Tíminn - 01.10.1966, Side 16
VELSKÓAÐUR í GÖNGURNAR!
í þessum skrúða mátti sjá Karó í Neðra-Dal undir Eyjafjöllum nú á haustdögum þar
sem hann horfir til fjalla gegnum sólgleraugu, rétt fyrir göngur. Lambhúshettan
hefur löngum reynzt landanum skjólgóð, en vafasamt, að hún hafi oft yljað hunds-
eyrum. Fótabúnaðurinn mætti sjálfsagt vera liprari til fjallaferða, en Karó er sýni-
lega ekki á móti að reyna vaðstígvél vinar síns, Tryggva Ingólfssonar, er tók myndina.
A vísanafals mun minnka stór-
lega ef faríi er fram á ai selj-
endur sanni á sár heimiidir
- segir rannsóknarlögreglan í Reykjavík
HZ—Reykjavík, föstudag.
— Það er ekkert lát á ávís
anasvikunum, sagði fulltrúi í
ávísanadeild Seðlabankans,
er Tíminn hringdi í hann í
dag. Svo virðist sem þetta
hagkvæma greiðsluform, á-
vísanirnar, hafi misst gildi sitt
þegar það er misnotað svona
herfilega. Mikilla breytinga
er þörf á ávísanakerfinu. Það
ætti hiklaust að loka reikn-
Blaðburðarfólk óskast
til að bera blaðið út á eftirtöldum stöðum:
Sörlaskjól — Nesvegur — Kleppsvegur — Boga-
hlíð — Grænahlíð — Álftamýri — Laugarteigur
Hofteigur — Sigtún — Þórsgata — Lokastígur —
Laugarnesvegur — Safamýri.
Talið við afgreiðsluna.
Bankastræti 7,
sími 1-23-23.
ingum þeirra manna, sem eiga
ónæga innistæðu fyrir ávís-
ununum, sem berast.
Sömu sögu hefur rannsóknarlög
reglan að segjí, évísanafalsanirn-
ar hafa aldrei verið fleiri. Einn
rannsóknarlögreglumaðurinn vinn
ur eingöngu að því að uppiýsa
ávísanafalsanir. Helzu úrbætur til
þess að koma í veg fyrir falsan-
irnar, er skilyrðislaus heimting á
því að seljendur ávísana sanni á
sér heimildir með nafnskírteinum
eða öðrum skilríkjum eins og þeg-
ar fjölskyldubætur eru greiddar.
Helztu ástæður þess, að kaupend
ur ávísana biðja ekki um persónu-
skilriki er sú, að þeir telja selj-
endurna skirrast við og hreinlega
móðgast, sé farið fram á það. Það
er hins vegar alveg ástæðulaust
að óttast móðgun, þvi að í öl’.um
visðkiptum ber seljenda skylda til
að sanna á sér heimildir, sé farið
fram á það.
REYKJAVIKURHOTEL HÆKKA
EKKI HERBERGJAVERÐIÐ
FÍ ætlar heldur ekki að hækka fargjöldin
SJ-Reykjavík, föstudag.
Flest hótelin í Reykjavík og ná
grenni hafa ákveðið að hækka
ekki verð á herbergjum á næsta
ári. Aftur á móti hefur enginn
hótele'Sandi enn sem komið er,
treyst scr til að fastsetja verð
á máltíðum, þó að það va:ri injög
æskilegt, að erlendir ferðamcnn
gætu nú fengið vitneskju um verð
á máltíðum á sumri komanda. Til
að veSa upp á móti óbreyttu verði
á herbergjum hafa hóteleigendur
hækkað morgunverð um 10%.
Þessar upplýsingar komu fram
í viðtaldi Tímans við Ingvar M.
Árnason, fulltrúa hjá Flugfélagi
Islands, Hann sagði, að FÍ myndi
ekki hækka fargjöld milli landa
næsta sumar. Um þessar mundir
eru ferðaskrifstofur erlendis að
ganga frá ferðaáætlunum fyrir
næsta sumar, og gera má ráð fyrir
að útlendingar yfirleitt taki
ákvörðun um það í byrjun árs,
hvernig þeir ætli að verja suniar
leyfi sinu og því þurfa allar upp-
lýsingar varðandi kostnað og kjör
að liggja frammi eins fljótt og auð
ið er.
Flugfélagið hefur undanfarin ár
rekið á eftir viðkomandi aðilum
að koma upplýsingum er varða
Framhald á bls. 15
Sjónvarp um austan-
vert Norðurland
á næsta ári
SJ-Reykjavík, föstudag.
í viðtali við eitt Akureyrarblað
anna, segir Jón Þorsteinsson,
verkfræðingur, sjónvarpsins, að
samkvæmt áætlun sjónvarpsnefnd
ar frá þvi í marz 1964, sé gert
ráð fyrir að setja upp stóran
sendi á Skálafelli austan Reykja-
Framhald á bls. 15.
