Tíminn - 10.09.1966, Side 5

Tíminn - 10.09.1966, Side 5
LAUGARDAGUR 10. æptember 1966 Clrgeranai: rKAivibUKNMKri.uiv.K.uKinlN Framkvæmdastjóri: Kristján Bencdiktsson Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson (áb). Andrés Kristjánsson, Jón Helgason og Lndriði G. Þorsteinsson. Fulltrúi ritstjórnar: Tómas Karlsson. Aug- iýsingastj.: Steingrimur Gíslason Ritstj.skrifstofur t Eddu- húsinu, símar 18300—18305 Skrifstofur. Bankastræti 7 Af- greiðslusími 12323. Auglýsingasími 19523 Aðrar skrifstofur, sími 18300. Askriftargjald kr 105.00 á mán tnnanlands — t lausasölu kr. 7.00 eint. — Prentsmiðjan EDDA h. f. Áukið framtak krefst aukins lánsf jár MDl. er frægt fyrir það að vera seinheppið í málflutn- ingi. Sennilega hefur Mbl. þó aldrei verið slysnara en þeg- ar það fór að eigna Framsóknarflokknum höftin á árum- um 1947—49. Þessi höft voru nefnilega sett að frum- kvæði núv, stjórnarflokka og framkvæmd af þeim í sam- einingu. Höftin á árunum 1947—49 áttu upphaflega rétt á sér vegna þess fjármálaöngþveitis, sem hlotizt hafði af stefnu og störfum nýsköpunarstjórnarinnar. Öllum hin- um mikla gjaldeyrisforða, sem safnaðist á stríðsárunum. hafði verið eytt og fjárhagslegt hrun var framundan. nema gripið væri til róttækra ráðstafana. Þess vegna verða Sjálfstæðisflokkurinn og Alþýðuflokkurinn ekki áfelldir fyrir það, þótt þeir gripu til haftanna 1947—49, en hinu verður heldur ekki mótmælt, að framkvæmd haftanna fór þeim illa úr hendi, svo e'kki sé meira sagt. Gjaldeyrisafkoma þjóðarinnar hefur verið slík á und- anförnum árum, vegna góðra aflabragða og hagstæðs útflutningsverðlags, að ekki hefur þurft að beita inn- flutningshöftum eins og á árunum 1947—49. Það hefur þó ekki dregið úr haftastefnu stjórnarflokkanna. Þeir hafa fundið upp önnur höft, þegar innflutningshöttm voru ekki lengur réttlætanleg. Þessi nýju höft þeirra lánsfjárhöftin, eru atvinnuvegunum enn skaðlegri og miklu auðveldara að misbeita þeim en nokkrum öðrum höftum. Sú hefur líka orðið reyndin. Nýlega lét af störfum þekktur bankastjóri í Noregi, A. Berglöff, sem lengi stjórnaði Arbeidernes Landsbank. Norska blaðið Aftenposten átti tal við hann í tilefni af því. Það, sem þessi reyndi bankamaður lagði mesta á- herzlu á að skilnaði, var þetta: Aukið framtak krefst aukins lánsfjár. Ef norskt atvinnulíf á að eflast og blómstra, má ekki þrengja að því með lánsfjárhöftum. Forustumenn Sjálfstæðisflokksins og Alþýðuflokksins brestur alveg þeninan skilning. Þess vegna „frysta” þeir vaxandi hluta sparifjárins meðan fjöldi fyrirtækja á í margs konar erfiðleikum sökum lánsfjárskorts og rekstur þeirra verður því miklu óhagkvæmari og dýrari en ella. Þetta er nú stærsta vandamál fjölda framleiðenda í iðn- aði, landbúnaði og sjávarútvegi. Stjórnin segist beita þessum höftum til að draga úr verðbólgunni. Þessi höft hafa þó löngu reynzt gagnslaus í þeim efnum. Þar þarf allt önnur úrræði. En stjórnin neitar að sjá staðreyndir. Hú<n heldur bara dauðahaldi í lánsfjárhöftin sín. Sérhagsmunaflokkur Sjálfstæðisflokkurinn þykist öðrum flokkum fremur vilja efla heilbrigðan einkarekstur. Samt er niðurstaðan sú, að undir stjórn hans býr einkareksturinn við síversn- andi aðstöðu. þrátt fyrir góðæri Verðbólga. lánsfjárhóft og vaxtaokur valda hér mestu. Gegn öllu þessu ætti Sjálf- stæðisflokkurinn að sporna, ef hann vildi efla almennt framtak einstaklinganna. Flokksforustan gerir hins vegar hið gagnstæða. Ástæðan er sú, að Sjálfstæðisflokkurinn er ekki sá, sem hann læst vera. Hann er fyrst og fremst klíka fárra fjáraflamanina og braskara. Að þeim hlynn- ir hann með alls konar sérréttindum, en stendur á sama um alla