Vísir - 21.07.1975, Qupperneq 12
12
Vlsir. Mánudagur 21. júll 1975.
Skotskór Eyjamanna
urðu eftir heima!
STAÐAN
Úrslit leikjanna I 1. deild um
helgina:
FH—IBV 0-0
Vlkingur—Akranes 2-2
Staöan I 1. deild er nú þessi:
w — Attu leikinn og tœkifœrin á móti FH-ingum en tókst aldrei að koma knettinum í netið
Vestmannaeyingar virðast al- veg heillum horfnir I 1. deildinni. Á laugardaginn léku þeir við FH á mölinni I Kaplakrika og tókst ekki aö næla sér I nema annað stigið, þrátt fyrir mun meiri sókn og fleiri tækifæri leikinn út heldur en FH-ingar, sem voru nteð dauf- ara móti. Eyjamenn cru þvl I „kjallara" 1. deildar ásamt KR-ingum, scm geta þó bætt stööu slna, þar sem þeir eru með einum leik færra cn ÍBV, en bæði liðin hafa hlotið sex stig. FH-ing- ar eru svo einu þrepi ofar, meö sjö stig. Úrhellisrigning var, meðan FH og IBV áttust við, og við slikar að- stæður er kannski ekki hægt að krefjast þess, að leikið sé af ein- hverri snilld, enda reyndist svo, að langspyrnur voru alls ráðandi allan fyrri hálfleikinn. En Eyja- menn tóku sig á i þeim seinni og reyndu stuttan samleik. Stóðu sóknarlotur þeirra oft langtimum saman, án þess að þeim tækist að skora, enda hópuðust FH-ingar i vörn, svo ekki var auðvelt að finna knettinum leið i markið. Eyjamenn höfðu vindinn i bakið Ifyrri hálfleik, en FH-ingar fengu ekki að njóta þess sama I seinni
t í™** wmm máM fi* r Ww&œm m —s sm Sm *m m* m m
- - ;* S,
„Ég hef hann þennan, frændi”.mætti ætla aö Birgir Gunnarsson markvöröur Vlkinga frá Ólafsvlk sé
aö segja við frænda sinn Jóhannes ólafsson I leiknum viö Ármann á laugardaginn. Jóhannes skoraöi
eina mark leiksins. sem lank meö sieri Ármanns 1:0.. Ljósmynd Bj. Bj.
FRÆNDUR GETA VERIÐ
FRÆNDUM VERSTIR....
Einhvers staöar stcndur, að
frændur séu frændum verstir,
a.m.k. hefur það oft verið sagt
bæði I gamni og alvöru. Undir
þetta — og þá aö sjálfsögöu I
gamni — getur markvörður
Ólafsvikur Vikinganna, Birgir
Gunnarsson, tekiö eftir leikinn
viö Armann i 2. deild á Melavell-
inum á laugardaginn.
Hann þurfti aðeins einu sinni i
öllum leiknum að sækja boltann i
markið hjá sér og sá, sem skoraði
markið, var frændi hans Jó-
hannes Ólafsson.
Birgir og Jóhannes eru syst-
kinabörn, en leika sinn með hvoru
liðinu i 2. deild — Jóhannes með
Ármanni og Birgir með Vikingun-
um frá Ólafsvik.
Þetta mark sem „frændi gerði
hjá frænda”, kom á 15. minútu
leiksins. Jón Hermannsson tók þá
hornspyrnu og sendi vel fyrir, þar
sem Jóhannes var vel staðsettur
og skallaði I markið.
Eftir þetta mark dofnaði yfir
Ármenningunum, og Vikingarnir
náðu betri tökum á leiknum — án
þess þó að geta skorað. 1 siðari
hálfleik var aðeins meira fjör i
Ármenningunum, en samt náðu
Jæja, en hvernig veit
ég að þú sleppir
Nitu?
v^.__íNiiu:
þeir aldrei að bæta við marki —
en komust samt oft nálægt — áttu
m.a. skot i þverslá.
Annars var litið um knatt-
spyrnu i siðari hálfleiknum. Völl-
urinn var þá orðinn eitt drullu-
svað og litið varið i að leika á hon-
um. — klp —
fÉkki áhyggjur.'
Henni verður
hálfleik, þvi að þá snarlygndi.
Þótt Eyjamenn hefðu máttar-
völdin með sér, voru það samt
FH-ingar, sem áttu fyrsta hættu-
lega færið i leiknum. Janus Guð-
laugsson fékk knöttinn beint á
kollinn snemma i fyrri hálfleik,
en skallaði „hárflnt” framhjá af
stuttu færi. Þar með fór eina
virkilega tækifæri FH-inga i
leiknum i súginn.
Eftir það voru þau Eyjamanna.
Hið fyrsta, þegar hinn efnilegi
Sigurlás Þorleifsson slapp inn
fyrir FH-vörnina og lyfti knettin-*
um yfir Ómar Karlsson, mark-
vörð FH — og markið lika!!
Sennilega hefði verið árangurs-
rikara fyrir Sigurlás að reyna að
leika á Ómar, sem kom æðandi út
úr markinu i örvæntingu sinni.