WA >j
1800nemendur í
menntaskólunum
FB-Reykjavík, föstudag.
Nemendur í menntaskólunum
fjórum verða um 1800 talsins í
vetur. Menntaskólinn við Ilamra-
hlíð heíur þegar verið settur í
fyrsta sinn, og eins og komið hef-
ur fram í fréttum verða nemend-
ur 150—160 talsins og kennarar
níu talsins. Á morgun, laugardag,
verður Menntaskólinn í Reykja-
vík settur í Dómkirkjunni klukk-
2. Menntaskólinn á Akureyri verð
ur settur kl. 4 á sunnudaginn á
Sal skólans, og Mcnntaskólinn að
Laugarvatni verður settur klukk-
an hálf fimm á sunnudaSinn.
í Menntaskólanum í Reykjavík
verða 987 nemendur í vetur, en
voru á síðasta vetri 1060. Kenn-
arar við skólann verða milli 70
Framhald á bls. 15.
Kjötvinnsia KEA
tekurbrátt tilstarfa
HZ-Reykjavík, föstudag.
Eftir viku mun KEA á Akur-
HREPPAMENN SÆKJA HRUTA
NORÐUR í MÝVATNSSVEIT
AK-Reykjavík, föstudag.
Fyrir nokkrum dögum
brugðu fjórir Hreppamenn,
þeir Helgi Haraldsson bóndi á
Hrafnkelsstöðum, Magnús Sig-
urðsson í Breiðholti, Magnús
Gunnlaugsson á Miðfelli og
Hermann Sigurðsson, Lang-
holtskoti, sér norður Kjói a
Rússa-jeppa með kerru aftan
í og héldu allt norður í Mý-
vatnssveit að sækja sér hrúta.
Slík hrútakaup landsfjórð
unga eða héraða milli eru nú
torveld vegna sauðfjárveiki-
varna, og eru Íítt leyfð, en
ekki mun hafa verið talið fært
að neita Helga á Hrafnkels
stöðum sem hefur haft fjár-
ræktarbú í fjóra áratugi, um
þessa nauðsyn. í Mývat.nssveit
keyptu Hreppamenn sex lamb-
hrúta væna og af góðum stofn-
um, þrjá ættaða af fjárstofni
Gríms á Álandi í Þistilfirði en
hina af mývetnsku kyni Var
síðan haldið suður yfir Kjö’
aftur, og gekk ferðin vel.
Helgi sagði, að eitt hið hættu
legasta fyrir fjárræktina værí
það, hve skyldleikarækt yrði
mikil í heimastofni þegar bænd
ur fengju ekki hrúta að árum
saman. Fjórtán ár væru nú síð
an Hreppamenn fengu fjar
stofn sinn að norðan, og hefði
því verið orðin brýn nauðsyn
á að fá nýtt blóð í hann aí
sömu fjárkynjum.
eyri hefja starfrækslu kjötvinnslu
stöðvar, sem nú er senn að verða
fullgerð. Upphaflega var ráð fyrir
því gert, að vinnslan yrði hafin
snemma á þessu ári en vegna fjár-
magnsskorts og afgreiðslutafa á
vélum, hefur dregizt að koma stöð
inni í gagnið.
Byggt hefur verið nýtt hús und-
ír stöðina og er það um 10 þús.
fermetrar og var kostnaður vjð
það um 25 millj. kr.
Kjötvinnslustöðinni er ætlað að
vinna úr hvers konar kjöti. eink-
um pylsur og álegg, en einnig
mun hún sjóða niður kjöt fyrir
innlendan markað.
Fyrst í stað munu þrjátíu til
fjörutíu manns starfa við fyrir-
tækið. Blaðamönnum verður boð-
ið að skoða Kjötvinnslustöðina
seinni hluta næsta mánaðar. þeg-
ar framleiðslan verður feomin í
fullan gang.
Maður
fyrir
borð
HZ-reykjavík, föstudag.
Það sviplega slys varð í
morgun að skipverja tók út
af togaranum Agli Skalla-
grímssyni er hann var á leið
inn til Reykjavíkur af veið-
um fyrir Vestfjörðum. Sið-
ast sást til skipverjans um
sexleytið í morgun en þá
var Egill Skallagrímsson
staddur við Snæfellsnes. Var
mannsins ekki saknað fyrr
en nokkrum klukkustund-
um síðar og var þá orðið
of seint að snúa við. Ekld
hefur tekizt að ná til að-
standenda skipverjans, þar
setm þeir búa úti á landi og
verður því eigi unnt að
skýra frá nafni hans að svo
stöddu.