Vísir - 20.03.1975, Síða 16
visir
Fimmtudagur 20. marz 1975.
Fengu 1000
tonn í
gœrkvöldi
— vonzkuveður er nú
ó loðnumiðunum
NU er vonzkuveður á loðnumið-
unum og flestir bátar f höfn. Sex
bátar tilkynntu þó loðnunefnd
afla I gærkvöldi og nótt, samtals
um 1000 tonn. Þeir voru þessir:
Asgeir 250 tonn, Svanur 150 tonn,
Skirnir AK 50 tonn, Helga Guð-
mundsdóttir 50 tonn, Heimir 280
tonn og Rauðsey 240 tonn.
Einn þessara báta hugsaði sér
að fara til Vestmannaeyja, en
kemst ekki vegna veðurs. Hinir
munu leggja upp á Reykjavíkur-
svæðinu, og er Norglobal þá með-
talinn.
Afla sinn fá loönubátarnir nú
einkum um 22-25 milur út af
Akranesi og veiðist dável, þegar
vel viðrar. Engir erfiðleikar eru
nú með löndum og er viða laust
pláss innan seilingar. Ekki þykir
tiltökumál að sigla með aflann til
Vestmannaeyja i bærilegu veðri.
Samkvæmt upplýsingum loðnu-
nefndar munu enn vera 43 bátar á
loönuveiðum.
— SHH
Loðnumjöl
til óburðar?
„Enn of dýrt"
— segir dr. Bjarni
Helgason
Þrátt fyrir gifurlega hækkun á
tilbúnum áburði og fall verðs á
loðnumjöli stenzt mjölið enn ekki
samkeppni sem áburður. Mjölið
kæmi þó til greina sem áburður á
sérræktun, sem skilar miklum
aröi, svo sem til dæmis I gróður-
húsum,” sagði dr. Bjarni Helga-
son jarðvegsfræðingur I viðtali
við VIsi.
Llklega þyrfti verö á tilbúnum
áburöi að tvöfaldast eöa eitthvað
þar um bil, til þess að mjölið
kæmi I hans stað i nokkrum mæli.
Menn hafa spurt, hvort ekki
mætti fara þá leið, þar sem vitað
er, að fiskimjöl er nothæft til
áburðar. Dr. Bjarni sagði, aö
loönumjöl mundi ekkert hafa ver-
iö notaö til þess hér á'landi. Eins
og annað fiskimjöl væri það mjög
dýrt miðað við næringargildi. Þó
hefði það meira gildi I heitu lofts-
lagi til dæmis I Israel, sem hefði
fengið héðan karfamjöl fyrir
sitrónuræktun fyrir nokkrum ár-
um. Loðnumjöl mundi hins vegar
hafa þann kost, eins og húsdýra-
áburður, að verka lengur, þar
sem hin lifrænu sambönd væru
lengur að brotna. Erlendis væri
beina- og fiskimjöl notað nokkuð
viö garðrækt.
— HH
Lögreglukonur harðar í horn að taka:
HUÓP ÞJÓFANA
— enda landsliðskona í handknattleik
Arnþrúður Karls-
dottir, handboitakona
og lögregluþjónn
númer 170, er að verða
að hálfgerðri þjóð-
sagnapersónu innan
lögreglunnar.
Á föstudaginn var
dróst hún á eftir bil
drukkins ökumanns,
sem ætlaði að stinga
hana af og nokkru áður
gómaði hún ásamt
stöllu sinni tvo
innbrotsþjófa i
Hressingarskálanum,
sem vissu ekki af fyrr
en þessar tvær
borgaralegu kiæddu
stúlkur höfðu fært þá i
handjárn.
Svo var það I fyrradag, að
Arnþrúður ásamt vinkonu sinni,
Björgu Jóhannesdóttur, lög-
regluþjóni númer 166, var á
eftirlitsgöngu á Laugaveginum,
að þær veita eftirtekt tveim
laumulegum strákum, er voru
þar á gangi með poka undir
hendinni.
Um leið og piltarnir sáu, að
lögregluþjónarnir veittu þeim
athygli, tóku þeir til fótanna og
töldu það litlum vandkvæöum
bundið að hlaupa stúlkurnar af
sér. En lögreglukonurnar tóku
þegar á rás á eftir þeim, og
Arnþrúður, sem er meðal okkar
beztu handknattleikskvenna,
tók hraðaupphlaup og náði
strákunum innan skamms.
Það kom þá I ljós, að piltarnir
höfðu hnuplað skóm I
Gefjun-Iðunn i Austurstræti, og
eins höfðu þeir komizt yfir
skósvertu og annað smádót hjá
skósmið I Lækjargötunni.
Piltarnir höfðu beðið
skósmiðinn að lagfæra skóna
slna og síðan stolið frá honum,
er hann brá sér á bak við.
1 gærdag voru þær svo á
gangi á Laugaveginum
Arnþrúður og Katrln Þorkels-
dóttir, lögregluþjónn númer 249.
