Vísir - 20.06.1975, Page 4
4
Visir.Föstudagur 20.júni 1975.
UTBOÐ
Bílskúrar
Tilboð óákast í byggingu 15 samliggjandi
bílskúra i Fossvogi. Allar nánari upplýs-
ingar gefnar i sima 31180 á skrifstofutima
og eftir kl. 7 í sima 38258.
Matróðskona óskast
Kona vön matreiðslu og smurbrauði ósk-
ast á sumarhótel. Uppl. i sima 42879.
Kennaranámskeið
í sjóvinnu
ÁkveOin hafa veriö tvö námskeiö I sjóvinnubrögöum fyrir
kennara og aöra þá sem taka vilja aö sér kennslu f sjó-
vinnubrögöum i gagnfræöaskólum.
Námskeiöiö fyrir byrjendur veröur haldiö I Stýrimanna-
skólanum í Reykjavfk dagana 18.-30. ágúst og framhalds-
námskeið fyrir þá sem sóttu námskeiö f fyrra, dagana 18.
ágúst til 5. september.
Umsóknir sendist ráöuneytinu eigi sföar en 1. ágúst.
Menntamálaráðuneytiö.
Nauðungaruppboð
annað og sföasta á hluta f Hringbraut 47, talinni eign
Steingríms Benediktssonar, fer fram á eigninni sjálfri
mánudag 23. júni 1975 kl. 14.30.
Borgarfógetaembættið i Reykjavlk.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var f 43..40. og 47. tbl. Lögbirtingablaðs 1974 á
hluta f Bugöulæk 7, þingl. eign Péturs K. Árnasonar, fer
fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar I Reykjavfk á eigninni
sjálfri mánudag 23. júni 1975 kl. 14.00.
Borgarfógetaembættið i Reykjavik.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var I 71.,72. og 74. tbl. Lögbirtingablaðs 1974 á
hluta I Álfheimum 40, þingl. eign Gísla isleifssonar, fer
fram eftir kröfu Hauks Jónssonar hrl. o.fl. á eigninni
sjálfri mánudag 23. júni 1975 kl. 11.30.
Borgarfógetaembættið I Reykjavik.
ÞJÓÐFLOKKUR
í HÆTTU:
THERIRE nnnonni D'ISIRDDE
^OUK
TRAVAIL COLLECTIF:
BRYNJfl BENEDIKTSDQTTIR
HELGA JÓNSDÖTTIR
KETILL LARSEN
KRISTBJÖRG KJELD
THÓRHALLUR SIGURDSSON
THORLÁKUR THÓRDARSON
HARALDUR ÓLAFSSON
,,Viö erum að sýna vandamál
smáþjóöa gagnvart áhrifum er-
lendra stórþjóöa,” sagöi Brynja
Benediktsdóttir leikstjóri sem
er nýkomin ásamt Inúkhópnum
úr mikilli sigurför um Evrópu.
,,Þessi vandamál eiga ekkert
siöur erindi til okkar is-
lendinga.”
Brynja sagði að leikritið hefði
orðið til i algerri hópvinnu,
hreyfingarnar fyrst, siðan text-
inn.
Leikritið skiptist i tvo hluta. I
þeim fyrri er lýst llfsmáta Eski-
móa eins og hann var. i þeim
siöari heyrist rödd leiðsögu-
manns, af segulbandi, lýsa
hnignuninni. Haraldur ölafsson
var leiðsögumaður i islenzka
hlutanum, en siðan var bæði I
Þýzkalandi og Frakklandi flutt
á tungum þessara landa. Það
var Róbert Arnfinnsson sem
flutti þýzka hlutann og Sigurður
Pálsson sem flutti þann
franska.
Þorlákur Þórðarson tækni-
maður var mjög ánægður með
förina. Sagði hann allt hafa
gengiö snurðulaust á hinum 106
sýningum, utan einu sinni.
