Vísir - 05.04.1975, Blaðsíða 4

Vísir - 05.04.1975, Blaðsíða 4
4 Vísir. Laugardagur 5. april 1975 Taktu eins mikinn tima i að leika þér með krökkunum og þú mögulega get- ur. Farðu i (ót- bolta, handbolta, hoppaðu og hlauptu, og það hefur sannarlega sin áhrif. Prófaðu að skrifa niður allt það sem þú borðar á degi hverjum. Slepptu ekki súkkulaðibitanum eða tertusneiðinni. Aður en þú veizt af verður þú farinn að hætta við ýmislegt ónauðsynlegt sem þú borðaðir áður. Farðu út að ganga hvenær sem tækifæri gefst. Reyndu að gera hálftima göngu á hverjum degi að reglu. Þú getur losað þig við 108 hitaeiningar á minútu. Ef einhver vill grenno sig — en nennir ekki að puða við leikfimiœfingar, þó eru hér góð ráð og einföld Við borðum vist miklu meira en við þurfum og verðum bara feit fyrir vikið. Fæst okkar nenna lik- lega að standa i þvi að gera erfið- ar leikfimiæfingar á hverjum degi til þess að ná af sér þeim aukakilóum sem safnast fyrir, en citthvað verður að gera og allra bezta ráðið er að hreyfa sig sem mest, — og minnka að sjálfsögðu átið. En það má hreyfa sig án þess að klæða sig i leikfimibúning og teygja sig svo og rétta samkvæmt einhverjum reglum. i hinu dag- lega lifi getum við hreyft okkur meira en við gerum. Það getur tekiö heilar 72 mlnút- ur að ná af sér kökusneið. Og vin- arbrauð getur innihaldið 140 hita- einingar. Með þvi að hjóla i 30 minútur getum við unnið á móti þvi. Ef þú vilt ná af þér 100 hitaein- ingum á dag, geturðu valið um 2ja kilómetra göngu, 4ra kíló- metra hjólreiöatúr, skiðaferð i 8 minútur eða þyngri húsverk i 20 minútur. Með þvi að ganga tvo kilómetra á hverjum degi má ná af sér hálfu kilói á mánuöi. Hvernig væri að reyna?

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.