Vísir - 05.04.1975, Qupperneq 1
65. árg. Laugardagur 5. aprfl 1975 — 77. tbl.
Ekið á lögregluþjón ó bifhjóli
— annar á bifhjóli varð fyrir slysi fyrir skömmu
Lögregluþjónn á bifhjóli varð
f gær fyrir bfl á mótum Lækjar-
torgs og Hverfisgötu.
Lögregluþjónninn var á leið
úr Hafnarstræti upp Hverfis-
götu, þegar bfl var ekið af
Lækjartorgi áleiðis yfir á Kalk-
ofnsveg, og skall hann á bifhjóli
lögregluþjónsins. Hann hentist
upp á gangstéttina og þaðan yfir
f mölina þar sem áður var söfu-
turninn við Arnarhól. Hann
reyndist þó mun minna meiddur
en útlit var fyrir, var nokkuð
marinn og snúinn á ökkla. Hann
fékk að fara að lokinni skoðun á
Slysadeild og var litlu siðar
kominn haltrandi niður á lög
reglustöð. Hjófið er mikið
skemmt.
Ökumaður bflsins bar, að
hann hefði ekki séð til ferða lög-
regluþjónsins.
Fyrir skömmu varð annað
slys á lögregluþjóni á bifhjóli, er
hann missti vald á þvi á Hellis-
heiði og hlaut beinbrot, bæði tá-
brot og viðbeinsbrot. Yfirleitt
hafa lögreglumenn á bifhjólum
þó verið farsælir f starfi.-SHH
„Ekki þörf tyrir mig ef starfs-
mennirnir taka við stjórninni"
— segir kaupfélagsstjóri K.Á.
— Allir starfsmenn
bílaverkstœðisins í verkfalli
„ Ef svo fer, að sá starfs-
maður/ sem ég hef sagt
upp starfi hér hjá kaup-
félaginu/ kemur aftur til
starfa fyrir tilstilli hinna
starfsmannanna, sé ég
ekki, að það sé lengur þörf
fyrir mig. Hvaða þörf er á
kaupf élagsstjóra ef
starfsmennirnir hafa tekið
við stjórninni?"
Þannig komst Oddur Sigur-
bergsson kaupfélagsstjóri að orði
þegar Vfsir leitaði upplýsinga hjá
honum i gærkvöldi um stöðuna i
máli þvi, sem reis i fyrradag hjá
Kaupfélagi Árnesinga.
Málið er það, að Kolbeini
Guðnasyni bifvélavirkja var sagt
upp störfum við bifreiðaverk-
stæði kaupfélagsins, en hann
hafði unnið i 35 ár hjá fyrirtækinu
og var um tiu ára skeið trúnaðar-
maður bifvélavirkja á staðnum.
Þegar það spurðist á meðal
vinnufélaga Kolbeins i fyrradag,
að honum hefði verið sagt upp,
gengu þeir af vinnustað og ætla
sér ekki að hefja vinnu að nýju
fyrr en Kolbeinn hefur verið
endurráðinn.
Þeir sem lögðu niður vinnu
munu vera um 60. Eru það allir
starfsmenn bifvélaverkstæðis
kaupfélagsins og er fjöldi bila
fyrirtækisins þvi lokaður inni
meðan á verkfallinu stendur.
,,Ég hef ekki verið endurráðinn
til kaupfélagsins. Annað hef ég
ekki um málið að segja,” svaraði
Kolbeinn, þegar Visir hafði tal af
honum i gærkvöldi.
Blaðinu tókst ekki að ná sam-
bandi við forsvarsmenn starfs-
mannanna á bifvélaverkstæðinu,
en Oddur kaupfélagsstjóri kvaðst
ekki vita til þess að þeir hefðu
haldið fundi og ekki stæði til að
halda með þeim fundi að frum-
kvæði kaupfélagsstjórnarinnar.
