Vísir - 19.06.1975, Blaðsíða 1
65. árg. — Fimmtudagur 19. júní 1975 — 135. tbl.
Erlend kcipalskip i Iðiidhelginni?
„Okkur finnst skritiö að fá
svona lélegar upplýsingar frá
Hafrannsóknarstofnuninni,”
sagði Friðjón Þorleifsson á Nes-
kaupstað. Og átti þá við, að
spurningum varðandi erlend
skip f landhelginni væri ekki
svarað sem skyldi.
Bjartur frá Neskaupstað fékk
kapal i trollið 12. júni slðastlið-
inn, þá staddur skammt undan
Stafnesi. Skipverjar höfðu þrátt
fyrir mikla þoku veitt skipi einu
athygli, sem þeim fannst likjast
kapalskipi. Þeir höfðu haft sam-
band við Bjarna Sæmundsson
og beðið hann að athuga. Haf-
rannsóknármennirnir sögðu, að
þetta væri sennilega skip að
taka sýni. En það bar engan
þjóðarfána eða nein önnur
merki, er gætu gefið til kynna
heimaland þess. Siðan var það,
að I trolliö kom einhver aöskota-
hlutur. Hanr. rsyndist vera um
tvær tommur I þvermál og mjög
þungur. Er tekiö var utan af
kom i ljós kapall, sem var innan
i þykku harðplasti svipuöu og
nota er utan um sjónvörp. En
tjörulyktandi strigi innan I vir-
neti var til verndar. Töldu skip-
verjar þessu mjög nýlega komið
fyrir eftir lyktinni aö dæma.
Trollið, sem metið er á þrjár
milljónir, gereyðilagðist.
Sjópróf hófust á Neskaupstað
i gær. —BA
Athugasemd lítils drengs við Concorde-þotuna frœgu, sem lenti á Keflavíkurflugvelli í morgun:
„HÚN ER SVO LJÓT"
— Flaug héðan á tvöföldum hraða hljóðsin^
„Hún er eins og rán-
fugl, þessi þota”, sagði
starfsmaður á Keflavík-
urflugvelli, er hann virti
fyrir sér frönsku Con-
corde-þotuna, sem þar
átti stutta viðdvöl í
morgun. Og litill dreng-
ur, sem þarna stóð og
mændi á þotuna stórum
augum, sagði: ,,Ég ætla
að verða flugmaður,
þegar ég verð stór. En
þá ætla ég ekki að fljúga
svona flugvél. Hún er
svo Ijót.”
„Héðan fer þotan til Dakar I
Suður-Afriku og flýgur hún þá á
tvöföldum hraða hljóðsins, sem
þýðir það, að hún er ekki nema
um tvo klukkutima og fjörutiu
minútur i ferðum þá leið sem
venjuleg þota fer á um sex og
hálfum tima,” sagði Bogi Þor-
steinsson, yfirflugumferðarstjóri,
þegar Vlsir hafði tal af honum
þegar þotan var farin.
Concorde-þotan lenti á Kefla-
vikurflugvelli klukkan átta I
morgun og tók hér eldsneyti. Hún
var þá að koma frá Toulouse I
Frakklandi og tók það flug um tvo
tima. A þeirri leið gat hún ekki
farið eins geyst og henni er lagið,
sökum þess að leiðin lá yfir land.
Og gilti þá einu, þótt flogið væri
I 52 þúsund feta hæð. Hættan af
hljóðmengun er stöðugt yfirvof-
andi. A leið sinni héðan til Dakar
getur hún hins vegar leyft sér að
fara i gegnum hljóðmúrinn, þvi
að þá liggur leiðin yfir haf.
„Maður minnist þess, þegar
Concorde kom hingað fyrst fyrir
um einu og hálfu ári, en þá stóð
hvaö mestur styr út af þessari
hljóðfráu þotu,” sagði Bogi. „ótt-
inn við hljóðmengun var svo mik-
ill, aö það var þá jafnvel útlit
fyrir, aðþotan fengi ekki að lenda
hér. Það er ekki laust við, að eitt-
hvað eimi ennþá eftir af þessum
ótta á stöku stað. Það er nefnilega
eitt, sem fólk athugar ekki,” hélt
Bogi áfram, „og það er að Con-
corde-þotan byrjar að draga úr
hraðanum langt úti I hafi og þeg-
ar hún kemur inn yfir land, er
flughraðinn litlu meiri en venju-
legrar þotu, sem býr sig til lend-
ingar.”
Þessi þota, sem hér lenti, er ein
af tveim eða þrem, sem Con-
corde-verksmiðjurnar hafa smið-
að til reynslu. Var hún I reynslu-
flugi og með slíkan mælitækja-
fjölda af ýmsu tagi, að það var
ekki sætarými nema fyrir um
fimmtlu farþega, sem voru boðs-
gestir.
—ÞJM
Hér er Concorde-vélin á Keflavlkurflugvelli. Áhöfnin rétt sté fæti á flugvöllinn, og sfðan var þotan rokin burtu á 2400 kilómetra hraða. Þota
sem þessi flýgur til Kaupmannahafnar á litlu meira en klukkutlma. (Ljósmynd VIsis EMM).
Eiga flugmenn
skilið svo
hó loun?
— Lesendur hafa
orðið - bls. 2
EKKI SAMA
HVAR
MIÐARNIR
ERU KEYPTIR
— skyggnzt um í
fargjaldafrum-
skóginum — bls. 3
Hjálpfúsar hendur
fjarskiptamanna á
grasmaðkssvœðinu
— baksíða
FLUGMENN EINIR MIÐA
VIÐ LAUN ERLENDIS
Tveir struku
af Landakoli
Það er ekki mikill vandi að
komast út af sjúkrahúsum,
ef menn una ekki vistinni þar
lengur. Og margir nota ein-
mitt tækifærið, meðan á
heimsóknum stendur til að
viðra sig eilítið.
Tveir sjúklingar á Landa-
koti yfirgáfu sjúkrahúsið I
leyfisleysi I gær. Annar
þeirra skilaði sér sjálfviljug-
ur til baka. öllu verr gekk
með hinn sjúklinginn. Sá er
að visu kominn til baka, en
þar þurfti lögreglan að koma
til hjálpar. —BÁ
„Það er miðað við
margt. Kannski er eng-
in ákveðin viðmiðun,
en á undanförnum ár-
um hefur ákaflega oft
verið vitnað i SAS bæði
hvað vinnutima, orlof
og laun snertir, svo og i
önnur evrópsk flug-
félög.”
Þannig svaraði Stefán Glsla-
son flugstjóri, sem var I samn-
inganefnd flugmanna, spurn-
ingu VIsis um, viö hvað flug-
menn miðuðu, þegar þeir fara
fram á kauphækkun. Hann
sagöi einnig, að samningar
evrópsku flugfélaganna við
flugmenn slna væru flugmönn-
um mun hagstæðari en þeir
samningar sem hér voru gerðir.
Ólafur Hannibalsson hjá ASI
sagði kröfur verkalýðshreyfing-
arinnar ekki miöast á nokkurn
hátt við efnahagsástand I öðrum
löndum, en ef rætt væri um
kjaraskeröingu, þá væru ekki
mörg ár slðan við stóöum jafn-
fætis þessum löndum I kaupi.
Hann sagði, að lágmarkskaup
á Norðurlöndum væri á milli 700
til 800 krónur á timann, en sem
kunnugt er, er lágmarkstíma-
kaupið hér, þriðji taxti Dags-
brúnar, kr. 275.20 á timann.
—EVI