Vísir - 25.04.1975, Blaðsíða 12
12
Vísir. Föstudagur 25. aprll 1975.
VINDSOR sófasettið
Bjóðum þetta fallega sófasett á
sérstaklega góðu verði, kr. 136.900.—
Nú geta allir eignazt sófasett
HÚSGAGNAHÚSIÐ
Auðbrekku 61, Kóp. Simi 41694.
Framl. trlfar Guðjónsson h.f.
Fœst í flestum húsgagnaverzlunum
landsins.
Landbúnaðarráðuneytið.
Staða tilraunastjóra
sem jafnframt annist bústjórn við fjár-
ræktarbuið að Hesti í Borgarfirði, er
laus til umsóknar frá 1. júni n.k.
Umsóknir sendist landbúnaðarráðu-
neytinu fyrir 20. mai n.k.
SELUR BÍLINN EFTIR AÐ
HAFA SÉD REIKNINGINN
FRÁ TRYGGINGUNUMH
„Þegar ég sá
reikninginn fyrir
tryggingaiðgjaldið af
bilnum minum setti ég
samstundis auglýsingu
i smáauglýsingar Visis
þar sem billinn minn
var auglýstur til sölu.
Ég hef hreinlega ekki
efni á að borga svona
háan reikning,” sagði
maður, sem leit inn á
ritstjórn Visis.
„Þaö er ósköp venjuleg fólks-
bifreiB, tveggja ára gömul, sem
ég á,” sagöi maðurinn. „Það
sem tryggingarnar vilja láta
mig borga fyrir hana er hvorki
meira né minna en 57.204 krón-
ur.
I fyrra borgaði ég tæpar 28
þUsund krónur og fannst það
nógu mikið. Samkvæmt minum
Utreikningum ætti það ekki að
vera nema tæpum tiu þUsundum
meira sem ég ætti að borga eftir
hækkun iðgjalda,” sagði þessi
sárreiði bfleigandi.
Hann viðurkenndi, að á sið-
ustu tveim árum heföu eigin-
kona hans og sonur þeirra vald-
iðtveimur tjónum á bifreiðinni
hvort. „Tvö þeirra voru bara
óveruleg,” sagði maðurinn. „Af
þeim tjónum, sem bifreiðin átti
þátt I á slöasta ári, þurfti ég að
sjálfsögðu að borga lögboðna
sjálfsábyrgð. Urðu þaö samtals
19.500 krónur. Þar með taldi ég
mig vera bUinn að borga minn
skammt. Það kom mér þvi
óþægilega á óvart, að trygging-
arnar skuli geta haldið áfram að
plokka af mér peninga vegna
þessara tjóna, eins og mér virð-
ist verið að gera nUna.”
Allt á sér slna skýringu, en
trUlega kemur svarið við hinum
háa reikningi tryggingafélags-
ins flestum á óvart. Eða skyldi
það vera á allra vitorði, að til er
nokkuð sem nefnist „refsiið-
gjald”?
Refsiiðgjald leggst á iðgjald
þeirra bifreiða, sem tjóni hafa
valdiö. Þaö sem áöúrnefndur
bifreiðareigandi virðist vera að
borga I refsiiðgjald mun vera
um 40 prósent álagning á venju-
legt iðgjald. Samkvæmt
upplýsingum Tryggingaeftir-
litsins getur sllkt refsiiðgjald
orðiö allt að 160 prósent álag á
iðgjald bifreiða.
Þess má að lokum geta, að
maöurinn, sem kom að máli við
Vísi, fékk kaupanda að bil sin-
um sama dag og auglýsing hans
birtist I blaðinu. ,,NU fer ég með
strætó I vinnuna eftirleiðis.
Ekki ná tryggingarnar til min
þar,” sagði hann um leið og
hann kvaddi.
-ÞJM
Gekk ekki alveg sársaukalaust
jjgl — fjöldaklippingar í Þjóðleikhúsinu
„Það gekk ekki alveg sárs-
aukalaust fyrir sig,” sagði
Sveinn Einarsson þjóðleikhús-
stjóri um hárklippingarnar
miklu, sem fram fóru I Þjóðleik-
húsinu á einni æfingu á Silfur-
tunglinu.
Silfurtunglið gerist I kringum
1950og þá var önnur hárgreiðsla
heldur en tiðkast i dag. Það var
þviekki um annaö að ræða en að
ná I rakara og láta hann skera
talsvert af hári um 10 leikara.
Var þetta gert á meðan á
æfingu stóð og höfðu menn hið
mesta gaman af að sjá leikar-
ana svona vel snyrta.
Silfurtunglið var frumsýnt I
gær, sumardaginn fyrsta. A
myndinni sjáum við m.a. Guð-
mund Magnússon, Erling Gisla-
son, Þórhall Sigurðsson, Sig-
mund Om Arngrímsson o.fl.
— EA/ljósm. Bj.Bj.
íslenzkir poppunnendur í hópferð
á hljómleika á Wembley-leikvangi
Ef fjallið kemur ekki til
Múhameðs, kemur Múhameð til
fjallsins. Gamalt máltæki, sem
Islenzkir poppunnendur hafa I
huga þegar þeir efna til hóp-
ferðar á Wembley-leikvanginn I
Lundúnum. Þar gefst þeim
tækifæri til að sjá samankomna
á einum hljómleikum I júnl
m.argar af stærstu poppstjörn-
urti veraldar. Stórstirni, sem er
tsépast hægt að gera sér vonir
um að fá hingað á hljóntleika.
„Við höfum fengið aðra þotu
Aír Vikingtil þessara flutninga,
en hún tekur 150 manns,” sagði
Örn Petersen, en hann veitir
forstöðu Klúbb 32, sem stendur
fyrir hópferðinni til London.
„Þetta verður fjögurra daga
ferö,” hélt Orn áfram. „Hljóm-
leikarnir á Wembley standa i
heilan dag, en auk þess að fara á
þá hljómleika verður farið i
nokkra klúbba, sem bjóða upp á
tónlist og stemmningu fyrir
ungt fólk. Verða væntanlega
fengnir tveir Islenzkir poppar-
ar, sem starfandi eru i London,
til að veita hópnum leiðsögu.”
„Sá frægi Elton John hefur átt
einna stærstan þátt i undir-
búningi Wembley-hljómleik-
anna, en auk hans munu koma
fram bæðibrezkar og ameriskar
hljómsveitir, sem eiga sér
marga aðdáendur hérlendis
sem annars staðar,” sagði Orn.
Og hann taldi upp nokkur nöfn:
„Eagles, Beach Boys, Rufus,
Dobbie Brothers, og Kiki Dee
Band. Einnig verða þarna Steve
Wonder og Joe Walsh.”
Um aðrar ferðir Klúbbs 32
hafði Orn það að segja, að tals-
vert væri þegar bókað og enn
fleiri fyrirspurnir verið gerðar.
„Það má búast við að fjörið eigi
eftir að aukast enn að mun i
bókunum eftir að prófum er lok-
iö og skólakrakkarnir hafa
tryggt sér sumarvinnu,” sagði
Örn.
Klúbb 32 hefur tryggt sér
húsaskjól fyrir hópa sina á þeim
hótelum á Costa del Sol og
Mallorca, sem eru eingöngu
ætluð ungu fólki á aldrinum 18
til 33 ára. ,,Á Costa del Sol bjóð-
um við upp á Hótel Flamingo,
sem stendur við la Noga Lera,
en á Mallorca er það hótel sem
heitir Club 33,” sagði örn.
— ÞJM