Vísir - 19.07.1975, Qupperneq 16
16 __________________________________ Vlsir. Laugardagur 19. júll 1975,
| f DAG | | í KVÖL.D | | f DAG | | f KVÖLD | 1 'PAS 1
Á þriðja tímanum í útvarpinu kl. 14.00
FRÉTT VIKUNNAR
f
— „hver hún verður veit nú enginn nema Olafur og guð"
— sagði Púll Heiðar — einnig stutt viðtal við Einar
Ágústsson utanríkisrúðherra um vœntanlega útfœrslu í
200 mílur
Þátturinn ,,A þriöja tlman-
um”, sem er bein útsending úr
útvarpssai, býður að þessu sinni
til sin þeim Sölveigu ólafsdótt-
ur, formanni Kvenréttindafé-
lags islands, Birni Bjarman rit-
höfundi og Jóni Steinari Gunn-
laugssyni lögfræðingi. Eins og
venja er i þættinum ætla þau að
ræða um merkustu atburði, inn-
lenda eða erlenda, undangeng-
innar viku.
Einnig verður stuttu viðtali
við Einar Ágústsson skotið inn á
milli. Ræðir utanrlkisráðherra
um væntanlega útfærslu I 200
milur. Þó verða viðbrögð er-
lendra rikisstjórna gagnvart út-
færslunni einkum tekin fyrir.
Slðan verður hin hefðbundna
frétt vikunnar, sem ólafur
Sigurðsson fréttamaður velur,
hver hún verður veit enginn
nema ólafur og guð, sagði Páll
Heiðar Jónsson. —HE
ÚTVARP #
Laugardagur
19.júli
7.00 Morgunútvarp Veður-
fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10.
Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og for-
ustugr. dagbl.), 9.00 og
10.00. Morgunbæn kl. 7.55.
Morgunstund barnanna kl.
8.45: Geir Christensen lýkur
lestri sögunnar „Höddu”
eftir Rachel Field (24). Til-
kynningar kl. 9.30. Létt lög
milli atriða. kl. 10.25: „Mig
hendir aldrei neitt”, —
Stuttur umferðarþáttur i
umsjá Kára Jónassonar
(endurt.). óskalög sjúk-
linga kl. 10.30: Kristin
Sveinbjörnsdóttir kynnir.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar. Tónleikar.
14.00 A þriðja timanum Páll
Heiðar Jónsson sér um þátt-
inn.
15.00 Miðdegistónleikar a.
Brandenborgarkonsert nr. 1
í F-dúr eftir Bach. Jean-
Francois Paillard-kammer-
sveitin leikur b. „Nætur i
görðum Spánar” eftir
Manuel de Falla. Artur
Rubinstein leikur með Sin-
fóniuhljómsveitinni i St.
Louis: Vladimir Golsch-
mann stjórnar.
15.45 í umferðinni Arni Þór
Eymundsson stjórnar þætt-
inum. (16.00 Fréttir 16.15
Veðurfregnir).
16.30 1 léttum dúr. Jón B.
Gunnlaugsson sér um þátt
með blönduðu efni.
17.20 Nýtt undir nálinni örn
Petersen annast dægur-
lagaþátt.
18.10 Slðdegissöngvar. Til-
kynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Hálftlminn. Ingólfur
Margeirsson og Lárus Ósk-
arsson sjá um þáttinn, sem
fjallar um ofdrykkju.
20.00 llljómplöturabb Þor-
steinn Hannesson bregður
plötum á fóninn.
20.45 Framhaldsleikritið: „
„Aftöku frestað” eftir
Michael Gilbert Þriðji þátt-
ur. Þýðandi: Asthildur
Egilson. Leikstjóri: Gisli
Alfreðsson. Persónur og
leikendur: Harry Gordon..
Hákon Waage, Harbord....
Ævar R. Kvaran, Lacey yf-
irlögregluþjónn.... Gunnar
Eyjólfsson, Knight lög-
regluvarðstjóri.... Klemenz
Jónsson, Bridget... Anna
Kristin Arngrimsdóttir,
Tarragon.... Arni Tryggva-
son, Beeding.... Helgi
Skúíason. Aðrir leikendur:
Briet Héðinsdóttir, Helga
Stephensen, Guðmundur
Magnússon, Jón Sigur-
björnsson og Knútur R.
