Vísir - 15.05.1975, Page 12
12
Vísir. Fimmtudagur 15. maí 1975.
SIGGI SIXPEIMSARI
.. ......... .............
..........3ti| ---------
1 ^ ”‘jhaá! Þegar þeir “ ’
eldast geta þeir ekki
sagt börnunum sínum^
C frá neinu sem þeir fengu
ekki aö gera þegar þeir voru
litlir!!
r
Sunnan kaldi og
siðar stinnings-
kaldi, skýjað og
viða dálftil
rigning.
Mann einn i Kaliforniu
dreymdi ekki alls fyrir löngu,
að hann væri að spila við
kappana frægu, Garozzo, For-
quet og Reese. Hann spilaði
eftirfarandi spil með Reese
sem félaga — og eftir að Reese
i norður hafði opnað á einum
spaða varð lokasögnin fjögur
hjörtu i austur. Garozzo hélt á
spilunum.
A ÁK9763
Vekkert
♦ AG1073
*84
*D
VK97
♦ 8654
♦ KD1092
N
V A
S
*G1054
♦ AD8642
♦ 9
*AG
*82
♦ G1053
♦ KD2
*7653
Ég — segir draqmamaður-
inn — spilaði út tigulkóng, en
Reese hafði einnig sagt i tígli.
Kóngurinn átti slaginn og sið-
an kom tiguldrottning, sem
Garozzotrompaði. Þá hjarta á
kónginn og litið hjarta, sem ég
fékk á tiuna. Siðasta tiglinum
var spilað, en Garozzo tromp-
aði — tók ás og drottningu i
hjarta og siðan fimm slagi á
lauf. Úff, sagði Reese, þegar
Garozzo var búinn að vinna
fjögur hjörtu — við hefðum átt
góða fórn i fjóra spaða. Rétt,
sagði draumamaðurinn, en
spilið er nákvæmlega eins og
spil á blaðsiðu 132 i bók þinni,
og þar er ráðlagt að fórna
ekki, þegar maður veit að
skipting spilanna er erfið fyrir
sagnhafa. Sérfræðivilla, og
siðar munu birtast fleiri spil
úr draumnum.
A meistaramóti Moskvu-
borgar i ár kom þessi staða
upp i skák Bajkov og Berko-
vitsj, sem hafði svart og átti
leik.
27.----Rxe2+! 28. Kg2 —
f3+! 29. Kxf3 — Rgl+ og hvit-
ur gafst upp. Til dæmis 30. Kf4
— Bh6+ eða Kg2 — Bh3+.
rirVI
LÆKNAR
Reykjavik — Kópavogur.
Dagvakt: kl. 08.00—17.00 mánud.
— föstudags, ef ekki næst I heim-
ilislækni simi 11510.
Kvöld- og næturvakt: kl. 17.00 —
08.00 mánudagur — fimmtudags,
simi 21230.
Hafnarfjörður — Garðahreppur.
Nætur- og helgidagavarzla, upp-
lýsingar i lögregluvarðstofunni,
simi 51166.
A laugardögum og helgidögum
eru læknastofur lokaðar, en lækn-
ir er til viðtals á göngudeild
Landspitalans, simi 21230.
Upplýsingar um lækna- og lyfja-
búðaþjónustu eru gefnar I sim-
svara 18888.
Kvöld-, nætur- og helgidaga-
varzla apótekanna vikuna 9.-15.
mai er i Apóteki Austurbæjar og
Laugavegs Apóteki.
Það apótek, sem fyrr er nefnt,
annast eitt vörzluna á sunnudög-
um, helgidögum og almennum
fridögum. Einnig næturvörzlu frá
kl. 22 að kvöldi til kl. 9 að morgni
virka daga, en kl. 10 á sunnudög-
um, helgidögun? og almennum
fridögum.
Kópavogs Apótek er opið öll kvöld
til kl. 7, nema laugardaga er opið
kl. 9-12 og sunnudaga er lokað.
Rafmagn: f Reykjavik og Kópa-
vogi i sima 18230. í Hafnarfirði i
sima 51336.
Hitaveitubiianir simi 25524.
Vatnsveitubilanir simi 85477.
Simabilanir simi 05.
HEILSUGÆZLA
Slysavarðstofan: simi 81200, eftir
skiptiborðslokun 81212.
Sjúkrabifreið: Reykjavik og
Kópavogur, simi 11100, Hafnar-
fjörður simi 51100.
Tannlæknavakt er I Heilsuvernd-
arstöðinni við Barónsstig alla
laugardaga og sunnudaga kl.
17-18. Simi 22411.
Reykjavik: Lögreglan simi 11166,
slökkvilið og sjúkrabifreið, simi
11100.
