Vísir


Vísir - 19.06.1975, Qupperneq 3

Vísir - 19.06.1975, Qupperneq 3
VIsir.Fimmtudagur lS.júni 1975. 3 í frumskógi fargjaldanna: Ekki sama hvar far- miðinn er keyptur Kaupmannahafnarferðir i júli og ágúst virðist vera hægt að fá á mjög misjöfnu verði. Mismunurinn er meira en 25.000.- án þess að menn þurfi að uppfylla nokkur skilyrði t.d. vera i Norræna félaginu o.s.frv. Hjá Ferðamiðstöðinni fæst ferð á 27.000.- kr. Viku- gisting á trúboðshóteii i 2ja manna herbergi er aðeins 9.000.- kr. dýrari. Landsýnselur 10 daga ferðir á Hótel Falcon á 42.0Ó0.- 15 daga gistingu á einkaheimili +flug kostar 38.000.-. Ef hins vegar hið venjulega fargjald er greitt og engin gisting tekin þarf að borga 52.160.-. Sunna selur ferðir til Kaup- mannahafnar — innifalin er gisting i 3 nætur á einka- heimili+morgunmatur —- á 27.500.-. tJrval býður upp á Kaup- mannahafnarferðir á 29.500.-. titsýn selur vikuferðir á 27.000.- einungis flug innifalið. Allar þessar ferðaskrifstof- ur bjóða upp á sólarferðir. Mallorcaferð með Landsýn — miðuð við ferð um miðjan júll og að 2 einstaklingar búi saman I ibúð — kostar 43.500.-. Sunnuferð til Mallorca fyrir sama fólk kostar 54.000.-. Úrvalsferð kostar 48.000.-. Útsýnarferð, þar sem þeir selja fyrir Tjæreborg, til Mall- orca kostar hvorki meira né minna en 49.000.- frá Kaup- mannahöfn til Mallorca. Og ef viökomandi þarf að greiða hið almenna fargjald, sem er 52.160.- er ferðin komin yfir 100.000.-. Ferðamiðstöðin býður ekki upp á Mallorcaferðir heldur ferðir til Benedorm-strandar milli Costa Brava og Costa Del Sol. Hálfsmánaðardvöl i fullu fæði kostar 39.600.-. Lúðrar þeyttir á Húsavík Það verður heldur betur blásið i lúðra á Húsavik um helgina, þeg- ar landsmót islenzkra lúðrasveita verður haldið þar. Samtals eru þetta 12 lúðrasveitir með hátt á þriðja hundrað meðlimi. A föstudaginn verður aðalfund- urinn haldinn. A laugardaginn veröa útihljómleikar, þar sem hver hljómsveit leikur fyrir sig og svo allar saman — Lúðrasveit ís- lands —. A sunnudag er svo fyrir- huguð skoðunarferð um nágrenni Húsavikur. Mótinu verður slitið með kaffiveizlu bæjarstjórnar Húsavikur. IÞ/EVI IÐNTÆKNI HYGGUR A UTFLUTNING: GJALDMÆLAR OG VÉLGÆZLUTÆKI Á ERLENDAN MARKAÐ Útflutningur á tækj- gæzlutækjum og fyrirtækið Iðntækni, um, eins og gjaldmæl- brunavarnarkerfum, 'sem til þessa hefur um i íeigubila, vél- er nú að hef jast. Það er keppt við innflutning, sem ætlar að hefja þátttöku i hinni grimmu samkeppni er- lendis. „Hér verður ekki aðeins framleiðslan til heldur hafa hugmyndirnar fæðzt hérna lika,” sagði Gunnlaugur Jósepsson framkvæmdastjóri. En þetta þróttmikla fyrirtæki er aðeins 4 ára gamalt. A þessum árum hefur það sennilegast orð- ið hvað þekktast fyrir kerfið, sem það hannaði fyrir einvigi þeirra Spassky og Fischers, sem er einstakt i sinni röð. Þeir eru i dag stærstu tölvu- seljendur á markaðnum og kaupa inn það, sem þarf i þær, ogsetja siðan saman hér heima. Tölvubókhald, þar sem allur pappir er úr sögunni og þarf ekki einu sinni að nota gata- spjöld, er ein af nýjungum, sem þeir hafa kynnt hérlendis^ Er Gunnlaugur var inntur