Hópnum var boðið að sýna I
Paris eftir frábæra frammi-
stöðu i Nancy. En þar sem all-
langur timi var frá Nancysýn-
ingunni þar til þau áttu að koma
fram, var afráðið að fara til
Þýzkalands. Þar var hópurinn
algerlega á eigin vegum og
kostnaður ekki greiddur eins og
i Frakklandi og Ziirich. Margs
konar leikhúsfólk gaf sig á tal
við hópinn, meira að segja leik-
hússtjóri frá Bombay.
I Sviss hittu þau Jón Laxdal,
sem er mjög hátt skrifaður i
leikhúsheiminum. Hrifning
áhorfenda var gifurleg þarna og
dæmi þess að menn gengju Ut af
sýningum vegna þess hversu
hrærðir þeirvoru yfir eymdinni
sem Inúk sýnir. Hópurinn var
kallaður fram tuttugu sinnum I
Ziinch.
Þorlákur sagði að þær spurn-
ingar, sem beint hefði verið til
hópsins I leikslok, hefðu stund-
um verið mjög persónulegar.
Þetta hefði vakið þau til að
hugsa um kjör smáhópa sem
eru að berjast fyrir tilveru
sinni. Og væru InUkarnir mjög
áhugasamir um það að hefjast
handa um söfnun til handa
þessu fólki. íslendingar væru si-
fellt að gefa matvæli til þriðja
heimsins sem svo oft á tiðum
yrðu ekki að neinu gagni. Mun
nær væri að rétta bróður okkar,
sem er hér svo nálægt, hjálpar-
hönd.
Annála íslenzkra flugmála lofsamlega
getið í erlendum flugblöðum
Ánnála Islenzkra flugmála,
sem Arngrimur Sigurðsson kenn-
ari er höfundur að, er getiö mjög
lofsamlega I erlendum flugblöö-
um, svo sem enskum, þýzkum,
belgískum og bandariskum.
Seinustu ummælí um annálana
eru úr norska blaðinu FLY
NYTT. Eru þessi ummæli mjög
lofsamleg, segir þar m.a. „Arn-
grimi hefur tekizt að ná öllu um
það, sem gerzt hefur i islenzkum
flugmálum. Hann hefur einkum
notað blöð sem heimildir, en við
þetta er svo aukið viðtölum og
miklum fjölda bréfa. Þessu er
öllu raðað upp kerfisbundið og i
réttri timaröð, og er þetta mjög
vel af hendi leyst. Fyrir þá, sem
hafa áhuga á flugpósti, eru
bækurnar merkilegar.”
t danska blaðinu FLYV er
bókarinnar einnig getið, þar segir
m.a.: „Það er næstum þvi
óskiljanlegt að hægt skuli vera að
gefa út bók um flugsögu Islands
sem er svo ýtarleg sem þessi”.
— HE —
Húsvíkingar unnu bridge í Norðurlandsmótinu
Bridgemót Norðurlands var
haldiö I Mývatnssveit I mánuöin-
um. 9 sveitir tóku þátt I mótinu.
Nr. 1 varð sveit Jóns Arnasonar
Húsavik, hlaut 136 stig, nr. 2 sveit
Alfreðs Pálssonar Akureyri,
hlaut 121 stig, og nr. 3 sveit Boga
Sigurbjörnssonar, Siglufirði,
hlaut 117 stig.
t sigursveitinni voru auk Jóns
Arnasonar Óli Kristinsson. Guð-
mundur Hákonarson og Kristinn
Lúðviksson.
Næsta Norðurlandsmót verður
haldið á Akureyri að ári.
IÞ/EVI
Vísir vísar á vidskiptin
Kaupmannasamtök
íslands
lokað á laugardögum
Samkvœmt síðustu kjarasamningum undirritaðra aðila verða
verzlanir lokaðar á laugardögum frá og með 21. iúní
Verzlunarmannafélag
Reykjavikur
r
Kaupmannasamtök Islands og Verzlunarmannafélag Reykjavíkur