Tíminn - 22.09.1966, Qupperneq 13

Tíminn - 22.09.1966, Qupperneq 13
ÍÞRÓTTIR ÍTMMTUDAGUR 22. september 1966 TÍMINN 13 iiíí Sigurvegarar í íslandsmóti 5. flokks ÚRSLITALEiKURINN í 1. DEILD A SUNNUDAGINN leikur KR og Akraness sama dag Alf-Reykjavík. — Ákveðið hef ur verið, að úrslitaleikurinn í 1. deild milli Vals og Keflavíkur fari fram á IAugardalsvellinum n.k. sunnudag og hefjist kl. 16.15. Þennan sama dag mætast KR og Akranes í bikarleik á Melavellin- um og hefst leikurinn klukkan 13.45. Mótanefnd KSÍ býður sem sé upp á tvo stórleiki sama dag. Beðið er með talsverðri eftir- væntingu eftir leik Vals og Kefla vikur. Keflvíkingar hafa verið i mikilli sókn síðari hluta keppnis- tímabilsins, en Vals-liðið virðist aftur á móti hafa slakað á eftir ágæta byrjun. En bæði liðin hafa æft af kappi síðustu daga, og er ekki að efa, að leikur þeirra á sunnudaginn verði spennandi. Framhald á bls. 15. Ársþing FRÍ háð 12. og 13. nóv. Ársþing FRÍ 1966 verður hald- ið dagana 12. og 13. nóvember n.k. í Reykjavík. Málefni, sem sambandsaðilar óská að tekin verði fyrir á þing- inu skulu tilkynnt stjóm FRÍ minnst 2 vikum fyrir þing. Dag« skrá þingsins er samkvæmt lögum FRÍ Fram varð sigurvegari í íslands- móti 5. flokks í knattspyrnu eft- ir harða baráttu gegn FH. Þurftu íliðín að leika þrjá leiki áður úrslit fengust, en í þriðja leikn- um sigraði Fram með 2:1. Mynd- in hér að ofan er af sigurvegur- um Fram. Fremri röð frá vinstri: Árni Grétarsson, Birgir Sveinsson, Sveinbjöm Egilsson, Hlöðver Rafnsson, Sigurjón Ólafsson og Bjarni Jónsson. Aftari röð: Sig- hvatur Magnússon, Björn Arnar- son, Kristinn Guðlaugsson, Guð- mundur Amarson, SiSurður Svav- arsson, Ólafur Jóhannsson, Berg- steinn Gunnarsson og Finnbjörn Hermannsson. Svíinn sigraði örugg- lega í sínum greinum Slgurvegarar í íslandsmóti 2. flokks Keflvikingar urðu sigurvegarar í 2. flokki í íslandsmótinu í knatt- spymu. Sigruðu Val í úrslitaleik 3:2. Myndin hér að ofan er af liði Keflvíkinga í 2. flokki ásamt þjálfaranum, Reyni Karlssyni til hægri og Hafsteini Guðmundssyni, formanni ÍBK, til vinstri. Frammi slaða Keflvíkinganna í mótinu'var mjög góð, því þeir unnu alla leiki sína og skoruðu 18 mörk gegn 6. Sigurvegarar í íslandsmóti 3. flokks Fram varð sigurvegari í íslands- móti 3. flokks, sigraði Keflavík í úrslitaleik með 2:1 eftir framleng- ingu. Fram-liði5 hetur staðið sig með ágætum í sumar og ekki tap að leik. Á myndinni eru, neðri röð frá vinstri: Stefán Eggertsson, Marteinn Geirsson, Sturla Þor- steinsson, Rúnar Vilhjálmsson, Ag úst Guðmundsson, Einar Matthías son og þjálfarinn, Jóhannes Atla- son. Aftari röð: Birgir Sigurbjörns son, Eyjólfur BerSþórsson, Ingvar Bjarnason, Snorri Hauksson og Jón Pétursson. Sænski sundkappinn InSvar Er- iksson var þátttakandi í sundmóti, sem fram fór í Sundhöll Reykja- víkur í fyrrakvöld. Erikson er meðal beztu skriðsunds- og flug- sundsmanna Evrópu, og náði góð- um árángri á nýafstöðu Evrópu- meistáramótijí IloIIatidi. Erikson keppti í tveimur grein- um á mótinu í fyrrakvöld, 100 m. skriðsundi og 100 metra flugsundi. Og eins og vænta mátti, varð hann sigurvegari í báðum greinunum. Hann sigraði í skriðsundinu á 5'5,8 sek — yfirburðasigurvegari, því næsti maöur, Davíð Valgarðs- son synti vegalengdina á 59,0 sek. Guðmundur Gíslason varð þriðji Nýr golfvöll- ur á Akureyri Sl. laugardag hófust framkvæmd ir við nýjan golfvöll á Akureyri, á vegum Golfklúbbs Akureyrar. Verður hinn nýi golfvöllur við Jaðar, sem er ofan við Akureyri. Páll Halldórsson, form. GA, hélt stutta ræðu við þetta tækifæri, en síðan tók Helgi Skúlason augn- llæknir fyrstu skóflustunguna. á 59,6 sek. og Guðmundur Harð- arson varð fjórði með sama tíma. Fraimihald á bls. 15. Tugþrautað Laugarvatni Skarphéðinsmótið í tugþraut og fimmtarþraut kvenna fór fram að Laugarvatni 18. og 19. september. Árangur var góður, þrátt fyrir að kalsaveður og regnþungar brautir gerði keppendum keppnina erfiða fyrir. Skarphéðinsmetið í tugþraut á Ólafur Unnsteinsson 5601 stig og Ragnheiður Pálsdóttir í fimmtar- þraut 3101 stig. ÚRSLIT: Tugþraut. stig. Guðmundur Jónsson Self. 5076 Ólafur Unnsteinsson Ölf. 5036 Sigurður Jónsson Self. 4726 Bergþór Halldórsson Vöku 4611 Sigurður Sveinsson Self. 3200 Fimmtarþraut. Ólöf Halldórsdóttir Vöku 3000 Sigurlína Guðmundsd. Self. 2818 Unnur Stefánsdóttir Samh. 2731 Svanborg Siggeirsd. Samh 2186 Æfíngatími kost- ar 400 krónur Alf.-Reykjavík. — Ákveðið hefur verið, að nýta íþrótta- höllina í Laugardal til fulln- ustu fyrir íþróttastarfsemi á n.k'. vetri, og gefst nú félög- um kostur á að fá æfingatíma leigða. f því sambandi hefur' íþróttafélögunum í Reykiavík verið sent bréf og þeim gef- inn kostur á að sækja um æf ingatíma. Verð æfingatímanna hefur verið ákveðið kr. 400 — og er það helmingi dýrari leiga en í öðrum íþróttahúsum borg- arinnar, en taka verður tillit til þess, að salurinn í Laugar- tíal er helmingi stærri og ætti því að Vera hægt að skipta hon um til helminga, þannig að tveir æfingavellir fengjust. Ekki mun enn vera ákveðið hvaða íþróttamót verða látin fara fram í íþróttahöllinni, en talið er víst, að 1. deildar keppnin bæði í handknattleik og körfuknattleik fari þar fram.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.