Vísir - 26.05.1975, Page 9
Elmar Geirsson, leikmaðurinn snjalli i Fram, lék siðasta hálftimann með Islenzka landsliðinu i gær og skapaði þá ólgu i vörn Frakka. Eftir
samleik við Teit Þórðarson komst Elmar I gott færi — hann er á miðri mynd af ofan — og maður beinlinis ,,sá” knöttinn I markinu. En svarta
miðverðinum i franska liðinu tókst aðcins að breyta stefnu knattarins á flugi hans að markinu og knötturinn lenti i stöng og afturfyrir. Horn-'
spyrna, sem nýttist ekki. Ljósmynd Bjarnleifur.
„Nú þurfum við að klekkja
aftur ó Austur-Þjóðverjum"
sagði landsliðsþjálfarinn Tony Knapp eftir leikinn í gœr
„Þegar þess er gætt, að
Frakkarnir hafa leikið fimm
Skotar
urðu að
landsleiki siðan í desember, en
við engan siðan i október og við að
byrja okkar keppnistimabil en
þeir að enda sitt, eru þetta mjög
góð úrslit fyrir okkur,” sagði
Tony Knapp þjálfari Islenzka
liðsins eftir leikinn.
,,Ég get þvi ekki verið annað en
áægður með strákana, enda
börðust þeir vel og gerðu það,
sem fyrir þá var lagt. Við áttum
bara að skora mark i þessum leik,
og það jafnvel fleiri en eitt.
En þetta var aðeins byrjunin —
við fáum engan tima til að slappa
af. — 1. deildin bvrjar aftur i
vikunni, og siðan er lands-
leikurinn við Austur-Þjóðverja
hér annan föstudag. Hann verður
sjálfsagt erfiður, en við gerum
okkar bezta eins og alltar’.j^jp.
Norður-irar komust úr neðsta
sætinu I brezku meistarakeppn-
inni i knattspyrnu á föstudag,
þegar þeir sigruðu Wales i Belfast
með 1-0. Þau úrslit voru óvænt
eftir fyrri frammistöðu welska
liðsins i keppninni, en nú mátti
það sin litils án þriggja sinna
beztu manna, John Roberts, John
Toshack og Terry Yorath.
Eina markið I leiknum skoraði
Sunderlandleikmaðurinn i Irska
liðinu með nafninu fræga, Tom
Finney. Það var á 23. min. eftir að
jJóhannes
Eðvaldsson:
• •
Eg var
oruggur
með
hann
þarna á
línunni"
,,Ég var pottþéttur á að
hafa hann, þegar skotið kom
— ég sá hann koma fram hjá
Sigga Dags og vissi, að ég
hefði hann þá örugglega,”
sagði fyrirliði islenzka liðs-
ins, Jóhannes Eðvaldsson,
þegar við spurðum hann um
atvikið, þegar hann bjargaði
skoti frá Frökkunum á linu
seint i leiknum.
„Þeir voru orönir hættu-
legir undir lokin, þvi þá voru
flestir i okkar liði alveg að
gefast upp af þreytu. Þeir
léku til að byrja með þennan
ping-pong fótbolta, eins og
þeir hjá Metzt gerðu — það
er fallegt að sjá það, en kem-
ur ekkert út úr þvl. Það var
rétt i lokin, sem þeir fóru að
koma með lengri sendingar
og reyna að setja upp hraða,
cnda voru þeir þá orðnir
örvæntingarfullir.
Við áttum bara aö skora i
þessum leik — tækifærin
voru okkar engu siður en
þeirra, og ég held, að okkar
hafi verið öllu betri.
En það var gaman að
þessu og gaman að vera
kominn heim aftur og vera
með strákunum I svona leik
á Laugardalsvellinum. Við
þurfum bara að endurtaka
þetta oftar og helzt að gera
betur á móti Austur-Þjóð-
verjum um aðra helgi.”
— klp —
Dai Davies, markverði Everton
og Wales, hafði mistekizt að ná
knettinum eftir hornspyrnu.
trska liðið hafði yfirburði I leikn-
um og leik þess var fagnað inni-
lega af 17 þúsund áhorfendum á
Windsor Park. —hsim.
AAEST SELDA SAUAAAVEL A ISLANDI
NECCHI
16 sporgerðir. — Saumar allan
vanalegan saum, teygjusaum, overlock
og skrautsaum, þræðir, faldar,
gerir hnappagöt og festir tölur.
«:
c:
<!
c:
c:
<:
<:
<:
c
^l
^ll
^ll
^ii
Hin fullkomna sjálfvirka saumavél
FULLKOMINN ISLENZKUR LEIÐARVISIR
Fæst með afborgunum.Sendum gegn póstkröfu.
KYNNIÐ YÐUR HIÐ ÓTRULEGA HAGSTÆÐA VERÐ.
Margra dratuga reynsla tryggir góða þjónustu.
FÁLKINN
Suðurlandsbrout 8
Reykjavík • Simi 8-46-70
Útsölustaðir
víða um land
ganga
Um fjörutiu þúsund Skotar
fóru að heiman til að horfa á
landsleik Englands og Skot-
lands á Wembley á laugar-
dag. í Lundúnum lentu þeir i
erfiðleikum— strætisvagna-
stjórar og starfsmenn við
neðanjarðarbrautirnar
gerðu verkfall. Neituðu að
flytja fólk til Wembley og
ástæðan var framkoma
skozku áhorfendanna sem
ferðuðust meðþessum tækjum
1S73 — siðast þegar England
og Skotland léku á Wembley.
Þá var flest eyðilagt.
En skozku áhorfendurnir
gerðu sér litið fyrir — gengu
8 milurnar frá miðborg
Lundúna til Wembley og
sumir lögðu af stað þegar um
nóttina fyrir leikinn. Á
Wembley var mikill
viðbúnaður — lögreglu-
vörður hefur aldrei verið
meiri á leik á Bretlandseyj-
um. Þó komust ýmsir niður á
völlinn — og bjórkrúsum
rigndi yfir leikmenn eftir
leikinn. 34 voru handteknir á
meðan á leiknum stóð og
eftir hann — en skozki
hópurinn var hljóðlátari i
göngu sinni frá Wembley á
laugardagskvöld, en drekkti
sorgum sinum hins vegar vel
iheimsborginnium kvöldið. -
hsim.