Tíminn - 16.07.1966, Síða 4

Tíminn - 16.07.1966, Síða 4
4 TÍMINN LAUGARDAGUR 16. júlí 1966 FRÉTTATILKYNiNG FRÁ KAFFIBRENNSLU 0. J0HNS0N & KAABER H.F. Innkaupum Kaffibrennslu 0. Johnson & Kaaber h.f. er hagað þannig, að kaffið er keypt í Brasilíu og flutt frá útskipunarhöfnum þaðan til íslands með umskipun í Evrópuhöfn. Síðasta sendingin, sem kom til landsins, var tekin til brennslu og dreifingar fyrir nokkrum dögum. Mjög bráðlega Kom í Ijós, að vörugæði þessarar sendingar voru eigi sem skyldi, og fór það ekki milli mála, að bragðgæði voru önnur og verri heldur en vera bar samkvæmt þeim kaupum, sem gerð höfðu ver- ið. Á þessu stigi málsins skal það tekið fram, að kaffi það, sem keypt er fyrir Kaffibrennslu 0. Johnson & Kaaber hf. í Brasilíu, er ávallt hæsti gæðaflokkur af Rio-kaffi, og eru öll tiltækileg ráð nýtt til þess að tryggja, að eingöngu beztu gæði séu raunverulega send. Er í þessum tilgangi notuð þjónusta óvilhallra mats-stofnana, sem starfa undir opinberu eftirliti. Nú er það hins veg- ar augljóst, að einhvers staðar hefur brostið hlekk- ur í sambandi við tryggingu þess, að bragðgæði þessarar sendingar yrðu sem skyldi, en að sjálf- sögðu verður það málefni rannsakað niður í kjöl- inn. Það hefur ávallt verið staðföst ákvörðun Kaffi- brennslu 0. Johnson & Kaaber hf. að aldrei yrði slakað á hinni áratuga gömlu og hefðbundnu á- kvörðun, að framleiðsluvara fyrirtækisins skuli ávallt vera í hæsta gæðaflokki. Nú er hins vegar í fyrsta skipti svo komið, að Kaffibrennslan hefur fengið hráefnabirgðir, sem ekki svara þessum kröfum, og með hliðsjón af framanskráðu hefur stjórn fyrirtækisins, eftir nákvæma yfirvegun, á- kveðið, að þar sem hráefni þetta fullnægir ekki framangreindum gæðakröfum, sé það ónothæft til framleiðslu fyrir 0. Johnson & Kaaber kaffi. Því er augljóst, að um enga leið er að ræða aðra en þá, að stöðvuð verði framleiðsla og dreifing á 0. Johnson & Kaaber kaffi, þangað til tekst að afla hráefnis, sem svarar þeim kröfum um gæði, sem að framan er lýst. Þykir því stjóm Kaffi- brennslu 0. Johnson & Kaaber hf. mjög leitt að þurfa að tilkynna viðskiptavinum sínum, að um nokkurra daga skeið verður 0. Johnson & Kaaber kaffi eigi fáanlegt á markaðinum.. Nú þegar hafa verið gerðar ráðstafanir til að kaupa frá kaffi- seljendum i Evrópu birgðir af Rio-kaffi 1 hæsta gæðaflokki, og verður framleiðsla og dreifing hafin á ný strax og þessar birgðir berast til lands- ins. Má búast við, að þetta taki allt að vikutíma. KAFFIBRENNSLA O. JOHNSON & KAABER HF. LAUSAR STÖÐUR Eftirtaldar stöður hjá bæjarsjóði Hafnarfjarðar eru hér með lausar til umsóknar: 1. Staða bæjar- ritara 2 Staða skrifstofumanns. 3. Staða inn- neimtumanns. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf skulv sendar bæjarstjóranum í Hafn- arfirði fyrir 30. þ.m. HafnarfirSi 15 júlí 1966, Bæjarstjórinn í Hafnarfirði. Jörð Jörð eða grasbýli óskast til leigu eða kaups, við kaup- stað, með stóru og góðu í- búðarhúsi, helzt á Suður- nesjum eða sem næst Reykjavík Æskilegt, að bú stofn fengist keyptur á staðnum, þó ekki skilyrði. Upplýsingar í síma 12622 næstkomandi laugardag og sunnudag. Einnig óskast tilboð send á afgreiðslu blaðsins sem fyrst, merkt „Viðskipti”. Höfura kaupendur að 2ja, 3ja, 4ra og 5 her- bergja íbúðum, einbýlis- húsum og íbúðum í smíð- um. Útborganir 200—1600 þús. kr. Vagn E. Jónsson, Gunnar M. Guðmundsson, hæstaréttarlögmenn. Austurstræti 9, Símar 21410 og 14400, e.h. 32147. TIL SOLU lítil íbúð við Ljósheima. Félagsmenn, sem vilja nota forkaupsrétt að íbúðinni, snúi sér til skrifstofunnar, Hverfisgötu 39, fyrir 20. júlí. B. S. S. R., sími 2 38 73. BARNALEIKTÆKI ★ ÍÞRÓTTATÆKI Vélaverkstæði Bernharðs Hannessonar, Suðurlandsbraut 12, Sími 35810. HÚSBYGGJENDUR TRÉSMIÐJAN, Holtsgötu 37, framleiðir eldhúss- og svefnherbergisinnréttingar. HOTEL Hótel Loftleiðir óska eftir að ráða nú þegar rösk- an karlmann til starfa í þvottahúsi og nokkrar stúlkur til ýmissa hótelstarfa. Upplýsingar hjá veitingastjóra Hótel Loftleiða, sími 22322. ÍSLANDSMÓTIÐ LAUGARDALSVÖLLUR. í dag, laugardag, kl. 4.30 leika K.R. — Í.B.A. Dómari: Valur Benediktsson. MÓTANEFND. TREFJAPLAST PLASTSTEYPA Húseigendur! Fylgizt með tímanum. Ef svalirnar eða þakið þarf endurnýjunar við, eða ef þér eruð að byggja, þá látið okkur ann- ast um lagningu trefja- plasts eða plaststeypu á þök, svalir, gólf og veggi á húsum yðar, og þér þurfið ekki að hafa áhyggjur af þvi í framtíðinni. Þorsteinn Gíslason, málarameistari, sími 17-0-47. Klæöningar Tökum að okkur Kiæðning ar og viðgerðir á tréverki á bólstruðum húsgögnum. Gerum einnig tilboð i við- hald og endurnýjun á sæt- um í kvikmyndahúsnm. fé- lagsheimilum. áætlunarbjf- reiðum og öðrum bifreið- um í Reykjavík og nær- sveitum. Húsgagnavinnusrofa Bjarna og Samúels, Efstasundi ?1, Reykjavík sími 33-6-13. Jón Eysteinsson, lögfræðingur. Lögfræðiskrifstofa Laugavegi 11, sími 21916. Stærsta úrval bifreiða á einum stað. — Salan er örugg hjá okkur. NITTO JAPÖNSKU NITTO HJÓLBARDARNIR ((leshjm stærðum fyrirliggjandi (Tollvörugeymslu. FUÓT AFGREIÐSLA. DRANGAFELL H.F. Skipholti 35 — Sími 30 360 LAUGAVEGI 90-92

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.