Vísir - 13.08.1975, Síða 8
NÝTT HEIMSMET 1 MILUHLAUPI.Þessa mynd fengum viö simsenda i
morgun og sýnir hún þegar John Walker kemur í mark á nýju heimsmeti i
Gautaborg I gærkvöldi. — Hann var fyrstur manna í heiminum til aö hlaupa
þessa vegalengd undir 3,50 min. Fyrir rúmlega 20 árum þútti þaö ofsalegt þegar
„4 minútna múrinn” var brotinn.
Walker sló
mílumetið!
Síðan Roger Bannister braut „4 mínútna
múrinn"fyrir 21 óri hefur metið verið
bœtt um 10 sekúndur
Hann kom fyrst fram á sjónarsviöiö
fyrir fimm árum i smá keppni langt
uppi í sveit á Nýja Sjálandi. Hann sigr-
aði þar i 800 metra hlaupi og nokkrum
vikum sfðar varö hann þriðji i sömu
grcin á meistaramóti landsins.
Þá hcyröu Nýsjálendingar hans fyrst
gctið — En nú þckkja þeir hann allir og
dá hann eins og guö. Maðurinn heitir
John Walker — og i gærkvöldi varð hann
heimsfrægur, er hann setti nýtt heims-
mct I miluhlaupi á móti i Gautaborg i
Sviþjóð — og varö fyrstur manna i
heiminum til að hlaupa þessa vega-
lcngd undir 3,50 mlnútum.
Fyrir 21 ári siöan þótti það ótrúlegt
afrek, þegar Bretinn Roger Bannister
náði að brjóta ,,4 minútna múrinn” en
það met hefur Walker nú bætt um heilar
10 sekúndur.
t hlaupinu i gærkvöldi hljóp hann á 3
minútum 49,4 sekúndum og bætti heims-
met Tansaniumannsins Filbcrt Bayi frá
þvi i mai i vor um 1,6 sekúndur.
„Þetta met verður ekki slegiö á næst-
unni”, sagði Walker við blaöamenn eftir
hiaupið: ,,Það bczta, sem einhver nær á
þessari öld, verður 3:50,0. Næsta met,
sem ég ætla að gera tilraun til að ná er
1500 metrarnir. Ef ég næ þvi ekki I ár,
geri ég það næsta ár” sagði þessi kok-
hrausti hlaupari að lokum. -klp
Glœsilegt heims-
met í tugþraut
Bruce Jenner fró Bandaríkjunum bœtti met
Rússans Avilov um 80 stig
Heimsmet Rússans Nikolai Avilov I
tugþraut var slegiö um helgina. Met
hans var 8454 stig, sett á Olympiuleikun-
um i Munchen 1972.
Nýi heimsmethafinn er Bandaríkja-
maöur, Bruce Jenner, og setti hann nýja
metið, 8524 stig, i landskeppni milli
Rússa, Pólverja og Bandarikjamanna
sem fram fór i Oregon I Bandarikjunum
um helgina.
Keppninni lauk meö sigri Bandarikj-
anna, sem hlutu 49.000 stig, Russar uröu
I öðru sæti með 46,328 stig og Pólverjar
urðu þriðju með 46,091 stig.
Heimsmethafinn fyrrverandi var
meðal keppenda, en hann varð að gera
sér að góðu þriðja sætið I keppninni
hlaut 8224 stig. Fred Dixon frá Banda-
rikjunum varð annar með 8284 stig.
Arangur JennersIeinstökum greinum
varð þessi: 100 m hlaup 10,7 sek, lang-
stökk 7,17 m, kúluvarp 15,25 m, hástökk
2.01 m 400 m hlaup 48.7 sek, kringlukast
50 m, stangarstökk 4,70 m, spjótkast
65,51 m, 110 m grindahlaup 14,4 sek og
1500 m hlaup 4:16,6 min.
Bommi dregur Nitu meðvitundarlausa
að landi.
Þarna
eru þau
Fljótir
Bilarnir á ströndinni beina Ijósum
á sjóinn____________mmmmmm
^JCmg^Fe*ujre^Syndic»4e^Jne^j974^WoHd^iBht»^re»«rv«d.