Kópavogur: Lögreglan simi
41200, slökkvilið og sjúkrabifreið
simi 11100.
Hafnarfjörður: Lögreglan simi
51166, slökkvilið simi 51100,
sjúkrabifreið simi 51100.
ÚTIVISTARFERÐIR
Hvitasunnuferðir: 16.-
19. mai.
Húsafell og umhverfi. Gengið
verður á Ok, Kaldadal og viðar,
sem er tilvalið land fyrir göngu-
skiði. Einnig styttri göngur með
Hvitá og Norðlingafljótiog farið i
Vfðgelmi og Surtshelli. Gist inni
ög aðgangur að sundlaug og gufu-
baði. Fararstjórar Jón I. Bjarna-
son og Tryggvi Halldórsson.
Farseðlar á skrifstofunni,
Lækjargötu 6. Útivist, simi 14606.
Hvitasunnuferðir
Föstudagur 16/5
kl. 20.00 Þórsmörk
Laugardagur 17/5
kl. 8.00 Snæfellsnes
(gengiö á Snæfellsjökul)
kl. 14.00 Þórsmörk.
18. mai.
Kl. 13.00 Seljadalur. Verð 400
krónur.
19. mai.
Kl. 13.00 Undirhliðar. Verð 400
krónur.
Brottfararstaður B.S.Í.
23. mai, kl. 20.00.
Mýrdalur og nágrenni.
Leiðsögumaður Einar H. Einars-
son, Skammadalshóli, höfundur
Árbókar 1975.
Farmiðar seldir á skrifstofunni.
Ferðafélag Islands,
Oldugötu 3
simar 19533 og 11798.
Farfuglar —
Ferðafólk
Hvitasunnuferð i Þórsmörk 17.-
19. mai. Lagt af stað kl. 9.30 á
laugardagsmorgun. Verð kr.
3.100.00.
Farfuglar
Laufásvegi 41
Simi 24950
Keflavikurprestakall
Olafur Oddur Jónsson verður til
viðtals i Kirkjulundi á fimmtu-
dögum kl. 17 til 19 út maimánuðf
og einnig I sima 91-74297 aðra
daga.
n □AG S D KVÖLD | n □AG
Útvarpsumrœður um sjávarútveginn klukkan 20.30:
Sjávarútvegur frá
öllum sjónarhornum
„Sjávarútvegurinn og hagur
hans” er yfirskriftin á umræðu-
þætti, sem Páll Heiðar Jónsson
stjórnar i útvarpinu klukkan
20.30 i kvöld.
Þátturinn verður sendur beint
út og er öllum áhugamönnum
um sjávarútvegsmál heimilt að
mæta i útvarpssal á útsending-
artima. En til að stjórnendur
þáttarins geti áttað sig á fjölda
þeirra, sem mæta, eru menn
beðnirað tilkynna sig hjá sima-
vörzlu útvarpsins.
Þátttakendur i kjarna um-
ræðnanna verða aftur á móti
sjö. Fyrstan er að nefna sjávar-
útvegsmálaráðherra, Matthias
Bjarnason. Þá mætir einnig til
umræðnanna fulltrúi stjórnar-
andstöðunnar, Garðar Sigurðs-
son frá Alþýðubandalaginu.
Jakobi Jakobssyni fiskifræðingi
hefur verið boðið og einnig fag-
mönnum i sjávarútvegi, þeim
Kristjáni Ragnarssyni, for-
manni Landssambands is-
lenzkra útvegsmanna, og Pétri
Sigurðssyni, varaformanni Sjó-
mannafélags Reykjavikur.
Þá hefur einnig verið leitað til
Sölumiðstöðvar hraðfrystihús-
anna og Sölusambands is-
lenzkra fiskframleiðanda, sem
stærstu vinnslugreinanna, um
fulltrúa.
,,Ég er að vonast til að við
getum rætt um sjávarútveginn
frá mörgum sjónarhornum, um
samband vinnslunnar og veið-
anna, ástand fiskistofna og frið-
unarráðstafanir. Kjörin hljóta
að verða rædd lika, þótt maður
geri sér vitanlega grein fyrir þvi
að svona útvarpsþáttur verði
vart einn til að samningar tak-
ist, þvi miður.”
Þetta hafði Páll Heiðar Jóns-
son, stjórnandi fyrirhugaðs
þáttar, að segja um umræður.
Páll hefur nú verið fastur
starfsmaður við útvarpið i tvö
ár.
