Tíminn - 25.09.1966, Blaðsíða 12
n
TÍMINN
SUNNUDAGUR 25. september 1966
II! i í
fttugur á morgun
■
■
Arni Jónasson
bústjóri, SKógum
Flmmtugur verður á morgun
Árni Jónasson bústjóri í Skógum
undir Eyjafjðllum. Ámi er Þing-
eyingur að ætt og uppruna, frá
Grænavatni í Mývatnssveit. Frá
1945 hefur hann verið bústjóri í
Skógum. Rangæingar og Skaft-
fellingar reka í sameiningu bú-
nkap á jörðinni Ytri-Skógum, er
þeim á sínum tíma var gefin
undir héraðsskóla. Var það mikið
lán fyrir sýslufélögin að fá svo
mætan og dugandi mann til for-
stöðu skólabúsins sem Árna Jón
asson.
Árni hefur rekið Skógabúið með
miklum myndarskap, gert stór-
felldar ræktunarframkvæmdir og
reist flest hús jarðarinnar frá
grunni. Einnig hefur hann starf-
að ötullega og fjölmörgum fé-
lags- og framfaramálum. Hann
hefur lengi átt sæti í hrepps-
nefnd Austur-Eyjafjallahrepps og
haft heilladrjúg afskipti af
málefnum bænda á vegum bún-
aðar- og stéttarsamtaka. Störi
hans í þágu hinnar stór-
merku ræktunar á Skógasandi
munu seint ofmetin og svo mun
um fleira.
ÞÁTTUR kirkjunnar
Framhald af bls. 7.
T>ess vegna: Burt með börn-
in af götunni. Bannið börnum
innan tvítugs að aka bílum og
dráttarvélum. Afnemið strax
lagaheimild og undirbúning að
hægri handarakstri á íslandi.
Hættið að selja áfengi nema í
örfáum og smáum skömmtum
sérfróðra manna um eiturverk-
anir. Verndið börnin gegn ógn-
um tóbaksins, sem bráðum legg
Sjónvarpstæki
Útvarpstæki
Segulbandstæki
Plötuspilarar
Tækin eru byggð fyrir hin
erfiðu móttökuskilyrði Nor
egs — því sérstaklega næm
/
ÁRS ábyrgð
RADIONETTE-
verzlunin
Aðalstræti 18. Sími 16995
Kvæntur er Árni Jóhönnu Ingv
arsdóttur og eiga þau tvo upp
komna syni.
Á þessum merka afmælisdegi
munu vissulega margir hugsa
hlýtt til Árna Jónassonar og óska
honum allra heilla og velfarnað
ar í lengd og bráð.
J.
ur undir sig kirkjurnar, hvað
þá félagsheimilin.
Stofnið sjóði, líknarsjóði og
samtök til að koma veikum
börnum og fólki til sérfræðinga
hvar sem eru í heiminum, ef
þeir geta hjálpað, svo að ekki
verði foreldrar öreigar þess
vegna.
Og vinnið svo með ráðnum
huga, dáð og djörfung gegn
styrjöldum, hvort sem það eru
hatrammar deilur hjónaskiin-
aðanna, eða helvíti sprengju-
regns í Vietnam eða fjötrar
kynþáttahaturs í Afríku.
Gangið fram til að hugga og
líkna, og efla mátt orða Krists,
er hann sagði við hina sorg-
mæddu á vegi sínum:
„Vertu ekki hræddur: „Grát
þú eigi.“ „Þinn sonur lifir.“
Þessar stuttu setningar hans
skapa enn frið og fögnuð í
mannheiminum, hvar sem þær
og kraftur þeirra fær að njóta
sín í Jesú nafni. Þá fækkar slys
um og tái'um.
Árelíus Nielsson.
MENN OG MALEFNI
þessum málflutningi Morgun-
blaðsins.
Svona málflutningur og áform
hljóta að verða þjóðhollum ísl.
hvatning til andófs gegn
uiönnum með slíkar skoðanir og
áskorun um átök og stuðning við
þau öfl, sem á íslenzkum fyrir-
tækjum og íslenzku framtaki
vilja byggja. Sterkasti þátturinn
i lífsviðhorfum þeirra manna,
sem mest hafa mótað íslenzka
stjórnmálabaráttu og mestu hafa
ráðið um uppbyggingu atvinnu-
lífs í höndum íslendinga sjálfra
hefur verið ættjarðarástin, þjóð-
erniskennding. Blóðið hefur jafn
an runnið til þeirrar helgustu
skyldu að standa vörð um þjóð-
ernið, menningarlegt og efna-
legt sjálfstæði íslenzku þjóðar-
innar. Það er annað að eiga eðli-
leg og náin samskipti og sam-
vinnu vjð aðrar þjóðir og þá
innan þeirra marka að það þjóni
hagsmunum okkar sem sjálf-
stæðrar þjóðar, en gefast upp
og leggja okkar ráð öll í hend-
ur hinni alþjóðlegu auðhyggju,
því missum við úrslitatökin á
atvinnumálum okkar er nær víst,
að menningarlegt sjálfstæði fer
forgörðum líka. Það er óþarfi
að nefna fleiri dæmi um þær
hættur, sem munu steðja að okk
ur á þessu sviði, ef þeir'menn,
sem nú ráða, fá ráðið öllu leng-
ur. Þær kosningar, sem fram
fara að vori geta því orðið ör-
lagaríkar. Verði úrtölumennirn
ir ofan á er ekki unnt að segja
í hvaða fjötra þeir hafa vafið
þjóðina, er hún næst fengi að
kveða upp dóm sinn.
