Vísir - 25.06.1975, Page 5
Vlsir. Miðvikudagur 25. júni 1975.
í MORGUN ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND
5
Umsjón: Óli Tynes
Etdingu sló niður í vélina sem
skall niður og fuðraði upp
110 fórust en 14 komust af mikið slasaðir
brunasára og innvortis
meiðsla.
Þotan hentist yfir hraðbraut,
sem liggur meðfram flugvellin-
Um, og i fyrstu var óttazt, að bil-
flök væru undir henni, en
björgunarmenn höfðu engin
fundið um hádegi i dag.
Ekki er enn vitað, hvað olli
slysinu, en fleiri vitni en Paul
Moran bera, að þau hafi séð eld-
ingu slá niður i vélina, rétt áður
en hún fórst. Veður var afleitt,
þegar Eastern Airlines þotan
var að lenda og flugstjóranum
hafði verið gert að lenda á
braut, sem hefur blind-
lendingartæki. Þotan skall niður
um einn kilómetra frá flug-
brautarendanum.
Nitján norskir sjómenn voru
með þotunni. Einn þeirra, Egon
Luftaas frá Bergen, sagði: —
Annar vængurinn hallaðist of
mikið, þegar við vorum að
lenda. Svo varð sprenging og
allir hentust til og frá. Eftir það
man ég aðeins eftir eldinum.
Tveir fréttamenn Reuters á
staðnum sögðu, að aðkoman
hefði verið hræðileg:
„Björgunarsveitir dreif að úr
öllum áttum og menn unnu
sleitulaust við að safna saman
likum og likamshlutum og setja
i virkörfur. Þeir, sem fundust
lifandi voru þegar fluttir i
sjúkrahús, en þeir voru svo fáir.
Vélin virtist hafa sundrazt i þús-
und parta, þegar hún kom niður.
Stærsti parturinn, sem við sá-
um, var 14 metra stykki úr
skrokknum fyrir aftan vængina.
Rannsókn á orsökum slyssins er
þegar hafi.i, Það er ákaflega
sjaldgæft, að eldingar grandi
flugvélum, þvi að þær eru
þannig útbúnar, að þær eiga að
þola, að eldingum slái niður i
þær.
Slökkviliðsmenn leita llka I flugvélarfiakinu.
Nýtt Kóreustríð
getur brotizt út
hvenœr sem er
25 ór liðin fró því síðasta
í dag eru liðin 25 ár frá
því að Kóreu-striðið
hófst og í tilefni þess
sagði háttsettur hers-
höfðingi í Norður-Kóreu,
að strið geti brotizt út á
ný, hvenær sem væri.
Kina lýsti stuðningi við
Norður-Kóreu og for-
dæmdi Bandarikin fyrir
„hernám” Suður-Kóreu.
Park Chung-Hee, forseti Suð-
ur-Kóreu, sagði I ræðu, að
Norður-Kóreumenn hyggðu á nýtt
strið, þvi að það væri eina leiðin,
sem þeim væri opin til að sam-
eina landshlutana tvo.
Hann varaði Kim Il-Sung þó
alvarlega við, þvl. að hraustlega
yrði tekið á móti hersveitum hans
og þær hraktar aftur yfir landa-
mærin, ef innrás yrði reynd.
Park sagði að kommúnistar
hefðu nú safnað saman miklu liði
vð landamærin og væri meðal
annars unnið að þvl að grafa göng
undir vopnahléslinuna.
Reiðubúinn að mœta Fischer segir Karpov
— Ef Fischer vill tefla
við mig, þá er ég vissu-
lega reiðubúinn að mæta
honum, sagði Anatoly
Karpov, heimsmeistari i
skák, við fréttamenn i
gær. Að úndanförnu
hafa verið hafðar eftir
Fischer yfirlýsingar um
að hann vilji tefla við
Karpov, en Rússinn sé
ekkert ákafur.
— Mér hafa ekki borizt nein
bein boð um, að Fischer vilji tefla
við mig. Allar hans yfirlýsingar
koma frá þriðja aðila, sagði Kar-
pov.
— Ef honum er alvara, þá getur
hann haft samband við mig per-
sónulega, hvenær sem er og ég
mun taka honum vel. Keppninni
yrði að haga nokkuð eftir þvi,
hvenær ég hef tima, því að ég hef
skuldbundið mig til að tefla á
nokkrum mótum. En það ættu
ekki að vera nein vandræði með
að ákveða okkur tima með
nokkurra mánaða fyrirvara.
