Vísir - 15.07.1975, Side 20
Smíða stœrsta dansgólf
f ■ ■ • ■ — aðeins tvœr útihátíðir um
0 g verzlunarmannahelgina
mars Eydals. Ýmsir góðir
skemmtikraftar verða fengnir,
svo sem Jörundur og Baldur
Brjánsson. Kveikt verður i 50
tonna báti, sem verður hin hefð-
bundna brenna að þessu sinni, og
fleira mætti upp telja.
Ekki er vitað til þess að fleiri
útihátiðir verði haldnar um
verzlunarmannahelgina að þessu
sinni en Þjóðhátiðin i Eyjum og
svo hátiðin i Galtalæk.
Þar verða dansleikir þrjú
kvöld i röð, bæði i tjaldi og á úti-
palli. Leika hljómsveitirnar
Júdas og Dögg og svo hljómsveit
Ólafs Gauks.
Það ætti að verða hægt að
skella sér i dansinn á Þjóðhá-
tiðinni i Vestmannaeyjum sem
haidin verður fyrstu helgina i
ágúst. Eyjaskeggjar bjóða þar
upp á stærsta dansgóif á landinu,
sem er hvorki meira né minna en
400 fermetrar að stærð.
tþróttafélagið Týr, sem sér um
ihátiöina að þessu sinni, vinnur nú
/öll kvöld og nætur að undirbún-
lingi. Verður Þjóðhátiðin haldin á
Breiöabakka, en þar hefur hún
Þeir Baldur og Jörundur gera
viðreist þessa helgina, þvi þeir
koma lika fram i Galtalæk; Ýmis-
legt fleira verður til skemmtunar,
svo sem góðaksturskeppni,
Annars er ekki minna um að
vera á Breiðabakka en i dalnum.
Fyrir dansi á þessum 400 fer-
metrum leikur hljómsveit Ingi-
Hnátan
biður bara eftir
Þjóðhátiðinni. Flekarnir eiga að
fará i sölubúðirnar.
iþróttir, einsöngur Sigriðar E.
Magnúsdóttur og Magnúsar Jóns-
sonar, barnaskemmtanir og
barnadansleikur, og ýmislegt
fleira.
Ferðir verða frá Umferðarmið-
stöðinni og er aðgangseyrir 1500
krónur. Hátiðin hefst á föstudags-
kvöld eins og Þjóðhátiðin i Eyj-
um. Er gert ráð fyrir töluverðri
þátttöku i Galtalæk, enda hefur
mótsgestum fjölgað þar ár frá
ári.
VE 100 i Klaufinni, en þangað
var hann dreginn og þar varð að
saga hann i tvennt vegna flutn-
ingaerfiðleika á landi. En upp
skal hann og brenndur veröur
hann 1. ágúst klukkan 12 á mið-
nætti. Ljósm. G.S.
Þriðjudagur 15. júli 1975.
Tveir slasast
í hörðum
órekstri
í morgun
Tveir bilar skullu harkalega
saman á horni Sóleyjargötu og
Njarðargötu klukkan rúmlega 8 i
morgun. Farþegi og ökuinaður úr
öðrum bilnum voru fluttir á
slysadeild. Ekki hafði frétzt ná-
kvæmlega af meiðslum þeirra, en
ekki voru þau talin mjög alvar-
leg.
Annar bilanna kom akandi
niður Njarðargötuna og út á Sól-
eyjargötuna i veg fyrir bil, sem
kom frá Hringbrautinni. Bilarnir
voru báðir óökufærir eftir óhapp-
ið.
Þeir, sem slösuðust, voru i biln-
um, er kom niður Njarðargötuna.
Farþegi og ökumaður i hinum
bilnum sluppu ómeiddir.
—JB
Ástœðulaust að
kvarta undan
samskiptunum við
Ríkisspítalana
„Það er misskilningur hjá
vegagerðarmönnum, að staðið
hafi i stappi við Rikisspitalana
um að fá afnot af landinu", sagði
Gunnar Guðmundsson lög-
fræðingur vegna ummæla i Visi i
gær.
Fengið var leyfi hjá forráða-
mönnum Kópavogshælis til að
setja upp vinnuskúra á túni hælis-
ins.
,,Ég get nefnt sem dæmi um lið-
legheit bústjórans, að hann sló
túnið og flutti burt óþornað
heyið”, sagði Gunnar til að leið-
rétta enn frekar ummælin.
—BA
Fœðið niður-
greitt til
starfsmanna
„Það eru tveir aðkomu-
piltar, sem hafa æst sig út af
verðinu i mötuneytinu”,
sagði Einar Sigurðsson hjá
tsféiaginu i Eyjum.
Hann sagði, að siður en svo
væri neitt kalt strið i Eyjum
um þessar mundir. Þessir
strákar, sem fyrr eru nefnd-
ir, væru vanir aö borða i svo
til frium mötuneytum og lik-
aði ef til vill ekki maturinn
þarna. Einar sagði, að hægt
væri að komast út i sjoppur
allt i kring, þannig að ekki
þyrfti aö hafa áhyggjur af
fólkinu.