Litlu strákarnir frá Færeyjum ásamt forráðamönnum sinum, sem komu „keyrandi” frá Færeyjum.til
tslands....
«8&lf
x-u
GIRA TOMAR VITLEYSUR
— segja okkar beztu frjálsíþróttamenn,eftir að hafa verið í tímum hjá hinum
heimsfrœga þjálfara Tschiene, sem hér er staddur
Hérá landi er nú staddur
einn af landsliösþjálfurum
Vestur-Þjóðverja í frjáls-
um íþróttum, Peter Tschi-
ene, og mun hann leiðbeina
frjálsíþróttafólki á Laug-
ardalsvellinum þessa viku.
Sérgrein Tschiene eru
Slá þœr íslandsmetið?
Kvennasveit IR ætlar að gera
tilraun til að slá íslandsmetið i
4x100 metra boðhlaupi á innanfél-
agsmótihjá ÍR á Laugardalsvell-
inum kl. 18,00 f kvöld. Sveitin var
nálægt metinu i siðasta móti og
nú skal þvl gerð önnur atlaga að
þvl. A mótinu I kvöld verður einn-
ig keppt I 400 metra hlaupi
karla....
köst, en hann mun samt
leiðbeina í öllum greinum.
Þetta er i annað skipti sem
Tschiene kemur hingað til lands,
en fyrir nokkrum árum þjálfaöi
hann hér um tima, en i það skiptið
virtist takmarkaður áhugi hjá
frjálsiþróttamönnum til að þiggja
leiðbeiningar hans.
Nú mun áhuginn hins vegar
vera meiri — og hafa allir beztu
kastarar okkar þegið ráðlegging-
ar Tschiene, að Erlendi Valdi-
marssyni undanskildum.
„Maður hefur verið að gera
tómar vitleysur,” sagði IR-ingur-
inn sterki, Öskar Jakobsson, eftir
að hafa verið hjá Tschiene I gær.
„Við vorum eingöngu með kringl-
una og hann er að gjörbreyta
stilnum hjá mér.”
I sama streng tók Guðni Hall-
dórsson úr HSÞ og sagði, að
Tschiene sæi ýmislegt að hjá sér i
kúluvarpinu. „En þegar maður
hefurkastað lengi svona vitlaust,
þá er erfitt að venja sig af þvi,”
sagði Guðni.
„Mörg mót ólögleg
ef þetta er það
##
I gær.. Ljósmynd Bj.Bj.
segir Gústaf Agnarsson um þá
fullyrðingu að KR-mótið í fyrra-
kvöld,þar sem hann náði OL-lág-
markinu,hafi verið ólöglegt
„Éggetekki séð neitt ólöglegt
við þetta mót,” sagði Gústaf
Agnarsson, lyftingamaður, er
við höfðum samband við hann I
morgun vegna ummæla for-
manns Lyftingasambandsins,
Ómars (Jlfarssonar um, að KR-
mótið, þar sem Gústaf náði
olympiulágmarkinu i fyrra-
kvöld, væri ólöglegt.
„Ef þetta mót hefur verið
ólöglegt, eru flest öll mót á veg-
um Lyftingasambandsins I vetur
ólögleg ef fara á eftir ströngustu
reglum,” sagði Gústaf. „Við
auglýstum þetta mót með
þriggja daga fyrirvara i Sænska
frystihúsinu, en þar er aðsetur
Lyftingasambandsins og við
töldum það nægja.
Aftur á móti hafa ekki öll mót
verið auglýst með tveggja
mánaða fyrirvara I fjölmiðium
— og aftur hálfum mánuði fyrir
mót — eins og lögin segja til um
mót á vegum Lyftingasam-
bandsins I vetur. Þau hijóta þvi
að vera ólögleg, ef þetta mót er
það — eins og formaðurinn seg-
ir.”
