Vísir - 27.08.1975, Blaðsíða 1
vism
65. árg. — Miðvikudagur 27. ágiíst 1975 —193. tbl.
KLIPPT AFTAN ÚR TVEIMUR ÞÝZKUM
t nótt kom varðskip Land-
heigisgæziunnar að tveimur
þýzkum togurum, sem höfðu
kastað um 18 milur fyrir innan
50 milurnar. Þetta voru Köln NC
471 og Karl Wiberter BX 667.
Þeir rifu strax upp, eftir að gef-
ið hafði verið stöðvunarmerki.
Þarna var slæmt veður og hélt
varðskipið sig i grennd við skip-
in i nótt. Kiukkan nfu i morgun
var veður farið að skána og hóf
þá Köln veiðar 6,7 milur fyrir
innan. Hið sama gerði togarinn
Arcturus 739, sem talinn var i
landhelgi og færður tii Vest-
mannaeyja fyrr á þessu ári, en
undan honum hefur mjög verið
kvartað. Var klippt aftan úr
honum klukkan 9,11 9,8 sjómilur
fyrir innan. Aður haföi verið
klippt aftan úr Köln.
—BA
Farmönnum tókst
ekki að jafna
„Náðum
ekki svo
góðu
langstökki"
Farmönnum mistókst að
jafna metin við hafnarverka-
menn i samningunum i gær.
„Nei, við náðum ekki svo góðu
langstökki, en þetta er þó i átt-
ina,” sagði Guðmundur Hall-
varðsson, Sjómannafélagi
Reykjavikur, i morgun.
„Það urðu ýmsar breyting-
ar á samningum og breytingar
á greiðslum vegna starfsald-
urs. Flokkagreiðslum var
breytt til samræmis við
greiðslur til annarra stétta á
farskipunum,” sagði Guð-
mundur.
Getur verið, að samningur-
inn verði felldur eins og gerð-
ist i vor?
„Það veitégekki en held þó,
að menn gangi að þessu. Ég
tel, að þetta standi betur nú.
Aðeins er samið til áramóta.”
Samningurinn, sem samn-
inganefndir höfðu gert i vor,
var felldur með eins atkvæðis
mun, og af þvi spratt kjara-
deilan, sem nú virðist vera af-
staðin. Fundur verður i
Sjómannafélagi Reykjavikur
klukkan tvö i dag og hefst sið-
an atkvæðagreiðslan, sem
mun staiida til klukkan fimm
næstkomandi þriðjudag.
Verkfallinu, sem átti að hefj-
ast á miðnætti á morgun,
hefur verið frestað til mið-
nættis aðfaranótt miðviku-
dags i næstu viku.
Guðmundur sagði, að samn-
ingurinn gilti frá 1. júni siðast-
liðnum. Sumar hækkanir
kæmu til farmanna fyrr en
ASÍ-samkomulagið segði til
um.
—HH
Happdrœtti
sýningarinnar
Nokkur ruglingur hefur orö-
ið á frásögnum af happdrætt-
isvinningum á Alþjóðlegu
vörusýningunni og er þvi nú
birt yfir þá yfirlit, með núm-
erum.
23. ágúst var vinningshafa
og gesti boðið að dveljast sem
heiðursgestir á Hótel Valhöll
frá föstudegi til sunnudags og
númerið var 7942.
24. ágúst var vinningurinn
að Húsafelli og númerið 15921.
25. ágúst var það skemmti-
sigling með Akraborg fyrir
vinningshafa og 15 gesti og
númerið 18686.
26. ágúst, eöa i gær, var það
svo dvöl á Hótel Húsavik, með
ferðum, fyrir vinningshafa og
gest og númerið var 21481.
I dag fær svo vinningshafi
þriggja daga yfirráð yfir 18
manna langferðabil ásamt bil-
stjóra og má fara með vini og
vandamenn hvert á land sem
er.
Skýrtverður frá númerinu á
morgun.
Gestir á vörusýningur.ni eru
nú komnir yfir 20 þúsund.
—ÓT.
Byggingarnefnd neitar—
ráðherra veitir leyfi
„Okkur berast margar
kærur frá þeim, sem una
ekki úrskurði bygging-
arnefndar, en örfáar af
þeim eru afgreiddar,”
sagði Hallgrimur
Dalberg, ráðuneytis-
stjóri i félagsmálaráðu-
neytinu. Þaðan hefur
nýlega verið afgreitt
bréf, þar sem bygging-
arnefnd er beðin um að
breyta úrskurði sinum.
Húsið, sem þarna er fjallað um,
er að Hjallavegi 8. Húseigendur
fóru fram á að fá að stækka það.
