Vísir - 01.04.1975, Blaðsíða 4

Vísir - 01.04.1975, Blaðsíða 4
4 Vísir. Þriöjudagur 1. apríl 1975. RFUTER AP NTB I MORGUN UTLÖND í MORGUN UTLÖNDI MORGUN UTLÖND í MORGUN UTLOIS Um leið krefjast fiski- mennirnir, sem flestir byggja afkomu sina á veiðum á grunnslóðum Englendinga og i Norðursjó, að Bretlandi færi út fiskveiðilögsögu sina i 50 milur en hún er núna 12 milur. — Tals- maður sjávarútvegsráðuneytis- ins mundi ekki lýsa yfir einhliða slikri útfærslu. Fiskibátunum hefur einkum verið stefnt að höfnum, sem þjóna oliuiðnaðinum i Norður- sjó. En allar meiriháttar hafnir á Skotlandi hafa lokazt vegna þessara aðgerða. Þó er ferjum, sem halda uppi samgöngum milli heimalandsins og smáeyja undan ströndum, hleypt i gegn. Til nokkurra árekstra hefur komið vegna þessa tiltækis fiskimanna. 1 Tyne á norðaust- ur Englandi kom gat á fiskibát, I þegar 7 þúsund smálesta kola- skip ruddist i gegnum báta- girðinguna. Flutningaskipi og oliuskipi tókst einnig að ryðjast i gegnum fylkingarnar i tveim L öörum höfnum. Hafnaryfirvöld i Tyne kváðust mundu leita til dóm- stólanna eftir réttarúrskurbi um, að fiskimennirnir yrðu að láta af aðgerðum slnum. Þannig var farið að á Humber- fljóti I siðustu viku og bundinn endi á vikulanga hindrun enskra fiskimanna, sem lagt höfðu bát- um slnum samsiða og stöðvað skipaumferð. Skozkir og enskir fiskimenn hafa nú lokað 43 höfnum i Skot- landi og á Englandi i einhverjum viðamestu mótmælaaðgerðum þarlendra fiskimanna. Um 1200 fiskibátum var lagt í innsiglingum hafnanna i gærmorgun og hafa sifellt fleiri bætzt í hópinn. — Jafn- framt er við þvi að búast, að fiskimenn á Norður-írlandi fari að dæmi þeirra. Krafa þessara manna er sú, að bannaður verði innflutningur á þvi, sem þeir kalla „ódýrum freðfiski” frá löndum utan EBE — einkanlega þá íslandi, Noregi og Póllandi. — En ennfremur vilja þeir, að stjórnin taki upp samninga við EBE um endur- skoðun á stefnu bandalagsins I fiskveiðimálum. Þessi mynd er tekin I höfninni IGrimsby við innsiglinguna, sem er algerlega lokuð af fiskibátum Ingólfsstrœti 5 Vorsala á skinnfatnaði Mikill afsláttur SIMI 2-81-30 GRAFELDUR HE SKOTHRfÐ Á KÝPUR Til skotbardaga kom á vopna- hléslinunni milli Tyrkja og Kýpur-Grikkja i Nicosiu I gær og var skipzt á skotum i alla nótt og fram undir morgun. Kanadiskir hermenn I friðar- gæzlusveitum Sameinuðu þjóðanna gengu I milli, en urðu að fara um i brynvörðum bifreiðum, og tókst þeim samt ekki að stöðva skolhriöina. — Beitt var mest- megnis vélbyssum og sprengju- vörpum. Þessi atgangur byrjaði, þegar kýpur-griskir hermenn hleyptu af byssum sinum upp I loftiö I gær, en þá minntust eyjarskeggjar þess, að 20 ár eru liðin, siðan EOKA-samtökin hófu skæru- hernað sinn gegn yfirráðum Breta á eyjunni árið 1955. Kýpur-Tyrkir lögðu hinsvegar annan skilning I skothriðina og héldu að henni væri beint að sér Hófu þeir skothrið á móti og smám saman breiddist þetta út. Ekkert hefur frétzt af afleiðing- um þessarar skothriðar. Kona Hjllarys fórst í flug- slysi í Nepal Lafði Louise og Belinda Hillary, eigin- kona og dóttir sir Edmund Hillary, sem fyrstur varð til þess að klifa Mount Everest, fórust i gær, þegar einshreyfils flugvél þeirra hrapaði logandi til jarðar hjá Katmanduflugvellin- um. Meö vélinni fórust einnig nýsjálenzkur flugmaður og vinir Hillarys, hjónin Ang Gyale Lama og Barbara Wylie. Þau voru á leiðinni frá flug- vellinum til fjallaþorps hjá Mt. Everest, þar sem Hillary var viö byggingu sjúkrahúss. Andartaki eftir flugtak heyrðist i flugturninum hvar flug- maðurinn bað um leyfi til nauðlendingar,en siðan hrapaði vélin til jarðar. Hinum 55 ára gamla sir Edmund Hillary var flogið i þyrlu á slysstaðinn. Hillary gekk að eiga Louise May Rose eftir að hann hafði sigrað Mount Everest, stærsta fjallstind heims, árið 1953, eins og menn munu minnast. Þau hjónin áttu heimili i Nýja Sjálandi en hafa ávallt verið með annan fótinn I Nepal meðal Sherpanna, þessa harðgerða þjóðflokks, sem býr I fjöllunum. Sherpar voru leiðsögumenn Hillarys upp á Mount Everest á sinum tima. Höfðu þau sir Edmund og lafði Louise varið miklum tima til fjáröflunar fyrir Himalaya-sjóðinn, sem Hillary setti á stofn i Nepal I menningar- og liknarskyni. Sir Edmund kvaðst ekki mundu fara strax heim til Nýja Sjálands eftir slysið, heldur doka við unz lokið verði gerð sjúkrahússins, sem þau hjónin stóðu fyrir. Flestir i Nepal þekktu Hillary-hjónin og var slysið þeim mikil sorgartiðindi. | i i

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.