Vísir - 18.02.1975, Síða 12
12
Vísir. Þriðjudagur 18. febriíar 1975.
SIGC3I SIXPEMSARI
Þau Siw Zachrisson og Sture
Ekberg urðu sænskir meistar-
ar i tvenndarkeppni nýlega og
i eftirfarandi spili fengu þau
„topp”. Suður spilaði út
spaðaás i þremur tiglum aust-
urs dobluðum.
4 KD9854
V G6
♦ 32
4 G76
4 732
V KD
4 AD1095
4 D94
4 G106
V 109742
♦ K
4 K1083
N
V A
S
4 A
V A853
♦ G8764
4 A52
Norður opnaði á tveimur
spöðum, veikt, og austur kom
inn á þremur tiglum. Suður
doblaði — en i n/s voru þau,
sem sigruðu á mótinu i fyrra,
Ulla Kruse og Henry Jagere.
Nú, eftir að hafa spilað út
spaðaás tók suður á hjartaás
— í von um að fá „kall”, en
það skeði ekki. Þá tók suður á
laufaásinn og Ekberg fór að
liða betur og betur. Suður spil-
aði aftur laufi, sem Ekberg
tók á eigin hendi. Þá tigull á
kónginn og hjarta heim.
Gosinn féll. Þá tók austur á
tigulás og tiguldrottningu og
spilaði siðan laufi á kónginn.
Þá kastaði hann spöðum
sinum á 10 og 9 i hjartanu og
suöur fékk svo aðeins á
tigulgosann til viðbótar
ásunum þremur. 3 tiglar,
doblaðir, unnir. Mikil heppni,
en sá, sem hættir engu, vinnur
ekkert.
A skákmótinu i Hastings um
áramótin kom þessi staða upp
i skák Planinc og Basman,
sem hafði svart og átti leik.
22.----Bb4! 23. c3 — exd4
24. cxb4 — Hae8 25. Dd2 — Re5
26. Hxe5 — Hxe5 27. Dxd4 —
He2 28. Rf4 - Hxf4! 29. gxf4 —
Df5 30. Khl — Dh5 og hvitur
gafst upp.
Reykjavik — Kópavogur.
Dagvakt: kl. 08.00—17.00 mánud.
— föstudags, ef ekki næst i heim-
ilislækni simi 11510.
Kvöld- og næturvakt: kl. 17.00 —
08.00 mánudagur — fimmtudags,
simi 21230.
Ilafnarfjörður — Garðahreppur.
Nætur- og helgidagavarzla, upp-
lýsingar i lögregluvarðstofunni,
simi 51166.
A laugardögum og helgidögum
eru læknastofur lokaðar, en lækn-
ir er til vjðtals á göngudeild
Landspitalans, simi 21230.
Upplýsingar um lækna- og lyfja-
búðaþjónustu eru gefnar i sim-
svara 18888.
Kvöld-, nætur- og helgidaga-_
varzla apótelanna vikuna 14.—20.'
febrúar er i Apóteki Austurbæjar
og Lyfjabúðinni Iðunni.
Það apótek, sem fyrr er nefnt,
annast eitt vörzluna á sunnudög-
um, helgidögum og almennum
fridögum. Einnig næturvörzlu frá
kl. 22 að kvöldi til kl. 9 að morgni
virka daga, en kl. 10 á sunnudög-
um, helgidögum og almennum
fridögum.
Kópavogs Apótek er opið öll kvöld
til kl. 7, nema laugardaga er opið
kl. 9-12 og sunnudaga er lokað.
Rafinagn: I Reykjavik og Kópa-
vogi I sima 18230. I Hafnarfirði i
sima 51336.
Hitaveitubilanir simi 25524.
Vatnsveitubilanir slmi 85477.
Simabilanir simi 05.
Slysavaröstofan: simi 81200, eftir
skiptiborðslokun 81212.
Sjúkrabifreið: Reykjavik og
Kópavogur, simi 11100, Hafnar-
fjörður slmi 51100.
Tanniæknavakt er i Heilsuvernd-
arstööinni viö Barónsstig alla
laugardaga og sunnudaga kl.
17-18. Simi 22411.
Reykjavik: Lögreglan simi 11166,
slökkvilið og sjúkrabifreið, simi
11100.
Kópavogur: Lögreglan simi
41200, slökkvilið og sjúkrabifreið
simi 11100.
Iiafnarfjörður: Lögreglan simi
51166, slökkvilið simi 51100,
sjúkrabifreið simi 51100.
K.F.U.K. Reykjavik
Séra Lárus Halldórsson sér um
bibliulestur i kvöld kl. 20.30. Allar
konur velkomnar.
Stjórnin.
Frá Sálarrannsóknar-
félagi íslands
Miðar á fundi hjá Joan Reid
verða seldir á skrifstofu félagsins
Garðastræti 8 i dag þriðjudaginn
18. febrúar kl. 17-19, gegn fram-
vísun félagsskirteinis.
Systrafélagið
Alfa
hefur fataúthlutun að Ingólfs-
stræti 19 , 18 þ.m. kl. 2-5 e.h.
Stjómin.
Félag Nýalssinna
Kaffikvöld veröur i Kristalsal
Hótel Loftleiðum i kvöld kl. 8.30.
Erindi um furðuvegi farfuglanna,
Ólafur Halldórsson liffræðingur
flytur.
Frjálsar umræður og spurningar.
Allir velkomnir.
