Vísir - 29.08.1975, Blaðsíða 11
10
Visir. Föstudagur 29. ágúst 1975
Vísir. Föstudagur 29. ágúst 1975
11
Jóhannes Eövaldsson verður i hinum fræga þverröndótta búning Celtic
á móti Rangers á morgun. Búizt er viö, aö um 100 þúsund manns horfi á
þann leik og milljónir i sjónvarpi.
Coca Cola-mótið í körfuknattleik:
Ármann vann enska
liðið - og komst áfram
Ármenningar mörðu sigur gegn
enska liðinu Staines í Coca Coia-
hraðkeppnismótinu i körfuknatt-
leik i gærkvöldi. Þeir sigruðu að-
eins með þriggja stiga mun og
komust þar með i undanúrslit,
sem fara fram i kvöld.
islandsmeistarar ÍR steinlágu
aftur á móti fyrir KR og sömu-
leiðis tapaði ÍS fyrir Vai og Fram
fyrir Njarðvik. (Jrslit leikjanna i
gærkvöldi urðu annars þessi:
Valur—ÍS 77:70
Njarðvik—Fram 52:40
KR—ÍR 61:52
Ármann—Staines 67:64
i undanúrslitunum, sem hefjast
kl. 19.30 i kvöld, mætast þessi lið:
Valur—Njarðvík, KA—Ármann.
Sigurvegararnir i þessum leikj-
um mætast sfðan
um, sem verður
kvöldsins.
i úrslitaleikn-
siðasti leikur
—klp—
Rússarnir afgreiddu
Norðmenn á 2 mínútum
Möguleikar ísiands og Noregs í undankeppni olympíuleikanna í knattspyrnu
heldur litlir eftir 3:1 sigur Rússa í Osló í gœrkvöldi
Norðmenn áttu litla
möguleika, þegar þeir
mættu rússneska landslið-
inu i knattspyrnu á Ulle-
vaal leikvanginum í Osló í
gærkvöldi. Rússarnir unnu
leikinn 3:1 og skoruðu tveir
nýliðar í liðinu mörk
þeirra.
Leikurinn var fyrri leikur þjóð-
anna i undankeppninni fyrir
Olympiuleikana i Kanada á næsta
ári, og eru Rússarnir nú svo gott
sem búnir að tryggja sér sigur i
riðlinum. Þeir eiga eftir tvo leiki
— báða heima, gegn Islandi og
Noregi. Þurfa þeir tvö stig úr
þessum leikjum til að sigra í riðl-
inum.
Norðmenn voru strax slegnir út
af laginu i gærkvöldi, þvi að
Rússarnir skoruðu tvö mörk á
tveim minútum i upphafi leiksins.
Fyrst Vladimir Sakharov (Mosk-
ow Torpedo) á 5. min. og svo
Vladimir Fedorov (Pakhtakor
Tashkent) á 6. min.
Norðmönnum tókst að mjnnka
muninn, þegar Helge Skuseth
skoraði á 13. mfn, en mörkin tvö
höfðu greinilega sett norska liðið
„Það snýst hér allt um
##
leik Celtic og Rangers
— segir Jóhannes Eðvaldsson — Fœ kannski að fara með
landsliðinu til Belgíu ef okkur vegnar vel á morgun
„Það er ekki neitt ákveðið um
það, hvort ég fæ frí til að leika
báða landsleikina með landslið-
inu i næstu viku, en maður vonar
það bezta”, sagði Jóhannes Eð-
valdsson, er við höfðum samband
við hann i Glasgow f morgun, til
að spyrja hann, hvort eitthvað
nýtt væri komið fram i sambandi
við leyfi hans til að leika með þvi i
Belgiu i næstu viku.
„Það fer allt eftir þvi hvernig
okkur vegnar i landsleiknum á
móti Frökkum á miðvikudaginn,
og hvernig Celtic vegnar á móti
Rangers i fyrsta leiknum i deild-
arkeppninni á morgun.
