Vísir - 25.04.1975, Síða 9
KVIKMYNDIR
eftir Þórorin J.
Magnússon
HASKÓLABtÓ:
Bör Börsson júnior
Leikstj.: Jan Erik Diiring
Aðalhlutv.: Rolv Weseniund
Norska myndin, sem
Háskólabió er byrjað
að sýna, er likleg til
að ná metaðsókn.
Ástæðan: Sagan er vel-
þekkt hér, og þá ekki
Rolv Wesenlund i hlutverki grósserans Bör Börsson júnior.
HÚNÍRGÓÐ.
EN
GÆTI VERH) BETRI
hvað sizt fyrir sögu-
frægan lestur Helga
Hjörvars á henni i út-
varpi. Þá hefur það
einnig gifurlegt að-
dráttarafl, að i aðal-
hlutverkinu er Rolv
Wesenlund, sem is-
lenzkir sjónvarps-
áhorfendur muna eftir i
hlutverki Fleksnes.
Bör Börsson júnior birtist
okkur hér I alltof stuttum bux-
um og með blýantinn bak við
eyrað. Hlutverk grósserans
hæfir Rolv mjög vel en það er
ekki laust við, að hann ofleiki á
köflum og það gróflega. En hver
tekur það alvarlega, þegar Rolv
Wesenlund á i hlut?
Val leikara hefur I alla staði
tekizt mjög vel. Einkum er leik
ur Britt Langlie i hlutverki
Jósefinu sérlega góður. Hún er
lika sú eina, sem hefur nógu
þokkalega rödd I sönginn. I
mörgum öðrum tilvikum finnst
manni það beinlinis illa gert að
þræla leikurunum i að reyna að
syngja. Söngur og dans I þessari
mynd er siður en svo verðlauna-
hæfur.
Það er ekki hægt að klúðra
svo góðum efnivið sem sögunni
um Bör Börsson júnior. Þessi
mynd, sem Norðmenn og Bretar
hafa gert, verður lika að teljast
til betri gamanmynda. Þrátt
fyrir áðurnefndan ofleik Wesen-
lund I aðalhlutverki verður þvi
ekki neitað, að næstum hver
einasta hreyfing hans og svip-
brigðabreyting vekur hlátur.
Þeir eru lika góðir I hlutverk-
um sinum, þeir Alf Malland og
Rolf Sand, sem leika Óla I Fitja-
koti og Bör eldri.
Myndin um Bör Börsson er
góð skemmtun, en það væri
áreiðanlega hægt að gera enn
betri mynd eftir sögunni ...
Blökkustelpa
í gamolkunnu
lutverki...
HAFNARBÍÓ:
Foxy Brown
Leikstjóri: Jack Hill
Aðalhlutv.: Pam Grier
Svartir verða að eiga
sínar hetjur rétt eins og
hvítir. Tiltölulega ný upp-
götvun, en síðan kvik-
myndaf ramleiðendur
uppgötvuðu þessa stað-
reynd hafa komið á
markaðinn hasarmyndir
um of urmenni eins og t.d.
Shaft og Slaughter. Þeir
svörtu hafa jafnvel eign-
azt súperstelpur á sviði
slagsmála. Fyrr í vetur
kynntumst við þeirri
harðskeyttu Coffy og
núna er verið að sýna
okkur Foxy Brown.
Foxy er gift fyrrverandi fikni-
lyfjalöggu, sem eitursalar
leggja fæð á. Löggan er skotin
og ekkjan ákveður að ná fram
hefndum. Vopnin: kraftar i
kögglum, byssa og likamsfeg-
urð.
Það er ekkert venjulegt, hvað
þessi hörundsdökka stúlka get-
ur afrekað. Aftur á móti eru
eitursalarnir, sem eru hvitir,
gerðir hálf broslegir i augum
áhorfenda. Kannski það sé ekki
gert að yfirlögðu ráði.
Þó að nú sé komin hörunds-
dökk stelpa i hlutverk aðalhetj-
unnar i slagsmálamynd, kemur
þessi mynd ekki neinum á
óvart. Hún er gerð eftir sömu
uppskrift og allar hinar. Allan
fyrrihluta myndarinnar hefur
maður það helzt á tilfinning-
unni, að maður hafi verið búinn
að sjá þessa mynd áður.
Undir lokin verður vart við ei-
litinn fjörkipp. Það er eins og
framleiðendurnir hafi þá áttað
sig skyndilega á þvi, að mynd-
ina skorti frumleika. Tvö eða
þrjú atriði undir lokin fá mann
til að rétta sig við i sætinu. Það
er, þegar það er sýnt samvizku-
samlega, hvernig einn bófanna
kubbast i sundur fyrir tilverkn-
að Foxy Brown. Eins kemur
lokauppgjör stúlkunnar við
bófaforingjana áhorfendum
talsvert á óvart. Það er ekki
þetta venjulega bang, bang og
búið. Nei, öðru nær. Þeir fá að
halda lifi — en ekki alveg öllum
limum....
Visir. Föstudagur 25. april 1975.
cTVlenningamiál
HRÚTLEIÐINLEG
GAMLA BÍÓ:
„Alex in Wonderland”
Leikstjóri og höfundur:
Paul Mazursky
Aðalhlutv.: Donald Sutherland
og Ellen Burstyn.
Þegar ég fór að sjá
myndina ,,Alex í Undra-
landi", plataði ég einn
vinnufélaga minn með
mér. Mest langaði mig til
að biðja hann að fyrir-
gefa mér það, þegar
myndinni var lokið. Mér
fannst illa gert að fara
svona illa meðtíma hans.
Þessi mynd er hvorki fugl né
fiskur. Maður er búinn að fá
meira en nóg strax eftir fyrsta
hálftimann, og ekki lái ég þeim
það, sem gengu út meðan á sýn-
ingu stóð.
Þau Donald Sutherland og
Ellen Burstyn eiga skilið stóra
stjörnu fyrir frammistöðu sina.
Maður furðar sig á þvi að þau
skuli hafa haldið það út að leika
i þessari mynd. Leikur þeirra er
annars alveg þokkalegur miðað
ið áðstæður. Þetta eru góðir
leikarar, sem jafnvel lélegt
handrit og léleg leikstjórn set-
ur ekki svo auðveldlega út af
laginu.
Myndin segir frá ungum
manni, sem hefur lokið við gerð
sinnar fyrstu kvikmyndar.
Hann byrjar þegar i stað að
leita að efni i næstu mynd og fær
hugmyndir i löngum bunum, en
enga, sem kemur honum af
stað.
Eiginkonan, börnin og kunn-
ingjarnir þurfa stöðugt að
hlusta á vangaveltur hans og
það er raunverulega hið eina,
sem myndin gengur út á:
kjaftavaðalinn i þessum unga
leikstjóra. Eina atriði mynd-
arinnar, sém eitthvað er spunn-
ið I, er það, þegar þessi ungi
leikstjóri álpast eitt sinn inn á
vinnustofu Fellini, þar sem
hann er að vinna við að klippa
mynd. Ungi leikstjórinn . vill
nota tækifærið til að kynnast
snillingnum, en sá hefur enga
þolinmæði til að hefja samræður
við ókunnuga.
Myndatakan er mjög blæ-
brigðalitil, ef undan eru skilin
tvö eða þrjú atriði.
Ef til vill heitir svona fram-
leiðsla einhverju finu nafni og
þykir eitthvað sérstök i þröng-
um hópi, en mér fannst hún
hrútleiðinleg.