Magnússon.
21.20 Kórsöngur Karlakór
hollenska útvarpsins syngur
lög eftir Mendelssohn: A.
Krelage stjórnar.
21.35 Bréf til kennslukonu
Þáttur um sérstæða skóla-
tilraun á Italiu. Arthur
Björgvin Bollason tekur
saman og flytur ásamt
Selmu Guðmundsdóttur.
22.00 Fréttir
22.15 Veðurfregnir Danslög
23.55 Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.
Sunnudagur
20. júli
8.00 Morgunandakt Herra
Sigurbjörn Einarsson
biskup flytur ritningarorð
og bæn.
8.10 Fréttir og veðurfregnir.
8.15 Létt morgunlög
9.00 Fréttir. Útdráttur úr
forustugreinum dagblað-
anna.
9.15 Morguntónleikar. (10.10
Veðurfregnir). a. Fantasia i
f-moll (K594) eftir Mozart.
Gerhard Dickel leikur á
orgel Sankti Jóhannesar-
kirkjunnar i Hamborg. b.
Messa i D-dúr eftir Dvorák.
Einsöngvarar og kór Tékk-
nesku filharmoniusveitar-
innar syngja með Sinfóniu-
hljómsveitinni i Prag:
Václav Smetácek stjórnar.
c. Pianókonsert nr. 24 i c-
moll (K491) eftir Mozart.
Clifford Curzon leikur með
Sinfóniuhljómsveit
Lundúna: Istvan Kertesz
stjómar.
11.00 Messa i Hliðarenda-
kirkju I Fljótshlið Prestur:
Séra Sváfnir Sveinbjarnar-
son prófastur. Organleikari
Runólfur Runólfsson.'
Kirkjukór Fljótshliðar
syngur. (Hljóðritun frá 29.
júni s.l.)
12.15 Dagskráin. Tónleikar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar. Tónleikar.
13.20 Með eigin augum Jónas
Guðmundsson rithöfundur
spjallar við hlustendur.
13.40 HarmonikulögKarl Eric
Fernström og Fagersta
Dragspelsklubb leika.
14.00 Dagskrárstjóri i eina
klukkustund. örn Þráinsson
nýstúdent ræður dag-
skránni.
15.00 Miðdegistónleikar: Frá
tónlista rhátiðinni i
Schwetzingen i mai s.l.
Flytjendur: Yval-trióið og
Melos-kvartettinn. a.
Pianótrió i c-moll op. 66 eftir
Mendelssohn. b. Strengja-
kvartett i G-dúr op. 161 eftir
Schubert.
16.15 Veðurfregnir. Fréttir.
16.25 Alltaf á sunnudögum
Svavar Gests kynnir lög af
hl jómplötum.
17.15 Barnatími: Agústa
Björnsdóttir stjórnar Sitt-
hvað úr Vestfirðingafjórð-
ungi.
18.00 Stundarkorn með Diönu
Durbin Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.25 Úr handraðanum
Sverrir Kjartansson annast
þáttinn.
20.00 tslendingar á Indlandi
Guðrún ögmundsdóttir og
Dagur Þorleifsson taka
saman þáttinn. Rætt er við
Elfu Sigvaldadóttur, Elsu
Guðmundsdóttur og Sig-
valda Hjálmarsson og lesið
úr ferðabókum hans og Sig-
urðar A. Magnússonar.
Einnig lesin ljóð eftir
Tagore I islenskum þýðing-
um.
21.00 Frá Buxtehude-tónleik-
um I Selfosskirkju. Flytj-
endur: Kirkjukór Sglfoss,
Sigriður Ella Magnúsdóttir,
Arni Arinbjarnarson og
kammersveit: Glúmur
Gylfason stjórnar. a. Prelú-
dia og fúga i D-dúr. b. „Allt,
sem gjörið þér”, kantata
fyrir einsöngvara, kór og
hljómsveit.