„Ætli þeir liggi ekki bara i sól-
inni, þessir ágætu menn. Það er
svo anzi gott veður hérna, að ég
gæti trúað að þeir séu orðnir
nokkuð brúnir,” sagði Oddur.
Hann neitaði þvi, að stjórn
kaupfélagsins hefði haldið fund
um málið, eins og eitt dagblað-
anna hélt fram i gærmorgun.
„Okkar ákvörðun stendur
óhögguð,” sagði kaupfélags-
stjórinn.
—ÞJIVI
íslenzkur
„fílahirðir"
í Nepal
- bls. 17
Leir og litir
Sýning Steinunnar
Marteinsdóttur leirara að
Kjarvalsstöðum hefur nú
staðið i viku við mjög góða að-
sókn. Sýningin þykir nýstár-
leg, og margt verka hefur
selzt. Verðsviðið er lfka fjöl-
breytt: Frá átta hundruð
krónum upp i tvö hundruð þús-
und. Sýningin verður opin
fram til kvölds 13. april. Sjá
nánar um sýningu Steinunnar
á bls. 7.
Bfllinn er á lofti að framan, en stubbur af ljósastaurnum er undir framhluta hans. Ljósm. Vfsir, Bj. Bj
HAFNAÐI UPPI
í LJÓSASTAUR
18 ára piltur missti vald á bil
sinum á Hverfisgötu i gær með
þeim afleiðingum að hann hafn-
aði uppi i ljósastaur. Hann
hlaut áverka á höfði og brjósti.
Slysið varð með þeim hætti,
að pilturinn var að fara vinstra
megin fram með bil á Hverfis-
götunni, og virðist sem hann
hafi ekið nokkuð greitt. Svo illa
tókst til, að bilarnir tveir lentu
saman, en við það missti piltur-
inn vald á sinum bil með þeim
afleiðingum, að hann skall beint
á staurnum, sem brotnaði við
höggið og slengdist i göt-
una.Telja má mildi, að enginn
var þar fyrir, sem staurinn kom
niður. Svo mikill kraftur var á
bilnum, að hann stanzaði uppi á
stubbnum, sem eftir var af
staurnum, og hélt hann bilnum
að hálfu á lofti. Billinn er mikið
skemmdur, eins og sjá má á
meðfylgjandi myndum.
—SHH
Ljósastaurinn slengdist I götuna
og má telja mildi, að hann lenti
hvorki á húsum né gangandi
fólki. Ljósm. VIsis, Bragi.
Alþjóðlega
vörusýningin í
Laugardah
Neyð-
ast út í
enn eitt
tjald-
œvin-
týrið
„Þvf miður verðum við aö
grfpa til þess að taka tjaldskála á
leigu, enn einu sinni,” sagði
Bjarni Ólafsson, framkvæmda-
stjóri alþjóðlegu vörusýning-
arinnar, sem opnuð verður sfðla i
ágúst.
Forráðamenn siðustu sýningar
áttu margar nætur svefnlitlar.
þegar sýningartjaldið barðist
fyrir vindum og vatni. Þar mátti
litlu muna að stórtjón yrði. Að
þessu sinni reyna þeir danska
uppfinningu, tjaldskála með
plastdúk. sem hefur áunnið sér
talsverðar vinsældir ytra.
Bjarni kvað allar vonir um
aukið olnbogarúm i Laugardaln
um hafa brugðizt. F'rá siðustu
sýningu bólar hvorki á sýningar
aðstöðu i nýjum skála, sem þar é
að risa, né skautahöll, sem enn
fremur á að verða i Laugardaln
um. Þvi verði að gripa til áhættu
sams fyrirtækis eins og með
tjaldið. þrátt fyrir mikil leigu
gjöld af því.
Þá kvað Bjarni það staðreync
að sýningar gætu ekki stækkað
eins og þær þyrftu að gera, stærð
þeirra væri alltaf takmörkuð af
þvi litla rými, sem fyrir hendi er i
Laugardalnum. — JBP—
1