Vísir - 18.07.1975, Blaðsíða 5
Vísir. Föstudagur 18. júli 1975.
5
ad/UmtEdr morgun útlöndí morgun útlönd í morgun Umsjóm Guðmundur Pétursson
Ar/ N I b o
heimsóknum
Þannig komu fjórmenningarnir upp í Souyz-geimfarinu milljónum sjónvarpsáhorfenda fyrir sjónir
Bandarisku og sovézku
gei.mfararnir, sem nú
hringsóla i sameiningu
umhverfis jörðina, munu
í dag skiptast á heim-
sóknum.
Vance Brand, sem sat
um kyrrt i stjórnklefa
Apollo, meðan félagar
hans tveir heilsuðu upp á
Soyuzgeimfarana, fer í
dag yfir í Soyuz-geimfar-
ið og hef ur sætaskipti við
Leonov.
Siöar i dag fara þeir Leonov
og Stafford i gönguferð á milli
geimfaranna, meðan Brand
snýr aftur til Apollo og með
honum Kubasov.
Þeir borða allir fimm i sam-
einingu hádegisverð i dag, en
siðan verður tekið til starfa við
visindalegar tilraunir, sem
•, þeim var ætlað að leysa af
hendi.
Milljónir jarðarbúa (alit skal
ósagt látið um aðra) fylgdust
með þvi á sjónvarpsskermin-
um, þegar yfirmenn loftskip-
anna tveggja tókust i hendur i
gær, meðan geimförin voru
stödd i 140 milna hæð yfir
Amsterdam.
Eftir að hafa skipzt á kveðjum
og gjöfum bjuggu geimfararnir
sig undir að taka á sig náðir. Þá
töldu þeir Leonov og Kubasov
sig hafa orðið vara við, að loft
læki úr tengiklefa þeirra.
Þrýstimælir sýndi minniháttar
leka. 1 ljós kom þó, að mælirinn
hafði orðið fyrir áhrifum frá
hitabreytingu, en loftþrýsting
urinn hafði ekkert minnkað.
Lestin rakst á dansskóla
KOMMUNISTAR HAFA I HOT-
UNUM I PORTÚGAL
Ýmsar blikur voru á
lofti i Portúgal i dag og
búizt við þvi, að til tíð-
inda kunni að draga i
kvöld, þar sem komm-
únistar hafa uppi liðs-
safnað til að hleypa upp
útifundi sósialista i
kvöld i Oporto.
Kommúnistar hafa
hótað að loka öllum veg-
um, sem liggja að þess-
ari næststærstu borg
Portúgals, þar sem
sósialistar hafa boðað til
mótmælafundar gegn
stjórn hersin.
Af yfirlýsingum kommúnista
að dæma virðast þeir ætla að
skella skolleyrum við áskorunum
heryfirvaldanna, um að menn
komi fram með stillingu.
t yfirlýsingu verkalýðssam-
bandsins, Intersindical, sem er
undir stjórn kommúnista, var
skorað á verkalýðinn að stöðva
alla sósialista, sem væru á leið til
Oporto — og það með „hvaða ráð-
um sem þyrfti”. — Um leið hefur
verið auglýst eftir öllum
stuðningsmönnum kommúnista
að gefa sig fram við flokksskrif-
stofumar og vera til taks.
1 Oporto unnu sósialistar og al-
þýðudemókratar algeran yfir-
burðarsigur i kosningunum i
april. Fengu kommúnistar þar
aðeins einn fulltrúa kjörinn af 36.
Sósíalistar, sem fyrr hafa orðið
að aflýsa fjöldafundum sinum
vegna of b eld is a ðgerða
kommúnista (menn minnast
þess, hvernig stuðningsfundinum
við Spinola hershöfðingja var af-
lýst i fyrra) virðast að þessu sinni
staðráðnir i að hopa hvergi fyrir
kommúnistum.
Kreppan leggst
Stöðug gagnrýni
stjórnarandstæðinga i
Argentinu hefur fengið
mikið á eina kvenforseta
Suður-Ameriku, frú
Mariu Estela Peron,
sem menn telja, að sé að
bugast undan efnahags-
erfiðleikum þjóðarinnar
og pólitiskri kreppu.
Maria Peron forseti hefur ekki
treyst sér til að eiga viðræður við
fulltrúa verkalýðshreyfingarinn-
ar i samningaumleitunum undan-
þungt ó Peron
farna viku, og nú er á allra vörum
i Argentinu, at hún ætli að taka
sér fri frá embættisstörfum i bili.
Læknar höfðu skipað henni að
halda kyrru fyrir i forsetahöll-
inni, og þaðan hefur hún ekki
hreyft sig siðustu daga. — In-
flúensa og ofreynsla er sagt
þjaka hana.
Maria Peron hefur á undan-
fömum vikum sýnt, þegar hún
hefur komið opinberlega fram, að
húner undirmiklu fargi. Hún hef-
ur orðið að gera hlé á ræðum sin-
um, þegar hún hefur brostið i grát
undan mótlætinu. — Þykir mörg-
um það ekki furða, eins og á hefur
gengið og konan ekki mjög vön
stjórnmálaþvargi, áður en hún
tók við embætti forsetans.
Skiptast á
Járnbrautarlest Óttazt um líf 86 farþega. Á þriðja hundrað slasaðir ^ seint i gærkvöldi.
hlaðin farþegum lenti i
árekstri i Rio de
Janeiro i gærkvöldi, og
menn óttast, að 86 hafi
látið lífið i árekstrin-
um.
Svo mikil var ringulreiðin, að
menn töldu i fyrstu, að tvær
lestir hefðu rekizt þarna á.
Hellirigning var og dimmt af
kvöldi.
Fyrstu fréttir
hermdu, að 220 manns
hefðu orðið fyrir
meiðslum, þegar lestin
fór af sporinu og lenti á
dansskóla. Kennsla
stóð þá einmitt yfir.
Björgun úr vagnabrakinu og
húsrústunum stóð enn yfir i
morgun, og gátu menn ekki al-
mennilega gert sér grein fyrir,
hvað manntjón hafði i rauninni
verið mikið. Slökkviliðsmönn-
um hafði tekizt að ná úr flakinu
13 likum. — Útvarpsfréttir frá
Rio hermdu, að 30 manns hefðu
látið lifið.
Hinum slösuðu var ekið i
dauðans ofboði á næstu sjúkra-
hús, en slæm ökuskilyrði gerðu
björgunarmönnum erfitt um
vik.
Einn farþeginn, sem siapp
heill á húfi úr slysinu, sagði eftir
á, að lestin hefði verið á eftir á- miðborginni. Lestarstjórinn
ætlun, þegar hún lagði upp frá hefur greinilega ekið með hrað-
Dom Pedro Segundo-stöðinni I asta móti, þvi að farþegarnir
sögöu, að lestin hefði nötrað á
teinunum og óttuðust þeir, að
hún færi út af — sem og varð.
Undanfarnar vikur hefur oft
komið til óeirða og stórvand-
ræða i Rio vegna þess, hve langt
iestirnar hafa veriö á eftir áætl-
un. Rio-búar hafa ekki tekið þvi
með þolinmæði.