nánar eftir skákeinviginu, sagði hann, að allar skákirnar hefðu verið teknar upp á myndsegul- band. En litið sagði hann þá vera spennta fyrir að láta það ai hendi. Iðntækni hefur haldið nám- skeið i svokallaðri rökrásar- tækni, þar sem mönnum hafa veriö kennd sömu undirstöðuat- riöi i rafeindafræði og er i skandinavískum tækniskólum. Þau hafa verið sótt bæði af áhugamönnum og verkfræðing- um, og aldur þátttakenda verið frá 16-70 ára. Námskeiðin hafa- verið haldin i samráði við iðnað- arráðuneytið. Nú á næstunni er ætlunin að færa Iðnskólanum að gjöf þau tæki, sem notuö voru við kennsluna. Viðgerðaþjón- usta á tækjum er einn þáttur starfseminnar. Mörg þessara tækja þurfti áður að senda utan eða fá menn erlendis frá. Þar sem svo virtist sem fram- kvæmdastjórinn fengi flestar hugdetturnar um tækninýjung- ar, var hann inntur eftir þvi, hvað væri á prjónunum. Hann varðistallra frétta, en sagði, að fljótlega yrðu kynnt ný tæki. —BA Tölvan, sem fyrirtækið notar sjálft, — sjónvarpsskermurinn gerir allan pappir óþarfan. PARADtS: ólafur J. Kolbeins, Pétur Kristjánsson, pianóleikari, Gunnar Hermannsson, Ragnar Sigurðsson og Pétur Kristjánsson I sjöunda himni. fmt //mwi ' £ iW W ■ *. Æk m .v l/V-1’ ## PARADISARHEIMT ## Lézt eftir bílslys Gunnar Kvaran, 79 ára gamall stórkaupmaður úr Reykjavik, lézt á þjóðhátiðardaginn af völd- um áverka, er hann hlaut i bil- slysi siðastliðinn föstudag. Bilslys þetta átti sér stað á mót- um Barónsstigs og Skúlagötu. Gunnar var annar stofnenda og eigenda fyrirtækisins I. Bryn- jólfsson og Kvaran. Hann var einnig lengi formaður og fram- kvæmdastjóri Innflytjendasam- bandsins og i stjórn bæði Verzlun- arráðs íslands og Félags is- lenzkra stórkaupmanna. — JB Pétur og co. hefja leik sinn um helgina Allt frá þvi, er Pétur Kristjánsson tilkynnti, hvaða mönnum hann hefðihnuplað frá öðrum hljómsveitum til að mynda sina eigin, hefur al- menningur beðið spenntur eftir að heyra íþeim félögum, svo og að vita nafn hljómsveitarinnar. Og nú er að renna upp tlmi hinna uppfylltu óska, því að hljómsveitin kemur fram I fyrsta skipti nú um helgina og nafnið hefur verið ákveðið: „PARADtS” skal hún heita. Að sjálfsögðu var það höfuð- paurinn, Pétur, sem fann nafnið á hljómsveitina. Það er þannig til komið, að hann var að hlusta á nýju Pelicanplötuna og þ.á.m. lagið „Working to Paradise”, og þá laust hugmyndinni niður í höfuð hans, eins og eldingu af himnum, og hann ákvað snar- lega að nefna hljómsveitina Paradis. Paradis kemur i fyrsta skipti fram annað kvöld, og þá iTóna- bæ. Á laugardagskvöldið ætlar hljómsveitin svo að lifga upp á menninguna i Grindavik, en fleiri dansleikir hafa ekki verið ákveðnir i bili. Þó ganga þeir Paradisarenglar með þá hug- mynd i maganum að bregða sér til Færeyja á næstunni, en þaö er allt óráðið. Sem sagt, Paradisin hans Péturs er að komast á kreik, og hvernig henni kann að vegna á næstunni, er undir áheyrendum komiö. En eftir að blm. hafði heyrt i hljómsveitinni á æfingu, gekk hann þaðan þess fullviss, að nú megi ýmsir fara að vara sig. —AT

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.