Vísir - 05.04.1975, Blaðsíða 3

Vísir - 05.04.1975, Blaðsíða 3
Visií. Laugardagur 5. april 1975 3 Se og Hör er allútbreitt á islandi og hefur örugglega sin áhrif. Alit flestra á skrifum blaðsins er það að þau séu vægast sagt öfgakennd og þarfnist einhvers konar lækn- inga. Hér sést opnan um loft- skey talækningar Danans I Odense. (Ljósmynd Visis BG.) Leifur sýnir fólki fólk l.eifur Þorsteinsson ljós- myndari opnar i dag Ijós- mvndasýningu i Bogasal Þjóð- minjasafnsins og kallar hana Fólk. Eins og nafnið bendir til, er hann þar að sýna fólki fólk, cins og fólkið kemur honum fyrir sjónir. Margra grasa kennir meðal fólks Leifs og er vissara að skoða myndirnar vel til að missa ekki af þvi, sem máli skiptir. Ljósm. VIsis, Bragi. ,,Ég get ekki sagt ann- að um þennan svokallaða náttúrulækni en það að hann er ekki til á dönsk- um læknaskrám, enda er hann fyrrverandi teppa- sali og hefur aldrei lært læknisfræði," sagði Ölaf- ur óiafsson landlæknir í gærdag, er Vísir spurði hann um náttúrulækni þann, sem danska viku- blaðið Se og Hör hefur hampað talsvert að und- anförnu. Landlæknir kvað starfsemi hans ólöglega og auglýsingar á henni sömuleiðis. Kvað land- læknir augljóst að hér væri ver- ið að brjóta islenzk lög og yrði hart tekið á sliku, ef upp kæm- ist. Danska blaðið, sem reyndar er þekkt fyrir annað en hárná- kvæman sannleikann, birtir i siðasta hefti opnugrein um þennan merkilega teppasala, sem virðist hafa haslað sér völl á tslandi að mestu. A.m.k. eru engar frásagnir af sjúklingum hans annars staðár en hér. Fyrir þrem mánuðum sneri Aksel Jensen heim til Danmerk- ur með 8 dropa af blóði úr 8 Islendingum, — eftir 8 daga dvöl hér, eins og blaðið bendir á. Áður hefur Se og Hör greint frá heimsókn hans hingað. Er látið i veðri vaka að manninum hafi verið boðið hingað af vinum hans. Tækjabúnaður Jensens var siðan fóðraður með þessum átta dropum blóðs, og þar með hefst „lækningin” á sjúklingum, sem eru i hundruð kilómetra fjar- lægð frá Odense. Aðferð þessa kallar hann Radioni. Allir í framför. Nú hefur danska blaðið haft samband við þessa átta sjúklinga og spurzt fyrir um liðan þeirra að loknum 3 mán- aða „lækningum”. Það þarf naumast að taka það fram að allir eru sjúklingarnir i stórri framför, og blaðið tinir til sjúk- VÍTAKÖST ÍSLANDS MISTÓK- UST OG SVÍAR GENGU Á LAGIÐ Svíþjóð sigraði ísland á Norðurlandamóti pilta í gœr með 18-12 eftir að fslond hafði yfir í hólfleik, 7-4 islenzka piltalandsliðið i handknattleiknum tapaði fyrsta leik sinum á Norðurlandamót- inu i Finnlandi i gær. Lék þá við Svia, sem sigruðu með 18-12. Islenzku piltarnir léku prýði- lega i fyrri hálfleik — voru yfir- vegaðir i leik sinum og flönuðu ekki að neinu. Það gaf árangur. Staðan var 7-4 fyrir ísland í leik- hléi. En annað var uppi á teningn- um i siðari hálfleiknum — þrjú vfti misnotuð i röð og tauga- spenna i sambandi við það setti piltana út af laginu. ísland skor- aði ekki mark i 14 minútur og Sviar gengu á lagið. Svium tókst að komast yfir i 8- 7 og tsland misnotaði viti. Svlar skoruðu 9-7. Aftur viti misnotað, en Sviar skoruðu 10-7. Enn fékk Island viti, sem var misnotað, eri i staðinn skoruðu Sviar 11-7. Þeir