Vísir - 17.09.1975, Blaðsíða 5
5
Vlsir. MiOvikudagur 17. september 1975.
TLÖND í MORGUN Ul MORGUN UTLÖND I MORGUN ÚTLÖND Umsjón Guðmundur Pétursson
Hinn nýi forseti
Argentínu hreins-
ar í stjórninni
William Colby, forstöðu-
maður leyniþjónustunnar,
veifaði einni slíkri fyrir
framan rannsóknarnef nd
Bandaríkjaþings við yfir-
heyrslur i gær.
Þetta svarta morðtól gat spýtt
úr sér örsmáum skammti af
bráðdrepandi skelfiskseitri. Nær
enginn möguleiki er talinn vera á
þvi, að banamein fórnardýrs
slikrar byssu yrði uppgötvað.
Fyrst Colby....
Colby var yfirheyrður vegna
leynibirgða afeitri, sem CIA lum-
ar á.Upp komst um birgðir þessar
nýlega, en árið 1970 fyrirskipaði
Nixon þáverandi forseti Banda-
rikjanna, að eiturbirgðir þessar
skyldu upprættar og eyðilagðar.
Forstjóri CIA sagði þingmönn-
um i gær, að leyniþjónustan hefði
á átján ára bili varið um þrem
milljónum dollara til rannsókna
og tilrauna með banvænar eitur-
regundir og vopn til að beita eitr-
inu. Hann sagði, að á rannsóknar-
stofum leyniþjónustunnar væri að
finna 37 eiturtegundir af þessu
tagi, en þær mundu ekki allar
falla undir fyrirmæli forsetans
frá 1970.
....svo Helms
1 dag mun nefndin yfirheyra
Richard Helms, sem veitti CIA
forstöðu 1970, en er nú ambassa-
dor USA i íran.— Hann verður
væntanlega spurður, hverjar ráð-
stafanir hann hafi gert til þess, að
fyrirmælum forsetans yrði hlýtt,
um að eyðileggja eiturbirgðirnar.
Helms kom reyndar i vitna-
stúkuna stuttlega i gær, og skýrði
frá þvi, að hann og tveir starfs-
bræður hans hefðu ákveðið að
verða ekki við þessum fyrirmæl-
um, heldur geyma i kyrrþey
eiturbirgðarnar.
Á meðan rannsóknarnefnd
Barry Goldvvater, öldunga-
deildarþingmaður, skoðar I
krók og kring eiturörvabyssu
CIA, sem William Colby (t.h.)
iagði fyrir þingnefndina i gær,
þegar hann var yfirheyrður.
Smiði vopnsins minnir I
mörgu á 45 cal. sjálfvirka
skammbyssu.
Richard Heims, var yfirmaöur CIA árið 1970, þegar Nixon fyrir-
skipaði að eiturbirgðirnar skyldu eyðilagðar. Hann kemur fyrir
nefndina i dag og gerir grein fyrir, hvi fyrirmæium var ekki hlýtt.
öldungadeildarinnar, sem starfað
hefur nú i átta mánuði að
athugunum á starfsháttum CIA,
vinnur við yfirheyrslur forstjóra
stofnunarinnar, leitar samsvar-
andi rannsóknarnefnd fulltrúa-
deildar þingsins eftir þvi, hvort
Ford-stjórnin vill láta af hendi við
hana leyniskjöl um störf ClA.
Stjórnin hafði heimtað aftur
leyniskjöl, sem nefndin hafði að-
gang að, eftir að þvi var haldið
l'ram, að öryggi landsins væri
stefnt i voða með birtingu slikra
skjala.
Þingnefndin hefur visað siikum
mötbárum á bug og hefur með
dómstefnu krafizt þessara skjala
aftur, en veitt forseta frest þar til
á morgun til að skila skjölunum
3
Friðriks Ólafssonar og Jan Tin-
mans frá Hollandi, en hún fór i
bið. Gat brugðið til beggja vona
um hana.
Gherorghiu frá Rúmeniu hefur
ekki unnið skák i mótinu, en var
nærri þvi i gær á móti Keene frá
Englandi. Nema Keene krafðist
allt i einu jafnteflis, vegna þess að
þrivegis hefði komið upp sama
staðan i skákinni. Eftir að farið
hafði verið yfir leikina, úrskurð-
aði skákstjórinn, að svo hefði ver-
ið.
Næstir á eftir Geller eru Hubn-
er (V-Þýzkalandi) með 8 vinn-
inga, Bronstein (USSR), Hort
(Tékkósl.) og Smysslov (USSR)
með 7 1/2 vinning, Tinman 7 og
biðskák. Sax (Ungv.land) 7 vinn-
inga. Kavalek (USA) 6 1/2 vinn-
ing og Friðrik ólafsson með 6
vinninga og biðskák.
Siðasta umferð verður ekki
tefld fyrr en á morgun, en i dag
eiga keppendur fri nema Friðrik
og Tinman, sem verða að útkljá
biðskák sina.
Italo Luder, sem tekið
hefur við forsetaembætti
Argentínu af Maria Estela
Peron til bráðabirgða,
hefur þegar hafizt handa
viðað skipta um ráðherra í
rikisstjórninni — aðeins
þrem dögum eftir forseta-
skiptin.
