Vísir - 15.05.1975, Blaðsíða 7
Vísir. Fimmtudagur 15. mai 1975.
7
IIMIM
Umsjón: Edda
Andrésdóttir
Vinsœldir þjóðbúnings
aukast hjá œskufólki
„Þar sem íslenzki
þjóöbúningurinn virðist
njóta vaxandi vinsælda á
meðal æskufólks, hefur
K.Í. ráðizt í að gefa út lýs-
ingu og leiðbeiningar um
saum á upphlut telpna."
Þannig segir meðal
annars í tilkynningu frá
Kvenfélagasambandi ís-
lands, en tveir nýir bæk-
lingar eru nú komnir út
hjá því.
Kvenfélagasambandið
hefur látið frá sér fara
ýmsa gagnlega bæklinga,
en þessir tveir, sem nú
eru komnir út, heita:
„Upphlutur telpna" og
„Upphlutur nítjándu ald-
ar."
í leiðbeiningum um
saum á upphlut telpna
fylgir einnig snið af upp-
hlutsbol í tveimur stærð-
um. Þessi bæklingur er
eins konar framhald af
ritinu Þjóðbúningar I,
sem gef ið var út í fyrra á
þjóðhátíðarárinu.
Sama er reyndar um
bæklinginn um upphlut
19. aldar að segja. í þeim
bæklingi er lýsing á bún-
ingum og m.a. snið af
upphlutsbol og húfu, upp-
skrift af prjónaðri skott-
húfu og tillaga um upp-
hlutsskyrtu.
Við birtum hér upp-
skriftina af skotthúfunni
og upphlutsskyrtunni, en
þessa ágætu bæklinga má
fá á skrifstofu K.í. að
Hallveigarstöðum: Það er
Elsa E. Guðjónsson safn-
vörður sem tekið hefur
saman báða bæklingana.
Þá prýða margar myndir
og kosta þeir 100 kr. stk.
Húfa þessi er með því lagi, sem tiökaðist um
1860. Uppskriftin var fengin hjá Heimilisiðnaðarfé-
lagi Islands.
Meðalstærð:
Efni: Fínt, þrinnað, svart garn, 30-35 g. Sokka-
prjónar nr. 1 1/2.
Fitjaðer laust upp220 lykkjur (55 I. á prjón).
Prjónaðir 7 cm slétt, þá er byr jað að taka úr. Þess
ergættaðsemminnst beri á úrtökunum. í hverri úr-
tökuurnferð eru teknar úr 4 lykkjur, ein á hverjum
prjóni. úrtökurnar mega ekki koma hver ofan við
aðra, þess vegna eru þær færðar til eftir vissum
reglum.
Vegna þess að húfan á að vera djúp, eru prjónað-
ar nokkuð margar umf erðir miili fyrstu úrtakanna,
eða 8 umf. tvisvar sinnum, 7 umf. tvisvar sinnum, 3
umf. einu sinni, 1 umf. einu sinni, síðan er tekið úr í
hverri umferð. Úrtökunum er skipt í fimm áfanga,^
í hverjum áfanga eru 9 úrtökuumferðir:
<0
Sú litla er meö
svokallaða
djúpa skotthúfu
með mislitum
skúf. Liklega
hafa börnin
ekkert á móti
þvi að eiga
þjóðbúninginn,
en bæklingur,
sem K.i. hefur
gefið út, fjallar
um upphlut
telpna.
I.
1. umf.: 2 saman, 53 sléttar.
2. -9. umf.: sl. án úrtöku.
10. umf.: 2 sm., 47 sl.
11. -18.: sl. án úrtöku.
19. umf.: 10 sl., 2 sm., 41 sl.
20. -26. umf.: sl. án úrtöku.
27. umf.: 15 sl„ 2 sm., 35 sl.
28. -34. umf.: sl. án úrtöku.
35. umf.: 20 sl., 2 sm., 29 sl.
36. -38. umf.: sl. án úrtöku.