SLÁTRUN
Framhald af bls. 1.
sagði slátrun hafa hafizt á mánu-
daginn og væri féð með vænsta
móti. T.d. hefði meðalvigt dilka
frá Góustöðum í Eyrarhreppi ver
ið 16—17 kg. Saknaði hann þess
að fá ekki nýtt kjöt, en kvað það
líklega verða selt á morgun, í búð
um.
★ Fréttaritari Tímans á Vopna
firði kvað slátrun ganga vel og
sagði að féð væri vel í meðallagi.
Víðast hefði heyjazt vel í sumar.
★ Fréttaritari Tímans í Stykk
ishólmi sagði að slátrað yrði 3—
4000 fjár hjá Kaupfélaginu. Væru
dilkarnir með alrýrasta móti og
heyin í minna lagi. Kvað hann
nokkra bændur selja kúastofn
sinn og snúa sér að sauðfjárrækt-
inni.
★ Fréttaritari Timans á Blöndu-
ósi sagði, að slátrun þar hefði haf
izt 8. september og gengi hún að
óskum. Væri búið að slátra um 15
þúsund fjár en alls væri áætlað að
slátra 44 þúsundum, sem væri
6 þúsundum fleira en í fyrra.
Væri meðalvigtin svipuð og í
fyrra, eða tæp 14 kg. Búizt væri
við mikilli stórgripaslátrun, sem
hefjast myndi að sauðfjárslátr-
uninni lokinni. Myndi sú slátr
un að líkindum standa fram í
miðjan nóvember. Kvað fréttarit
arinn heyfeng bænda minni en
í meðalárferði.
★ Fréttaritari Timans í Þing-
vallasveit kvað féð heldur rýrt,
einkum tvílembingana. Heyfeng
ur væri með minna móti, en hefði
á hinn bóginn verkazt vel. Yrði
svipað magn sett á eins og und
anfarin ár.
★ Fréttaritari Tímans í Gaul-
verjabæ kvað féð vera misjafnt
þó kvað hann það heldur í lak
ara lagi. Hann taldi, að bændur
myndu yfirleitt ekki setja eins mik
ið á og undanfarin ár. Einnig tók
fréttaritarinn fram, að nautgripa-
slátrun yrði með meira móti.
SMITH C0R0NA
SKÓLARITVÉLARNAR
eru aftur fyrirliggjandi.
HIN GLÆSILEGA OG FORMFASTA CORONA
SEM ENDIST YÐUR ÆVILANGT.
★ Vélin er sambyggð töskunni.
★ Lokið laust.
★ Dálkastillir.
★ Þrískiptur borðastillir.
★ Blaðlengdarnál.
★ Frjálst línubil.
★ Einfalt og tvöfalt línubil.
★ Ásláttarstillir.
★ Blaðhvíld.
★ Vagnbreidd 25 sm.
★ Fveir litir: gulbrún, blá.
★ Létt, aðeins 3,5 kg.
ÁRS ÁBYRGÐ OG FULLKOMIN VIÐGERÐAR-
ÞJÓNUSTA.
VÉLADEILD S.Í.S.
ÁRMÚLA 3, SÍMI 38900
VÉLRITINN
KIRKJUSTRÆTI 10, SÍMI 13971
KAUPFÉLÖGIN VÍÐA UM LAND
MH
Framhald af bls. 1.
yrðu valinkunnir menn fengnir tjl
þess. Þá gat menntamálaráðherra
þess, að ætlunin væri að taka upp
vísi að valfrelsi á námi í hinum
nýja menntaskóla, svo sem tíðk
aðist víða um lönd. Kvaðst hann
vona að það yrði ekki eingöngu
til að auka sérhæfingu meira e.n
orðið væri, heldur glæða hæfileika
nemenda á fleiri en einu sviði. -
Hver einstakur á ekki að vera ein
grein heldur klasi á meiði heildar
menningarinnar, sagði mennta-
málaráðherra.
Kennara hins nýja skóla hefur
verið áður getið hér í blaðinu.
Nemendur munu vera tæpl 160
talsins í vetur ,og skiptast j 6
bekkjardeildir. Sá háttur hefur
verið hafður á við skipulag Mennta
skólans við Hamrahlíð að ætla
hverri námsgrein sérstaka kennslu
stofu, en ekki hverri bekkjardeild
sem áður hefur tíðkazt Kennslu
stofur i hinum fyrstu áfariga eru
6 talsins. Þegar hefur verið haf
izt handa um framkvæmdir við
annan áfanga skólahússins. og
verður væntanlega hægt
að taka hann tjl notkunar að
noklcru leyti að ári. Þar verða
sérstakar kennslustofur fyrir
raunvísindagreinar o. fl.
BÆNDUR
HÖFUM FENGIÐ
VINNUSÓLIR FYRIR:
Skemmur
Hlöður
Gripahús og hvar sem
góðrar lýsingar er
þörf.
Vatnsþéttar, höggþétt
ar. Samþykktar af raf
fangaprófun ríkisins.
Pantanir óskast sóttar sem fyrst.
LÚÐVÍG GUÐMUNDSSON
LAUGAVEGI 3 — SÍMI 17775.