Þykir hinn nýi forseti bera sig
djarft að miðað við, að hann er
sagður eiga að gegna forsetaem-
bættinu aðeins um stundarsakir,
meðan Maria Peron tekur sér
hvild. Vakna grunsemdir hjá
mönnum um, að Luder viti sig
öruggan um að halda forsetaem-
Maria Estella Peron — hefur
hiín kvatt fyrir fulit og allt sem
forseti Argentinu? Nýiforsetinn
hagar sinum gjörðum a.m.k.
eins og hann eigi ekki aðeins að
leysa Peron af, heldur taka við
fyrir fullt og allt.
bættinu lengur en rétt til bráða-
birgða.
Italo Luder setti nýjan ráðherra
yfir innanrikismálin og annan i
stað varnarmálaráðherrans, sem
verið hefur.
Nýi innanrikisráðherrann heit-
ir Robledo og leysir af hólmi
Vicente Damasco offursta, en til-
nefning Damasco fyrir mánuði
hleypti illu blóði i ráðamenn hers-
ins á sinum tima.
Það varð aftur til þess að
skipaður var nýr æðstráðandi
hersins, Jorge Videla, hershöfð-
ingi, sem sagður er leggja mjög
hart að stjórninni að gefa sér leyfi
til að sleppa hernum lausum á
skæruliða vinstrisinna i landinu.
Þykir reyndar liklegt, að Luder
forseti láti undan kröfum hersins
um að taka hryðjuverkamenn
fastari tökum. Skæruliðar hafa
vaðið uppi með hryðjuverkum,
morðum, sprengingum og
mannránum i Argentinu um all-
langa hrið.
Verst hefur ástandið verið i
iðnaðarborginni, Cordoba, þar
sem 443 pólitisk morð hafa verið
framin það sem af er þessu ári.
verið kynntur undir ýmsum nöfn-
um I Bretlandi, Þýzkalandi, Japan
og Braziliu. Þessi bill er minni en
Vega, minnsti meölimur Chevro-
letfjölskyldunnar hingað til.
Tveggja dyra Chevett,e á aö
kostaá Bandarikjamarkaði 434.850
kr., og fjögurra dyra billinn nokkr-
um þúsundum dýrari.
Flugslysið var misfök
Austur-þýzk fréttastofa heldur
þvi fram, að flugslysið i Leipzig
fyrir tveim vikum hafi orðið vegna
mannlegra mistaka. En þau mistök
kostuðu 26 manns lifið.
Með flugvélinni voru vestur-
þýzkir gestir á leið til haustvöru-
sýningarinnar i Leipzig. Flugvélin
hrapaði andartaki, áöur en hjól
hennar fengu snert flugbrautina i
lendingu. Hún hafði rekizt á lof tnet.
Vélinni hafði veriö flogið of lágt
inn til lendingar.
Var mammótinn
veiddur í gildru?
Sovézkir visindamenn hafa fund-
ið leifar mammúts og fleiri dýra
fomaldar gaddfreðnar i jörðu I
Siberiu. Sýndist þeim ekki betur en
öll dýrin hefðu drepizt þarna á ná-
kvæmlega sama staö, vegna þess
að þau hefðu lent i veiðigildru.
Aðra skýringu gátu þeir aö minnsta
kostiekki fundiðá þessari tilviljun.
Sprenging í
kolanámu
Tuttugu og fimm námamenn eru
taldir af eftir sprengingu, sem varð
I kolanámu nyrzt i Taiwan i hafnar-
bænum Keelung.
Einn komst lifs af þeirra 26, sem
voru niðri i námunni, þegar
sprengingin varð. En hann liggur
milli heims og helju.
Var fangi
með Claustre
Vestur-þýzk útvarpsstöð útvarp-
aöi i gær áskorun læknis, sem verið
hafði fangi uppreisnarmanna i
Chad, til fyrrverandi fangavarða
sinna um að þeir þyrmdu lifi
franska fornleifafræðingsins,
Francoise Claustre.
Dr. Christopher Strawen var i
haldi hjá uppreisnarmönnum þar
til i júni. Hann var þvi samtlmis
Claustre. Vestur-þýzka stjórnin
fékk hann lausan með þvi að greiða
tvær milljónir marka i lausnar-
gjald fyrir hann.
1 bænakalli sinu i gær bað læknir-
inn Hissene Habre, foringja upp-
reisnarmanna, að hætta við aftöku
frú Claustre þann 23. september,
eins og hótað hefur verið.
Ekkja Chiang Kai-Shek, lelft-
toga þjóðernissinna, er heilsu-
tæp orðin, og verður aö ieita sér
lækninga. Hún vanrækti sjálfa
sig ineöan bóndi hcnnar iá veik-
ur. — Myndin hér er tckin af
henni viö jarðarför Chiang Kai-
Shek i april I vor.
Ekkja
Chiang
Kai-Shek
Ekkja Chiang Kai-Shek, fyrrum
leiðtoga þjóðernissinna á Formósu,
er á förum til Bandarikjanna að
leita sér lækninga.
Hin 74 ára frú Chiang segist hafa
átt viö veikindi að striöa síðustu tvö
árin og geti nú ekki dregið það
lengur að reyna að fá böt á þeim. —
Hún hefur ekki viljaö segja, hvaö
að henni ami, en Rauterfréttastof-
an telur sig hafa komizt á snoðir
um, að það sé krabbamein.
Vegna langvarandi veikinda
manns sins, sem lézt 5. april i vor,
hefur frú Chiang vanrækt að sinna
sinum eigin veikindum.