Vísir - 15.05.1975, Blaðsíða 1

Vísir - 15.05.1975, Blaðsíða 1
65. árg. —Fimmtudagur 15. mai 1975—108. tbl. Miðbœjarframkvœmdir: VERKSAMNINGAR, - EKKI KAUPSAMNINGAR — segja forráðamenn Miðbœjarframkvœmda á bls. 3 ÞETTA ÆTLAR INGÓLFUR AÐ OPNA - Baksíða Náðu skipi og áhöfn — Sjá erlendar fréttir bls. 5 Strandhögg við Elliðavatn: Brotizt inn í tug sumar- bústaða Nokkurs konar strandhögg var framið á bökkum efra Elliðavatns og Rauöavatns i fyrrinótt. Þar hefur veriö á feröinni hópur manna, senni- lega á bilum, sem brutust inn i hvern sumarbústaðinn á eftir öörum, birgöageymslu og verk- stæöi. Að þvi er viröist hefur fyrsta innbrotið verið framið á véla- verkstæði, er stendur við Rauðavatn sunnan Suðurlands- vegar. Þaðan var stolið út- varpstæki, senditæki og nokkru af verkfærum. bá var einnig sömu nótt brotizt inn i birgða- geymslu hitaveitunnar við Baldurshaga og rótað til, en ekki var sjáanlegt i fljótu bragði, hvort einhverju hafði verið stolið. Innbrotsmennirnir lögðu sið- an leið sina i hvern sumarbú- staðinn á eftir öðrum. Rótað var til, skemmt og sóðað út i öllum og sums staðar skildar eftir vin- flöskur, svo greinilegt er, að setið hefur verið að sumbli. Kaffi og matföngum var sums staðar dreift um gólf, en ekki var miklum verðmætum stolið fyrir utan dýrt málverk, sem tekið var úr einum sumar- bústaðnum. Lögreglan fékk til- kynningu um innbrotið á verk- stæðið og i birgðageymsluna og rakti siðan slóð innbrotsmanna i hvern sumarbústaðinn á fætur öðrum við efra Elliðavatn. I allt hefur um tugur sumarbústaða veriö heimsóttur um nóttina. Málið er i rannsókn. — JB HRIIBI Litla dráttarskipiö Lifeline liggur hér utan á Hvassafellinu I Akureyrarhöfn f morgun. Hvassofell fékk „nýtt líf" BJORGUNIN KRAFTAVERKI LÍKUST Akureyringar lögðu margir leið sina niður á bryggju til að skoða strandaði fyrir tveim Hvassafellið, sem mánuðum við Flatey. Dráttarbáturinn Life- line og varðskip drógu skipið af strandstað i gærdag. Margirlikja þvi við kraftaverk, að þetta ensk-islenzka átak skyldi ná skipinu út. Talið er, að þarna hafi farið fram björgun á dýrasta skipinu, sem strandað hefur við landiö, Hvassafellið er metið á allt að 700 milljónir. Það glaðnaöi þvl yfir tryggingafélögunum og forráða- mönnum skipadeildar SIS, þegar þeir höfðu úr helju heimt þetta glæsilega skip, sem flestir aðrir en eindæma bjartsýnismenn höfðu þegar dæmt til að molna við strendur Flateyjar. Forráðamenn skipadeildar SIS fóru norður i morgun. Næsta verkefni á dagskrá er að draga Hvassafellið i slipp og kanna skemmdimar. Siðan er að fram- kvæma þá viðgerð, sem skipið þarfnast. Vonandi verður þá lokið strandhöggi Hvassafells, en ein- stakt ólán elti skipið og skipshöfn þess á þessu ári, þvi tvivegis strandaði það eins og alkunna er. -JBP- 0g hvernig líkaði þér svo Lénharður...? Þaö var létt yfir mönnum eftir frumsýninguna á Lénharöi fó- geta i gærdag. Gunnar Eyjólfs- son, sem fór meö hlutverk Lén- harös, er hér í félagsskap meö Magnúsi Bjarnfreössyni, eigin- konu hans og syni þeirra. Magnús haföi fjármálalegt eftirlit meö Lénharöi á loka- spretti verksins. — SJA NANAR A BAKSIÐU

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.