Vísir - 28.05.1975, Page 16

Vísir - 28.05.1975, Page 16
visir Miðvikudagur 28. mai 1975 Sendi út hjálparbeiðni vegna vélar- bilunar Slysavarnafélaginu barst hjáiparbeiðni frá Óla RE-37 klukkan hálfeitt f gærkvöldi. Þá hafði sveifarás brotnað f þessum ellefu tonna báti, þar sem hann var staddur þrjár milur vestur af Þormóðsskeri, sem er úti af Mýr- unum. Félagar úr björgunarsveit Ingölfs héldu á björgunarbátnum Glsia Jönssyni til móts við vélar- lausan bátinn og drógu hann sfð- an til hafnar i Reykjavik. Ferðin gekk að óskum og komu bátarnir til hafnar kiukkan hálfátta I morgun. — JB Vaxandi áhyggjur af auknum viðskiptahömlum í samkeppnislöndunum „Reynum að fá þau til að breyta stefnu sinni1 — segir forsœtisráðherra — hugsanleg úrsögn úr EFTA og EBE? „Við erum fyrst og 'fremst að vinna að því að fá fram stefnubreytingu hjá öðrum þjóðum," sagði Geir Hallgrímsson f orsætisráðherra í morgun. „För viðskipta- ráðherra er gerð í þeim tilgangi." Fréttastofan Associated Press hefur eftir Ólafi Jóhannessyni á ráðherráf undi EFTA í Genf, að ekki sé við að búast, að Islendingar geti haldið áfram að lækka verndartolla sína, eins og gera skal samkvæmt samningúnum við Efna- hagsbandalagið og EFTA og íslendingar kunni að segja upp samningunum við bandalögin. Forsætisráðherra sagði i morgun, að rikisstjórnin hefði vaxandi áhyggjur af auknum viðskiptahömlum, sem við- skiptalönd okkar létu auk löndunarbannsins i V-Þýzka- landi ganga i gildi. Þetta gerðist meðal annars um þessar mund- ir i Noregi, Vestur-Þýzkalandi, Frakklandi, Bretlandi, Spáni, Kanada og Danmörku. Styrkir til fiskveiða og fiskvinnslu væru auknir. „Slikar ráðstafanir hljóta,” sagði forsætisráðherra, ,,að veikja samkeppnisaðstöðu okkar. Samkeppnislöndin gætu selt fisk á lægra verði en við með þessum hætti. Þar væru aðrar atvinnugreinar, sem unnt væri að skattleggja til að standa undir styrkjunum. Þvi sé ekki um að ræða frjálsa verzlun við slikar aðstæður, en hún væri grundvöllur viðskiptasamvinnu milli þjóða. Aðrir reyndu um krókaleiðir að komast undan eðlilegri verkaskiptingu. Eðli- legasta svar okkar væri að færa út fiskveiðimörkin og vinna að stefnubreytingu hjá þessum rikjum, eftir þvi sem við ættum kost. — HH „OFSA FINT AÐ VERA HÉRNA" — skútustelpur í útilegu ofan við Geithúls „Það er alveg ofsalega fint að vera hérna. Við komum hingað bara til þess að slappa af eftir prófin, komum i gærkvöldi og ætlum að fara aftur i kvöid. Við ákváðum þetta oghöfðum okkur til á hálftima og svo var rokið af stað.” Þetta sögðu tvær 15 ára stelpur, sem við hittum i tjaldi rétt ofan við Geitháls i gær, þær Soffia Gústafsdóttir og Hanna Bima Jóhannesdóttir. Þær voru þar i útilegu, enda kvaðst Sofffa ekki alls óvön þvi að tjalda þama. „Við vorum hérna fjórar stelpur i fyrra og lásum fyrir tvö próf. Það var stórfint.” „Það er ægilega gaman að vera hérna. Margt að sjá og finna. Við fundum t.d. hreiður hér i dag.” „Við borðum bara jógúrt og pulsur og svoleiðis á meðan við erumhérna.” Það hafði þó ekki gengið neitt sérlega vel með pulsurnar. Þær höfðu komið sér upp hlóðum, en vindurinn hafði ekki beint verið hliðhollur á meðan á eldamennskunni stóð. Það er ekki annað að heyra en þær stöllur dýrki útilifið. Þær eru einu stúlkurnar sem eru meölimir i siglingaklúbbnum i Nauthólsvik. Byrjuðu í fyrra og ætla að halda áfram. Það liður að þvi að þær fái að þreyta próf i klúbbnum, og ekki sögðust þær neitt skilja i' þvi hvers vegna ekki væru fleiri stelpur. „Við hefðum átt að taka með okkur sundföt,” sögðu þær, þar sem þær höfðu