Vísir - 13.08.1975, Qupperneq 7
Vísir. Miðvikudagur 13. ágúst 19
Hvernig á fólk að léttast?
—Hvað er áhrifaríkast, megrunarkúrar lyf, tœki?
sé stór hópur manna kyrrsetu-
menn. Máltiöir eru eftir sem áð-
ur miðaðar við þann tima, þegar
allir unnu erfiðisvinnu.
Hungurtilfinning, sem menn
finna til, er eðlilegur hlutur.
Jafnvel þótt sú tilfinning sé kæfð
með þvi að borða á það ekki að
leiða til yfirvigtar. Matarlyst er
hins vegar allt annar hlutur.
Hún höfðar bæði til likamlegu
og andlegu hliðarinnar og er
fyrst og fremst vandinn i sam-
bandi við megrun. Það er
matarlystin, sem fær fólk, sem
þegar hefur etið sig mett að
snæða eftirrétt.
Hvar eru mörkin
milli þeirra# sem
verða að grenna sig
og hinna?
Sumir þeirra, sem sifellt eru
með megrunarkúra á heilanum
væru betur komnir með sin fáu
umframkiló á sér. Það er tvi-
mælalaust hollast að halda vigt-
inni samkvæmt uppgefnum töfl-
um eða aðeins fyrir neðan. Hins
vegar telja sumir læknar, að
þeim, sem aðeins séu með 10-
15% umfram draumavigtina,
væri betra að vera það áfram
heldur en vera sifellt að láta
likamann aðlaga sig nýjum og
nýjum kúrum.
Það er rétt, að sum af þeim
ráðum, sem eiga að hjálpa fólki
að grennast, gera gagn — enda
þótt fólk léttist ekki. Er þá átt
við sálfræðilegu hliðina. Það
kemur væntanlega i veg fyrir,
að fólk bæti á sig á timabilinu.
Þvi miður skiptir hins vegar
aðalmáli langtimalétting en
ekki þótt einhver hrapi um
nokkur kiló snögglega. Farsæl-
ast virðist takast hjá þeim að
grenna sig, sem fylgja skyn-
samlegum matseðli og gæta
þess að hreyfa sig nóg. Þetta er
þó ekki eins einfalt og það sýn-
ist. Margs konar vandamál ein-
staklingsins kunna að hafa or-
sakað ofát hans. Þau þarf að
leysa áður en hann getur hafið
kúrinn.
Kolvetnakúrinn
Þegar kenning Dr. Atkins um
kolvetnin kom fyrst fram, var
það kölluð bylting. Hann er af
IIMIM
SÍÐAN
Umsjon:
Berglind
Asgeirsdóttir
mörgum álitinn óöruggur, fyrst
og fremst af þvi að likaminn
þarf að ganga i gegnum nýja
reynslu. Þá þola til dæmis
nýrnasjúklingar hann ekki og
fólk kann að finna fyrir ýmsum
kvillum.
900 kaloriu megrunarkúrinn
náði þó nokkrum vinsældum.
Hann var fólginn i þvi að drekka
fjórar könnur á dag af sérstak-
lega útbúnum drykk.
Rannsóknir hafa sannað, að
hver, sem getur haldið sig við
900 kaloriur á dag, á að geta
grennzt. Flestir telja þó hæpið
að leggja út i svo stifan kúr
nema hafa samráð við lækni.
Karamellur fyrir máltíö
Þær eru teknar i þvi skyni að
hækka sykurmaghið i blóðinu.
Hver karamella samsvarar um
3 teskeiðum af sykri og ekki hef-
ur tekizt að sanna, aö þær hafi
nokkur áhrif (nema þá
imynduð).
önnur leið, sem reynd hefur
verið, er sú að taka duft út i vatn
tiu minútum fyrir máltið og láta
það blása upp. Gallinn við slikt
efni er, að það er mjög skamma
fitu þarf að sneiöa hjá 3.500
kalórium. Þetta þýðir, að þeir
sem eru vanir að borða 2.700
kalóriur og minnka skammtinn
um 500 kalóriur, ættu að missa
1/2 kiló á viku. En þá verður
lika allt annað að vera óbreytt.
Sá, sem vill grenna sig, getur
reynt að hraða þvi, hvað hann
léttist með þvi að auka
áreynslu. Margir óttast, að það
auki mjög matarlystina, ef þeir
fari að gera æfingar. Það er
ekki rétt.
Beztum árangri er væntan-
lega hægt að ná með þvi að telja
kaloriurnar o’g það heldur leng-
ur en skemur. Þetta þýðir jafn-
framt að heilsu þinni er ekki
stefnt i hættu eins og i svo mörg-
um af kúrunum og þetta er
heldur ekki mjög dýrt, þar sem
ekkert eitt er tekið fyrir.
Gætið þess, að máltiðir séu
reglulegar og að likaminn fái
þau efni sem hann þarfnast. Ef
fólk er ekki einungis að grénna
sig fyrir ákveðna árshátið og
vill virkilega halda árangrinum
verður það að breyta lifsmáta
sinum varanlega.