Karpov sagði, að keppni milii
hans og Fischers yrði ekki um
titilinn, þvi að það einvigi færi
fram, samkvæmt reglum, við
næsta áskoranda, árið 1978.
Mosambique fékkk sjólfstœði fró Portúgal í dag
Mosambique hlaut i
dag sjálfstæði eftir nær
500 ára nýlendustjórn
Portúgala og er þar með
orðið43. sjálfstæða rikið
i Afriku. Fimmtán
minútum eftir miðnætti
siðastliðna nótt var
portúgalski fáninn dreg-
inn niður við hátiðlega
athöfn i Lourenco Mar-
ques og hinn nýi fáni
Mosambique dreginn
upp i staðinn.
Siðar i dag mun Samora
Machel vinna eið sem fyrsti for-
seti landsins. Macel er leiðtogi
frelsisbaráttusamtakanna
Frelimo, sem hafa haldið uppi
skæruhernaði gegn stjórn Portú-
gala siðastiiðin tiu ár.
Mosambique er annað Afriku-
rikið, sem fær sjálfstæði frá Port-
úgal. Guinea-Bissau fékk sjálf-
stæði i september siðastliðnum og
Angola mun fá sjálfstæði i
nóvember næstkomandi.
Mosambique er um 785 þúsund
ferkilómetrar að stærð og ibúar
eru yfir átta milljónir. Lang-
mestur hluti þeirra er svartur, en
þar eru einnig um 200 þúsund
hvitir menn og svo Asiubúar.
Amin sendi droftn-
ingunni nýja fimm
síðna orðsendingu
Idi Amin, forseti
Uganda, sendi i gær
skeyti til Elisabetar
drottningar, þar sem
hann ítrekaði hótanir
sinar um að taka Denis
Hills af lifi, ef Callag-
han, utanríkisráðherra
kæmi ekki til Uganda
til viðræðna.
„Ef brezki utanrikisráðherr-
ann, herra Callaghan, kemur
ekki til Uganda innan tiu daga
frá deginum i dag, verður Denis
Cecil Hills tekinn af lifi.”
Amin var margorður um þá
virðingu, sem hann, herráð
hans og þjóbin öll bæri fyrir
drottningunni. Náðunarbeiðni
hennar hefði þvi „snortið mig
mjög djúpt.”
Chandos Blair, hershöfðingi,
er nú kominn til London með
fyrri orðsendingu Amins til
drottningarinnar. Callaghan,
utanrikisráðherra, sem nú situr
fund Efnahagsbandalagsrikj-
anna I Luxembourg, sagði
fréttamönnum, að hann hefði
fengið siðari orðsendinguna til
athugunar. í henni væri að finna
ýmsa athyglisverða kafla
(skeytið var upp á fimm siður)
og myndi hann kanna alla
möguleika á málamiðlun.
HARDAR DEILUR
UM HVALVEIÐAR
Japanir vilja fara 20 prósent niður fyrir œskileg mörk
Fulltrúar Bandarikj-
anna og Japans lentu í
harðorðri deilu á fundi
Aiþjóða-hvalveiðinefnd-
arinnar i gær, vegna
nýrra tiílagna um
verndun hvalstofna,
sem eru taldir i hættu.
Töldu Bandarikjamenn,
að Japanir vildu ganga
allt of langt i veiðinni, en
þeir ásamt Rússum
veiða um 80 prósent af
þeim hvölum, sem
veiddir eru áriega.
Deilurnar spunnust út frá
ástralskri tillögu um, að i fram-
tiðinni yrði af sjálfu sér þegar
hætt við veiðar á hvaltegundum,
sem væru komnir niður fyrir
hættumörk. Japanir vildu halda
áfram veiðum þar til komið væri
20 prósent niður fyrir þau mörk,
sem visindamenn teldu „æski-
legan hvalastofn”.
Bandarisku fulltrúarnir vildu
hætta strax á mörkunum, en
kváðust með vissum skilyrðum
geta fallizt á, að farið yrði 10
prósent niður fyrir mörkin.
Sérfræðingar i verndunarmálum
telja þetta ófullnægjandi. Þessi
mörk leyfðu, að drepnir yrðu
þrjátiu þúsund hvalir árlega.
Búizt er við, að fundir hvalveiði-
nefndarinnar haldi áfram út
þessa viku. Fimmtán lönd eiga
sæti i henni: Argentina, Astralia,
Brazilia, Bretland, Kanada, Dan-
mörk, Frakkland, Island, Japan,
Mexikó, Noregur, Panama,
Suður-Afrika, Sovétrikin og
Bandarikin.