Tíminn - 10.07.1966, Blaðsíða 9

Tíminn - 10.07.1966, Blaðsíða 9
SUNNUDAGUR 10. júlí 1966 TÍMINN Dýrðardagur Ég minnist, minnist þeirra dýrðardaga. Ég drengur reið í stórum hóp á fjóllin. Við fórum Sand. Og seint í Blönduhaga við settum tjöld í þyrping yfir völlinn. Ég lá við skör. Enn man égl móðuniðinn, þó mörgu lífsins ár nú séu liðin, — og þreytt og syf juð höfuð lögð á hnakka, en hestabit og traðk við fljótsins bakka. Svo hefur Einar Benedikts- son upp kvæði sitt, Stórasand, og víst er við hæfi að leggja þær Ijóðlínur á vör þessa dýrð- ardaga íslenzks sumars. Vikan sem leið var hlý, mild og góð. Hún var góð bændum og fiski- mönnum, ferðamönnum og slæp ingjum. Hin síðfæddu grös hafa keppzt við að vaxa og notfæra sér hinn hlýja og tvöfalda sól- dag Jónsmessuskeiðsins. Við höfum enn notið dýrðardaga, sem lifa munu í minningum. í stórum hóp á fjöllin. fráðleysi hefur ríkt að undan- ||!!! förnu í útgerðarmálunum. Borg arstjórnaríhaldið hefur á síðustu árum verið með öllu ófáanlegt 1111 til þess að taka útgerðarmálin í heild til gagngerðrar endur- skoðunar og hefur fellt hvers konar tillögur um það. Þegar borgarfulltrúar Framsóknar- flokksins, Einar Ágústsson og Kristján Benediktsson, fluttu fyrir ári tillögu um það, að efnt væri til gagngerðrar könnunar og leitar að framtíðarleiðum, sendi íhaldið upp í ræðustól pilt með alls konar hagræðing- artölur um það, hve útgerð í Reykjavík væri með miklum blóma, og lét hann segja að eng- in þörf væri að hugsa um fram- tíðina í þessum efnum. Vísaði síðan tillögunni frá. Nú er öf- ugþróunin orðin enn skýrari. Hver togarinn af öðrum gefst upp, og fiskvinnslustöðvarnar i Reykjavík horfa fram á hráefn- isleysi og stöðvun. Loks nú, þeg- ar samdrátturinn er að komast á lokastig, fæst íhaldið til þess að samþykkja tillögu um athug- un. Er þetta að vísu töluverður viðburður, en nú mætti spyrja, hvort ekki hefði verið meira vit í því að samþykkja athugun þess ara mála fyrir einu eða tveimur árum, og ef til vill hefðu þá úr- ræði verið nær nú, ef þessi at- hugun hefði staðið ein tvö síð- ustu árin. Þó er það allstór hópur manna sem hefur enn ríkari ástæðu en nokkrir aðrir til þess að rifja upp erindi Einars um Stórasand því að þeir lifa á nýjan leik þau undur, sem Einari urðu kveikja að einu stórbrotnasta ljóði hans, og hverfa þessa sum- ardaga inn í þúsund ára ferða- sögu þjóðarinnar á hestbaki um íslenzk öræfi. í fyrradag lögðu fylkingar ríðandi fólks frá Skóg- arhólum í Þingvallasveit af stað norður heiðar um Kalda- dai, Arnarvatnsheiði, Tvídægru og Stórasand, og er ferðinni heitið til Hóla á hestaþing í nýj- um stíl. Ekki verður um það sagt, hvort þetta er fjölmenn- asti flokkurinn, sem þessa slóð ir fer milli fjórðunga, en jafn- vel á gullöld eða Sturlungaöld hafa varla oft farið fleiri sam- an. Og fólkið, sem nú heldur „í stórum hóp á fjöllin“ mun síðar „minnast þeirra dýrðar-i daga“ og „muna móðuniðinn“! mörg lífsins ár. Hin nýja öld hestamennskunn ar er satt að segja einhver ánægjulegasta endurvakning; stórbrotinnar íslenzkrar hefðar og heilbrigðrar lífsnautnar, sem; orðið hefur í skemmtanalífi þjóð j