Tíminn - 31.07.1966, Qupperneq 5

Tíminn - 31.07.1966, Qupperneq 5
SUNNUDAGUR 31. júlí 1966 TÍMINN 5 Úígefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN Framkvæmdastjóri: Kristján Benediktsson. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson (áb). Andrés Kristjánsson, Jón Helgason og IndriSi G. Þorsteinsson. Fulltrúi ritstjórnar: Tómas Karlsson. Aug- lýsingastj.: Steingrimur Gíslason. Ritstj.skrifstofur i Eddu- húsinu, símar 18300—18305. Skrifstofur, Bankastræti 7. Af- greiðslusími 12323. Auglýsingasími 19523 ASrar skrifstofur, sími 18300. Áskriftargjald kr. 105.00 á mán. innanlands — 1 lausasölu kr. 5.00 eint. — PrentsmiSjan EDDA h.f. Skipulag atvinnugreina Það er eitt meginatriðið í stefnu Framsóknarmanna, að ein atvinnugreinin af annarri verði endurskoðuð nið- ur í kjölinn í samráði við forustumenn hverrar greinar, og helzt í samvinnu við viðkomandi stéttasamtök. At- hugað verði til hlítar, hvernig koma megi við sem beztum og hagkvæmustum vélbúnaði og vinnuhagræðingu hvers konar. Gerð verði síðan skynsamleg áætlun um uppbygg- ingu hverrar greinar, og það látið í fyrirrúmi sitja, sem lífvænlegast þykir og það, sem sízt þolir bið og skjótast mun skila auknum arði. Eftir slíka áætlanagerð hverrar greinar um sig þarf að samræma þær í heildaráætlanir um atvinnuvégina og aðrar framkvæmdir í landinu, þar sem megingrundvöllurinn væri framkvæmdaaflið sjálft, vinnuaflið og fjármagnsgetan, og höfð full hliðsjón af byggðavandamálinu 1 því sambandi. Síðan yrði lánsfé hiklaust látið í té með góðum kjörum og hvers konar önnur fyrirgreiðsla. Nú hrynur eitt iðnfyrirtækið af öðru vegna aðgerða ríkisvaldsins, reksturslána- og hagræðingarlánakreppu, tollalækkana, og fleira, sem gert hefur verið af algeru handahófi án samráðs við iðnaðinn og án nokkurrar fyr- irhyggju og fyrirtækjunum ekki gefinn neinn kostur á umþóftunartíma eða veitt eðlileg fyrirgreiðsla til að mæta búsifjunum. Með þessu handahófi er verið að drepa sumt af því lífvænlegasta, og vaxtarbroddarnir í iðnaðinum, sem mest eiga undir hagkvæmum lánsfjár- markaði, kala þannig á stofninum. Og við skulum líta á sjávarútveginn og fiskiðnaðinn í þess’u sambandi, en þær greinar eru svo háðar hvor ann- arri, að þar verður ekki milli skilið. Hvernig er ástandið þar? Nú virðist svo komið, að ekki sé unnt að gera út önnur fiskiskip en hin nýju myndarlegu síldarskip, 250 lestir og þaðan af stærri, til síldveiða. Þau hafa aflað óhemju vel, en við íslendingar vitum, að síldin er duttlungafull- ur fiskur og varlegt að treysta eingöngu á hana. Rétt er í þessu sambandi að gefa gaum að vandamálum, sem verða vegna þessarar þróunar og vegna eldri fjárfesting- ar í þessari atvinnugrein. Sjómannastéttin er orðin of fámenn til að hún geti mannað veiðiflotann allan, og er það fyrst og fremst af þeirri ástæðu almennt talað, að mörg þægilegri störf í landi eru betur launuð en sjó- mannsstarfið. Samkvæmt skrá skipaskoðunarstjóra eru um 300 fiskiskip til í landinu af stærðinni 45—120 bíúttólestir. Eru þau dreifð um landið allt. Mörg þeirra eru nýleg skip með góðan útbúnað, en staðreyndin er nú sú, að nær ógerlegt er að gera þessi skip út. Bæði er það. að æ erfiðara gengur að manna þau og skv. niðurstöðum nefndar, sem hefur unnið að rannsókn á rekstursgrundvelli þessara skipa, virðist vanta töluvert á, að úthald þeirra geti borið sig, miðað við meðal afla- brögð. í þessum flota eru mörg hundruð milliónir króna bundnar, og notkunarleysi einhvers hluta hans skaðar þjóðarbúið um ótaldar milljónafúlgur. Inn í þessa ömur- legu mynd