Húsið við hliðina no. 6 hefur að
mati byggingarnefndar óþarflega
mikla lengd samsiða götu. Bygg-
ingarnefnd þótti þvi ástæðulaust,
að lóð nr. 8 færi fram yfir þá
lengd. Þetta eru parhús, sem
yrðu 28,9 metrar að lengd, þegar
húsið á no. 8 hefði verið stækkað.
Byggingarnefnd visaði til þess, að
á lóöinni 14-16 við sömu götu væru
húsin 25 metrar.
Byggingarnefnd telur i bréfi
sinu til félagsmálaráðuneytis, að
samræming húsanna sé mikil-
vægt atriði.
Þá telur hún, að nýtingarhlut-
fall það sem náist með stækkun-
inni, sé of hátt til að þaö fái stað-
ist. Nýtingarhlutfall samkvæmt
" reglugerð um skipulagsáætlanir
gerir ráð fyrir 0,3, en yrði 0,66 á
lóðinni við Hjallaveginn.
Ráðherra ritaði Skipulagsnefnd
áður en hann gaf fyrirmæli sin til
ráöuneytisstjóra. úrskurður fé-
lagsmálaráðuneytisins var siðan
á þá leiö, að byggingarnefnd ætti
að veita umbeðið byggingarleyfi.
Aðalrök ráðuneytisins voru þau,
að ekki væri verið að fara fram á
aö byggja stærra hús að tiltölu en
er á lóðinni Hjallaveg nr. 6.
Hvað viðvék nýtingarhlutfalli
var sýnt fram á, að hlutfallið á lóð
6 og 8 væri svo til nákvæmlega
það sama. Þaðer að segja, ef um-
sókn kæranda næði fram að
ganga. Ráðuneytiö benti á að,
„algengt væri, þegar byggt væri i
eldri hverfum, ef um sambygg-
ingar er að ræöa, að byggingar-
leyfi hafi veriö veitt fyrir bygg-
ingum, sem fara yfir hámarks
nýtingarhlutfall samkvæmt
skipulagi”.
Gunnar Sigurðsson bygginga-
fulltúi sagði, aö byggingarnefnd
áliti, að húsið no. 6 væri þegar of
stórt. Þaö væri þvi ekki heppilegt
að taka mið af þvi. Þá áleit
nefndin, að þegar væri búiö að
byggja fullmikið á lóðinni no. 8.
t bréfi byggingarnefndar til
félagsmálaráðuneytisins kemur
fram, að hún telur að ráöuneytið
sé varla valdbært i þessu máli.
Segir i bréfinu: „Hæpiö er, að
félagsmálaráðuney tiö hafi
nokkurt vald til aö skerða vald
sveitarstjórnar, þegar þannig
stendur á. Er þá litiö orðiö eftir af
sjálfstæði sveitarfélaga i þessum
málum.”
—BA
KRÓNAN HELDUR SÍNU
Krónan hefur i aðalatriðum
haldið sinu, siðan gengið var
fellt 14. febrúar. Gengi hefur
kannski lækkað litiliega, vegna
þess að Bandarikjadollar hefur
hækkaö talsvert, en gagnvart
öðrum helztu erlendu myntum
hefur krónan hækkað. „Gengis-
sigið” er kannski 1-2 prósent að
meðaltali, vegna þess hve doll-
arinn vegur þungt I viðskiptum,
en þetta er hverfandi lítil breyt-
ing.
Dollarinn hefur geystst
áfram, siðan gengi krónunnar
féll. Hann var skráður á 149,20
krónur fyrst eftir gengisfelling-
una, en var i morgun kominn
upp I 160,50 krónur. Hins vegar
hefur krónan hækkað gagnvart
pundi, danskri krónu, sænskri
krónu, vestur-þýzku marki og
svissneskum franka, svo að
helztu myntir séu nefndar.
Þannig var gengi pundsins
fyrst eftir gengisfellinguna
356,60 krónur, en var i morgun
komið niður i 337,10. Dönsk
króna var skráð á riflega 26,91
krónu 14. febrúar, en nú á rif-
lega 26,75 krónur, svo að sú
danska er ódýrari. Sama gildir
um sænsku krónuna, sem var á
rúmlega 37,51 íslenzka krónu 14.
febrúar en i morgun á tæplega
36,77 krónur.
Vestur-þýzkt mark hefur
einnig lækkað gagnvart islenzku
krónunni. Það kostaði eftir
gengisfellinguna rúmlega 64,24
islenzkar en i morgun var það
komið niður i tæplega 62 krónur.
Svissneski frankinn hefur fallið
gagnvart islenzkri krónu úr
tæplega 60,56 kr. i 59,68 krónur.
—HH
Margar pipur þarf að sjóða saman áður en heita vatnið getur streymt inn til Hafn-
firðinga. Maðurinn hér á myndinni var að logsjóða ofarlega við Hringbrautina í
Hafnarfirði. Ljósm: JIM. __Sjá bls. 3.