Félag Nýalssinna.
Kvennadeild
Slysavarnafélagsins
1 Reykjavik heldur aðalfund sinn
miðvikudaginn 19. febr. kl. 8.30 i
Slysavarnahúsinu á Granda-
garði.
Ariðandi mál á dagskrá.
Félagskonur fjölmennið.
Stjórnin.
Félag islenzkra sér-
kennara
heldur fund 19. febrúar nk. á
hótel Esju kl. 20:30.
Fjallar fundurinn um giidi
skapandi starfs og listtjáning-
ar I kennslu og uppeldi. Frum-
mælendur verða Sigriður
Björnsdóttir sjúkraiðjukenn-
ari, Guðrún Stephensen kenn-
ari og Eyjólfur Melsted
musik-thereapeut.
Að framsöguerindunum
loknum fara fram umræður.
Rétt er að geta þess, að
skapandi starf og listtjáning
er nú sem óðast að öðlast
viðurkenningu sem nauðsyn-
leg lækninga- og uppeldisað-
ferð og hefur rutt sér mjög til
rúrns erlendis á undanförnum
árum.
A fundinn 19. febrúar eru
allir áhugamenn velkomnir á
meöan húsrúm leyfir.
Frá Golfklúbbi
ReykjaVikur
Innanhússæfingar verða á
fimmtudagskvöldum frá kl. 8.30-
10,30, og hóf ús.t 6. febrúar I leik-
fimisal Laugardalsvallar, (undir
stúkunum). Fólk er beðið um að
hafa með sér inniskó eða striga-
skó. Notaöir verða eingöngu léttir
æfingaboltar. Nýir félagar eru
velkomnir og fá þeir tilsögn hjá
klúbbmeölimum. Stjórnin.
Æfingatímar hjá
Knattspyrnudeild
Fram
Meistara- og 1. fl.:
Miðvikudaga kl. 20.30-22.10.
2. flokkur:
Laugardaga kl. 16.00
3. flokkur
Laugardaga kl. 15.10
4. flokkur:
Laugardaga kl. 14.20.
5. flokkur A og B
Sunnudaga kl. 14.40
5. flokkur C og D
Sunnudaga kl. 15.30.
Æfingatimarnir eru i leikfimis-
húsi Alftamýrarskólans.
Mænusóttarbólusetning
Ónæmisaðgerðir fyrir fullorðna
gegn mænusótt fara fram i
Heilsuverndarstöð Reykjavikur á
mánudögum kl. 16.30—17.30.
Hafið með ónæmisskirteini.
Ónæmisaðgerðin er ókeypis.
Heilsuverndarstöð Reykjavikur.
Fundartimar A.A.
Fundartimi A.A. deildanna I
Reykjavik er sem hér segir:
Tjarnargata 3 c
mánudaga, þriðjudaga,
miðvikudaga, fimmtuaaga og
föstudaga, kl. 9 e.h. öll kvöldin.
Safnaðarheimili Langholtskirkju
föstudaga kl. 9 e.h. og laugardaga
kl. 2 e.h.
Fellahellir: Breiðholti
fimmtudaga kl. 9 e.h.
Simi A.A. samtakanna er
16373, simsvari allan sólar-
hringinn. Viðtalstimi að Tjarnar-
götu 3 c alla virka daga nema
laugardaga kl. 8-9 e.h. A sama
tima svara félagar I sima sam-
takanna, einnig á fundartimum.
Félag einstæðra
foreldra.
Skrifstofa einstæðra foreldra er
opin mánudaga og fimmtudaga
kl. 3—7. Fimmtudaga kl. 10—12 er
ókeypis lögfræðiaðstoð fyrir fé-
lagsmenn. Simi 11822.
n □AG | D KVÚLD Q □AG | D KVÖLD |
„Lagið mitt" kl. 17.00:
„Ég vildi frek-
ar heimsœkja
krakkana sjálf
Berglind Bjarnadótt-
ir sér nú orðið um óska-
lagaþátt fyrir mann-
fólk yngra en 12 ára
einu sinni i viku. i
september fjölgaði
þáttunum og jafnframt
breyttu þeir nafninu úr
„Undir tólf” i „Lagið
mitt”.
Það er af stjórnandanum að
segja, að hún stundar nám við
Menntaskólann i Hafnarfirði og
lærir einsöng hjá Elisabetu Er-
lingsdóttur.
Blaðamaður og ljósmyndari
Vísis hittu hana niðri I útvarpi á
dögunum og spuröu, hvort hún
raulaði ekki undir með tónlist-
inni.
„Ég er nú enginn Wolfman
Jack”, sagði Berglind, og vist er
um það, að röddin er ekki sú
sama og hjá þeim þjóðsagna-
kennda plötusnúð, sem rymur
gjarnan með tónlistinni, sem
hann leikur. Hitt vita kunnugir,
að Berglind raular oft með lög-
unum, sem hún er að leika, án
þess þó að útvarpshlustendur
verði þess varir.
Berglind sagði, að heldur væri
það einhliða að þylja upp nöfn
allra þeirra, sem óskuðu eftir
lögum I þáttinn.
„Ég vildi til dæmis frekar
heimsækja krakkana i skólum
og tala við þá þar, en ég hef nú
ekki hreyft þeirri hugmynd enn.
Þið komið henni á framfæri
fyrir mig”, sagði Berglind.-JB
— segir Berglind Bjarnadóttir