Vísir - 26.05.1975, Blaðsíða 12
12
Vlsir. Mánudagur 26. mai 1975
Ólafur Júlíusson:
„Fœturnir neit-
uðu að hlýða"
Eitt af beztu tækifærum ls-
lands i sibari hálfleiknum á móti
Frökkum var, þegar Ólafur
Júlíusson komst inn fyrir vörn-
ina, en skaut langt fram hjá úr
löngu færi.
,,Ég missti boltann abeins of
langt inn á miðjuna, þegar ég
ætlaði aö bruna upp aö markinu,
og ég heyrði I þessum svarta
miðherja þeirra koma másandi
á eftir mér.
Ef ég hefði ekki misst hann til
hliöar, hefði ég komizt alla leið,
þvi það fór dýrmætur tfmi I
þessi aukaskref. Ég tók þvl
sjensinn á að skjóta, en þá gáfu
fæturnir sig, þvl ég var alveg
búinn af þreytu.”
Annars var ég ánægður með
útkomuna hjá okkur. En kórón-
an hefði það samt veriö að geta
skorað hjá þeim.”
— klp —
Joe Gilroy:
„Bjóst ekki við ísl.
liðinu svona góðu"
„Þetta er i fyrsta sinn, sem ég
sé Islenzka landsliðið I knatt-
spyrnu leika, og bjóst aldrei við
þvi, aö það væri svona gott,”
sagði Joc Gilroy, þjálfari 1.
deildarliðs Vals, eftir leikinn, en
þá kom hann ásamt erlendu
þjálfurunum niður I búnings-
klefa til aö ræða við Tony
Knapp.
„islenzka liðiö var I heildina
betra en það franska ef maður
skoðar leikinn I heild. Miðað við
að þetta er I upphafi keppnis-
timabils hér hjá okkur, en þeir
að ljúka við sitt, var þetta frá-
bært hjá islenzku strákunum.
Að vísu voru Frakkarnir með
betra útliald , en það kom i ijós
siðustu 15 minúturnar, en i
heildina átti íslenzka liðið fleiri
marktækifæri og hefði með
smáheppni getað sigrað.”
-klp-
r
Asgeir Sigurvinsson:
voru allt
en hressir"
„Þeir
annað
,,Ég get vel skilið að þeir séu
svekktir eftir þessi úrslit,”
sagði eini frönskumælandi leik-
maðurinn I isienzka iandsiiðinu,
Asgeir Sigurvinsson, er við töl-
uðum við hann eftir leikinn.
„Það er mikið áfall fyrir þá að
ná ekki nema jafntefli við okkur
— og sleppa vel með það, —
enda var hljóðið ekki sem bezt i
þeim á leiðinni út af og I baðinu.
Við getum ekki verið annað en
ánægðir með útkomuna, þvi
þetta er annað jafnteflið I röð,
sem við gerum við stórþjóð i
Evrópu á knattspyrnusviðinu.
Og það er virkilega farið að taka
eftir okkur núna.”
Fyrir landsleikinn afhenti Jón
Asgeirsson, formaður Samtaka
iþróttafréttamanna, Asgeiri
hina miklu styttu samtakanna
sem iþróttamaður ársins fær.
Asgeir var sem kunnugt er efst-
ur i kjöri iþróttafréttamanna og
„iþróttamaður ársins”. Honum
var fagnað innilega af hinum
fjölmörgu áhorfendum — og
leikmönnum beggja liða — þeg-
ar hann tók við styttunni. A
mynd Bjarnleifs tii hliðar er As-
geir meö gripinn fagra.
Skotor gjörsigraðir á
Wembley-leikvanginum!
— Enskir unnu brezku meistarakeppnina og Skota 5-1
Eftir allar skamm-
irnar siðustu vikurnar
tóku ensku landsliðs-
mennirnir i knattspyrn-
unni sig heldur betur
saman i andlitinu á
laugardag — unnu þá
stórsigur 5 — 1 á Skotum
i brezku meistarakeppn-
inni og léku á köflum
snilldarlega.
Meö sigrinum hlaut England
brezka meistaratitilinn, þar sem
Wales tapaði i Belfast fyrir
Norður-írlandi á föstudagskvöld 0
— 1.
Fáir reiknuðu með sigri Eng-
lands gegn Skotlandi á laugardag
á Wembley, þar sem leikir enska
liðsins höfðu ekki verið sann-
færandi I fyrri leikjunum — en
Skotar aftur á móti virkað
sterkir.
En Don Revie var nú með alla
slna beztu menn — Colin Bell,
Kevin Keegan komu inn aftur, og
Kevin Beattie, Ipswich, sem bak-
vörður, en hann hafði ekki getað
leikið i fjórum siðustu leikjum
Englands vegna meiðsla. En nú
gerði hann bakvarðarstöðuna að
sinni.
Enska liðið byrjaði með
miklum krafti og eftir sjö min-
útur hafði það raunverulega gert
út um leikinn — skorað tvö mörk.
Hið fyrra skoraði Gerry Francis,
bezti leikmaður enska liðsins,
meö miklum þrumufleyg af 25
metra færi. Náði knettinum eftir
markspymu Ray Clemence og
tveimur min. siðar léku þeir
Ball og Keegan i gegn. Keegan
gaf fyrir og þar var hinn ungi
Beattie kominn —skallaði fallega
i mark.
