Vísir - 26.05.1975, Blaðsíða 6
6
Vfsir. Mánudagur 26. maf 1975
vísir
Útgefandi: Eeykjaprent hf.
Framkvæmdastjóri: Sveinn R. Eyjólfsson
Ritstjóri: Jónas Kristjánsson
Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson
Ritstjópnarfulltrúi:. Haukur Helgason
Auglýsingastjóri: Skúli G. Jóhannesson
Auglýsingar: Hverfisgötu 44. Simar 11660 86611
Afgreiösla: Hverfisgötu 44. Simi 86611
Ritstjórn: Slöumúla 14. Simi 86611. 7 linur
Askriftargjald 700 kr. á mánuöi innanlands.
t lausasölu 40 kr.eintakiö. Blaöaprent hf.
Látum Spán róa
Kóngafólk
á slóðir
bolsévíka
Við viljum ekki spænsku fasistana sem banda-
menn i Atlantshafsbandalaginu. Stjórnin i
Washington leitar nú hófanna um inngöngu eða
að minnsta kosti tengsl Spánar og NATO. Banda-
rikjamenn hafa herstöðvar á Spáni.
Það var bandalaginu til skammar að dröslast
með einræðisrikin Grikklandi og Portúgal á sin-
um tima. í báðum þessum rikjum hafa lýðræðis-
stjórnir nú tekið völdin. Sá smánarblettur hefur
þvi verið þveginn af NATO, og bandalagið má
ekki óhreinkast með inngöngu enn einnar stjórn-
ar einræðissinna.
tslendingar eiga góð viðskipti við Spán og vona,
að þau dafni, en þeim verður að halda innan þess
ramma, sem þau eru i. Atlantshafsbandalagið á ■
að vera vörður lýðræðis gegn einræði.
Varnarmálaráðherrar Atlantshafsbandalags-
ins tóku óskir Bandarikjanna, að þvi er tekur til
Spánar til meðferðar á fundi i Brussel nú um
helgina. ísland tók á fundinum þá afstöðu, að
hafna skyldi tilmælum Bandarikjanna, og sömu
skoðunar voru fulltrúar Bretlands, Hollands,
Noregs og Danmerkur. Niðurstaðan varð sú að
drepa málinu á dreif og gera enga samþykkt.
Atlantshafsbandalagið hefur sem slikt leitt hjá
sér að taka afstöðu til Spánar, allt frá stofnun.
Þetta er i fyrsta sinn, sem það mál er tekið fyrir.
Tilmæli Bandarikjastjórnar voru þess eðlis, að
mikilvægi herstöðvanna á Spáni fyrir NATO yrði
viðurkennt, en slikt gæti orðið fyrsta skref i átt til
aðildar.
Það var gleðiefni, að Portúgalsstjórn lét koma
fram á fundinum, að Portúgal yrði áfram i
Atlantshafsbandalaginu. óttazt hafði verið, að
vinstri sinnuð stjórn Portúgals mundi draga rikið
út úr bandalaginu. Meðal valdhafa i herforingja-
stjórn Portúgals eru margir tortryggnir á stjórn-
ina i Washington og hafa sakað hana um að grafa
undan sér. Enn sem komið er hafa hinir hófsam-
ari tökin.
Ráðamenn i Lissabon gera sér vonir um, að
þróunin á Spáni verði hin sama og i Portúgal. Þar
verði innan skamms stjórnarbylting og fasista-
stjórn steypt af stóli. Franco er háaldraður mað-
ur og stjórn hans á fallanda fæti. ólöglegir stjórn-
málaflokkar eflast stöðugt. Þeir eru, eins og var i
Portúgal, reiðubúnir til að taka við stjórn,
hvenær sem er.
Yrði þróunin sú, væri ekkert til fyrirstöðu, að
Spánn gengi i Atlantshafsbandalagið, eftir fall
fasismans.
Hins vegar nægði ekki, að Franco félli frá, ef
fasistastjórnin sæti áfram eftir hans dag.
Kissinger utanrikisráðherra Bandarikjanna
ræddi um helgina við utanrikisráðherra Spánar i
herbækistöð við Madrid. Ford, forseti Bandarikj-
anna, hyggst koma til Spánar i lok mánaðarins.
Stjórnin i Washington leggur áherzlu á að treysta
böndin við Francostjórnina og með þvi skapast
hætta á, að Portúgal verði hrakið úr bandalaginu.
Bandarikjastjórn verður að fara með gát i
þessu. Atlantshafsbandalagið verður að halda
Portúgal en láta Spán róa.
— HH
i
Þaö er aitalaö, aö Eiizabeth Bretadrottning muni senn heimsækja
Sovétrikin.
Konungsfjölskyldur Evröpu eru nú loks aö taka I sátt kommúnista
Sovétrikjanna 57 árum eftir aö flokkur bolsévika leiddi Nikuiás II
Rússakeisara og fjölskyldu hans á fund örlaganna I skuggalegum kjall-
ara I Siberlu.
Vestrænt kóngafólk hefur á-
kveöiö meö sér aö þoka til hliðar
skuggalegum endurminningum
byssuhvellanna, sem kváðu við
aöfaranótt 17. júnl 19181 Yekater-
ingburg, þegar ellefu manns voru
tekin af Ilfi. Og það þótt sovézkir
sagnaritarar haldi þvl enn fram,
aö aftökumar hafi veriö réttmæt-
ar.
Þessi tilhneiging til þess að láta
hiö liöna vera gleymt lét fyrst á
sér krælafyrirnokkrum árum, og
hefur haldið áfram, unz svo er
komið, að Margrét Danadrottn-
ing, sem er náskyld Romanoff-
ættinni, fer I opinbera heimsókn
til Sovétrikjanna í næstu viku.
