Vísir - 15.05.1975, Blaðsíða 16

Vísir - 15.05.1975, Blaðsíða 16
vism Fimmtudagur 15. mal 1975. Tíðar íkveikjur Slökkviliöiö var snemma I nótt kvatt að Afurðarsölu SIS á Kirkjusandi. þar sem eldur iogaði i timbri og rusli Iportinu. Þetta er I annað sinn i þessari viku, sem eldur kemur þarna upp, og er fuiivlst að um Ikveikjur sé að ræða. t gær var slökkviliðið einnig kvatt dt vegna ikveikju i litlum skúr á barnaleikvelli við Kárs- nesbraut. Fijótlega tókst að ráða niðurlögum þess elds. — JB Hvað gerir stjórnin í togaradeilunni? „Deila yfirmanna örðugri" — segir forsœtisróðherra „Rikisstjórnin hefur gert grein fyrir, hvað unnt væri að gera I sambandi við togara- verkfaitið,” sagði Geir Hallgrlmsson forsætis- ráðherra i morgun. „Við gerum okkur grein fyrir þvi, að deilan er erfið, en hins vegar ætti að vera unnt að komast að samkomulagi.” „Deila yfirmanna er að minum dómi örðugri en deila undirmanna,” sagði forsætis- ráðherra ennfremur, „bæði vegna ágreinings um tölu I áhöfn og krafna yfirmanna um kjarabætur.” Orðrómur hefur verið á kreiki um hugsanleg gerðar- dómslög I togaraverkfaliinu. Um það mái vildi forsætis- ráðherra ekkert segja. -HH. HVÍTASUNNUFERÐIR: Utivist leggur Húsafell undir sig um helgina r — Ferðafélag Islands fjölmennir í Þórsmörk „Við höfum tryggt okkur afnot af öllum húsunum I Húsafelli og erum þegar búnir að bóka I hvert pláss. Ætli það verði ekki i kring- um 60 manna hópur, sem fer þangað á okkar vegum,” sagði Jón I. Bjarnason, einn af for- svarsmönnum ferðafélagsins Úti- vistar, i stuttu viðtali við Visi „Þetta er fjögurra daga ferð,” hélt hann áfram, „og jafnframt i fyrsta skipti, sem ákveðinn aðili tekur öll húsin á leigu um hvita- sunnuna.” Á meðan Útivist fer með sinn hóp í Húsafell, fer Ferðafélag Is- lands með sitt fólk i Þórsmörk og á Snæfellsnes. „Við förum i bæði þriggja og fjögurra daga ferðir i bórsmörk og búumst við að fylla samtals þrjá til fjóra bila i þær ferðir. Ferðin á Snæfellsnes fer hins veg- ar meira eftir veðri, en liklega verður farið þangað á einum bil,” sagði sá, er varð fyrir svörum hjá Ferðafélaginu. Auk þess fer bæði Ferðafélag Islands og Útivist i stuttar göngu- ferðir um nágrenni borgarinnar. Feröafélagið um Seljadal og Undirhliðar. útivist á ferð um Sandfell einn daginn, Vifilsstaða- hliöar annan daginn og Vifilfell þriðja daginn. — ÞJM. „STÖNDUM VID ALLAR OKKAR SKULDBINDINGAR" segir Ingélfur í Útsýn á blaðamannafundi „Ég er alveg sannfærður um að við atlar skuidbindingar við okkur verður staðið,” sagði Ingólfur Guðbrandsson, for- stjóri ferðaskrifstofunnar Út- sýnar á blaðamannafundi i gær- dag. Þá var rætt um hótelmál fyrirtækisins, sem svo mjög hafa verið i brennidepli að undanförnu. Ingólfur Guðbrandsson kvað það rétt vera, að fyrirtæki hans kannaði nú málaferli vegna um- mæla, sem um fyrirtæki hans hefðu verið höfð, bæði i sjón- varpi og blöðum. Taldi hann, að hann væri hreinlega hundeltur af rógtungum. Þegar hefðu all- margir afpantað vegna skrif- anna og umtalsins um Sofico- hótelin, en þar hafa á 4. þúsund Islendingar pantað sér sumar- dvöl i sumar. Um næstu helgi heldur fyrsti hópur sumarsins utan frá Is- landi til gistingar á tveim Sofico-hóte la nna, Los Tamarindos og E1 Remo i Torremolinos. Gestum, sem gista áttu á Perlu 5 á Fuengi- rola, stendur til boða að gista á fyrrnefnda hótelinu. Ingólfur i Útsýn kvaðst einn ferðaskrifstofumanna i Evrópu hafa náð samningum við stjórn- skipaða nefnd i Sofícó-málinu, aðrir hefðu kippt að sér hend-' inni, þar eð auglýsingar þeirra þurftu að vera til mjög snemma. Þá hefði nefndin sýnt sér mikinn skilning, þar eð öll viðskipti af útsýnar hálfu hefðu verið mjög hrein og bein. Aðstoðar við samningana ytra núna fyrir helgina naut Ingólfur frá vararæðismanni Islands i Madrid, senor Perez Busta- mante, sem er lögfræðingur að mennt. Ræðismaðurinn mætti á blaðamannafundinum i gærdag. Kvað hann það ekki rétt að Sofico-hringurinn væri gjald- þrota. Forráðamenn hringsins hefðu sjálfir farið fram á skipti og væri nú verið að rannsaka kröfurnar i búið. Ingólfur