Ef okkur vegnar vel i þeim leik
og islenzka Iiðið sigrar eða nær
jafntefli i Frakklandi, eru miklar
likur á að ég fái að vera með i
leiknum á móti Belgiu. Ég hef
ekki heyrt þetta frá æðstu stöð-
um, en það er mikið talað um
þetta hér i Glasgow.
Annars er það ekki aðalum-
ræðuefnið hér þessa dagana,
heldur leikur Celtic og Rangers á
morgun. Það snýst bókstaflega
allt um hann. Það er búið að selja
um 80 þúsund miða á leikinn eftir
þvi sem blöðin segja og mikil
stemmning meðal fólksins.
Ég skrapp i bió hér i gærkvöldi
I Bomma er þungt i skapi skapi, er að
| siðasta landsleiknum kemur.
J
M
M lö
I
og þar varð ég vitni að þessum rig
á milli Celtic og Rangers, sem
maður hefur svo oft heyrt talað
um. Það sátu tveir menn fyrir
framan mig og þeir rifust nær all-
an timann út af leiknum. Endaði
þetta meðþvi, aðþeir voru skildir
að og settir i sinn i hvort hornið á:
húsinu.
Það er alveg ótrúlegt hvað
mikið er skrifað og talað um
þennan leik — það er sama hvar
maður kemur — umræðuefnið er
ekkert annað. Ég hlakka mikið til
að vera með i honum, en búið er
að tilkynna, að ég verði i liðínu.
Annars er lika spenningur i
manni fyrir leikinn við Frakka,
og hlakka ég mikið til að hitta
strákana og leika með þeim....
En hvað er þetta annars með
Tony Knapp? Er það rétt, sem
maður er að heyra að heiman ,
að hann fái ekki að fara utan með
landsliðinu? Ef svo er þá þykja
mér það heldur slæmar fréttir,
þvi hann er einn mikilvægasti
hlekkurinn i liðinu”.
—klp—
út af laginu og það náði sér aldrei
á strik.
Rússarnir bættu svo þriðja
markinu'við strax i upphafi seinni
hálfleiks, eftir að þeir höfðu sett
upp mikinn hraða og tætt norsku
vörnina i sundur. Markið gerði
Sakharov. Var það hans annað
mark i leiknum, en hann og Fedo-
rov léku ekki með liðinu hér á
landi.
Staðan i riðlinum er nú þessi:
Sovétrikin 2 2 0 0 5:1 4
Noregur ‘3 1 1 1 5:6 3
Island 3 0 1 2 3:6 1
FH komst
inn,
FH-ingar anda léttar þessa
dagana, þvi að þeir hafa verið
samþykktir i Evrópukeppni
bikarmeistara i handknatt-
leik, þó að þátttökutilkynning
þeirra i keppnina hafi ekki
borizt á réttum tima.
Stjórn HSt hefur nú fengið
það staðfest, að FH hafi
sloppið” inn og dregið verði i
keppninni 25. október nk.
Þátttökuliðin verða 16.
MÆTAST ÞAU A
MIÐRI LEIÐ?
Ákveðið er, að úrslitaleikurinn i
4. flokki tslandsmótsins i knatt-
spyrnu fari fram á sunnudaginn
— ef samkomulag verður um
leikvöll.
Akureyringarnir vilja fá leikinn
norður til Akureyrar, þar sem
annað liðið í úrsiitunum — KA —
er þaðan, en hitt iiðið — Breiða-
blik — vill ekki sætta sig við það.
Mótanefnd KSt kemur saman i
dag til að ákveða, hvar leikurinn
verði, og verður liklega samþykkt
málamiðlun þ.e.a.s., að leikurinn
fari fram á svo til miðri leið, eða á
Sauðárkróki.
AUGLYSING UM
AFGREIÐSLUTÍMA
MATVÖRUYERZLANA
í REYKJAVÍK
OG NÁGRENNI
Verzlanir vorar verða áfram
lokaðar á laugardögum,
og gildir þessi ákvörðun
til októberloka.