21.35 Þættir úr lifi Vestur-ís-
lendinga. Séra Kristján
Róbertsson flytur erindi:
Komið við i Skálholtskirkju-
garði.
22.00 Fréttir
22.15 Veðurfregnir. Hand-
knattleikur: Pólverjar — ís-
lendingar. Jón Asgeirsson
lýsir siðari hálfleik frá
Ljubljana i Júgóslaviu.
Danslög
23.25 Fréttir i stuttu máli.
Dagskráriok.
JZó'35
— Ég er svo ánægð að hafa notað launahækkun mannsins
mins fyrirfram, hann fékk hana nefnilega ekki!
Útvarp kl. 21.35 í kvöld
Börnin sóu oð
öllu leyti um
kennsluna sjólf
— þáttur um sérstœða
skólatilraun á Ítalíu
Myndin er af Arthur Björgvin Bollasyni, þar sem hann situr heima I
stofunni hjá sér.
Sérstæð skólatilraun á ttalíu
er á dagskrá útvarpsins I kvöld.
Blaðamaður VIsis ræddi við
annan stjórnanda þáttarins,
Arthur Björgvin Bollason, sem
stundar nám I bókmenntum og
heimspeki I Þýzkalandi.
Sagði Arthur Björgvin, að
þessi skólatilraun hefði farið
fram i smáþorpi á Norður-ltallu
sem heitir Barbian,
Þar hefðu nokkur verka-
manna- og bændabörn tekið sig
saman og stofnað sinn eigin
skóla. Bömin voru á aldrinum
7—16 ára. Flest voru þetta börn,
sem hrökklazt höfðu úr öðrum
skólum, þ.e. voru fallistar eða
krakkar sem ekki höfðu efni á
að ganga I rikisskólana, þar eð
þau áttu heima I svo afskekkt-
um byggðarlögum.
Börnin fengu aðstoð hjá
þorpsklerkinum, m.a. fengu þau
prestsbústaðinn til að reka skól-
ann i.
Þetta var mjög furðulegur
skóli, þvi börnin sáu að öllu leyti
sjálf um kennsluna.
Skólinn var starfræktur allan
daginn allan ársins hring.
Kennslugreinar sem þarna
voru kenndar, voru þær sömu og
i öörum skólum, þó voru þær oft
teknar frá svolitið öðrum
sjónarhóli en i öðrum skólum.
Til dæmis var I sögukennslunni
sleppt að mestu leyti stagli um
fræga karla og kerlingar og i
staðinn voru dagblöðin lesin vel
og rækilega. Einnig voru kjara-
samningar itölsku verkalýðs-
einingarinnar lesnir vandlega.
Með slikri nýbreytni og annarri
gerðu krakkarnir heiminn, sem
þeir lifa i, skiljanlegri og áhuga-
verðari.
Krakkarnir gáfu út bók, sem
heitir „Bréf til kennslukonu”,
og þessi þáttur er byggður á
þeirri bók, sagði Arthur Björg-
vin. Bókin er samin með mjög
sérstökum hætti. Börnin fengu
öll pappirsmiða og áttu að
skrifa athugasemdir um veru
sina i rikisskólunum og i
Barbianskólanum, lýsa
kennsluháttum og fleiru. Siðan
var þessum miðum öllum safn-
að saman og innihaldinu raðað
i efnisflokka og siðan sett sam-
an i eina bók. Þetta var svolitill
reiðilestur, þar sem taldir voru
upp agnúar á skólakerfinu.
Skóli þessi leystist siðan upp
vegna þess að klerkurinn dó. En
eftir þetta voru reistir skólar á
svipuðum forsendum um alla
Italiu, svokallaðir uppbóta-
skólar, sem höfðu það markmið
að taka við börnum, sem áttu
erfitt uppdráttar i rikisskólun-
um. Þessir skólar starfa enn
þann dag I dag og eru þeir
byggðir á hugmyndalegum arfi
Barbianskólans, sagði Arthur
Björgvin að lokum.
Selma Guðmundsdóttir tók
þennan þátt saman ásamt
Arthur Björgvin Bollasyni.
—HE