Vísir - 25.04.1975, Síða 20

Vísir - 25.04.1975, Síða 20
GUÐMUNDUR VINNINGI Á EFTIR FYRSTA MANNI Guðmundur Sigurjónsson er einum vinningi á eftir efsta manni á skákmótinu i Lone Pine i Kaliforniu. Hann vann i gær Ist- van Csom frá Ungverjalandi, segir i einkaskeyti Associated Press fréttastofunnar i morgun. Larry Evans, fyrrverandi Bandarikjameistari, er i fyrsta sæti. Hann gerði jafntefli við Miquel Quinteros frá Argentinu i gær og hefur 6 1/2 vinning. P'or- ystu hans ógnar þó landflótta So vé t m a ðu r i n n Vladimir Liberzon, sem gæti komizt i sjö vinninga, ef hann vinnur biðskák við Leonid Shamkovich, sem býr i fsrael eins og Liberzon. Liberzon hefur betri stöðu i biðskákinni. Jafn Guðmundi með 5 1/2 vinn- ing en Gyoso P orintos frá Ung- verjalandi, sem vann i gær einu konuna, sem tekur þátt i mótinu, Alla Kushnir frá lsrael. í skeytinu segir ekki nánar en þetta, hvar Guðmundur er i röðinni. Bandarikjameistarinn um þessar mundir, Walter Browne, gerði i gær jafntefli við Florin Gheorgiu frá Rúmeniu, og Svet- ozar Gligoric frá Júgóslaviu, sem talinn er sterkasli skákmaður mótsins, miðað við alþjóðlega skákstigagjöf, vann Duncan Settles frá Kanada. Þátttakendur eru hvorki meira né minna en 44 i þessu móti, en tefldar eru 10 umferðir samkvæmt svissneska kerfinu svonefnda. Siðasta um- ferðin verður tefld i dag. — IIII frá málmblendinu í tilbúinn áburð Þeir, sem næstir honum eru, hafa ekki margt gott um hann að segja. Þvi er haldið fram, að margur þvotturinn hafi orðið að fara af snúrunum aftur í þvotta- vélina hans vegna. En þetta fólk notar kannski tilbúinn áburð á grasið sitt, án þess að vita, að i honum er Fiská-reykur. 1 tvö ár hefur úrgangsrykið frá málmblendiverksmiðjunni verið flutt i áburðarverksmiðj- ur Norsk Hydro á Heröya og Glomfjord og notað sem verð- mætt efni i tilbúinn áburð. Það kemur ekki einn einasti sekkur af áburði frá Norsk Hydno, sem ekki hefur inni að halda eitthvað af kvartsryki frá Fiska. Upp á siðkastiðhafa einstaklingar lika snúið sér til verksmiðjunnar og óskað eftir að fá að kaupa rykið beint til áburðar. Verksmiðjan hefur ekki viljað selja rykið þannig, þvi það hefur ekki verið sannað, að rykið eitt út af fyrir sig sé áburður. Hins vegar þykir sannað.aðþaðgeri engan skaða á gróðri. Jafnframteru i gangi tilraun- ir til að nota rykið i sement og lánist það, hefur verið fundin leið til að nyta mest allt ferro- silisiumrykið i Noregi. Ekki verður það þó ódýrt, segir Sör- landet, þvf hreinsikostnaðurinn er mikill, en það leiðir til þess að gera mengunina óverulega,— —SHH Rykið notoð Þeii- eru ekki margir, sem hafa látið hlý orð falla um kvartsrykið frá málmblendiverk- smiðjunni á Fiská, seg- ir norska blaðið Sör- landet. Færri vita, að þennan reyk má nota á jákvæðan hátt. Sumrinu fagnað Fyrsti sumardagurinn I ár bauð okkur ekki upp á sérlega skemmtilegt veöur, enda þótt ekki þyrfti aö kvarta yfir kuida. í Reykjavik var 9 stiga hiti, og noröur á Akureyri komst hitinn I 14 stig. En þaö ýröi úr lofti, og þaö var allhvasst og ónotalegt á köflum. Engu aö sföur mætti yngsta kynslóðin vel til hátföahaldanna I tilefni dagsins. Margar vel heppnaðar skrúögöngur fóru um meö lúöraþeytara I broddi fylkingar og á eftir fylgdu börn- in með litlu fánana sina. Þessi mynd var tekin I Bústaðahverfinu I Reykjavfk þar sem ein gangan fór um. Llk- lega þekkja margir manninn aftast á myndinni, Markús örn Antonsson, borgar fulltrúa. (Ljósmvnd VIsis Bjarnleifur). Föstudagur 25. april 1975. Kostar 380 þús. í Osló: HVER BÝÐUR BEZT í , REYKJAVIK? Fagætar og dýrmætar bæk- ur munu skipta um eigendur á bókauppboði, sem Guömund- ur Axeisson