arinnar ó síðustu áratugum, og af þessari skemmtan er þroska og manndóms að vænta, en það verður vada sagt um alla skemmtan, sem þjóðin iðkar um þessar mundir. Þess vegna er rík ástæða til þess að óska ferðafólkinu góðr- ar og gifturíkrar ferðar norð- ur fjöll, og að hestaþingið að Hólum verði nýr áfangi á þeirri braut að efla ræktun íslenzkra gæðingsins. Handhafi vonar- Hestamenn haida af staS norður frá Skógarhólum í Þingvallasveit. Fylkingin ríður norSur meS Ármannsfelli áleiSis á Kaldadal. Me nn 09 mákfni innar. í lok vikunnar, sem leið, sótti okkur heim góður gestur, U Thant framkvæmdastjóri Sam- einuðu þjóðanna, og ef nokkur maður í þessum heimi gæti um þessar mundir talizt handhafi vonarinnar, þeirrar vonar, sem mannkynið á heitasta, vonarinn- ar um frið, þá líta menn til hans. Samt er sú von engan veg- inn björt um þessar mundir, og fjarri lagi væri að segja, að hinn góði austurlenzki gestur okkar hefði komið til þess að auka á bjartsýni okkar. U Thant er ekki bjartsýnn maður um of, en hann er raunsær og virðist búa yfir þeim eiginleikum, sem von- ir má öðru fremur byggja á — þolgæðinu og víðsýninu. Ef til vill verður ekki sagt, að U Thant hafi unnið stórvirki eða sett niður deilur þjóða með skorungsskap þennan tíma, sem hann hefur haft fjöregg friðar- vonarinnar í hendi og verið framkvæmdastjóri S.þ. en þó má benda á margt, sem hon- um hefur tekizt að færa til betri vegar, og honum hefur heppnazt fyrirrennurum sínum fremur, að afla sér almenns trausts og tiltrúar andstæðra þjóða fyrir réttsýni og óvilhylli, og það traust getur þegar á reynir orð- ið þyngra lóð á vogarskál frið- ar en umbrotasöm tilþrif. Það duldist engum þeim, sem hlýddu á erindi U Thants í fyrra dag, að hann er gáfaður maður og þjálfaður í dyggðum kyn- stofns síns, og leitar þangað styrks og leiðbeiningar í vanda- sömu starfi og mati mála og við- horfa. Hann gerir sér glögga grein fyrir meginlínum og meg- inorsökum og skilgreinir hvort tveggja á einfaldan hátt. f kenningu hans er þolgæðið og I umburðarlyndið hornsteinar, um burðarlyndi við sjónarmið ann- arra. Mörgum mun verða umhugs- unarefni þau þrjú meginskil- yrði, sem hann taldi forsendu þess, að friður næðist í Viet- Nam, og jafnframt það mat hans á málum, að sá friður sé nú töluvert fjarlægari en fyrir einu ári. Þessi þrjú skilyrði — að loftárásum sé hætt og dregið úr hernaðaraðgerðum á landi. réttur beggja stríðsaðila til sjálfstæðrar samningsgerðar við urkenndur og þjóðinni síðan tryggt tækifæri til sjálfsákvörð- unar virðist í fljótu bragði ekki vera annað en það, sem allir aðilar hafa lýst sig sammála um og teljast sjálfsagður grundvöll- ur, en þó er svo óralangt í þetta samkomulag. Áheyrandanum verður líka hugsað til hinnar einföldu en skýru skilgreining- ar hans á fjórum meginorsök- um styrjalda —- sem hann taldi vera trúarbragðadeilur, mismun andi stjórnarkerfi og stjórnmála skiðanir, kynþáttamisrétti og kynþáttafordáma, og áráttu til þess að drottna yfir öðrum. Við erum ef til vill á sæmilegum vegi með að útrýma einni stríðs orsökinni, trúarbragðadeilum, og umburðarlyndi í þeim efn- um hefur þroskazt