Vísir - 28.05.1975, Side 1
VISIR
65. árg. — Miövikudagur 28. mai 1975 —117.tbl.
Stór orð í Genf:
Ólafur hótar slitum á samstarfi
við EFTA og EBE — Baksíða
ALIMINKUR
SLAPP FRÁ
MINKABÚI
— Baksíða
•
Við erum
aflaklœr,—
og eyðsluklœr
— bls. 3
SIGLINGAKEPPNI
MILLI ENGLANDS
OG ÍSLANDSI
— bls. 3
•
32 fórust
í rútuslysi
í Englandi
— bls. 5
Laugardalurinn
riðlar í
1. deildinni
— Iþróttir í opnu
Kennið börnin
við mœðurnar!
sjó lesendabréf bls. 2
Megrunarfœði
— sem
megrar
ekki
— sjá Inn-síðu
bls. 7
Meðan flotinn liggur bundinn:
BEZTU TÍMAR í TOGARA-
ÚTGERÐ UM LANGT SKEIÐ
Það er ekki beinlinis
hægt að segja, að út-
gerðarmenn græði á
verkfallinu, sem heldur
stóru togurunum bundn-
um i höfn, að tapið er
mun minna og rekstur-
inn auðveldari en þegar
þeir eru á veiðum. Visir
hafði i morgun samband
við Þórhall Helgason,
hjá ísfelli h.f.
— Þaö er enginn vafi á, aö tap-
iö er mun minna. Þaö er sár-
grætilegt aö þurfa aö segja þaö,
en hvaö afkomuna snertir eru
þetta beztu timar I togaraútgerö
um langtskeiö. Viö erum t.d. ekki
meö nema tvo menn á kaupi viö
skipin. Viöskiptamenn okkar,
þeir sem hafa haldiö okkur gang-
andi, og þar á ég ekki.viö banka-
stofnanir heldur verkstæöi og
aöra aöila, sem þarf til aö halda
togurunum úti, verða kannski
verst úti.
— Aö visu hafa aldrei legið á
lausu peningar til aÖ greiöa þeim,
en þaö hefur þó verið einhver
hreyfing á fjármagni og hægt að
gera eitthvaö ööru hvoru. En
fyrir okkur er þetta léttasta út-
gerö i langan tima.
— Væri þá ekki hægt aö álykta
aö útgeröarmenn heföu hreinlega
engan áhuga á aö semja?
— Þaö væri ailavega röng
ályktun. Þaö er veriö aö reyna aö
semja i fullri alvöru. Viö gerum
okkur alveg grein fyrir þvi, aö
mennirnir á stóru togurunum eru
verr launaöir en á þeim litlu og
viljum gera þaö sem hægt er til aö
brúa þaö bil.
— Gallinn er sá, aö viö sjáum
okkur ekki fært aö minnka þaö bil
nema meö þvi aö fækka mann-
skap. Launamunurinn liggur
fyrst og fremst i mannfjölda.
Aflinn á litlu og stóru togurunum
er svipaöur, en f annan stað skipt-
ist hluturinn, i 14 staði en i hinn i
24-25 og jafnvel fleiri.
— Margir sjómenn telja aö þar
meö væru vökulögin borin fyrir
borð.
— Já, ég veit, aö þeir óttast þaö
sumir og ég dreg ekki i efa, aö
þeir sem eftir væru, yröu aö
leggja meira á sig. En ég held
ekki, aö þaö þýöi endilega aö vöku
lögin veröi þá úr gildi. Viö höfum
engan áhuga á aö hafa svo fáa
menn, aö skipin nýtist ekki.
— Þaö er bara að þetta er eina
leiöin sem viö sjáum til aö bæta
kjör þeirra. Þaö segir sina sögu
um hag útgeröarinnar, aö viö
skulum tapa minna á þvi aö hafa
skipin bundin. — öt.
Kalla það „skrifstofufórviðri"
Þaö eru aldeilis viöbrigöi hjá
þeim á Egiisstööum. Fyrir hálf-
um mánuöi mátti enn finna
snjó, þar sem hann haföi veriö
mestur f sköflum. Nú skin sól
upp á hvern einasta dag, og þaö
hefur hýrnaö yfir fólkinu svo um
munar. Nema skrifstofufólkinu.
Þaö kallar bliðuna „skrifstofu-
fárviöri”.
Gróöri hefur fleygt fram á
Egilsstöðum. Hitinn hefur mest
fariö þar upp I 25 stig nú á
sunnudaginn. 1 dag er þar lika
glampandi sólskin, og fóstrurnar
og börnin á dagheimilinu kunna
vel að meta þaö.
Viö fáum Ifklega aö sjá sólina
hér I Reykjavik i dag. Að
minnsta kosti var búizt viö þvi i
morgun aö þaö létti til upp úr
hádeginu. —EA/ljósm:BA
Deila í ríkis-
fyrirtœkjunum
Maraþon-
fundir
Samningafundir gerast nú
langir og strangir i vinnudeilun-
um i rikisverksmiöjunum. Klukk-
an átta i morgun lauk samninga-
fundi, sem hófst klukkan fjögur i
gærdag.
Næsti fundur á undan var
svipaöur. Hefur þetta lagazt eitt-
hvað? spuröum viö Loga Einars-
son hæstaréttardómara, sem er
sáttasemjari i þessari kjara-
deilu. „Nei,” sagöi Logi.
Hann sagði, aö umræður væru
miklar á fundunum.
— HH
Hvað varð
um Rauða
Danna?
— Sjó Að utan bls. 6
MISSTI MÓTORINN í
Flugóhugamaður á Akureyri hœtt kominn
Hurö skall nærri hælum viö
flugvöllinn á Akureyri á sunnu-
daginn. Húnn Snædal flugum-
ferðarstjóri og mikill fiug-
áhugamaöur var þar aö fljúga á
girókoptanum sinum, sem er
litil eins manns þyrla, er
skyndilegt óhapp varö.
Húnn var á koptanum i um tvö
þúsund feta hæð, er mótorinn
hreinlega datt af og féll i sjóinn
fyrir neðan. Þeir er urðu vitni
HAFIÐ
að þessum ósköpum kölluðu
þegará lögreglu og sjúkralið, er
þeir sáu koptann falla i átt til
jarðar.
Húnn náöi þó öruggum tökum
á koptanum, þrátt fyrir vélar-
leysið og tókst honum að lenda
klakklaust á flugvellinum.
Mótorinn var veiddur upd úr
sjónum skömmu síöar. — JB