Vísir - 05.04.1975, Blaðsíða 5
5
Vlsir. Laugardagur 5. apríl 1975
ERLEND MYNDSJÁ
Umsjón Guðmundur Pétursson
Það fór illa fyrir nautabanan-
um „Garbancito”, eöa ööru
nafni Juan Antonio Cobo, þegar
hann var að atast i svörtum
tudda á ieikvangi i Madrid i vik-
unni. Boli haföi hann undir.
Það er auðvitað enginn upp-
hefð að slíku fyrir nautabanann,
enda fór svo að tuddinn vor-
kenndi Garbancito og tók að
sleikja á honum andlitið, þar
sem nautabaninn lá fyrir fótum
hans.
Það er ekki að sjá á svipnum á
nautabananum, að honum hafi
likað það neitt betur en ef boli
hefði beitt hornunum. — Skýr-
ingin á þvi sést auðvitað ekki á
myndinni, þvi aö ekki gat ljós-
myndarinn náð inn á hana
hlátrasköllunum ofan af áhorf-
endapöllunum.
Paul Getty í
vaxmynda-
safn maddöm
unnar
Margmilljónamæringurinn
Paul Getty, — sem sumir kalla
rikasta mann heims — sést
hér á myndinni fyrir ofan hjá
vaxmynd af sjálfum sér.
Vaxmyndina gerði Jean
Fraser i fyrra heima hjá Getty
I Sutton Place i Englandi.
Myndin var auövitað fyrir
hiö fræga vaxmyndasafn
Madame Tussaud I London, en
þar á einmitt aö opna nýja
deild. Sú deild hefur að geyma
myndiraf persónum, sem öðl-
azt hafa langvarandi sess i
safninu.
Til þessa hafa vaxmyndir
haft mislanga dvöl i safni
maddömu Tussaud, eftir þvi
Læknar Harper-sjúkrahússins
i Detroit gerðu á dögunum
furðulega aðgerö á 22 ára
gömlum manni, sem orðið hafði
fyrir byssuskoti. — Náöu þeir
byssukúlunni úr hjarta manns-
ins með þvi aö leiða slöngu I
gegnum slagæð frá olnboga og
alla leið inn i hjartahólfið.
Þeir höfðu komiztaðraun um,
að kúlan lá þar laus inni.
Á vinstri myndinni hér viö
hliöina sést áhaldið og neðst
skothylki (kúla og patróna, sem
er stærra en kúlan sjálf), en á
myndinni fjær er sjúklingurinn.
X. « v * B ]
Iflr ■ #-
f
Óblíðar kveðjur
Alexander Shelepin, forseti stéttarsamtaka Sovétrikjanna, þáöi i
vikunni boð bræörasamtakanna á Bretlandseyjum, þrátt fyrir almenn
mótmæli þarlendra og óánægju meö komu hans.
Andstaöan gegn Shelepin var sprottin af þvi, aö hann gegndi um
skeiö embætti yfirmanns KGB, öryggislögreglunnar og leyniþjón-
ustunnar sovézku. En það er einmitt hún, sem stendur aö handtökum
þeirra borgara, sem grunaðir eru um „fjandskap við Sovétrikin”.
Meðal ótalmargra, sem hún hefur „heimsótt”, eru ýmsir gyðingar,
sem mótmælt hafa stefnu stjórnvalda i gyðingamálum, og rithöfundar
á borð við Solzhenitsyn.
Mikill viðbúnaöur var á Bretlandsevjum fyrir komu Shelepins og ætl-
uöu menn að efna til niótmælaaögeröa gegn heimsókninni. Gripið var
til þess að halda þvi leyndu, þegar hann kom til landsins, en starfsmenn
Heathrow-flugvallar gerðu viövart. — Þá var ferðaáæ'.luninni haldið
leyndri, en ekki tókst betur en myndin hér til vinstri bér með sér, þar
sem bifreið með Shelepin sést halda frá sovézka sendiráðinu, en hópur
mótmælir þar fvrir utan.