hina. TÍMINN S Gunnar Myrdal, prófessor: Bandaríkin líkleg til sigurs í „stríðinu við fátæktina" MEGINHLUTI evrópskra inn flytjenda hefur samlagazt hin um velmegandi meirihluta, sem nýtur innbyrðis jafnréttis i Bandaríkjunum. Þeir hafa að minnsta kosti hlotið fulla viður kenningu hvað atvinnurétt snertir. Innflytjendum af Gyð ingaættum hefur ekki hvað sízt farnazt vel efnalega. Mis réttið, sem þeir verða að búa við, er einkum félagslegs eðlis, Eftir stríðið hefur bætt veru lega úr fyrir negrum og öðrum hörundsdökkum Bandaríkja- þegnum, einkum þó um mennt un og jafnrétti að lögum En negrunum hefur ekki vegnað eins vel efnalega. Urn það bil fimmtungur íbúa Bandarikj- anna er blásnauður, eins og við höfum verið minnt allrækilega á að undanförnu. Þetta verður enn alvarlegra, þegar þess er ?ætt, að meðal þessa fimmtungs er fjórðungur allra barna þjóð- arinnar Til þessarar undirstétt- ar heyrir miklu hærrí nundraðs hluti hörundsdökkra manna en hvítra. Samt sem áður eru tveir þriðjungar hennar hvírir menn þar á meðal margir „gamlir Bandaríkj amenn“. Mikill hluti hinn hvítu fá tæklinga býr i fátækrahverfum í sveitum og starfar ss.m land búnaðarverkamenn eða éin yrkjabændur. Margir búa í út jaðri hinna smærri borga og lifa af þeirri vinnu, sem fellur til við og við. Þeir flytjast þó í sí auknum mæli til fátækrahverfa stórborganna, þar sem þeir búa í þröngbýli við negrana. Fátæk ír og ómenntaðir negrar frá suð urfylkjunum og hvítir fátæk- lingar flytjast einkum til borg- anna í norður-fylkjunum. Þar hafa þeir þrátt fyrir allt meiri möguleika á að fá einhvers kon ar vinnu en annars staðar, og félagsleg aðstoð er þar auð- fengnari. MARGT veldur því, að lítil bót verður á þessu ástandi, jafnvel þó að almenn efna- hagsþróun sé hagstæð. Fátækra hverfi er að öllu leyti óheil- næmt umhverfi, einkum fyrir börn og unglinga. Einangrun, misrétti og fátækt firrir allt, sem við teljum til menningar, og dregur úr framtaki og hæfni til samlögunar. Fátækt, ásami öllu, sem henni heyrir til, verð ur að lífsmáta, sem gengur . arf frá kynslóð til kynslóðar hugarfarið, sem þessu um hverfi fylgir, er jafnve) enn meira þrúgandi en efnahags- lega aðbúðin, þröngbýlið. nrörn andi hús og óhreinindi. Skólarnir í fátækrahverfun um eru lélegir eins og allt ann að, sem samfélagið á að sjá um. Svo lítur út, sem almenna um gæðum skólanna í fátækra hverfunum, búnaðinum og kennslunni sjálfri hafi hrakaö á síðustu árum. þrátt fyrir margar tilraunir yfirvalda ti) að ráða bót þar á Þetta stafar fyrst og fremsi af mjög örri fjölgun barna í stórborgun , um. en þar búa sjaldan þeir þegnar, sem betur mega sín. hafa fasta atvinnu og eiga sér bjarta framtíð. Hr fylgir síðari hluti greinar Gunnars Myrdals um kjör undirstéttanna í Bandaríkjunum. Niðurlagsorð hans eru þessi: „Ég hef ætíð verið bjartsýnn á þróunina í stjómmáliun, félagsmálum og efnahagsmálum Bandaríkjanna, þegar Banda- ríkjamenn eru á annað borð bnir að opna au,gu sín megnar ekkert að koma í veg fyrir, að eir vinni fullnaðarsigur í stríð- inu gegn fátæktinni. Ég er sannfærður um, að einum manns- aldri liðnum eða svo verða engin fátækrahverfi til í Banda- ríkjunum og engin undirstétt, sem svift er möguleikum til jafnréttis sem þegnar „hins Enn ljósara verður, hve al- varlegt mál þetta er, þegar við gerum okkur grein fyrir, að skólarnir í fátækrahverfunum þyrftu að vera betri en skól arnir i borgunum, til þess að vega á móti þrúgandi áhrif- um umhverfisins. Þar þyrftu kennarar að vera að mun fær- ari og auk þess þyrfti að njóta við aðstoðar ýmissa opin- berra stófnana, til þess að vernda börnin fyrir þeim öfl- um, sem ógna heilsu þeirra, framagirni