Vísir - 23.08.1975, Page 6
6
Vísir. Laugardagur 23. ágúst 1975
VISIR
tJtgefandi: Reykjaprent hf.
Ititstjóri: Þorsteinn Pálsson
(titstjórnarfuiltrúi:. Haukur Helgason
Auglýsingastjóri: Skúii G. Jóhannesson
Auglýsingar: Hverfisgötu 44. Simar 11660 86611
Afgreiösla: Hverfisgötu 44. Simi 86611
Ritstjórn: Síðumúla 14. Simi 86611. 7 línur
Dreifing valds
í stjórnmálum hefur lengi staðið grundvallar-
ágreiningur milli þeirra, sem vilja byggja upp
sterkt miðstjórnarvald i þjóðfélaginu og hinna, er
telja dreifingu valdsins skynsamlegri. Flestir
stjórnmálaflokkar telja sér það til framdráttar
að skipa sér á bekk með formælendum vald-
dreifingar. Slikar yfirlýsingar eru þó oft á tiðum
fremur i orði en á borði.
Lýðræðisskipulagið er i eðli sinu umgjörð um
þjóðfélag sátta. Þar verður að taka tillit til ólikra
sjónarmiða og hagsmuna, meirihlutinn á hverj-
un tima getur ekki fótumtroðið minnihlutann.
Hér á landi vilja flestir stjómmálaflokkar telja
sig málsvara valddreifingar. Engum vafa er
undirorpið, að við höfum á ýmsum sviðum reynt
að dreifa efnahagslegum og stjórnmálalegum
völdum i þjóðfélaginu. Miðstjórnar- og flokks-
ræðishugsunarhátturinn er eigi að siður um of
ráðandi.
Hér hefur jafnan verið að þvi stefnt, að sem
flestir gætu átt sinar eigin ibúðir. Á þessu sviði
höfum við náð lengra en flestar aðrar þjóðir. Nú
heyrist stöku sinnum það sjónarmið, að þessu
verði að snúa við: íslendingar eigi að búa i leigu-
húsnæði opinberra aðila eða stórra byggingar-
félaga.
Engum blöðum er um það að fletta, að það yrði
mikið óráð, ef brugðið yrði út af þeirri stefnu,
sem fylgt hefur verið fram til þessa. 1 þessu sam-
bandi verða menn að hafa i huga, að fátt hefur
tryggt á áhrifameiri hátt efnalegt sjálfstæði
borgaranna en einmitt almenn einkaeign á
ibúðum. Fyrir þær sakir eigum við að halda
óbreyttri stefnu.
Á undanförnum árum hafa stjórnmálamenn
keppzt við að lýsa áhuga sinum á byggðastefnu.
Þá er átt við, að menn vilji efla byggðir utan þétt-
býlisins við Faxaflóa. í sjálfu sér er bæði eðlilegt
og sjálfsagt, að stjórnvöld geri sérstakar ráðstaf-
anir til þess að koma i veg fyrir, að einstakir
landshlutar dragist aftur úr i efnalegu- og félags-
legu tilliti. Stjórnmálamenn hafa hins vegar ekki
fengizt til þess að mæla fyrir um eða hugleiða,
hvernig skynsamlegast sé að haga slikum að-
gerðum þannig, að þær komi að sem beztum not-
um.
Engum stjórnmálaflokki hefur flogið i hug að
tengja aðgerðir i byggðamálum við dreifingu
valds i þjóðfélaginu. Þó virðist nokkuð auðsætt,
að raunhæfum árangri verður ekki náð i þessum
efnum, nema með þeim hætti. Þau handahófs-
kenndu vinnubrögð að ausa fjármunum eftir
flokkspólitiskum leiðum úr miðstýrðum sjóðum i
Reykjavik koma aldrei að sömu notum.
Landsbyggðarþingmenn virðast hafa ákveðna
tilhneigingu til þess að auka fremur miðstjórnar-
valdið en hitt. Fólkið úti á landsbyggðinni þarf þá
i auknum mæli að sækja til þeirra og fyrirgreiðsl-
an verður þá þeim að þakka. Vafalaust ráða þessi
sjónarmið ekki alfarið, en margt bendir til þess,
að þau vegi þungt á metunum, þó að allir lands-
byggðarþingmenn séu ekki undir sömu sök seldir
i þessum efnum.
í þessu máli kemur glöggt fram, að allt tal
stjórnmálaflokka um valddreifingu er miklu
fremur orðagjálfur en raunverulegur vilji. Þær
skoðanir eru jafnvel settar fram nú, að visasti
vegurinn til þess að efla Alþingi sé að auka
flokksræði i opinberri stjórnsýslu. En á þessu
sviði eins og mörgum öðrum er höfuðnauðsyn, að
við teygjum okkur meir i átt til dreifingar valds
en verið hefur.
Josef ina Del Valla er há-
vaxin, lagleg og dökkhærð
kona um þritugt, einkarit-
ari eins af helztu verk-
fræðingum Kolombíu, sem
hef ur skrifstof ur á 30. hæð
í skýjakljúfi í Bogota.
En hún er líka norn.
Og yfirmaður' hennar,
hinn 49 ára gamli Simon
Gonzales, er galdrameist-
ari.