i Klausturhólum heldur á morgun kl. 14 I Tjarn- arkaffi. Bækurnar sýnir hann i dag til kl. 18. Meðal þeirra er Heimskringia cdr Noregs Konunga-Sögor eftir Snorra. Visir skýröi frá þvi fyrir nokkru, aö norskur fornbók- sali byði þessa bók til kaups fyrir 280 þús. krónur. Guðmundur heldur nú sitt fyrsta bókauppboð og verða 100 númer boðin upp. —JBP— Dansmálin á Seyðisfirði: „Við vorum viðstaddir dansleikinn" - segja lögreglumenn „Þaö er undarleg árátta að vera sifellt aö sjá eftir að borga 12 þúsund króna löggæzlu, þegar borga þarf hljómsveit úr Reykja- vlk tugi þúsunda fyrir að spila,” sagði Þorbjörn Þorsteinsson, lög- reglumaöur á Seyöisfirði i fyrra- dag. „Löggæzla við Herðubreið er þvi miður nauðsyn, og stundum hefur það jafnvel komið fyrir, að dyraverðir hafa hvergi fundizt, þegar á þurfti að halda. Þeir fundust þá inni sal að dansa.” Varðandi dansleikinn á 2. i jól - um sagði Þorbjörn, að löreglunni hefði ekki verið tilkynnt um hann fyrr en kl. 7 að kvöldi balldagsins. Þá var færð afleit innanbæjar. Fór lögreglan fram á, að rutt yrði frá samkomuhúsinu upp að fangageymslunum en samkomu- húsið var þá með snjómoksturs- tæki við húsiö i starfi. Forstöðu- menn Herðubreiðar hefðu neitað þessu með öllu. Taldi lögreglan þá útilokað að halda dansleikinn. Þorbjörn kvaö lögregluna einn- ig hafa verið viðstadda dansleik, þegar kvenfélagið taldi að engin löggæzla hefði verið innt af hendi. „Við vorum i bil utan við húsið og til taks ef á þyrfti að halda,” sagði hann. Kvað hann það illa liöið, að lögregla væri mikið inn- an dyra i stappinu, og þvi hefði verið ákveðið að gera tilraun til að vera til taks svo litið bæri á. — Málum á fyrsta vetrardag lykt- aði svo, að kvenfélagið fékk heimild tilaðhalda ballið, en bæj- arfógeti lét svo ummælt við kon- urnar, að það væri alger undan- tekning. Lögreglan var viðstödd og átti þægilegt kvöld og náðugt, því skemmtunin fór hið bezta fram.-----JBP/SHH VISIR „ÞIÐ FENGUÐ EKKI VERÐ- LAUNIN EN SIGRUÐUÐ SAMT" Og kórstjórinn hlaut Sonningverðlaunin Nemendahópurinn úr Menntaskólanum viö Hamra- hllö, sem kom fljúgandi frá Kaupmannahöfn á mánudag, virtist laus viö allar áhyggjur af prófunum, sem voru aö ganga I garö. Nemendurnir voru I sjöunda himni, enda var þarna kominn 40 manna kór Menntaskólans við Hamrahlið, sem var að koma frá æskulýðskóramóti I Helsingjaborg i Sviþjóð. Þarna komu saman til úr- slitakeppni fimm kórar, einn frá hverju Norðurlandanna. Dóm- endur völdu bezta kórinn úr þessum hópi og var mjög jöfn og hörð keppni milli Islenzka og þess sænska. Þótti dómendun- um sem flutningur aðalverksins „Buzy” eftir sænska tónskáldið Thorsten Nilson heföi veriö beztur hjá islenzka kórnum, og var það haft eftir höfundinum, að islenzki kórinn heföi komizt næst þvi aö flytja verkið eins og hann hafði hugsað sér þaö. Að lokum fékk sænski kórinn verðlaunaskjalið, en aö keppn- inni lokinni sagði þó sænski tón- listarstjórinn, fulltrúi sænska útvarpsins, sem stóð fyrir keppninni: „Þið fariö að visu ekki heim með verðlaunin, en þið sigruöuð samt”. Honum eins og mörgum öðrum, þótti sænski kórinn hafa brotið reglur keppninnar, þar eð meðlimirnir voru of gamlir og kórinn að miklu leyti atvinnu- kór. Þorgeröur Ingólfsdóttir er stjórnandi kórsins og var henni I þessari för tilkynnt um, að henni yrðu veitt Sonningverð- laun að upphæð 10 þúsund danskar krónur til frekara tón- listarnáms. Þetta eru auka- verðlaun, sem Sonning-sjóður- inn úthlutar á nokkurra ára fresti. Ekki hefur enn veriö til- kynnt opinberlega, hvenær verðlaunin verða afhent Þor- geröi Ingólfsdóttur. —JB

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.