Þeir Ball, Bell og Francis náðu
yfirtökunum á miðju vallarins og
sjálfstraust ensku leikmannanna
var mikið eftir hina góðu byrjun.
Upp úr miðjum hálfleik fór þó
skozka liöið aðeins að sýna
klærnar — en komst litið áleiðis
gegn sterkri vörn Englands. Þó
átti Parlane, Rangers, skot i
stöng og Alfie Conn, Tottenham,
spyrnti framhjá eftir hornspyrnu.
Enska liðið var hins vegar afar
hættulegt i upphlaupum sinum og
á 41. minútu jók Bell muninn i 3 —
0, með stórfallegu marki — lang-
skot. Skotar byrjuðu á miðjunni
og brunuðu fram — gefið fyrir og
þar hrökk kötturinn i hönd Colin
Todd. Austur-þýzki dómarinn
dæmdi umsvifalaust vitaspyrnu
sem fréttamönnum BBC fannst
strangur dómur, en ensku leik-
mennirnir hreyfðu ekki mót-
mælum. Bruce Rioch, Derby, tók
vitaspyrnuna og skoraði örugg-
lega. 3 — 1 og tvö mörk með 60
sek millibili.
1 siðari hálfleiknum hafði enska
liöið enn meiri yfirburði og
skoraöi þá tvö mörk til viðbótar.
Francis skoraði hið fyrra á 64.
min. eftir að Ball hafði tekið
aukaspyrnu, en David Johnson
hið siðara á 72,min. eftir mikil
læti í vitateig Skotlands. Þriðja
mark hans fyrir England i
tveimur landsleikjum —og það er
hlutverk miðherja að skora, þó að
hann hafi hins vegar ekki að
öðru leyti verið mjög atkvæða-
mikill.
Skotar gerðu 2 breytingar á
liði sinu, þegar liða tók á hálf-
leikinn. Hutchison, Coventry,
kom I stað Duncan, og Lou Ma-
cari fyrir Ted MacDougall, en
þeir gerðu litlar rósir — Hutchin-
son beinlinis slakur. Fjórum min.
fyrir leikslok kom Dave Thomas,
QPR i stað Keegan hjá Engiandi.
Lokastaðan i brezku keppninni
varð þannig:
islandsmeistarinn i goifi —
Björgvin Þorsteinsson — tapaði I
aukakeppni fyrir Ragnari ólafs-
syni GR i Þotukcppninni, sem
fram fór á Hvaleyrarvellinum i
Hafnarfirði I gær.
Þeir voru báðir á 164 höggum
eftir 36 holúrnar, og þur'ftu þvi að
leika eina aukaholu um 1. sætið.
Ilana lék Ragnar á 4 höggum en
Björgvin á 5, og hlaut þvi Ragnar
fyrsta sætið.
í þriðja sæti kom Þorbjörn
Kjærbo GS á 166 höggum. Þar á
England 3 1 2 0 7-3 4
Skotland 3 111 6-7 3.
N-lrland 3 111 1-3 3
Wales ' 3 0 2 1 4-5 2
Sigur Englands er einn hinn
stærsti, sem landið hefur unnið
gegn Skotlandi — þó stórar tölur
hafi oft áður sézt t.d. 9 — 3 fyrir
England 1961 og 7 — 2 1955. Þá
vann England og stórsigur i
Glasgow 1973 5 — 0. Skozka lands-
liöiðhefurekkiunnið England á
Wembley siðan 1967 — en Skotar
urðu þá fyrstir til að sigra heims-
meistara Englands 3 — 2.
Þessi leikur var hinn áttundi
hjá enska landsliðinu undir stjórn
Don Revie — og I þeim hefur Eng-
land ekki tapað, en hins vegar
hafa verið talsverðar óánægju-
raddir með lið Revie. Þess má til
gamans geta, að David Watson,
Sunderland er eini leikmaðurinn,
sem Revie hefur valið i alla átta
landsleikina.
Skipan enska liðsins var
þannig gegn Skotlandi.
Clemence, Whitworth, Watson,
Todd, Beattie, Ball, Bell, Francis,
Channon, Johnson og Keegan.
Varamaður Thomas, Skotland.
Kennedy, Jardine, MacQueen,
MacGraine, Munro, Rioch,
Dalglish, Parlane, MacDougall,
Duncan og Conn. Varamenn
Hutchison og Macari.
Tekjur af leiknum námu 244
þúsund sterlingspundum, sem er
metupphæð fyrir landsleik á
Wembley.
—hsim.
eftir komu Hálfdán Þ. Karlsson
GK á 167, Einar Guðnason GR á
169 og Jóhann Ó. Guðmundsson
GN og Július R. Júllusson GK á
173 höggum.
Með forgjöf sigraði Reynir
Baldursson GK — á 147 nettó ,
Agúst Svavarsson GK 148 og
Hálfdán Þ. Karlsson GK varð
þriðji á 150.
Næsta opna keppni er um næstu
helgi hjá Golfklúbbi Suðurnesja
— Vikurbæjarkeppnin —
— klp —
Ragnar vann þotuna!