og siðferðisþreki. Af þessu leiðir þörf fyrir mun hærrí útgjöld vegna hvers barns í fátækrahverfunum en annars staðar. ATvInNULEYSÍÖ 4" Baucfa ríkjunum gerir þetta mál enn orfiðara viðfangs. Alvarlegast er, að atvinnuleysið er sérlega mikið meðal æskumanna, nem ur um 10 af hundraði alls í landinu, er auðvitað mun meira í fátækrahverfunum en annars staðar og venjulega tvöfalt meira meðal negra en hvítra manna. Erfiðleikarnir á að fá vinnu þegar skólanámi er lok- ið, hafa mjög slæmar afleiðing ar. Margir hinna eldri íbúa fá- tækrahverfanna eru í raun og veru alveg ómenntaðir, þar sem þeir hafa notið lélegrar skóla- menntunar. Þetta á einkum við um þá, sem komnir eru frá suðurfylkjunum. Fjölskyld- Síðari grein unum hættir til að sundrast. Tæplega tveir þriðju hlutar negrabarna. búa hjá báðum for eldrum sínum Barnafjöldi er meiri í ta- tækrahverfum borga og sveita en annars staðar vegna meiri frjósemi. Þar eru einnig hlu’ fallslega fleiri sjúklingar, bæKl að fólk og gamalmenni Banda ríkin eru eftirbátur annari a auðugra ríkja um heisugæzhi félagslegt óryggi yíirleitt MEÐAL þess. sem viðheld- ur undirstétt, sem ekk) hefur verulega möguleika til að sam lagast bandarísku ojóðlífi má nefna bá staðreynd. að velmeg unin eykst, og lífskjörin batna hjá meirihluta bjóðarinn ar. Vegna nútima heimilisvéla og tízkubundinnar hneigðar til að „gera hlutina sjálfur“ þurfa mikla þjóðfélags”. heimilin minna og minna á að- stoð að halda til hinna fábrotn ari starfa. Þegar kunnátta í barnauppeldi, hreinlæti og menntun eykst, verða starfs- kraftar frá fátækrahverfunum síður eftirsóttir en áður, bæði á heimilum, barnaheimilim í veitingahúsum og verzlunum. Þegar sjálfvirkni í athafnalíf- inu eykst og auk þess brestur verulega á fulla atvinnu, verð- ur að sjálfsögðu erfitt fyrir æskufólkið að komast að við framleiðsluna, nema öldruð- um starfsmönnum sé þá um leið(vikið á dyr, en þeir lenda þá oft í fátækrahverfunum eins og aðrir, sem við félagslega eða efnahagslega annmarka búa. Þegar menntun verður í sí- auknum mæli skilyrði til hvers konar starfa, verða þeir, sem lítillar skólagöngu hafa notið, meira og meira útundan, eink um þó, þegar um er að tefla öruggar stöður, sem veita mögu leika til bættrar afkomu. Á þennan hátt stuðla marg ir þættir nútímaþróunar í Bandaríkjunum að ákveðn- ari afmörkun undirstéttar, sem sífellt verður meira og meira utangarðs. Hið dáða, frjálsa bandaríska þjóðfélag, sem veit ir öllum möguleika til að skapa sína eigin framtíð, verður að lífslygi gagnvart þessari undir stétt. Þetta hefur þó verið kjarni bandarískra hupjóna saman ber the selfmade man. Hugsjónin um jafna mögu leika allra hefur frá önd- verðu verið meginstyrkur þjóð arinnar, og hvöt, en ekkert get ur verið meiri andstæða henn- ar en andstæðurnar, sem undir stéttin býr við. HINN mikli, félagslegi ójafn aður byggist einnig á gamalli hefð í Bandaríkjunum, eins og ég benti á í fyrri grein minni og Bandaríkjamenn eru að því leyti sjálfum sér ósamkvæmir Þeír viðurkenna upphátt — og að minni hyggju í einlægni, hin göfugustu sjónarmið. sem þeir svo oft og einatt brjóta, við uppbyggirgu lífs síns og þjóðfélags. Ávallt hafa verið til einstakl mgar og samtök. sem hafa bar- izt fyrir að bandarískri jafn réttishugsjón "æri framfylgt bet ur en raun ber vitni Þeim hefur oft orðið verulega ágengt en við og við hafa komið aftur kippir Einn slíkur kippur varð þegar negrarnir voru ofurseld ir hinum hefndarþyrstu hvítu mönnum eftir málamiðlunina á áttunda tug nítjándu aldarinn ar. Annar afturkippur varð svo fyrir skömmu með hinni Fremhald á bls. 15.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.