FÉLAG MATVÖRUKAUPMANNA
FÉLAG KJÖTVERZLANA
KAUPGARÐUR
VÖRUMARKAÐURINN
HAGKAUP
MJÓLKURSAMSALAN í REYKJAVÍK
JÖRUNDUR ÞORSTEINSSON
DÓMARAHORNIÐ
Varamaður, sem staddur er
fyrir utan leikvanginn, kallar
dómarann öllum illum nöfnum og
bölvar honum i sand og ösku.
Hvað á dómarinn að dæma?
A.... Ekki neitt. B....... Bóka
hann. C.... Bóka hann og útiloka
hann frá að taka þátt i leiknum.
Svar: Hér á að dæma eins og
varamaðurinn væri leikmaður á
vellinum og refsa samkvæmt C-
lið .. eða bóka hann og útiloka
hann frá þátttöku í leiknum.
Einvígi á Selfossi í kvöld
Þar mœtast Breiðablik og Selfoss
og um leið markakóngarnir í 2. deild
KHFFIfl
ffrá Brasiliu
mikinn hug á að fara upp næsta ár og
ætla sér að sanna, að þeir eigi heima
þar með þvi að sigra Blikana i kvöld.
Búast má við, að mikið einvígi verði
háð á milli þeirra Sumarliða Guð-
bjartssonar og Hinriks Þórhallssonar
um markakóngstitilinn I deildinni i
þessum leik. Þeir hafa báðir skorað 13
mörk I 13 leikjum i sumar og má fast-
lega gera ráð fyrir, að þeir leggi hart
að sér til að bæta við þá tölu i þessum
siðasta leik sinum á sumrinu.
—klp—
w • #
Fjorir i
bann!
Aganefnd Knattspyrnusam-
bands Islands dæmdi i gær-
kvöldi fjóra leikmenn i keppnis-
bann, og mega þeir þvi ekki
leika með liðum sinum um
þessa helgi. Þrir af þessum
mönnum eru leikmenn úr 1.
deildarliðum en sá fjórði úr 3.
deild.
Leikmennirnir eru þessir:
Teitur Þörðarson, Akranesi,
Einar Gunnarsson, Keflavik,
Friðfinnur Finnbogason, ÍBV
Jóhann Jakobsson, KA
Þrem þeim fyrst töldu var
visað af leikvelli í leikjum um
siðustu helgi og I þessari viku,
og fá þeir allir einn leik i
keppnisbann en Jóhann var
kominn með þrjár bókanir....
„gula spjaldið” og fékk því
sama skammt og hinir.
Fær hann þvi ekki að vera
með KA i leiknum við Fylki I
kvöld — Friöfinnur ekki með
ÍBV á móti KR á morgun og þeir
Einar og Teitur ekki með sinum
liðum i leiknum á Akranesi á
morgun. —klp—
Strákarnir
Sumarliði Guðbjartsson hefur skorað 13
mörk i 2. deildinni i sumar. Hann og
Hinrik Þórhallsson Breiðablik heyja þvi
einvigi um markakóngstitilinn i 2. deild
á Selfossi i kvöld.
Siðasti leikur Breiðabliks og Selfoss
i 2. deild islandsmótsins i knattspyrnu
á að fara fram á Seifossvellinum i
kvöld. Þessi leikur átti samkvæmt
skránni að fara fram á morgun, en lið-
in komust aðsamkomulagi um að hafa
hann i kvöld og byrja kl. 19.00.
Blikarnir kveðja 2. deildina með
þessum leik — þeir hafa þegar tryggt
sér sæti i 1. deild næsta ár, og þar hafa
þeir ákveðið að vera næstu árin.
Selfyssingarnir verða að sætta sig
við að vera áfram i 2. deild, en hafa
Þaö varoft mikiðum að vera við mörkin á gamla Melavellinum I gærkvöldi, þegar Fylkir og Stjarnan mættust þar i
aukaúrslitaleiknum i öðrum riölinum I 3. deild. Hér er það Stjarnan — i hvitu buxunum — sem sækir að marki Fylkis,
en án árangurs. Ljósmynd Bj.Bj....