komið sér makindalega fyrir i sólinni. „En okkur datt ekki i hug að veðrið yrði svona gott.” Þær kusu lika heldur að hafa með sér stig- vél.... -EA. „Við hefðum átt að hafa með okkur sundföt. Okkur datt bara ekki I hug að veðrið yrði svona gott”, sögðu þær Soffia og Hanna Birna og sóluðu sig eftir beztu getu. Ljósm.: Bragi ALIMINKUR SLEPPUR FRÁ MINKABÚI Hann var það spakur að hann kom alveg að fótum mér, segir Tryggvi í Miðdal „Þaö er enginn vafi á þvi, að þessi minkur var aiiminkur. Ég tel mig hafa kynnzt minkum það vel I gegnum árin, aö ég geti greint muninn”, sagði Tryggvi Einarsson i Miðdal, minkaskytta og bóndi, er Visir ræddi viö hann i gær. „Minkur þessi, er ég skaut i fjárhúsinu i Varmadal i Mosfells- sveit á sunnudag.var spakari en nokkur villiminkur getur orðið. Ég lét hann finna lyktina af silungi og þá kom hann alveg að fótum mér. Svo nærri fer enginn villiminkur,” sagði Tryggvi i Miðdal. „Þetta var læða og hún var al- veg hjá mér, er ég skaut hana. Ég hafði orðið var við sporin hennar áöur, en þau voru eftir mun ófull- komnari fætur en önnur minka- spor,” sagði Tryggvi. Að sögn Tryggva er þetta i fyrsta sinn, sem aliminkur hefur sannanlega náðst utan bús, eftir að minkaeldi var aftur leyft hér á landi. „1 Mosfellssveitinni eru nú þrjú minkabú og má öruggt telja, aö minkurinn hafi sloppið úr ein- hverju þeirra. „Ég hef komið á þessi bú og fundizt frágangur allur þar til fyrirmyndar. Ég fæ ekki séð, að minkur geti sloppið þaðan út nema fyrir einhverja vangá. Ég veit ekki til, að neitt búið sakni minks, enda er ekki svo auðvelt að fylgjast með hverjum mink, þar sem fjöldinn er þúsund eða meira,” sagði Tryggvi. Asamt minkalæðunni náði Tryggvi yrðlingum, sem hann gaf einu minkabúanna. Að sögn Tryggva var greinilegt, að faðir yrðlinganna hefði verið villimink- ur en ekki aliminkur eins og móðirin. „Þessi aligrey fara ekki langt og eru mun auðveldari viðfangs, ef þau sleppa út, en villiminkarn- ir. Þessi læða, sem ég skaut á sunnudaginn, haföi til dæmis ekki treyst sér til að yfirgefa mennina og þvi búið um sig i fjárhúsinu i Varmadal”, sagði Tryggvi að lokum. Tryggvi I Miödal meö minka- skottin. SkottiO lengst til hægri er af aliminknum (Ljósmynd Visis BG) Björn Jónsson um þrjú prósentin „Komi með ððr- um hœkkunum" — hefðu ótt að koma 1. gömlu samningunum „Okkar afstaöa er, aö þau eigi aö koma ásamt meö öörum hækkunum á næstunni,” sagöi Björn Jónsson forseti ASÍ I morgun um þrjú prósentin, sem hefðu átt aöbætast viö laun, heföu gömlu samningarnir veriö I gildi. „Við teljum okkur að sjálfsögðu geta gert kröfu til að fá þessi pró- sent, ” sagði Björn. Vinnuveit- endur segja, að ASl eigi enga kröfu til þessarar hækkunar, þar sem samningar séu ekki i gildi. Björn taldi eðlilegast, að þessi hækkun kæmi inn i launahækkun, sem um semst i viðræðunum, er nú standa yfir. ASÍ ætlaði ekki að gripa til neinna sérstakra að- gerða vegna þessara prósenta, en júní skv. \ sem kunnugt er, stefnir i verkíöll h]á ASI-félögunum 11. júni. „Vist þætti okkur betra að fá þrjú prósentin sjálfkrafa 1. júni,” sagði Björn, en vinnuveitendur eru ekki sammála þvi. „Viöbrögð vinnuveitenda á sið- asta samningafundi, á mánudag, voru neikvæð,” sagði Björn Jóns- sön. „Þeir sögðu, að kaup- hækkanir kæmu ekki til greina.” Vonir höfðu staðið til, að ein- hver hreyfing yrði á mánudags- fundinum og orðrómur var um, að vinnuveitendur mundu koma með „útspil”. Af þvi mun ekki hafa orðið. Samningafundur er i dag klukkan tvö. — HH

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.