bætist svo það, að menn eru alveg að gefast upp á togaraútgerð a.m.k. að gera út hina eidri togara, og einn togarinn af öðrum er nú seldur úr landi án þess nokkur nýr sé keyptur í staðinn. Hinar dýru fiskvinnslustöðvar hvarvetna um landið og þá fyrst og fremst frystihúsin hafa byggt starfsemi sína á vinnslu þorsks, ýsu og annars bolfisks að langmestu leyti, en það eru einmitt bátar af þessari stærð og togar- arnir, sem hafa aflað hans. Stóru og fullkomnu skipin, JOSEPH ALSOP: Verða stðrborgir Bandaríkjanna að tröllvöxnum negrahverfum? í Washington er svo komið, að níu af hverjum tíu börnum í barnaskólum eru negrar. Aðrar stórborgir í Bandaríkjunum virðast á sömu braut VERÐI ekki gripið til mjög róttækra ráðstafana verður sér hver venjuleg bandarísk stór- borg orðin að stór-Watts — risavöxnu fátækrahverfi negra, — í tíð mikils meirihluta þeirra manna, sem nú búa í borgum okkar. Þessi spásögn kann að þykja dálítið óvænt, en ástæða henn ar er ofur einföld. Meðal þess arar þjóðar, eru allar tölulegar upplýsingar í hávegum hafðar, en við höfum vanrækt að safna hinum táknrænustu tölulegu upplýsingum og túlka þær, eða tölum um breytingar á kyn- þáttaskiptingu íbúanna í hin- um stærri borgum, svo fjöl margt sem þessar tölur gefa þó til kynna, bæði félagslegs stjórnmálalegs og efnahags- legs eðlis. John Gardner heilbrigðis- menntamála- og velfarnaðar málaráðherra hefur fyrir skömmu skipað fyrir um, að safnað skuli tölum um íbúa- fjölda og kynþáttaskiptingu. 20 bandarískra stórborga, sem meira en hálf milljón manna bjó í árið 1960. Enn sem kom ið er, liggja ekki fyrir tölur um nema níu af þessum borg- um, allar í austur- eða mið vesturfylkjunum. Þær eru Baltimore, Boston, Chicago, Cleveland, Detroit, New York, Philadelphia, St. Louis og Was hington. Allar þessar níu borgir, að New York og Boston einum undanskildum, eru greinilega á þeirri leið að verða eins konar stór-Watts. Tölurnar um hlutfall hvítra barna og svartra í skólum borganna eru hinir réttu vísar, eins og áður hefur verið bent á. Nú liggja fyrir fleiri og fyllri tölur en áður, vegna þeirrar vinnu, sem lögð hefur verið í að kanna betta. TVENNT verður að taka sér staklega með í reikninginn til þess að auðvelda mönnum skilning talnanna. Hið fyrra er, að fáir hafa veitt mikla at hygli þeim breytingum, sem orðið hafa á kynþátta skiptingu íbúanna í Columbíuhéraði, að nokkru leyti vegna þess, að Washington hefur ekki sjálf- stjórn og að nokkru leyti vegna hins, að hún hefur verið talin hafa sérstöðu. Hið síðara er, að Wshington hefur alls enga sérstöðu. Hún er ein- mitt táknræn fyrir ákveðna þróun, enda þótt að þessari þró un sé þar lengra komið áleiðis en í öðrum borgum, sem hér hafa verið og verða nefndar. Þegar búið er að tileinka sér þessi grunnsannindi, er unnt að nota Washington til þess að sýna íbúum annarra borga, hve þær eru staddar framarlega eða aftarlega á þró unarbrautinni. Árið 1947 er umskiptaárið, þegar þriðj ungur allra íbúa Columbíu- héraðs voru negrar og helm- ingur barnanna í skólun- um voru negrar. Upp frá þessu breytist kyn þáttaskipting íbúanna í borg inni og barnanna í skólun- um í sama hlutfalli. Árið 1957 er helmingur íbúanna negrar en þrjú af hverjum fjór um börnum í skólunum. í dag eru negrar tæplega tveir þriðju allra íbúanna, en 91% barn- anna í skólunum eru negrar. Innan fremur skamms tíma hlýtur Washington að verða nálega einvörðungu byggð negrum í raun og veru orðin eitt geysistórt höfuðborgar- negrahverfi. UNNT er að setja saman töflu, þar sem fram kemur, hve langt á þróunarbrautinni