Fylkir fer norður með
2 stig í pokahorninu
Sigraði Stjörnuna 2:0 í aukaúrslitunum í 3. deild í gœrkvöldi
og mœtir KA á Árskógsströnd í kvöld — Akureyrardómari á
leikina fyrir norðan þrátt fyrir mótmœli Sunnlendinganna
,,Það er ágætt að leggja af
stað i ferðina norður með tvö
stig i pokahorninu, ” sagði
"heodór Guðmundsson,
ijálfariFylkis, eftir 2:0 sigur
rylkis yfir Stjörnunni úr
Garðahreppi i aukaúrslitun-
um i öðrum riðlinum i 3. deild
Melavellinum i gærkvöldi.
,Okkur hefur alltaf gengið illa með
tókst nú að ná sigri, og það
gott veganesti í leikinn við KA, sem á
að fara fram á Árskógsstrandarvellin-
um á morgun.”
Fylkir skoraði bæði sin mörk i fyrri
hálfleik, og voru það gamalkunnir
knattspyrnukappar, sem þau gerðu.
Ólafur Brynjólfsson, sem áður lék með
Þrótti, skoraði fýrra markið, en Jón
Sigurðsson, sem lengi lék með KR, það
siðara.
Fylkir hafði nokkra yfirburði I fyrri
hálfleik. En I þeim siðari sóttu leikmenn
Stjörnunnar I sig veðrið — en tókst ekki
að skora hjá Arbæingunum.
Fylkir og KA mætast á Árskógs-
strandarvelli I kvöld, en Stjarnan og KA
leika þar á morgun kl. 14.00. Þessi lið
urðu jöfn að stigum I úrslitakeppninni
um slðustu helgi — en þá tryggði Þór frá
Akureyri sér sigur i hinum riðlinum.
Akveðið var að hafa tvo af leikjunum
fyrirnorðan — samkvæmt ósk frá Akur-
eyringum, sem eindregin var studd af
Ellert B. Schram, formanni KSl.
Bæði Stjarna og Fylkir samþykktu
það, en voru aftur á móti minna hrifin,
þegar þeim var tilkynnt, að millirikja-
dómarinn frá Akureyri, Rafn Hjaltalin,
ætti að dæma leikina. Óskuðu þau eftir
þvi, að annar dómari en frá Akureyri
yrði fenginn i starfið — sjálfsagt óttazt,
að hann yrði Akureyringunum hagstæð-
ur —enþeirriósk var hafnað af dómara-
nefnd KSI, og mun Rafn þvl dæma báða
leikina.
vel í
Fœreyjum
Islenzka unglingalandsliðið i
knattspyrnu sigraði það færeyska
i landsleik i Þórshöfn i Færeyjum
I fyrrakvöld með þrem mörkum
gegn einu i bráðskemmtilegum
og fjörugum leik.
Færeyingarnir tefldu þarna
fram einu bezta unglingalands-
liði, sem þeir hafa átt, og þurftu
Islenzku piltarnir að taka veru-
lega á til að ná sigri.
Þeir komustl 2:0 i fyrri hálfleik
— Pétur Ormslev, Fram og Þor-
valdur 1. Þorvaldsson, Þrótti.
Færeyingarnir jöfnuðu i 2:1 við
mikinn fögnuð hinna 1300 áhorf-
enda, sem tóku þátt i leiknum af
lifi og sál.
Við markið efldust Færeying-
arnir um helming og máttu Is-
lendingarnir hafa sig alla við til
að halda forystunni. Loks tókst
þeim að auka hana aftur i tvö
mörk og var þar að verki Pétur
Ormslev, sem einlék upp allan
völlinn og renndi siðan knettinum
fram hjá færeyska markverðin-
um. —klp—