Guðbrandsson kvaðst ekki eingöngu bóka far- þega sina á Soficó-hótel, en þar mundu þó um 70% farþeganna gista i sumar, og felur gisti- samningurinn við Sofico i sér 33470 gistinætur frá 18. mai til októberloka. Aðspurður kvaðst Ingólfur ekki hafa greitt hringn- um fyrirfram nema litið eitt af þvi fé, sem útsýn þarf að inna af hendi. Þjónustu kvað hann alla verða með eðlilegum hætti á hótelunum tveim. Þar verða þó tslendingar i miklum meiri- hluta, leggja undir sig heilar hæðir, en ekki kvaðst Ingólfur telja að það mundi verða óvin- sælt, enda stutt að fara til að umgangast annarra þjóða fólk, þar eð hótelin eru við lifæðar Torremolinos. „önnur Islenzk ferðaskrif- stofa hefur s.l. tvö ár sótt fast að ná samningum fyrir farþega sina hjá Tamarindos og E1 Remo, en án árangurs”, sagði Ingólfur á fundinum. Átti hann þar við kollega sinn, Guðna i Sunnu. Visir bar þetta undir Guðna Þórðarson. „Okkur var ráðið frá þvi að gera samninga við Sofico. Umboðsmenn okkar hreinlega neituðu að koma ná- iægt viðskiptum við fyrirtækið. Þó buðu þeir okkur ágæt kjör.” Greinir forstjórana þvi á i þessu, sem og mörgu öðru. Ingólfur kvaðst ætla að fara að fordæmi Guðna Þórðarsonar i Sunnu og bjóða blaðamönnum utan á hvitasunnumorgun til að TAM ARINDOS um síðustu helgi, — þar er Útsýnarmerkiö innan um merki annarra ferða- skrifstofa við aðaíinnganginn. (Ljósmynd JB) sjá svart á hvitu að hann stæði við sina samninga nú, rétt eins og hann hefur gert undanfarin 20 ár. — JBP — Lénharður forsýndur í gœr: H EIL D ARKOSTN AÐU R EKKI YFIR 20 MILLJÓNIR Sjónvarpið „forsýndi” I Laugarásbiói I gær kvik- myndina Lénharð fógeta, sem orðið hefur ein umtalaðasta framleiðsla sjónvarpsins. Hér er um að ræða eitt hið stærsta kvikmyndaverk, sem ts- iendingar hafa staðið einir að og án allrar erlendar hjálpar. Á forsýningunni i gær flutti Jón Þórarinsson ávarp, þar sem hann gat þess, að samkvæmt nýjustu tölum hefði kostnaður við gerð kvikmyndarinnar ekki farið yfir 20 milljónir, og væri þá allur hugsanlegur kostnaður reiknaður með, bæði leiga á eigin tækjum og fastur kostnaður við starfslið. Myndin um Lénharð fógeta verður frumsýnd í sjónvarpinu á annan t hvitasunnu. Við „forsyninguna” i gær var mættur fjöldi þekktra manna, leikarar, starfsmenn sjónvarps, gagnrýnendur, forseti Islands, sendiherrar o. fl. Að „forsýningunni” lokinni voru nokkrir gestanna spurðir um álit sitt á myndinni. Sigurður A. Magnússon, rit- höfundur: „Mér þykir myndin tekin i mjög skemmtilegu landsiagi og náttúrusenurnar fallegar. Sjálft efni myndarinnar er drama- tiskt og það nær að halda athygli manns allt til enda, enda hvergi dauða punkta að finna. Aftur á móti þótti mér textinn of hátiðlegur. Það hefði mátt draga úr þessari þjóðrembings- mælgi. Þó þóttu mér þessar drykkju- senur Lénharðsmanna of keimlikar og óeðlilegar. En svona allt i allt held ég megi segja, að ég sé nokkuð ánægður með árangurinn. Halldór Laxness var einn frumsýningargesta. Hér ræðir hann við Jón Þórarinsson, dagskrárstjóra sjónvarpsins. Ljósm. Bj.Bj. Gunnar Eyjólfsson, leikari, fer með hlutverk Lénharðs: „Já, ég er ánægður með heildarútkomuna Mér sýnist eftir þessa sýningu, að við get- um ótrauðhaldið áfram i slikri kvikmyndagerð. Nú megum við ekki leggja árar i bát, þetta á aðeins að vera byrjunin, en ekki endirinn á alislenzkri kvik- myndagerð.” Pétur Guðfinnsson, fram- kvæmdastjóri Sjónvarps: „Jú, ég er ánægður með þetta verk, en almennir sjónvarpsáhorfendur eiga enn eftir að fella sinn dóm. Ég tel, að árangurinn af þessu verki muni ekki verða þvi til fyrir- stöðu, að fleiri slikumverkum verði unnið, en af fjárhags- ástæðum reikna ég þó með, að löng bið verði, áður en út i slikt stórvirki verður ráðizt á ný. En vitanlega munum við halda áfram með gerð minni sjónvarpsleikrita.” Pétur gat þess ennfremur, að Lénharður fógeti yrði sýndur á sameiginlegri sölusýningu nor- rænna sjónvarpsstöðva, og ef vel tækist til, mætti álita, að myndin skilaði af sér einhverj- um upphæðum i leigu. -JB.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.