Þá gómuðu þær aftur tvo smáa
búðarþjófa, sem komizt höfðu
yfir ýmislegt smádót I verzlun-
um við Laugaveginn. Katrln fór
með piltana á fund Jóns
Gunnarssonar rannsóknarlög-
reglumanns.
Búðarhnupl af þessu tagi er
orðið mjög algengt að sögn
rannsóknarlögreglunnar og á
hverjum degi koma eitt eða
fleiri slík mál til þeirra kasta.
Til dæmis var Jón Gunnarsson
rannsóknarlögreglumaður á
Laugaveginum fyrir nokkrum
dögum og rakst þá fyrir
tilviljun á'pilta sem honum þótti
Arnþrúður Karlsdóttir, hand-
boltakona og lögregluþjónn
númer 170, hefur hangið I bilum,
sem þeyst hafa af stað, hlaupið
uppi stráka á Laugaveginum og
gripið þjófa á innbrotsstað, frá
þvi hún störf I lögreglunni.
Ljósm. Bj.Bj.
vert að athuga nánar. Kom þá I
ljós, að piltarnir báru með sér
skartgripí fyrir um 20 þúsund
krónur, sem þeir höfðu hnuplað
I einni verzluninni. Verzlunar-
eigendur hafa þvl fulla ástæðu
til að vera vel á verði gagnvart
sllku hnupli úr búðunum. -JB.
„Er að hœtta spámennskunni
næstu helgi,” sagði þessi
myndarlega kerling, sem varð
á vegi blaðamanns Visis að
Frikirkjuvegi 11.
,,Ég heiti Karólina,” upp-
lýsti sú gamla, og hún kynnti
blaðamanninn fyrir nokkrum
kunningjum sinum, sem
þarna voru. „Þetta er hún
Sigga, vinkona min. Þú ættir
að fá hana til að syngja fyrir
þig. Nú, og þetta er hann
Gústi, vinur minn. Passaðu
þig á honum. Hann er göldr
óttur. Og þú verður lika að
kynnast honum þessum,”
sagði Karólina og benti á
hressan karl. „Þetta er hann
Tralli trúður”.
Að lokum kynnti Karólina
blaðamanninn fyrir Láka
nokkrum. Hann húkti úti I
horni heldur daufur I dálkinn.
„Hann er alltaf svona slapp-
ur,” útskýrði Karólina. „Hann
er nefnilega liðamótalaus”.
Það upplýstist loks, að þessi
furðulegi hópur tilheyrir Leik-
brúðulandi, en það er nú orðið
sjö ára gamalt. Það varð til I
sjónvarpinu, en undanfarin
þrjú ár hefur það verið með
reglulegar sýningar á veturna
að Frlkirkjuvegi I húsi Æsku-
lýðsráðs.
„Þið megið geta þess I
Visi,” sagði Karólina,sem enn
hafði orð fyrir hópnum, „að
við vorum á leikferðalagi um
siðustu helgi. Það fara allir
flnir leikflokkar I leikferðir út
á land. Við fórum til tsafjarð-
ar og Bolungarvlkur. Það voru
þrjár sýningar á tsafirði og
aðsóknin var svo góð, að ég
trúi ekki öðru en að þetta hafi
verið allir krakkarnir I bæn-
um.”
Og að lokum gat Karólina
þess, að Leikbrúðuland færi
með nokkrar sýningar út á
land, eftir að sýningum væri
lokið I Reykjavik. —ÞJM
„A ég að spá fyrir ykkur
drengir? Það eru að verða sið-
ustu forvöð fyrir ykkur
borgarbúa að hlusta á spá-
dóma mína. Ég hætti spá-
mennskunni I Reykjavik um
„Vonir til að atvinnurekendur hreyfi sig/' segir Björn Jónsson
Allsherjarverkfall boðað 7. apríl
#/Við höfum ekki gefið
upp von um samninga án
verkfalla. Það eru ef til
vill einhverjar vonir til,
að atvinnurekendur
hreyfi sig. Til vonar og
vara höfum við samþykkt
að óska eftir, að vinnu-
stöðvun verði boðuð f rá 7.
apríl," sagði Björn Jóns-
son, forseti Alþýðusam-
bandsins, i morgun.
„Það var samþykkt einróma I
37 manna baknefnd okkar og 9
manna samninganefndinni að
fara þessa leið,” sagði Björn.
„Mikill meirihluti félaga
innan ASl mun fara I verkfall, ef
ekki verður samið áður, þótt ég
geti auðvitað ekki fullyrt, að það
verði hundrað prósent,” sagði
hann.
Hefur ASl samþykkt, að kaup
fyrir ofan 68800 krónur verði
ekki hækkað?
„Við höfum látið það liggja
nokkuð á milli hluta, en það er
ekki fjarri þeim mörkum, sem
viö gætum hugsað okkur.”
„Þá mundu lika svo til allir i
ASt fá hækkun.
Björn sagði, að at-
vinnurekendur yrðu að hækka
sig úr þeim 3800 krónum, sem
þeir hafa boðið i kauphækkun,
og auk þess þyrfti að koma
hækkun á eftirvinnuna. Þetta
væru þau tvö meginatriði, sem
enn væru ófrágengin.
-HH.