Balti niore og aðrar borgir voru komnar árið 1960 og hvar á vegi þær eru staddar í dag, ein mitt með því að bera kynþátta skiptingu íbúa þeirra sama i við þróunina hér í Washing- ton. Árið 1960 var ástand hinna ýmsu borga eins og fram kemur hér á eftir, að því er varðar hlutfallstölu negra barna í skólunum: Baltimore, 52% barnanna i skólunum voru negrar, eða eins og í Washington árið 1950. Chicago, 44% barnanna í skólunum voru negrar eins og í Washington á stríðs árunum. Cleveland, 47% barnanna í skólunum voru negrar, eða eins og í Washington á stríðs árunum. Detroit, 46% barnanna i skólunum voru negrar, eða eins og í Washington á stríðs árunum. Philadelphia, 50% barnanna í skólunum voru negrar, eða H eins og í Washington árið 1947. M St. Louis, 57% barnanna í B skólunum voru negrar, eða 1 eins og í Washington árið 1953. í öllum þessum borgum hef var hlutfallstala negrabarna í skólunum hækkað verulega síð an árið 1960, éins og í Wash- ington og raunar líka í New York og Boston. Þegar athug- að er, hvar þessar borgir standa að þessu leyti í dag, verður skráin þannig: Baltimore, 64% barnanna í skólunum eru negrar eða eins og í Washington 1954—1955. Chicago, 56% barnanna í skólunum eru negrar, eða eins og í Washington 1952 —1953. Cleveland, 53% barnanna í skólunum eru negrar, eða eins og í Washington árið 1951. Detroit, 57% barnaima í skólunum eru negrar, eða eins og í Washington árið 1953. Philadelphia, 60% barnanna í skólunum eru negrar, eða eins og í Washington i árið 1954. | St. Louis, 64% barnanna i | skólunum eru negrar, eða I eins og í Washington 1954 | —1955. | EF GERT er ráð fyrir, að j§ breytingarnar haldi áfram í sama hlutfalli eru aðeins fá ár. ð — ef til vill aðeins tvö nil þrjú 1 ár að því er varða eina eða tvær borganna — þar til aliar þessar borgir eru komnar á sama stig og Washington var á árinu 1957, þegar íbúatala negrafátækrahverfis hennar var helmingur af allri íbúa tölu borgarinnar. Undan- tekningarlaust mun rétt og áreiðanlegt að nota töl- urnar um þynþáttaskiptingu skólabarnanna í borgunum til þess að segja fyrir um, hvenær þessu niarki verði náð, einmitt af þeirri ástæðu einfaldlega, að töluleg skipting skólabarna er ein meginorsökin að breyt ingum á tölulegri skiptingu íbúanna í borgunum yfir- leitt. Önnur meginorsök breyting- anna er auðvitað flutningur negra frá suðurfylkjunum norð ur á bóginn á flótta undan kyn þáttaaðgreiningunni. Talið er að um hálf þrettánda millj- ón manna hafi tekið meiri eða minni þátt í þessum tilflutn ingum fram til þessa. En gegn Framhald á bls. 15. sem nú er verið að smíða, eru byggð með síldveiðar fvrir augum. og bæta því lítið úr hráefnisskorti þeirra Afleið- ing þessa er sú, að flest frystihúsin hafa aðeins verkefni mjög stuttan tíma á ári hverju, og er það meðai annars ástæðan fyrir hinu lága fiskverði, sem mikið hefur verið rætt um, en hið lága fiskverð er frumorsökin fyrir hinni lélegu afkomu bátaflotans ásamt verðbólgunni, sem allt er að sliga. Þegar þessar staðreyndir eru hafðar í huga gegnir furðu, að fjárfesting í þessum atvinnugreinum skuli ekkj hafa notið hagræðis af skipulegri áætlun, þar sem megin- línur væru dregnar, er tryggðu samræmi milli fram- kvæmda vegna hráefnisöflunar annars vegar og afkasta- getu fiskvinnslustöðvanna hins vegar. Önnur hlið þessara mála er svo sjálfur markaðurinn og markaðsöflunin. Þar er mikið og afar mikilvægt verk- efni, sem bíður. en fella þarf með skynsamlegum hætti inn í slíka heildaráætlun um útveg og íiskiðnað.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.