að mun, en hinar orsakirnar eru okkur enn sem ókleifur hamar. Við vitum ekki, hvernig sigrast skuli á þessum torfærum, en við vitum, að vopnin í þeirri baráttu verða þau, sem U Thant notar — þol- gæði, umburðarlyndi og víðsýni. En hvar er sú vopnasmíðja, sem smíðar mannkyni nægar birgð- ir þeirra vopna? Er togaraöldin á enda? í útgerðarmálum tala íslend ingar um aldir. Fyrir 50 árum var skútuöldin að enda, og tog- araöldin tók við skömmu síðar. Nú tala menn um að togaraöld- in sé á enda. En hvaða útgerð- aröld tekur þá við? Hvaða veiði- tækni nýrra skipa gefur næstu útgerðaröld nafn? Það mun tím- inn leiða í Ijós, en þeir atburð- ir, sem eru að gerast í togara- útgerðinni, sýna, að fullkomin ástæða er til þess að staldra við. Það má telja óvéfengjanlega staðreynd, að togaraútgerðin með sín gömlu skip er ekki rekstrarhæf við þau skilyrði, sem hún hefur, þrátt fyrir mikla opinbera styrki. Þessi gömlu skip munu því leggjast að landi hvert af öðru. Sjómennirnir fá ef til vill rúm á öðrum skipum, en stór og mikilvæg atvinnutæki í landi, frystihúsin, munu stööv- ast að meira eða minna leyti, ef látið verður arka að auðnu í þessum efnum. Ef togaramir hverfa, án þess að ný fiskveiða- öld hefjist með nýjum skipum og nýrri veiðitækni, verða af því fyrirsjáanleg áföll. Það, sem nú skiptir máli, er að aldaskil- in verði sem áfallaminnst, og togaraútgerðin komist sem fyrst í nýjan áfanga. Reykjavík á t.d. mikið í húfi í þessum efnum, og ótrúlegt Yfirkyndararnir Stórhækkun sú, sem borgar- stjórnaríhaldið boðar nú á hita- veitugjöldum, eða 40—50% er merkilegt tímanna tákn um það, hvemig yfirvöld, sem eiga að teljast ábyrg, hafa alveg gefizt upp við að berjast gegn dýrtíð- inni. Þegar ríkisstjórnin skellti á fiskhækkuninni frægu í vor, markaði sá atburður þau þátta- skil, að ríkisstjórnin gafst opin- berlega og í augsýn alþjóðar upp við að hamla gegn verð- bólgu og dýrtíð, en hafði þó fram að því þótzt hafa einhverja tilburði til þess, þó að í reynd væri það oftast aðeins augna- þ:ónusta. Borgarstjórinn og kapp ar hans í stjómarliði höfuðborg- arinnar hafa líka þótzt berjast gegn verðbólgu, og ætíð þeg- ar þeir hafa hækkað gjaldskrá einhvers þjónustufyrirtækis borgarinriar, hefur verið kapp- kostað að sýna og sanna, að hækkunin væri aðeins til sam- ræmis við orðnar almennar í ækkanir verðlags og kaupgjalds en á engan hátt farið fram úr þvá. En með tillögunni um stór- hækkun hitaveitugjaldanna sem er allt að þrefalt meiri en al- menn hækkun á síðasta ári, gengur borgarstjórinn opinber- lega fram fyrir skjöldu með fullt fang eldsneytis og kastar á dýrtíðarbálið. f stað þess að fylgjast aðeins vel með dýrtíð- inni áður, tekur hann upp þá stefnu rekstri borgarfvrir- tækja að taka stór stökk fram fyrir dýrtíðina, gera fyrir ókom- inni verðbólgu og leggja þann- ig stórt og nýtt lóð á vogarskál verðbólgunnar, gerast opinber kyndari hennar. Þannig á þjóð- in nú tvo vaska kyndara í þjón- ustu sinni, borgarstjórann og forsætisráðherrann, sem vinna á skiptivöktum að því að kynda hina miklu gufuvél verðbólg- unnar.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.