Tíminn - 22.09.1966, Síða 7

Tíminn - 22.09.1966, Síða 7
FIMMTUDAGUR 32. september 1966 TÍMINN Áttræður í dag: ÞORSTEINN THORLACÍUS fyrrverandi prentsmiðjustjóri Þorsteinn Thorlacius, fyrrv. forstjóri Edduprentsmiðju er átt- ræður í dag. Hann er nú í ferða- lagi suður á Spáni. Þorsteinn er fæddur að Hólum í Eyjafirði 22. september 1866. Hann gekk í Hið íslenzka prentarafélag á afmælis degi sínum árið 1913. Prentnám hóf Þorsteinn hjá Bimi Jóns- syni á Akureyri 1906. Var hand- setjari í Prentverki Odds Björns- sonar 1910 og fram á árið 1911, er hann fluttist til Reykjavíkur í atvinnuleit, og gerðist þar hand- setjari árin 1913—1914, vélsetjari 1914—1918 (lærði fyrstur vqlsetn- ingu hérlendis hjá Jakobi Kristj- ánssyni í prentsmiðjunni Rún. Annar í röðinni að læra vélsetn ingu var Ólafur Sveinsspn. Óslitið vann Jmrsteinn þó ekki að vélsetningu þessi ár, því að ár- ið 1916 veiktist hann og varð að dveljast á Vifiistaðahæli í 7 mán uði. Vorið 1917 brá Þorsteinn sér norður til Akureyrar en kom aftur til Reykjavíkur 1918 og fór að starfa í Eélagsprentsmiðjunni, en þar eð harni komst að raun um, Etð heilsa hans var ekki góð og eig inleg prentetörf mundu ekki henta j til langframa, fluttist hann aftur ; til Akureyrar sama ár og gerðist þá bökhál<iari hjá klæðaverksmiðj u-nni Gefjun. Þann starfa hafði hann á hendi fram til ársins 1935. Þá, hafði, hann sett á stofn bóka- verzíun a Akureyri og hafði á boð- stólum aðallega útlendar bækur. Aafk þess hafði hann vitanlega fjölmargt annað á boðstólum, sem tilheyrði slífcri verzlun. Auk þessa tók hann mjög virkan þátt í felagslífi Akureyrarbæjar á þess um árum, þar á meðal söngstarf- semi. Hann var um árabil félagi söngfélagsins Ileklu, (stjórnandi Magnús Einarsson). Það var fyrsti íslenzki kórinn, sem fór söngför til Norðurlanda. Síðar varð hann meðstjórnandi söngfél. Geysis. Árið 1935 keypti Þorsteinn Bókaverzlun Þorsteins M. Jóns- sonar á Akureyri og rak hana fram til ársins 1947, að hann flutt ist alfarinn til Reykjavíkur og tók að sér forstjórastarf Edduprent- smiðju. Meðan Þorsteinn dvaldist á Ak ureyri, tók hann þátt í skáklífi bæjarins um langt árabil, enda er hann ágætur taflmaður. Hann hef ur yndi af að tefla og spila, og er með afbrigðum skemmtilegur og fjörugur félagi í glaðværum kunn ingjahópi. Nokkuð. fékkst Þorsteinn við að BÆNDUR - BÆNDUR y mála á yngri árum bæði með vatns- og olíulitum. Prýða þær myndir allvíða heimili manna. Þann tíma, sem Þorsteinn dvald ist á Vífilsstöðum, fór hann sér til afþreyingar að fást við að semja smásögur. Við hin erilsömu störf á lífsleiðinni, hefur hann orðið að leggja þá listgrein, til hliðar. Á fyrra hluta ævinnar, meðan hann dvaldist í Reykjavík, var hann m.a. félagi í Lúðrasveitinni Hörpu, sem stjórnað var af Þór halli Árnasyni. Af stofnendum Hörpu eru enn þrír á lífi, auk ÞorsteinS, þeir Stefán Guðnason, skósmiður, Einar Þórðarson skó smiður, og Guðm. Kr. Guð- mundsson. Þau ár,1 sem Þorsteinn stjórn- aði Edduprentsmiðju var ætíð hin bezta vinátta með okkur. Höf- um við átt saman margar ánægju legar stundir. Enda þótt Þor- steinn hafi ekki ávallt hin síðari ár gengið heill til starfs, hefur það þó ekki aftrað því, að jafnan hef ur hann verið glaður í lund og gamansamur í orðum. Kona hans er Björg Þorleifsdótt- ir, bónda og alþingismanns að Hól um í Hornafirði. Eftir að Þorsteinn lét af for- stórastarfi Edduprentsmiðju fyrir aldurs s»kir, hefur hann unnið að margvíslegum störfum, aðallega bókhaldi og þess á milli ferðazt töluvert. Hann er vel ern og hvers manns hugljúfi sem jafnan fyrr. Ég þakka þeim hjónum prýði leg kynni, óska þeim velfarnaðar á ókomnum árum og mun ávallt minnast þeirra með hlýju og vel- vild. Jón Þórðarson. TROLOFUNARHRINGAR Fljót afgreiSsla. Sendum gegn póstkröfu GuSm. Þorsteinsson, gullsmiður. Bankastræti 12. Opnum hina nýju kjörbúð vora að Laugateigi 24 i dag fimmtudag 22. sept. & N - Kjörbúð Laugateigi 24 Norsku NAUMA-mykjudreifararnir fyrirliggjandi. VerS aðeins kr. 19.610,00. Gjörið svo vel og sendiS panfanir yðar sem fyrst. LÁGMÚLA 5 — SÍMI 11-555. ■ý. JÖRD í Barðastrandar-, ísafjarðar- eða Múlasýslum ósk- ast til kaups. Má vera eyðijörð. Upplýsingar með verðtilboði merkt „Jarðeign“, sendist í PO BOX 415. ARMSHRONG höggdeyfar fyrir flestar bílategundir nýkomnir. BSLABÚÐIN h.f. HVERFISGOTU 54. Sinfóníuhljómsveit íslands Ríkisútvárpið SU N N U DAGSTÓN LEIKAR Haldnir verða í vetur 6 tónleikar, þar sem flutt verður tónlist af léttara tagi. Hinir fyrstu verða í Háskólabíói sunnudaginn 2. október kl. 15. Stjórnandi: Bohdan Wodiczko. Flutt verða m. a. Lundúnasvítan eftir Eric Coates, Negi’asálmar eftir Morton Gould, Konsert fyrir jazz- og sinfóníuhljómsveit og „Improvisatións“ fyrir jazz- og sinfóníuhljómsveit. Áskriftarskírteini, sem gilda að öllum tónleikunum eru seldir í Ríkisútvarpipu, Skúlagötp 4, 4. hæð. Aðgöngumiðar að einstökum tónleikum verða seld- ir í bókabúðum Lárusar Blöndal, Skólavörðustíg og Vesturveri, og í bókaverzlun Sigfúsar Eymunds- ■sonar, Austurstræti. !

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.