,,Ég ber vist þann virðulega
titil dagskrárfulltrúi, hvað sem
það svo þýðir. Ég er ekki fulltrúi
fyrir neina dagskrá nema þá
sem ég geri sjálfur og ber þvi
ekki ábyrgð á öðru. Ég starfa
eingöngu við dagskrárgerð, en
ég held að það hafi ekki verið
fundið upp neitt skárra starfs-
heiti. Dagskrárgerðarmaður?
Nei, mér leiðist það orð svo
óskaplega. Það setur mann i
flokk með útgerðarmönnum og
pulsugerðarmönnum,” sagði
Páll Heiðar.
Pál! Heiðar hefur sýnt sjávar-
útveginum mikinn áhuga að
undanförnu. Siðastliðna sunnu-
daga hefur verið útvarpað þátt-
um, sem hann tók upp á veiði-
ferð með einum stóru skuttog-
aranna og sló sá þáttur það vel i
gegn að togararnir hafa vart
farið á sjó siðan. Það var þó
raunar tilviljun ein að þáttum
þessum var útvarpað um leið og
útgerð stóru togaranna var i
brennipunkti. _jb
Kvennadeild Styrktar-
félags lamaðra og fatl-
aðra.
Innanfélagsbingó verður I Att-
hagasal Hótel Sögu fimmtudag-
inn 15. maf kl. 20,30. Félagskonur
eru beðnar að fjölmenna og taka
með sér gesti. Stjórnin.
Munið frimerkja-
söfnun Geðverndar
Pósthólf 1308 eða skrist. fél. Hafn-
arstræti 5.
Leikvallanefnd Reykjavlkur veit-
ir upplýsingar um gerð, v.erð og
uppsetningu leiktækja, svo og
skipulagningu leiksvæða, alla
virka daga kl. 9-10 f.h. og 13-14
e.h. Siminn er 28544.
Ónæmisaðgerðir gegn
mænusótt
fyrir fullorðna fara fram I Heilsu-
vemdarstöð Reykjavikur frá 5,-
24. mai, kl. 16-18 alla virka daga
nema laugardaga. Aðgerðin er
ókeypis.
Kvenfélagið
Keðjan
heldur fund i kvöld kl. 20.30 að
Bárugötu 11. Sumarferðalagið
rætt og spiluð félagsvist. Köku-
dískar frá skrúfudegi óskast sótt-
ir á fundinn.
Stjórnin
I.O.G.T.
St. Andvari nr. 265
Fundur i Templarahöllinni I
kvöld kl. 8.30. Venjuleg fundar-
störf. Kaffi eftir fund. Félagar
fjölmennið.
Fyrirlestur og
sýning í nýju
húsnæði MÍR
Félagið MIR, Menningartengsl
Islands og Ráðstjórnarrikjanna,
hefur nú fengið leigt húsnæði að
Laugavegi 178 (við hliðina á veit-
ingastofunni Halta hananum) og i
kvöld, fimmtudaginn 15. mai,
verður það I fyrsta skipti opnað
’ almenningi. Þá flytur sovézkur
sagnfræðingur, dr. V.M. Kulisj
frá Visindaakademiu Sovétrikj-
anna, fyrirlestur i tilefni þess að
30 ár eru liðin frá lokum siðari
heimsstyrjaldarinnar. Jafnframt
verður opnuð sýning á ljósmynd-
um o.fl. og væntanlega verður
einnig sýnd kvikmynd. Aðgangur
er öllum heimill. — (Fréttatil-
kynning frá MIR).
| í KVÖLPf
Barnatíminn
klukkan 16.40:
Keppa til
úrslita
Það er nú orðinn árlegur
viðburður að efna til spurn-
ingakeppni tóif ára barna um
umferðarmál, og úrslita-
baráttunni i keppninni i ár
verður útvarpað i barnatim-
anum klukkan 16.40 i dag.
Þetta er tiunda árið, sem
þessi keppni er haldin, og siö-
ustu árin hefur úrslitunum
verið útvarpað. Þetta árið eru
það Hliðaskóli og Breiðagerð-
isskóli, sem keppa til úrslita.
Mikillar og spennandi keppni
er að vænta, þar eð þetta er i
annað sinn sem Hliðaskóli
kemst i úrslit og það þriðja,
sem Breiðagerðisskólinn gerir
það. Hliðaskólinn hefur einu
sinni farið með sigur af hólmi
en Breiðagerðisskóli tvisvar.
1 fyrra var það aftur á móti
Melaskólinn sem sigraði. Um-
sjón með keppninni hefur
Baldvin Ottósson fyrir hönd
Umferðarnefndar Reykjavik-
ur og lögreglunnar i Reykja-
vik. Úrslitakeppnin hefst
klukkan 16.40 og stendur i um
30 minútur.
—JB