir en
þá.
Mestur hluti hinna atvinnu-
lausu, sem bættust við i janúar,
eru konur. Þannig kemur staður
eins og Grindavik, þar sem nær
aldrei hefur verið atvinnuleysi,
nú með 50 konur á atvinnu-
leysisskrá en engan karl.
Frystihúsið vantar hráefni. Af
71 atvinnulausum á ólafsfirði
eru 47 konur og 39 af 63 atvinnu-
lausum á Siglufirði.
Tuttugu og þrir iðnaðarmenn
eru skráðir atvinnulausir i
Reykjavik. Það eru 15 málarar,
2 trésmiöir, 2 múrarar, 3 ráí-
virkjar og 1 húsasmiður. 1 fyrra
voru á sama tima þrir iðnaöar-
menn á atvinnuleysisskrá i
Reykjavik.
Alls eru 112 skráöir atvinnu-
lausir i Reykjavik, en voru 66
um áramótin. A Húsavik er 71
atvinnulaus. 1 öðrum bæjum en
þeim, sem hafa verið nefndir,
eru færri en 50 atvinnulausir.
Alls eru 505 atvinnulausir i bæj-
um en voru 586 fyrir ári. 1 kaup-
túnum með yfir þúsund Ibúa eru
alls 51 á skrá og 380 i smærri
kauptúnunum. I hinum minni
voru 317 skráðir atvinnulausir á
sama tima i fyrra.
A landinu öllu eru 936 atvinnu-
lausir samkvæmt þessari
skráningu en voru 611 fyrir
mánuði og 942 á sama tima fyrir
einu ári.
I þorpum eru flestir atvinnu-
lausir á Vopnafirði eða 43, i
Stykkishólmi 41, á Fáskrúðs-
firöi og Þórshöfn 40 á hvorum
staö.
—HH
Stríðsþjáðir fá hjálp íslendinga
Sá fatnaður sem tslendingar
hafa gefið til Eþiópiumanna að
undanförnu fær svo sannarlega
að ganga i gegnum margt. Fatn-
aðurinn er allur sendur til
Asmara höfuðborgar Eritreu, en
þar hefur nú gengið á loftárásum,
og hefur þar verið útgöngubann.
Að sögn Guðmundar Einars-
sonar hjá Hjálparstofnun kirkj-
unnar hefur móttaka fatnaðarins
verið staðfest, og hann kvaðst
vona að fötin kæmu ekki siður að
góðum notum einmitt núna.
Séra Bernharður Guðmundsson
er nú staddur i Addis Ababa, og
var ætlunin að hann færi til
Asmara.
Siðasta fatasendingin fór héðan
fyrir tveimur dögum, um 10-12
tonn, og biður hún i Luxemburg.
Samtals hafa þvi verið send 35
tonn og slær það öll Islandsmet.
— EA
Þingmannablokkir í Kópavogi?
Margt er sér til gamans gert, og
nú hafa einhverjir gamansamir
fuglar fengið útrás með þvi að
auglýsa hentugar ibúðir fyrir
þingmenn rétt utan við borgar-
mörkin. En eins og menn muna
kannski, sagði Visir frá þvi á
dögunum að þingmenn i
Reykjavik hefðu kr. 34 þúsund
Iægri laun á mánuði hverjum en
næstu nágrannar þeirra. Einnig
hefur flogið fyrir, aö hagsýnir
kaupsýslumenn hafi nú i undir-
búningi byggingu lúxusblokkar
Kópavogsmegin I Fossvoginum,
sem athvarf fyrir alþingismenn.
Samt er ekki vist, að alþingis-
menn almennt hafi geð til að
hagnýta sér þessi kostaboð, fyrr
en starfsfólks alþingis þarf ekki
lengur að vera i málaferlum út
af laununum sinum. —SH