Undir lok fyrri hálfleiks átti
Orn Óskarsson, gullið tækifæri á
að ná forystunni fyrir ÍBV, þegar
hann slapp inn fyrir FH-vörnina á
svipaðan hátt og Sigurlás, og nú
ætlaði örn að leika á Ómar, sem á
einhvern hátt gat heft för Arnar,
svo að tækifærið gekk honum úr
greipum. Margir voru þeirrar
skoðunar, að þarna hefði
Eysteinn Guðmundsson dómari
sleppt augljósu vitaspyrnubroti,
hvort sem það er nú rétt eða rangt
ályktað.
Tómasi Pálssyni brást illa
bogalistin, þegar hann hugðist
senda knöttinn úr aukaspyrnu á
vitateig, til samherja, en of laust,
svo að FH-ingum tókst að bægja
hættunni frá, eins og reyndar
ávallt i leiknum. Varla er þvi
annað hægt að segja en FH-vörn-
in hafi staðið sig vel, með þvi að
verjast ágengum Eyjamönnum,
Akranes 9 5 3 1 18:9 13
Fram 8 6 0 2 10:3 12
Vlkingur 9 3 3 3 11:7 9
Keflavik 8 3 2 3 7:7 8
Valur 8 2 3 3 9:9 7
FH 9 2 3 4 6:16 7
KR 8 2 2 4 4:6 6
ÍBV 9 1 4 3 8:15 6
Markhæstu menn:
Guömundur Þorbjörnss. Val 6
Matthias Hallgrimss. 1A 6
örn Óskarsson ÍBV 5
Næstu leikir: 1 kvöld á Laugar-
dalsvellinum Valur—KR og
annað kvöld á sama staö leika
Fram og Keflavlk.
til leiksloka án þess að fá á sig
mark. Reyndar kom heppnin
þeim til hjálpar, þegar Sigurlás
átti hörkuskot á samskeytin.
Friðfinnur Finnbogason var
mjög traustur i vörn IBV, þótt
hægfara sé. ólafur Sigurvinsson
átti þokkalegan leik, en þó vantar
nokkuð á, að hann hafi náð sinni
fyrri getu eftir meiðslin, sem
hánnhefurátt við að striða. Snorri
Rútsson átti stærstan þáttinn i,
að Eyjamenn náðu undirtökunum
á miðjunni, enda duglegur og ó-
sérhlifinn. örn og Sigurlás voru
aðal driffjaðrir framlinunnar,
þótt óheppnin elti þá i markfær-
unum.
FH-ingar gefa sig aldrei fyrr en
i fulla hnefana og það, sem þá
skortir I reynslu á við hin liðin,
vinna þeir upp með dugnaði, sem
gæti dugað þeim til að halda sæti
sinu i deildinni. Takist það, er
ekki óliklegt, að þeir verði meðal
þeirra, sem kljást á „loftinu” i
deildinni, en ekki i „kjallaran-
um”. Janus átti að vanda mjög
góðan leik, ásamt Þóri Jónssyni,
sem dofnaði þó yfir, þegar á leið.
Ólafur Danivalsson var mikið
með knöttinn, — en hann mætti
temja sér að senda hann af og til á
samherja. — emm.
Leikur hinna
glöluðu tœkifœra
— er Þróttur sigraði Reyni, Árskógsströnd 4:2
Þróttur bætti tveim stigum við
safnið sitt I 2. deild á laugardag-
inn, er liöiö sigraði Reyni frá Ár-
skógsströnd á Þróttarvellinum
meö 4 mörkum gegn 2.
Var það heldur litill sigur
miðað við tækifærin, sem
Þróttararnir fengu i öllum leikn-
um. Þau voru óteljandi og mörg
þeirra slik, að undrun sætti,
hvernig hægt var að komast hjá
þvi að skora.
Eftir 25 min. leik var staðan
orðin 2:0 fyrir Þrótt. Sverrir
Brynjólfssoin skoraði fyrra mark
ið, en Þorvaldur I. Þorvaldsson
það siðara.
Norðanmenn hleyptu fjöri i leik-
inn með þvi að skora mark fyrir
hálfleik — Gylfi Baldvinsson — og
þá ekki siður þegar sami maður
jafnaði — 2:2— rétt eftir að siðari
hálfleikur hófst.
En þá vöknuðu Þróttararnir
upp við vondan draum og bættu
við marki — Sverrir Brynjólfsson
afgreiddi skot frá Þorvaldi I. Þor-
valdssyni i netið og rétt fyrir
leikslok innsigluðu þeir sigurinn
með marki úr vitaspyrnu, sem
Daði Harðarson tók. _klp—
STAÐAN
Úrslit leikjanna i 9. umferð I 2.
deild uröu þessi:
Armann—Vikingur Ó 1-0
Selfoss—Völsungur 4-1
Þróttur—Reynir Á 4-2
Staðan er nú þessi:
Þróttur 9 7 1 1 20:8 15
Breiðablik 8 7 0 1 32:6 14
Armann 9 5 2 2 15:8 12
Selfoss 8 4 2 2 18:11 10
Haukar 8 3 1 4 13:14 7
Reynir Á 9 3 0 6 11:23 6
Völsungur 9 1 2 6 6:20 4
Víkingur ó 8 0 0 8 4:29 0
Næstu leikir: i kvöld leika I
Kópavogi, Breiðablik—Haukar og
á miövikudag I Ólafsvik, Vikingur
Ó.—Selfoss.
Markahæstu menn eru:
Hinrik Þórhallsson, Br.bl. 10
Sumarl. Guðbjartss. Self. 9
Ólafur Friðriksson Br.bl. 6
Þorvaldur Þorvaldss. Þrótti 6