komust siðan i 13-7 og þá loks tókst Islandi — eftir 14 min. I siðari hálfleik að skora mark 13-8. En það var of seint — sænskur sigur var i höfn. Að sögn Isienzku fararstjóranna virðist sænska liðið hið sterk- asta i keppninni. Islenzka liðið leikur við Norðmenn og Dani i dag — Finna á sunnudag, er. þá lýkur mótinu. Mörk Islands i gær skoruðu Hannes Leifsson 3 (1 viti), Jón Árni 3 (2 viti) Steindór Gunnarsson 2, Ingimar Haraldsson, Pétur Ingólfsson, Þorbergur Aðalsteinsson og Ingi Steinn eitt hver. • -hsim. Boro hringja - og miðarnir koma heim Við þörfnumst þin — þu okk- ar, segir Slysavarnafélag ts- lands, og til þess að auðvelda okkur að sýna, að við skiljum þetta, býður Slysavarnafélagið upp á þá þjónustu, að við getum hringt i dag og á morgun I sima 27112 og fengið happdrættismiða félagsins senda lieim. Sérstök áherzla verður lögð á sölu inið- anna þessa lielgi, og verður gengið i hús, farið á vinnustaði og miðar boðnir til sölu á götum úti. Slysa varnafélagar voru i gær staddir i Austurstræti við miða- sölu og höfðu hjá sér búnað. sem minnir á slysavarnirnar. Ljósm. Visis Bj.Bj. LÆKNAR ÍSLENDINGA MED L0F15KEYTUM FRÁ ODENSE — „Starfsemin er ólögleg", segir landlœknir um „nóttúrulœkninn" danska, Aksel Jensen, fyrrum teppasala dómseinkennin fyrir meðhöndl- un og hvernig islenzkir læknar gáfust upp. Siðan hvernig Aksel Jensen frá Odense kemur og tekur til við sjúklinginn þar sem þeir islenzku gáfust upp. Náttúrulæknirinn er yfir sig hrifinn af árangrinum á Islanúi. Hann segir að venjulega taki lækningin lengri tima, 3—6 mánuði. En íslendingarnir höfðu bjargfasta trú á lækn- ingamætti Jensens, „og það er góðs viti, þegar visst samstarf verður milli sjúklings og heilsu- gjafans”. Og ekki hefur staðið á sjúklingunum frá Islandi. Aksel Jensen segir við S&H að hann hafi einmitt verið að fá lista frá einum sjúklinga sinna á Islandi. Á listanum voru 200 nöfn manna, sem vildu fá Jensen i heimsókn. „Og að sjálfsögðu fer ég þangað aftur. Ég er einmitt nýbúinn að stækka vinnustofu mina svo um munar, þannig að nú er rúm fyrir fleiri sjúklinga,” sagði teppasalinn fyrrverandi að lokum. Visir hefur sannfrétt að viðtal við Aksel Jensen kosti um 14 þúsund krónur islenzkar, — sem á að greiðast i dönskum krón- um, þ.e. 400danskar krónur. Er svo látið lita út, að þar sé um gjöf til Jensens að ræða. Hafna nafngiftinni. Þess skal getið að náttúru- lækningamenn hér á landi hafa algjörlega hafnað 'nafngiftinni „náttúrulæknir”, sem Jensen hefur tekið sér. Benda þeir á að náttúrulækningar séu byggðar á visindum og læknisfræðum, — þar sem hinar dularfullu að- ferðir Danans séu það ekki. Jörgen Sölvason, danskfædd- ur Islendingur, hefur starfað nokkuð við „að skrifa niður nöfn”, eins og hann komst að orði i gær, er Visir ræddi við hann. „Skrifin i Se og Hör hafa verið allt of æsingakennd,” sagði Jörgen Sölvason og kvað margt af þvi sem þar hefði stað- ið nokkuð fjarri sannleika máls- ins. „Annars vil ég ekki úttála mig um Aksel Jensen og lækningar hans, vil ekki agitera fyrir hann á einn eða annan hátt. Menn verða bara að dæma hver fyrir sig.” — JBP —

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.