—klp—
Steinar Jóhannsson á auðum sjó og rennir boltanum I netið hjá Vlkingum I bikarleiknum 1 gær. Hjátrú
knattspyrnumanna segir, að það liðsigri Ibikarkeppninni sem slái Viking út, og það gerðu Keflvlkingar
Keflvíkingar í
undanúrslitin
— Sigruðu Yíking í gœrkvöldi á Melavellinum 2:0
„Við tökum bikarinn með okkur
suður, úr þvl að við unnum Vik-
ing” sögðu Kefivikingar eftir
leikinn við Viking i Bikarkeppn-
inni á Melavellinum I gærkvöidi.
„Það lið, sem hefur slegið Viking
út úr keppninni nú undanfarin ár,
hefur alltaf sigrað I henni, og á
þvi veröur varla nein breyting i
ár”.
Ef að er gáð, þá er þetta rétt hjá
Keflvikingum. Það lið, sem hefur
slegið Viking út, hefur jafnan
sigrað i keppninni — a.m.k. siðan
Vikingur sigraði Breiðablik i úr-
slitum keppninnar 1971.
Fyrsta liðið sem kemur
„keyrandi" til íslands!
,,Liklega er þetta i
fyrsta sinn sem knatt-
spyrnulið kemur akandi
til íslands,” sagði
Mervin Dimon, farar-
stjóri 4. flokks piltanna
frá Tvöroyri i Færeyj-
um, sem komu til lands-
ins um helgina á vegum
Viðis i Garði.
„Við komum með hópferðabil
sem við ferðumst i, með Smyrli
frá Tvöroyri. Komum syðri leið-
ina að austan, en ætlum þá nyrðri
á heimleiðinni, til að sjá sem
mest af Islandi.”
Ferðin gekk vel að austan,
nema hvað hópurinn varð að
ganga yfir Múlakvislarbrúna og
senda bflinn að fjallabaki, en pilt-
amir höfðu bara ánægju af sliku
ævintýri, þótt það tefði þá og hefði
af þeim hálfrar nætur svefn. Þeir
voru lika hálfslappir i sinum
fyrsta leik við IBK og töpuðu með
fimm mörkum gegn engu. Hvorki
meira né minna. Bæjarstjórinn
sjálfur á Tvöroyri, Sverrir Mid-
jörd, er þjálfari þeirra og er hann
að sjálfsögðu með I ferðinni. Pilt-
arnir munu leika hér nokkra leiki
og halda heim um næstu helgi.
„Það er erfitt að venja sig af þvi
sem maöur hefur verið að gera
undanfarin ár,” sagði Þingey-
ingurinn hrausti — Guðni Hall-
dórsson — eftir að hafa fengið
fyrstu tilsögnina hjá Þjóðverj-
anum Thsiene. Þessi frægi
þjáifari er að kenna öllum
beztu kösturum þessa dagan<
Ljósmynd.
frægi
n okkar 1
gana I
LBýBýj
Keflvikingar mættu ákveðnir til
leiks I gærkvöldi — staðráðnir i að
hefna ófaranna á heimavelli gegn
Víkingi i deildinni um siðustu
helgi. Þeir byrjuðu leikinn af
roiklum krafti og tvö mörk þeirra
mið stuttu millibili snemma I
leiknum gerðu út um hann.
Það fyrra skoraði Steinar
Jóhannsson með skoti af stuttu
færi, eftir að Jón „gullfótur”
Olafsson hafði splundrað
Vikingsvörninni og gefið á
Steinar. Jón átti einnig sinn þátt i
siöara markinu. Hann skaut
þrumuskoti á markið — Diðrik
Ólafsson varði meistaralega vel
— en hélt ekki boltanum og Einar
Gunnarsson náði til hans með þvi
að hlaupa á milli varnarmanna
Vlkings og sóknarmanna Kefla-
vikurog renna honum i netið. Þar
var Einar fljótur að hugsa og
framkvæma það eina rétta.
Vikingarnir sóttu mun meir en
Keflvikingar i leiknum, en fengu
sárafá tækifæri til að skora og
ekkert þeirra nýttist.
„VIÐ HÖFUM VERIÐ AÐ
r