Máltiðirnar eru seldar
lausar, þannig að fólkið þarf
ekki að binda sig viö að taka
kaffi þrisvar á dag og 2 heit-
ar máltiðir. En innifaliö i
verðinu, sem gefið var upp i
blaðinu i gær, er einnig
morgunverður.
—BA
Lœknanemar: KANNA HEILSUFAR
STARFSFÓLKS KÍSILIÐJUNNAR
- fengu tœplega 700 þúsund króna styrk
„Við vitum ekki ennþá, hvort
það er nokkuð athugavert við
heilsufar þessa fóiks, en aðstæð-
urnar gætu verið fyrir hendi, og
það ætium við að kanna. Einn af
þeim sjúkdómum, sem til greina
koma, er svokölluð kisilveiki.”
Þetta sagði Ólafur P. Jakobs-
JARÐSKJALFTI RETT VIÐ
HÚSAVÍK í MORGUN
Klukan 5.25 vöknuðu Húsvik-
ingar við allsnarpan jarö-
skjálftakipp. Að sögn Ingvars
Þórarinssonar á Húsavík var
kippurinn það snarpur, að hlutir
færðust úr stað, en engar
skemmdir uröu.
’ Þó kvað Ingvar kippinn ekki
hafa verið eins snarpan og
þann, sem mældist i siöustu
viku, en sá kippur var i um 25
km fjarlægð frá Grimsey. Sagði
Ingvar, að þessi kippur hefði
verið nær Húsavik.
Fegursta veður var á Húsavik
i morgun eins og alltaf þann 15.
júli. En Ingvar sagðist hafa
fylgzt með þvi undanfarin þrjá-
tiu ár, að alltaf þann 15. júli
væri dásemdarveður á Húsavik.
—HE
SPARKADI HARKAIEGA I
HÖFUÐ LÖGREGLUÞJÓNS
Lögregluþjónn hlaut höfuð-
áverka I nótt, er sparkað var
allharkalega I höfuð hans, þar
sem hann var við skyldustörf.
Lögregluþjónninn var ásamt
starfsfélaga sínum i porti við
hús i Ingólfsstrætinu. Þar voru
tveir menn, er lögreglan átti
vantalað við.
Til átaka kom og bættist þá
skyndilega þriðji maðurinn I
leikinn, sem virtist telja það
skyldu sina að láta hnefana riða
á lögregluþjónunum.
Maðurinn sparkaöi harkalega
i höfuð annars lögregluþjónsins
og varð að flytja hann á slysa-
deild. Lögregluþjónninn var i
rannsókn i morgun og var ekki
vitað nákvæmlega, hversu
meiðsl hans voru alvarleg. —JB
son, einn af forsvarsmönnum
þeirra læknanema við Háskóla
Islands, sem gera munu könnun á
heilsufari starfsfólks Kisiliðjunn-
ar við Mývatn.
Könnun þessi fer fram um
mánaðamótin september októ-
ber, og reiknað er með, að hún
taki viku. Um 40—50 manns eru
starfandi við Kisiliðjuna, en 6—7
munu annast könnunina.
Könnunin verður I tvennu lagi.
Fyrst er fólkið sjáift athugað, en
siðan umhverfiö, og þá ýmsar
mælingar framkvæmdar I sam-
bandi við það.
Það er Vísindadeild Atlants-
hafsbandalagsins sem veitt hefur
styrk til þessa, en könnunin er
skipulögð með tilsögn háskóla-
kennara og I samráði við heil-
brigðisyfirvöld. Styrkurinn er um
695 þúsund íslenzkar krónur.
Er hér um að ræða einn af svo-
nefndum umhverfismálastyrkj-
um bandalagsins á sviði vanda-
mála nútimaþjóðfélags. Styrkj-
um var að þessu sinni úthlutað til
tiu umsækjenda i 9 aðildarrikj-
um.
—EA
Gekk berserksgang í íbúð vinkonunnar:
Stúlka slasast í
átökum við „vin sinn
Maöur um þritugt brauzt inn i
ibúð kunningjakonu sinnar i
Hraunbænum um klukkan sex i
morgun og gekk þar berserks-
gang. Stúlkan var sofandi og
veitti þvi ekki eftirtekt, er maður-
inn kom inn I ibúðina.
Þegar inn var komið réðst mað-
urinn, sem var drukkinn, á hús-
muni og braut og bramlaði.
Stúlkan ætlaði að hringja á lög-
regluna, en maðurinn lagði þá á
flótta. Stúlkan vildi ekki láta
u
manninn sleppa svona auðveld-
lega og elti hann þvi niður stiga-
ganginn i húsinu.
Þegar maðurinn sá, að stúlkan
veitti honum eftirför réðst hann
á hana. tbúar i annarri ibúð i hús-
inu urðu átakanna varir og köll-
uðu á lögreglu. Þegar lögreglan
kom að, var maðurinn á bak og
burt og stúlkan marin og blá eftir
átökin.
Vitað er, hver maðurinn er, og
er hans leitað.
vísm
—JB