Þessi tvö eru aðalhvatamenn
fyrstu alþjóðaráðstefnu galdra-
hyskis, en hún hefst einmitt á
morgun i Bogota í Kólombiu.
Þangað er vænzt um 2000 ráð-
stefnufulltrúa, og þar á meðal er
ekki ómerkari menn en italski
kvikmyndaleikstjórinn, Michel-
angelo Antonioni.
Hann rriun reyndar halda fyrir-
lestur um „Galdrakukl i kvik-
myndum” og sýna kafla úr
myndum á borð við „Rosemary’s
Baby”, „Nornirnar frá Salem”
og til þess aðslá á léttari strengi
„Galdrakarlinn frá Oz”.
„Menn skulu þó ekki gera sér
neinar vonir um að sjá nornir
svífandi á sópsköftum, þvi að
ekkertþessháttarer þarað finna.
Þetta er grafalvarlegur visinda-
viðburður.og skrattanum er ekki
boðið,” sagði Josefina Del Valla i
viötali við fréttamanninn, Hern-
ando Orozco, á dögunum.
Svarti galdur eða djöfladýrkun
er sert sé ekki á dagskrá ráð-
stefnunnar.
Þess i stað verða þarna á fjög-
urra daga langri ráðstefnunni,
fluttir fyrirlestrar um parasál-
fræði, stjörnuspeki, huglækning-
ar og fleira og fleira.
„Hugmyndin að baki ráðstefn-
unni er að skiptast á upplýsingum
og ræða krafta sjötta skilningar-
vitsins, sem allar manneskjur eru
búnar — þótt i mismunandi mæli
sé,” sagði Josefina.
Það hefur tekið hana og verk-
fræðinginn þrjú ár að undirbúa
ráðstefnuna. Létu þau sem vind
um eyrun þjóta allar glósumar,
sem þetta að sjálfsögðu
bauð heim, eöa vanþóknunar-
viðbrögðin, sem birtust hjá
hneyksluðum almenningi. Né
heldur létu þau þá staðreynd
draga úr sér kjark, að ekki eru
nema þrjár aldir síðan nornir og
særingamenn voru brennd á báli
af kaþólska rannsóknarréttinum
á torginu, aðeins nokkur hundruð
metrum frá skýjakljúfnum, þar
sem verkfræðiskrifstofa Simons
Conzales er.
„Ef við hefðum kallað þetta
ráðstefnu um parasálfræði, hefði
enginn haft neitt við það að at-
huga,” gerir Gonzales verkfræð-
ingur sér ljóst. „En okkur fellur
orðið „galdrar” betur. Það gefur
imyndunaraflinu lausan tauminn,
það er meiri hljómur i þvi.”
Hann lá Alberto Lleras Cam-
argo, fyrrum forseta Kólombíu, á
hálsi fyrir umvandanir þess sið-
arnefnda i þingræöu á dögunum.
Camargo hafði sagt, að þessi ráð-
stefna mundi spilla fyrir viðleitni
lærðra lækna til að vinna bug á
hjátrú alþýðunnar og þeim tök-
um, sem „huglækningar og
skottulækningar” — eins og for-
setinn fyrrverandi orðaði það —
hefðu haft á almenning.
Hinn kaþólski kirkjuh’,fðingi
landsins hefur ekkert um málið
sagt — enn sem komið er. Jesú-
itapresturinn, Reynaldo Pareja,
lét þó á sér skilja á dögunum,
hvers væri að vænta úr þeirri átt-
inni, þegar hann kallaði ráðstefn-
una ganga i berhögg við „allt sem
gefur lffinu æðra gildi”.
En boðunaraðilar ráðstefnunn-
ar hafa ekki látið þetta letja sig
við undirbúninginn. Ráðstefnu-
salurinn biður skreyttur þriggja
metra hárri myndastyttu af suð-
ur-ameriskum Indiána, galdra-
lækni auðvitað, með öllum til
heyrandi stöðutáknum sliks
manns.
Meðal annarra fulltrúa en kvik-
myndaleikstjórans, sem að ofan
er getið, er að vænta Israels-
mannsins, Uri Geller, sem rekið
hefur raunvisindamenn heimsins
á gat með ótrúlegum hæfileikum
sinum og furðufyrirbærum. Menn
minnast frásagnar af þvi, hvemig
hann sannfærði tortryggna vis-
indamenn um, að hann gat beygt
og jafnvel brotið i mola hluti
gerða úr ekki deigara efni en
málmi.
Obrum kvikmyndaleikstjóra
var boðið að sækja ráðstefnuna.
en það var Federico Fellini. Hann
afþakkaði þó og kvaðst of vant við
látinn við gerð myndarinnar
„Casanova”.
Á nornasveim þennan er búizt
einnig við kolombiska rithöfund
inum, Gabriel Garcia Marquez.
sem notfærði sér óspart ýmsa
þætti nornafræðinnar, þegar hanr
spann efnivið frægustu bókar
sinnar „Hundraðára einangrun”
Og á listanum yfir þessa 200C
fulltrúa er ,athyglislegt, hvað úii
þar og grúir af prófessorum qg
doktorum.
Illlllllllll
m 11