39. umf.: 25 sl., 2 sm., 23 sl.
40. umf.: sl. án úrtöku.
Hér eftir er tekið úr í hverri umf.
41. umf.: 30 sl., 2 sm., 17 sl.
42. umf.: 35 sl., 2 sm„ 11 sl.
43. umf.: 40 sl., 2sm, 5 sl., 46 lykkjur á prjóni.
II.
1. umf.: 2 sm„ 44 sl.
2. umf.: 4 sl„ 2 sm„ 39 sl.
3. umf.: 8sl„ 2sm„ 34 sl.o.s.frv.
9. umf.: 32 sl„ 2 sm„ 4 sl„ 37 lykkjur á prjóni.
1. umf.: 2 sm„ 35 sl.
2. umf.: 3 sl„ 2 sm„ 31 sl.
3. umf.: 6 sl„ 2sm„ 27 sl.o.s.frv.
9. umf.: 24. sl„ 2sm„ 3 sl„ 28 lykkjur á prjóni.
IV.
1. umf.: 2 sm„ 26 sl.
2. umf.: 2 sl„ 2 sm„ 23 sl.
3. umf.: 4 sl„ 2 sm„ 20 sl. o.s.frv.
7. umf.: 12 sl„ 2sm„ 8 sl„ 22 lykkjur á prjóni.
Nú er skottið prjónað, fyrst 20 umf. án úrtöku
síðan:
8. umf.: 14 sl„ 2 sm„ 5 sl„ þá 15 umf. án úrtöku
síðan:
9. umf.: 16. sl„ 2 sm„ 2 sl„ 19 lykkjur á prjóni.
Þá er aftur tekið úr í hverri umferð.
V.
1. umf.: 2 sm„ 17 sl.
2. umf.: 1 sl„ 2 sm„ 15 sl.
3. umf.: 2sl„2sm„ 13sl„ o.s.frv.
9. umf.: 8 sl„ 2sm„ 1 sl„ 10 lykkjur á prjóni.
I næstu f jórum umf. er fækkað niður í 6 lykkjur á
prjóni og að lokum prjónuð um 2 cm löng tota til að
festa í skúf inn, fellt af. Húfan er földuð að neðan
með um 1/2 cm breiðum faldi, síðan pressuð lítil-
lega.
Upphlutsskyrta við 19.
aldar upphlut
Stærð: ca 40
Efni: hvitt eða hvítieitt
léreft.
Athugið að skyrtubol-
urinn er úr einni efnis-
lengju, þ.e. án axla-
sauma.
Bolvídd: 55+55 cm.
Ermalengd: 46 cm.
Ermavídd: 40 cm. Speldi
(ferningar undir hönd-
um): 8x8 cm. Breidd á
hálsmáli: 15 cm.
Kringing á hálsmáli ca 5
cm. Baksídd: 57 cm.
Framsídd: 54 cm. Klauf
aðframan: 14 cm. Breidd
á hálslíningu (stand-
kraga): ca 2-2,5 cm.
Ermaklauf: 5,5 cm.
Breidd á ermalíningu: 4
cm. Hliðarklaufar: að
framan 5 cm, að aftan 8
cm.
Frágangur á hálsmáli.
Klaufin að framan er
földuð, lögð á misvíxl
neðst og gengið þar frá
ca 1 cm breiðri feilingu.
Líningin er saumuð við
hálsmálið, rétta á móti
röngu (innan frá), brotin
út á og stönguð niður.
Hálsmálið rykkist ekki
undir líninguna. Liningin
er látin ganga ca 3 cm á
misvixl að framan og
hneppt með lítilli tölu og
frá hnappagati.
Frágangur á ermalín-
ingu. Sex föll eru tekin
neðst í ermina, ofan á
handlegg, og látin snúa að
bol. Ermaklauf er á
saumi, undir ermi.
Ermalíningin er saumuð
við, rétta á móti röngu
(innan f rá), brotin út á og
stönguð niður. Hneppt
með tölu og hnappagati.