Þaö þykir á vissan hátt tákn-
rænt, að þessi 36 ára gamla
drottning — móöir Nikulásar
keisara var nákomin frænka
hennar — byrjar heimsóknina i
Leningrad, þessari fyrrum höfuð-
borg keisaraveldisins, sem áður
hét Sankti Pétursborg.
Þótt annaö kóngafólk frá
Evrópu hafi farið til Sovétrikj-
anna á seinni árum, þá var þar
um aö ræöa óopinberar heim-
sóknir. Þvi veröur Margrét
drottning fyrsti konungborni
þjóöhöfðinginn, sem þangað kem-
ur i krafti sinnar stööu, siðan
byltingin varð 1917.
Strax á hæla henni kemur svo
Baudouin Belgiukonungur i
sumar, en hann er miklu fjar-
skyldari Romanoffunum. Og það
er altalað, að Elizabeth Breta-
drottning muni lfka heimsækja
Sovétrikin, þótt ekki hafi komið
enn neitt formlegt boð um slikt.
Eiginmaður Elizabethar, Filip-
us prins, og dóttir þeirra, Anna
prinsessa, voru I Sovétrlkjuhum
1973. Prinsinn var þar sem forseti
alþjóðasamtaka hestamanna og
prinsessan til að keppa I kapp-
reiðum.
Filippus prins er tengdur
Romanoffunum. Frænka hans
var kona Nikulásar keisara,
Alexandra,og lét lifið um leið og
keisari hennar i Yekaterinburg
(sem nú heitir Sverdlovsk). —
Anna prinsessa hefur rússneskt
konungablóð i sinum æðum úr
móðurætt.
Afi Elizabethar, George V., var
frændi Nikulásar keisara, auk
þess aðhann var svo nauðalikur
keisaranum, að þjónar keisarans
kenndu hann fyrir Nikulás, þegar
þeir sáu hann, og héldu, að keis-
arinn hefði fyrir einhverja guðs
mildi sloppiö frá aftökunum i
Yekaterinburg vestur til Bret-
landseyja.
Viðhorf konungsfólksins i dag
til þessara atburða kom fram hjá
Mountbatten lávarði i Moskvu
nýlega. Lávarðurinn er frændi
Filippusar prins. Viktoria drottn-
ing var langamma móður hans
eins og Alexöndru keisaradrottn-
ingar.
Mountbatten lávarður kom
fram fyrir hönd Bretl. á hátlð-
arhöldunum, þegar minnzt var 30
ára afmælis sigursins yfir nazist-
um. Hann sagði, aö hann gæti
ekki fundið til neinnar óvildar i
garð núverandi leiðtoga Sovét-
rikjanna vegna lifláts frænku
hans og fimm barna hennar.
„önnur kynslóð er komin fram
siðan, og við getum ekki sakast
við hana um það, sem skeði þá,”
sagði lávarðurinn.
Danir segja, að konungsfjöl-
skylda þeirra hugsi svipað.
Sovétyfirvöld hafa á sinn hátt
reynt að gera sitt til þess að þessi |
löngu liðni atburður mætti gleym-
ast, þegar fjórar dætur Nikuiásar
Margrét Danadrottning verður
fyrst til að heimsækja opinber-
lega Sovétrikin af vestrænu
kóngafólki, slðan októberbylting-
in var gerð 1917.
Filippusprins og Anna prinsessa
dóttir hans voru I Sovétrikjunum i
fyrra, en bæði vegna hesta-
mennsku.
og Alexöndru, fjórtán ára sonur
þeirra, Alexis, heimilislæknir
þeirra, þjónn, matsveinn og þjón-
ustustúlka voru skotin til bana og
llk þeirra brennd eftir á.
Fyrir fáum árum kom fram ný
kvikmynd „Nikulás og Alex-
andra” á Vesturlöndum og þessi
hörmungaratburður skoðaður i
nýju ljósi. Þessi mynd kallaði
fram viðbrögð I mánaðarritinu
„Zvezda”, og þótti þar gæta
nýrra viðhorfa sovézkra yfir-
valda. Höfundur þessarar greinar,
sagnfræðingurinn Mikhail
Kasvinov, hélt þvi fram, að aftök-
urnar í Yekaterinburg og sjö ann-
arra ættingja keisarans i ná-
grannaþorpinu Alapayevsk,
hefðu verið bæði réttmætar og
maklegar.
Kasvinov segir, að aftökusveit-
in hafi ekki verið hjartalausir
morðingjar, eins og speglazt
hefur I frásögnum á Vesturlönd-
um, heldur hetjur byltingarinnar.
Þeir hafi vitað, að hermenn Hvit-
rússa hafi verið á næsta leiti til
að bjarga keisaranum. „Verka-
fólk i Úral ákvað að láta Roman-
offana ekki af hendi, hvorki lif-
andi né látna, heldur brenna likin
og láta vindinn dreifa öskunni,”
skrifar sagnfræðingurinn.
Hann heldur þvi fram, að áróð-
ursmeistarar Vesturlanda spari
ekkert til þess að ata þetta fólk
auri og heldur uppi langri vörn
fyrir þá, sem þarna voru að verki.
,,An þess að hika sveifluðu þeir
þvi sverði, sem byltingin hafði
lagt þeim f hendur, og mættu sið-
ar, þegar stundin rann upp, dauða
sinum algerlega óttalausir,”
skrifar Kasvinov.
„Byltingin batt slikan endahnút
á sitt verk, að það var ómögulegt,
að nokkur afkomandi keisaraætt-
arinnar léti nokkurn tima sjá sig i
Rússlandi,” sagði hann sfðar i
niðurlagsorðum sinum.
Annað hefur ekki verið sagt að
hálfu þess opinbera.