Þaö liggja ýmsar
ástæður að baki þess, að
fólk, sem ber mikla yfir-
vigt, vill losna við hana.
Sumir vilja það af ótta
við hjartasjúkdóma, aðr-
ir vegna þess, hve óþægi-
legt er að vera of feitur.
Báðir þessir hópar munu
haf a uppgötvað, að það er
léttast — og halda þeirri
vigt sem næst — er alls
ekki auðvelt. Það, hversu
fáum af þeim, sem þjást
af offitu, hefur tekizt að
ná árangri með færri
kaloríum, hefur ýtt undir
aðrar leiðir. Kolvetna-
kúrinn er íslendingum að
góðu kunnur, hver kann-
ast ekki við karamellu-
ráðið, taugalyfin, sem
gera það að verkum, að
menn missa lyst og svo
framvegis.
Hvers vegna er fólk svona
misjafnlega feitt?
Læknisrannsóknir um og eftir
1960 sýndu, að fólk, sem þjáðist
af offitu, hafði ekki aðeins afar-
stórar fitufrumur, heldur fjölg-
aði þeim og mjög ört. Þegar of-
fitu-sjúklingar grenntust
minnkuðu frumurnar en þeim
fækkaði ekki. Um leið og fólk
hóf að borða eðlilega á nýjan
leik, náðu fitufrumurnar fyrri
stærð. í ljós kom, að fjöldi fitu-
fruma hélzt svo til óbreyttur frá
unglingsárum til ellidaga. Þvi
hafa „megrunaraðgerðir” á
kornabörnum færzt mjög i vöxt.
Sé fjölskyldan öll mjög feit,
minnka möguleikar hins ný-
fædda einstaklings á þvi að
skera sig úr þeim hópi.
Ekki auðveldar það rannsókn
á offitu, þegar i ljós kemur, að
fólk með svipaða byggingu og
sömu orkueyðslu, sem neytir
sama kalóriufjölda, fitnar ekki
á sama hátt.
Ráðið: Um leið og
vigtin stígur,
fækkarðu kaloríunum.
Þetta er allur galdurinn en
jafn erfiður eða auðveldur og
hann hljómar. En hvers vegna
étur fólk þá meira en það þarf?
Margir hafa skýrt það með þvi,
að i hinu tæknivædda þjóðfélagi
stund i maganum fyrir utan það
að aldrei hefur verið sannað, að
það hafi nokkur áhrif á hungur-
tilfinninguna. Hvað þá, að það
hafi áhrif á matarlystina.
Taugalyf, sem draga
úr matarlyst.
Það er enginn vafi á þvi, að
Amphetamine-lyf og önnur þvi
skyld geta haf áhrif á matarlyst
fólks. Hversu mikinn skammt á
að taka, er komið undir hverj-
um einstökum og aukaáhrif
(óæskileg) eru algeng. Það er
verst að þol manna fyrir þess-
um lyfjum vex þannig, að
skammturinn vex stöðugt.
Athugun, sem tók yfir 5 ára
timabil, sýndi, að þegar beztur
árangur náðist i þvi að létta
fólk, gerðist það mest á fyrsta
mánuði. 1 ljós kom, aö tilraunir
á fólki, sem var á matarkúr,
tókust mun betur en á þeim,
sem einnig neyttu lyfja. Aðal-
aukaáhrif lyfjafólksins, voru:
þurr munnur, pirringur, óró-
leiki, hraður hjartsláttur,
höfuðverkur og svo framvegis.
Aðalhættan við lyfin er
ávanahættan, auk þess sem
lyfjanotanda kann aö finnast, að
honum „þyngi” eftir að notkun
lýkur.
Æfingar og tæki.
Yfirleitt er með þeim ráðist á
að eyða keppum, en ekki bein-
linis hugsað um að létta við-
komandi. Allar æfingar, sem
þýða að fólk brennir kalorium,
eru ágætar.
Föt og belti, sem eiga að
grenna fólk meðan það sefur,
eru vita gagnslaus, og sum jafn-
vel hættuleg.
Tæki eins og þau, sem skapa
titring eða hreyfingu vöðva eru
ekki mjög áhrifamikil. Þau
framkalla eins konar rhytma-
hreyfingu og eru oft mjög af-
slappandi og mýkjandi fyrir
likamann. Erfitt er að mæla
kaloriubrennsluna.
Varið ykkur
á töfrakúrunum
Samtök lækna i Bandarikjun-
um komust að þvi, að matar-
kúrar sem eiga að gera það að
verkum, að fólk léttist mjög
hratt, séu yfirleitt gagnlausir.
Staðreyndin er sú, að það hve
mikið fólk léttist fyrstu 1-2
vikurnar stafar af losun um-
framvatns úr vefjum likamans.
Til þess að léttast um 1/2 kiló af